Morgunblaðið - 07.11.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
www.kofaroghus.is - sími 553 1545
359.000 kr.
Tilboðsverð
518.000 kr.
Tilboðsverð
416.500 kr.
Tilboðsverð
34mm
34mm44mm
Ítarlegar upplýsingar og teikningar ásamt ýmsum öðrum fróðleik
má finna á vef okkar
Afar einfalt er að
reisa húsin okka
r
Uppsetning teku
r aðeins einn da
g
BREKKA 34 - 9 fm
STAPI - 14,98 fm NAUST - 14,44 fm
25%
afsláttur
25%
afsláttur
30%
afsláttur
TILBOÐ Á GARÐHÚSUM!
(SÍÐUSTU HÚSIN 2020) VANTAR
ÞIGPLÁSS?
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Barnaverndarnefndum bárust 1.550
tilkynningar um vanrækslu barna
þar sem foreldrar voru í áfengis- og/
eða fíkniefnaneyslu á fyrstu níu
mánuðum þessa árs. Þetta eru mun
fleiri tilkynningar en í sömu mán-
uðum árin á undan.
Alls bárust barnaverndarnefndum
634 tilkynningar frá áramótum til
loka septembermánaðar um líkam-
legt ofbeldi gagnvart börnum eða
þegar grunur vaknar um slíkt og eru
það 31,8% fleiri tilkynningar en bár-
ust fyrstu níu mánuði seinasta árs.
Þetta kemur fram í nýju yfirliti
Barnaverndarstofu yfir sískráningu
á tilkynningum sem nefndirnar hafa
fengið. Eins og fram kom nýlega í
Morgunblaðinu fjölgaði tilkynning-
um til barnaverndarnefnda í ágúst
og september en Barnaverndarstofa
hefur nú birt sundurliðað heildar-
yfirlit yfir fyrstu níu mánuði ársins.
Þar kemur fram að á því tímabili
bárust nefndunum samtals 9.570 til-
kynningar og fjölgaði þeim um
14,3% frá sama tíma í fyrra. Alls
vörðuðu þær 7.552 börn.
Skýrslutökum í Barnahúsi
hefur fjölgað verulega
Einnig kemur í ljós að skýrslutök-
um í Barnahúsi hefur fjölgað. Rann-
sóknarviðtölum fyrstu níu mánuði
ársins fjölgaði um tæp 40% frá sama
tíma í fyrra og voru 228 í ár.
„Má skýra stóran hluta þessarar
aukningar vegna aukins fjölda
skýrslutaka en skýrslutökur fyrir
dómi voru 149 á fyrstu níu mánuðum
ársins 2020. Er það fjölgun frá ár-
unum á undan þegar þær voru rétt
um 90 hvort ár fyrir sig. Fjöldi barna
sem fóru í greiningar- og meðferð-
arviðtöl í Barnahúsi á fyrstu níu
mánuðum ársins 2020 var 99 börn.
Er það fjölgun frá árunum á undan,“
segir í umfjöllun Barnaverndar-
stofu.
2.175 tilkynningar bárust um van-
rækslu drengja á fyrstu níu mánuð-
um ársins sem er umtalsverð fjölgun
frá í fyrra þegar þær voru 1.733. Til-
kynningum um vanrækslu stúlkna
hefur einnig fjölgað frá í fyrra, voru
þá 1.808 talsins en 1.975 á þessu ári.
Heldur fleiri tilkynningar bárust
um ofbeldi gagnvart stúlkum en
drengjum eða alls 1.389 vegna
stúlkna og 1.356 vegna drengja.
Tilkynningar um kynferðislegt of-
beldi gagnvart drengjum voru 99 á
fyrstu níu mánuðum ársins og fækk-
aði lítið eitt frá í fyrra en tilkynn-
ingar vegna kynferðislegs ofbeldis
gagnvart stúlkum voru miklu fleiri
eða alls 283 á þessu ári og fjölgaði
verulega frá sama tímabili í fyrra og
árinu þar á undan. Þær voru 220 í
fyrra og 213 á sama tíma 2018.
Tilkynningum um áhættuhegðun
barna fækkaði lítið eitt á þessu ári og
voru alls 2.549.
Fram kemur að umsóknum um
meðferðarúrræði á vegum Barna-
verndarstofu hefur fjölgað á þessu
ári og voru alls 117 talsins.
Nágrannar tilkynna oftar
Langflestar tilkynningar til
barnaverndarnefnda koma frá lög-
reglu eða alls 3.717 á fyrstu níu mán-
uðum ársins en tilkynningum ná-
granna hefur fjölgað mikið á þessu
ári. Nágrannar sendu barnavernd-
arnefndunum 802 tilkynningar á
fyrstu níu mánuðum ársins en þær
voru 574 á sama tíma í fyrra.
Fleiri tilkynntu vanrækslu barna
Tilkynningum til barnaverndarnefnda vegna kynferðislegs ofbeldis gagnvart stúlkum fjölgaði á
fyrstu níu mánuðum ársins 31,8% fleiri tilkynningar um líkamlegt ofbeldi á börnum en í fyrra
Ástæður tilkynninga til barnaverndarnefnda
Fjöldi tilkynninga fyrstu 9 mán. 2018-2020 Tilkynningar vegna kyn-
ferðislegs ofbeldis fyrstu
9 mánuði 2018-2020
10.000
8.000
6.000
4.000
2.000
0
300
250
200
150
100
50
Drengir Stúlkur
H
ei
m
ild
: B
ar
na
-
ve
rn
da
rs
to
fa
2018 2019 2020 2018 2019 2020
2.578
2.185
2.393
1.838
7.505
8.370
9.570
213
220
283
116
105 99
3.185 3.541
2.549
2.745
4.151
Vanræksla Ofbeldi Áhættuhegðun barna
Heilsa eða líf ófædds barns í hættu
Logi Már Einarsson var í gær endurkjörinn formaður
Samfylkingarinnar með 96,45% atkvæða. Hann var einn í
framboði en kjörið fór fram á rafrænum landsfundi
flokksins sem var settur síðdegis í gær.
Landsfundur Samfylkingar stendur yfir í tvo daga og
eru yfir eitt þúsund fulltrúar skráðir á hann. Mesta
spennan er vegna kjörs varaformanns en í framboði eru
Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarfulltrúi og núverandi
varaformaður, og Helga Vala Helgadóttir alþingismaður.
Úrslit í kjörinu verða kynnt fyrir hádegi í dag.
„Ég lofa ykkur því að rísa undir þeirri ábyrgð sem mér
er falin – að leiða flokkinn inn í mikilvægar kosningar eft-
ir tæpt ár,“ sagði Logi Einarsson í ræðu eftir að nið-
urstöðurnar í formannskjöri voru ljósar.
„Á dauða mínum átti ég frekar von fyrir nokkrum ár-
um en að standa hér í dag. En hér er ég og er ótrúlega
glaður yfir því að lífið hafið borið mig hingað, kynnt mig
fyrir ykkur og í starf fyrir stjórnmálahreyfingu sem ég
brenn fyrir,“ bætti hann við.
Logi var endurkjörinn
Landsfundur Samfylkingar settur í gær Logi Einarsson
endurkjörinn formaður Spenna í varaformannskjöri í dag
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Endurkjörinn Logi Einarsson var ánægður með örugga
kosningu sína í embætti formanns Samfylkingarinnar.
Karl og kona á þrítugsaldri liggja á
sjúkrahúsinu á Akureyri eftir að bíll
fór út af veginum við bæinn Ytri-
Bægisá í Hörgárdal á þriðja tím-
anum í gær. Bíllinn valt inn á nær-
liggjandi tún þar sem kviknaði í hon-
um. Eins og sjá má á meðfylgjandi
mynd var talsverður viðbúnaður á
staðnum. Slökkvistarf gekk vel en
nokkur ummerki voru eftir slysið.
Varðstjóri hjá lögreglunni á Norð-
urlandi eystra sagðist í gærkvöld
ekki hafa frekari upplýsingar um líð-
an fólksins en bíllinn er ónýtur.
Manninum tókst að komast út úr
bílnum af sjálfsdáðum en konan
vankaðist og þurfti að hjálpa henni
út.
Bílnum var ekið í norðurátt þegar
hann fór út af veginum. Veginum var
lokað vegna vettvangsrannsóknar
en hann var opnaður aftur í gær-
kvöldi. Lögregla gat í gær ekki veitt
neinar upplýsingar um orsakir slyss-
ins en sagði rétt að fram kæmi að
ekki hefði verið hálka á vettvangi.
freyr@mbl.is Morgunblaðið/Þorgeir Baldursson
Tvennt er
slasað eft-
ir bílslys