Morgunblaðið - 07.11.2020, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 07.11.2020, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2020 er bæði spennandi og ógnvekjandi Bókin fæst í Eymundsson UNGMENNABÓKIN Birta – landssamtök foreldra/forráðamanna sem misst hafa börn/ungmenni skyndilega, verða með fræðslu- erindi þriðjudaginn 10. nóvember nk. kl. 20:00. Hrannar Már Ásgeirs Sigrúnarson fjallar af eigin reynslu um skyndilegan barnsmissi og þann styrk sem hægt er að finna eftir slíkt áfall. Hrannar ætlar að leiða okkur inn í komandi jólahátíð og velta upp áskorunum sem foreldrar geta staðið frammi fyrir. Erindinu verður streymt á netinu. Nánari upplýsingar á facebook-síðu og vefsíðu samtakanna www.birtalandssamtok.is Neyðarsími samtakanna er 832 3400. Hefur þú misst barn? Vinnueftirlitið rannsakar nú tildrög þess að byggingarkrani féll á bygg- ingu við Mosagötu í Urriðaholti. Óhappið varð síðdegis í fyrradag en frekari upplýsingar verða ekki veittar um málið að svo stöddu. Þrír kranar og pallalyfta voru not- uð til að tryggja svæðið eftir að kraninn féll saman á þak hússins og yfir bílastæði á fjærhlið þess, eins og myndin hér til hliðar sýnir. Vindasamt var á höfuðborgar- svæðinu þegar óhappið varð. Álíka slys varð í Urriðaholti ný- verið en hverfið er í uppbyggingu. Þannig féll krani á einbýlishús við Hraungötu 4. janúar síðastliðinn. Við það urðu meðal annars skemmd- ir á þaki hússins. Féll saman í hvassviðri Fram kom í frétt á mbl.is að vont veður hefði verið víða um land þegar slysið varð og náði það hámarki um hádegisbilið. En kraninn var sagður hafa fallið á húsið rétt fyrir hádegi. Þá kom fram í Morgunblaðinu 18. apríl 2017 að legið hafi við stórslysi er byggingarkrani féll á hús í Ásholti í lok árs 2015 en þá var vonskuveður. Snemma sama ár féll byggingar- krani við Lyngás 1 í Garðabæ við sambærilegar aðstæður, að því er fram kom í sömu frétt. Af öðrum dæmum má nefna að byggingarkrani féll yfir nýbyggingu í Hafnarstræti, rétt við pylsuvagn- inn Bæjarins bestu, í lok september 2016. Fram kom á mbl.is að tildrög slyssins hefðu verið þau að stór stafli af timbri féll úr krananum skömmu áður en hann hrundi niður. Sýnt þótti að átt hefði verið við öryggisbúnað sem átti að varna því að kraninn lyfti of þungu hlassi og félli niður. baldura@mbl.is Morgunblaðið/SES Féll saman í hvassviðri Mildi þykir að ekki urðu slys á fólki þegar kraninn féll saman í Urriðaholti í fyrradag. Enn eitt kranaslys í hvassviðri  Vinnueftirlitið rannsakar hrun byggingarkrana við Mosagötu í Urriðaholti  Nokkur sambærileg slys hafa orðið á höfuðborgarsvæðinu á síðustu árum Siguður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Fyrir íbúa, vegfarendur og okkur sem störfum í framlínu sveitarfé- lagsins eru aðstæður nú hálfgerður höfuðverkur. Lausaganga hrossa er ekki vandamál hér í sveit nema í undantekningar- tilfellum,“ segir Kristófer Tómas- son, sveitarstjóri í Skeiða- og Gnúpverja- hreppi. Sveitar- stjórn þar lýsti á síðasta fundi sín- um þungum áhyggjum af lausagönguhrossum sem undanfarið hafa gjarna verið á og við Þjórsárdaldsveg, á móts við afleggjarann að bæjunum Minna- Núpi og Stóra-Núpi. Hrossin hafa sloppið úr girðing- um ítrekað og ekki hefur tekist að hafa upp á meintum eigenda þeirra, en hans skylda væri að gera úrbæt- ur. „Beitiland er í knappara lagi og girðingar lélegar. Hrossin eru ekki í það slæmu ástandi að Matvæla- stofnun skipti sér af þeim. Girðing- arnar eru lélegar en ekki svo að Vegagerðin hafi afskipti af málinu. Það er hálftíma akstur fyrir lög- reglu að koma á staðinn. Þetta veit fólk og því hafa vegfarendur og ná- grannar oftar en ekki lagt sig í hættu við að koma hrossunum af veginum. Fram til þessa hefur ekki verið ástæða til að banna lausa- göngu búfjár í sveitarfélaginu en nú virðist þörf á því,“ segir Kristófer. Á veginum í skammdegi Mikil slysahætta stafar af hrossa- stóðinu, að sögn Kristófers. Málum er þannig háttað að þegar ekið er til suðurs og vesturs fram umræddan veg innan úr Þjórsárdal er komið að blindhæð rétt áður en komið er að fyrrgreindum afleggjara að Núps- bæjunum. Séu hrossin á veginum hafi ökumenn lítinn sem engan fyr- irvara til að bregðast við, beygja frá eða stöðva bílinn. Ekki er þá gert lítið úr hættunni sem er til staðar þegar ekið er úr hinni áttinni „Sér- staklega er þetta bagalegt núna þegar svartasta skammdegið með öllum sínum veðrabrigðum hellist yfir,“ segir sveitarstjórinn. Hefur sveitarstjórn falið honum og Björg- vin Skapta Björgvinssyni oddvita að hafa upp á eigandanum og koma skikki á málið. „Oft fylgja svona málum laga- flækjur og leiðin að markinu er alls ekki einföld sé ekki vilji eigenda bú- penings til staðar,“ segir Kristófer. Vandi í Rangárþingi eystra Mál af svipuðum toga og í Skeiða- og Gnúpverjahreppi eru í deiglu í Rangárþingi eystra. Þar telur samgöngu- og umferðarnefnd að vegna aukins umferðarþunga og hættu verði ekki hjá því komist að setja á bann við lausagöngu í sveit- arfélaginu, sem nær m.a. yfir Fljótshlíð, Landeyjar og Eyjafjöll. Er skorað á sveitarstjórn að koma þessu banni á, en jafnframt leysa úr álitaefnum um bótaskyldu og við- hald girðinga. Ástæða er til að banna lausagöngu  Hrossastóð eru til vandræða við Þjórsárdalsveg  Mikil slysahætta við blindhæðina  Höfuðverkur, segir sveitarstjóri  Vegfarendur og grannar leggja sig oft í hættu  Úrbætur hlutverk eigenda Morgunblaðið/Sigurður Bogi Klárar Sprett úr spori á þjóðveginum sem skapar bæði vandamál og hættu. Kristófer Tómasson „Þetta er illa gert gömlum manni,“ segir Árni Bergmann, rithöfundur og fv. ritstjóri Þjóð- viljans. Um vika er síðan Árni varð þess var að reiðhjól hans var horfið frá Hulduhólum í Mosfellsbæ, hvar hans annað heimili er. – Þetta er um margt kyndugt; líkt því að handbolta væri stolið frá Guðjóni Val Sigurðssyni! Árni hefur í ára- tugi farið flestra sinna ferða á reiðhjóli og aldrei tekið bílpróf. Er í raun merkisberi samgöngumáta sem æ fleiri tileinka sér. „Stýrið er ryðgað,“ segir Árni um hjólið góða sem hann væntir þess að endurheimta. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lét fyrr í vik- unni þau boð út ganga að verið væri að koma í réttar hendur munum sem lagt var hald á við húsleit í Mosfellsbæ. „Ég þarf að komast í samband við lögregluna og athuga hvort hjólið leynist þar.“ Sitt fyrsta reiðhjól eignaðist Árni tólf ára í Keflavík. Þegar hann kom heim frá námi í Rúss- landi 25 ára gamall byrjaði hann aftur að hjóla. Hefur síðan þá – í 60 ár – notað reiðhjólið til þess að komast milli staða og oft haft vindinn í fangið, í tvöfaldri merk- ingu. „Ég þakka hjólreiðunum það að vera enn við ágæta heilsu, 85 ára gamall,“ segir Árni. sbs@mbl.is Farskjóta stolið frá frægum hjólamanni Árni Bergmann Heilbrigðisráðuneytið hefur óskað eftir fjárveitingu á fjáraukalögum til að koma til móts við hjúkrunar- heimilin vegna aukins kostnaðar vegna kórónuveirufaraldursins. Samtök fyrirtækja í velferðarþjón- ustu hafa haldið því fram að stjórn- völd ætli ekki að bæta þennan kostnað þótt stjórnvöld hafi gefið yfirlýsingar um annað, að sögn ráðuneytisins. Sjúkratryggingar hafa óskað eft- ir gögnum um þennan kostnað frá hjúkrunarheimilunum. Stefnt er að uppgjöri þegar rekstrarniður- stöður ársins liggja betur fyrir. Þegar fullnægjandi upplýsingar liggja fyrir munu Sjúkratryggingar Íslands meta gögnin og afgreiða. Bæta auka- kostnað  Hjúkrunarheimili beðin um gögn Morgunblaðið/Sigurður Bogi Hjúkrunarheimili Aukinn kostn- aður kom til vegna faraldursins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.