Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.10.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 25.10.2020, Blaðsíða 8
VIÐTAL 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25.10. 2020 Í raun má fullyrða að þjóðkirkjan eins og við þekkjum hana sé ekki til lengur. Það ríkir þöggun og ótti innan kirkjunnar og allt ber að sama brunni; kirkjustjórnin vill hafa alræðisvald yfir prestum og sóknum og frelsi boðunar er alvarlega ógnað. Því getum við ekki unað.“ Þetta eru stór orð en séra Óskar Ingi Inga- son, sóknarprestur í Ólafsvíkur- og Ingjalds- hólsprestakalli, stendur við þau. Hann segir hratt hafa sigið á ógæfuhliðina hjá kirkjunni á síðustu árum og getur ekki lengur orða bundist. Þungt hljóð er í presti þegar við setjumst niður á heimili hans í Ólafsvík á þessum annars milda og fallega haustmorgni. „Ég hef í raun þagað alltof lengi af ótta við að einhver skömm kæmi til með að falla á kirkjuna. Ég tek því skýrt fram að ég er ekki að gagnrýna kirkjuna sem slíka, heldur stjórn hennar. Okkur ber að lýsa upp það sem er í myrkrinu og ef ein- hver stofnun í samfélaginu á að þola að ljósinu sé beint að henni þá er það kirkjan. Þess vegna stíg ég fram sem uppljóstrari.“ – Hvernig heldurðu að því verði tekið? „Vel af þeim sem horfa á málið úr sömu átt og ég, það er prestum og sóknarnefndum. Kirkju- stjórnin mun á hinn bóginn taka þessu illa. Ég veit hvernig hún tekur á mönnum sem stinga á kýli. Þess utan hefur kirkjustjórnin engan áhuga á því að vernda sitt starfsfólk, eins og dæmin sanna.“ Tómlæti og sinnuleysi Óskar Ingi segir framkomu kirkjustjórnarinnar einkennast af tómlæti og sinnuleysi í garð presta sem sé algjört. „Við skiptum engu ein- asta máli og engin ástæða til að hafa samráð við okkur eða sóknirnar. Réttindi okkar eru að engu höfð, ef það hentar. Það er engin leið að skilja þessa framkomu öðruvísi. Er undarlegt að þetta ástand ræni mann gleðinni?“ Hann segir ástandið innan kirkjunnar með þeim hætti að dregið hafi mjög af fleiri prestum og sóknarnefndarfólki. „Nýlega sagði sóknar- nefndarformaður á héraðsfundi Vesturlandspró- fastsdæmis að væri hann ekki svona trúaður væri hann löngu búinn að segja sig úr þjóðkirkj- unni. Þögn fundargesta í kjölfarið sagði mér að margir hefðu íhugað það sama. Sjálfur hef ég misst marga góða sóknarnefndarmenn gegnum árin vegna þess að þeir hafa gefist upp á þessum vinnubrögðum kirkjustjórnarinnar. Sömu sögu er að segja víða um land. Vandinn er í grunninn þríþættur: Heimamenn skipta engu máli, ekkert samtal fer fram og ekki er hlustað á rök og ein- ræðistilburðir hafðir í frammi og það með sjálft fjöreggið, kirkjuna. Ég er ekki einn um þessa skoðun, ég hef talað við marga sem eru mér sammála, bæði presta og fólk í sóknarnefndum. Ég hef heyrt menn spyrja hvort söfnuðir geti sagt sig úr þjóðkirkjunni og veit til þess að einn burðugur söfnuður hið minnsta hefur rætt það mál alvarlega og skoðað að starfa sem fríkirkja.“ Ein birtingarmynd þessa tómlætis eru afleys- ingar presta, að sögn Óskars Inga. Sjálfsagt þyki að þeir leysi nágrannapresta af án þess að þiggja fyrir það greiðslu, þó að það brjóti á rétt- indum presta. „Þegar ég fór í veikindafrí í janúar fékk sá sem leysti mig af engar aukagreiðslur. Lög og réttindi skipta engu máli.“ Bíða eftir að komast á aldur Hann bendir einnig á að mæting á síðustu prestastefnu hafi verið óvenju dræm sem kall- aði á bréf frá biskupi, þar sem prestum var bent á að þeim bæri skylda til að mæta. – Hvernig stóð á þessu? „Ætli helsta skýringin sé ekki áhugaleysi og uppgjöf. Menn vita að engu tauti verður við kirkjustjórnina komið. Sjálfur hef ég hitt presta sem segja að þeir treysti sér ekki til að ræða kirkjustjórnina vegna heilsu sinnar. Þannig að þetta ástand er farið að hafa bein áhrif á heilsu presta; þeir eru komnir með kulnunareinkenni og fleiri kvilla. Sumir segjast bíða jafnvel eftir að komast á aldur til þess að geta sagt sig úr þjóðkirkjunni, telja dagana. Það er ekki vegna þess að þeir unna ekki söfnuðum sínum, heldur út af kirkjustjórninni. Eins og ég sé það þá er þetta að brjóta kirkjuna niður að innan – og það hrynur hratt af henni.“ Að þessu sögðu bendir Óskar Ingi á að frá- bært starf sé unnið í söfnuðunum vítt og breitt um landið og flestum prestum líði vel í sínu nær- umhverfi. „Grasrótin er að gera sitt besta en það er hart að henni sótt.“ Óskar Ingi tekur skýrt fram að með gagnrýni sinni sé hann ekki að ráðast á persónur, heldur kirkjustjórnina sem heild, það er kirkjuþing, kirkjuráð, biskupafund og Biskupsstofu. „Gagn- rýni mín nær til þessara aðila. Þarna er margt prýðisgott fólk að finna og ég er ekki að tala um persónurnar, heldur verkin,“ segir hann. Hann kveðst vera búinn að gefast upp á kirkjuþingi, eftir að hafa setið þar; engum til- gangi þjóni að berjast við vindmyllur á þeim vettvangi. Það hafi aðeins slæm áhrif á sálar- lífið. „Mín reynsla er sú að menn geri það sem þeim þóknast. Þeir segjast að vísu ekki gera það lengur en verkin segja aðra sögu. Í því sam- bandi nægir að nefna mál séra Úrsúlu Árna- dóttur, sem kærði biskup vegna skipunar í emb- ætti og hafði betur. Í því máli lá alltaf fyrir að reglur sem kirkjuþing setti stönguðust á við lög og vitað að biskup myndi lenda í vandræðum út af þeim. Það kemur skýrt fram í greinargerð að reglurnar voru settar til að koma í veg fyrir að biskup fái á sig sífelldar kærur vegna brota en velja á prest eftir hæfni og jafnréttislögum. Það voru sem sagt beinlínis settar starfsreglur sem stangast á við lög til að koma í veg fyrir að prestar geti sótt rétt sinn þegar brotið er á þeim. Vitandi betur setti kirkjuþing samt regl- urnar. Fyrir vikið má draga ráðningu flestra presta undanfarin ár í efa. Menn hafa til dæmis verið færðir til án auglýsingar, sem er heimilt til eins árs en ekki lengri tíma. Við sameiningar prestakalla, þar sem áður voru nokkrir sókn- arprestar en nú aðeins einn sóknarprestur og nokkrir prestar, er augljóslega um ný embætti að ræða, en samt eru prestar fluttir í þau emb- ætti án lagastoðar til fimm ára eða ótímabundið. Þegar spurt er um lagastoðina hefur lögfræð- ingur á vegum kirkjunnar svarað: „Hver ætlar að gera ágreining, ætlar þú að gera ágreining?“ Ekki verður annað séð en að menn séu vísvit- andi að brjóta lög og reglur. Kirkjan hefur tap- að mörgum kærumálum á síðustu árum og misserum en samt þarf enginn að sæta ábyrgð og ekki breyta vinnulagi.“ Alþingi tryggi lýðræði Óskar Ingi bendir á, að nú síðast hafi kirkjuþing samþykkt að vísa til Alþingis nýjum drögum að „Ég hef í raun þagað alltof lengi af ótta við að einhver skömm kæmi til með að falla á kirkjuna. Ég tek því skýrt fram að ég er ekki að gagnrýna kirkjuna sem slíka, heldur stjórn hennar. Okkur ber að lýsa upp það sem er í myrkrinu og ef einhver stofnun í samfélaginu á að þola að ljós- inu sé beint að henni þá er það kirkjan,“ segir sr. Óskar Ingi Ingason. Morgunblaðið/Orri Páll Endurheimtum kirkjuna okkar! Prestskapur er hans köllun en eftir 25 ár í starfi treystir séra Óskar Ingi Ingason, sóknarprestur í Ólafsvík, sér ekki til að halda áfram nema róttækar breytingar verði gerðar á verklagi kirkjustjórnarinnar sem hann segir einkennast af samráðsleysi og einræðistilburðum. „Þess vegna stíg ég fram sem uppljóstrari.“ Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’Við skiptum engu einastamáli og engin ástæða til aðhafa samráð við okkur eða sókn-irnar. Réttindi okkar eru að engu höfð, ef það hentar. Það er engin leið að skilja þessa framkomu öðruvísi. Er undarlegt að þetta ástand ræni mann gleðinni?

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.