Morgunblaðið - 07.11.2020, Side 6

Morgunblaðið - 07.11.2020, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2020 Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri Það varð algjör sprenging um helgina, við létum vita af því á föstudagskvöldið að hjá okkur væri hægt að kaupa andlitsgrímur og það bókstaflega rigndi inn pöntunum,“ segja þær Anna Guðný Helgadóttir og Svava Daðadóttir sem eiga og reka Litlu saumastofuna við Brekkugötu 9 á Akureyri. Þær hafa rekið fyrirtækið undanfarin sex ár og hafa í nógu að snúast alla daga. „Við höfum aðeins þurft að van- rækja okkar föstu viðskiptavini þessa viku og þeir hafa sýnt því skilning. Við settum grímusauminn í forgang enda fengum við alveg óskaplega mikið af pöntunum, eig- inlega miklu fleiri en við áttum von á þegar við ákváðum að fara út í þetta. Viðtökurnar fóru fram úr björtustu vonum,“ segja þær stöll- ur. Áður höfðu þær saumað grímur fyrir sig sjálfar, ættingja og vini. Þegar hertar sóttvarnareglur vegna kórónuveirunnar tóku gildi um liðna helgi var sett á öflugri grímuskylda sem m.a. náði til barna og ung- menna í grunnskólum. Sauma frá sjö til sjö Þær Anna og Svava nýttu laugar- daginn síðasta í að leita að og út- vega efni sem hentaði í grímur og segja það hafa tekist vonum framar að finna viðurkennt efni. Það kom m.a. af höfuðborgarsvæðinu og víð- ar. Á sunnudeginum settust þær við saumaskapinn og unnu af kappi við grímusauminn og hið sama má segja um alla vikuna; unnið var á Litlu saumastofunni frá klukkan sjö á morgnana til 19 á kvöldin. Ætt- ingjar og vinir hafa lagt hönd á plóg og tekið að sér afgreiðslu pantana, svarað í síma og sinnt tilfallandi verkefnum svo þær geti einbeitt sér að saumaskapnum. „Það er ómetan- legt að fá slíka aðstoð,“ segja þær. „Þetta hefur verið mikil törn, en við erum um það bil að ná utan um þetta, afgreiðslutíminn er ekki lang- ur. Við náum samt enn ekki að sauma neitt á lager, erum bara enn á fullu við að vinna upp í pantanir,“ segja Anna og Svava. Þær benda á að það sé meira mál en margir halda að sauma eina grímu. „Þetta er heil- mikið púsl og mörg handtökin við hverja grímu.“ Fólk víða að af landinu hefur pantað sér grímu hjá Litlu sauma- stofunni, bæði frá nágrannasveitar- félögum og líka höfuðborgar- svæðinu. Þær bjóða upp á grímur í ýmsum litum en segja að svartar njóti af einhverjum ástæðum mestra vin- sælda, einkum meðal ungmenna. „Krökkum þykir mikið sport að eiga grímu og jafnvel þau yngri, sem ekki ber skylda til að vera með grímu, vilja eignast eina eins og eldri krakkarnir.“ Fjölbreytt starfsemi Anna er handmenntakennari og lærði í Skals á Jótlandi í Danmörku, Svava starfaði um 17 ára skeið á saumastofu JMJ á Akureyri og hef- ur miklar reynslu af fatasaumi og -breytingum. Báðar hafa þær mik- inn áhuga fyrir saumaskap og hand- verki. Í hópi viðskiptavina eru ein- staklingar sem láta gera við fatnað sinn eða breyta honum, þá sinna þær fatabreytingum fyrir verslanir á Akureyri og lagfæra fatnað fyrir mörg fyrirtæki í bænum, m.a. þar sem starfsfólk gengur í einkenn- isfatnaði eða er í sérstökum fatnaði við störf sín. Boðið er upp á gluggatjaldasaum, milliverk sett í rúmföt og þá sjá þær um frágang á margs konar handa- vinnu. „Þetta er mjög fjölbreytt hjá okkur og margir fastir og góðir við- skiptavinir. Það er gaman hjá okkur í vinnunni alla daga,“ segja þær. Sauma grímur frá morgni til kvölds  Litla saumastofan á Akureyri hefur vart undan að sauma Morgunblaðið/Margrét Þóra Saumastofa Anna Guðný Helgadóttir og Svava Daðadóttir reka Litlu saumastofuna við Brekkugötu á Akureyri. Þær hafa verið önnum kafnar við að sauma grímur eftir að sóttvarnaaðgerðir voru hertar hér á landi. Jóhann Ólafsson johann@mbl.is „Við getum verið ánægð með árang- urinn en megum ekki gleyma okkur í einhverri sigurgleði. Þetta er alls ekki búið,“ sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir við mbl.is í gær. Nítján greindust með kórón- uveiruna í fyrradag og hafa jákvæð sýni ekki verið jafn fá frá 16. sept- ember; um það leyti er þriðja bylgja hófst. Þórólfur segir að kúrfan yfir ný- greinda hafi þokast hægt og bítandi niður á við, líkt og spáð hafi verið. „Ég held að það sé út af öllum þess- um aðgerðum sem hafa verið í gangi í svolítinn tíma,“ segir sótt- varnalæknir. „Það er langt í land og við megum ekkert slaka á, þá fáum við þetta bara aftur í bakið.“ Átta sjúklingar voru lagðir inn á Landspítala í fyrradag vegna Co- vid-19 en alls voru 78 inniliggjandi á sjúkrahúsi vegna veirunnar, sam- kvæmt covid.is. Þung staða á spít- alanum kom Þórólfi ekki á óvart. „Við vitum að alvarleg veikindi koma svona viku til tveimur eftir að þau byrja. Það kemur ekkert á óvart að við sjáum fleiri innlagnir á spítala þótt nýsmitum fækki,“ segir hann og bætir við að eldra fólk, sem líklegra er til að veikjast, hafi smit- ast upp á síðkastið. Þórólfur segist vissulega hafa áhyggjur af því að fólk fari að slaka á þegar það heyri að málin séu að þokast í rétta átt. „Sterkustu skilaboðin sem ég get sent er að fólk á að vera ánægt með þær aðgerðir sem það hefur tekið þátt í að móta en það þýðir ekki að hætta núna því þá fáum við aftur bakslag og þurfum aftur að taka okkur á. Þetta er langhlaup og það þarf hver og einn að líta í eigin barm og passa sig,“ segir Þórólfur og ítrekar áhættuna af hópamynd- un, til að mynda í gleðskap og hjá fjölskyldum og vinahópum. Kórónuveirusmit á Íslandi Staðfest smit frá 30. júní 5.039 staðfest smit Heimild: covid.is Nýgengi innanlands 5. nóvember: 177,8 nýtt smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa Nýgengi, landamæri: 18,0 14 daga nýgengi 78 einstaklingur er á sjúkrahúsi, þar af 4 á gjörgæslu 19 ný inn an lands smit greindust 5. nóvember 1.060 í skimunarsóttkví 100 80 60 40 20 0 1.414 einstaklingar eru í sóttkví 735 eru með virkt smit og í einangrun júlí ágúst september október Fjöldi smita innanlands Fjöldi smita á landamærum18 einstaklingar eru látnir Ekki enn tíma- bært að slaka á  Lítið þarf til að faraldurinn fari á flug Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Fé hefur verið skorið niður á búun- um Hofi og Stóru-Ökrum vegna riðuveiki sem kom upp í Skagafirði. Fyrirskipað hefur verið að skorið verði niður á fjórum búum alls, einn- ig á Syðri-Hofdölum og Grænumýri. Að því er kom fram í tilkynningu frá Matvælalstofnun í gær er unnið að því í landbúnaðarráðuneytinu í sam- starfi við Landssamtök sauðfjár- bænda að útfæra fjárhagslegan stuðning til bænda sem lenda í nið- urskurði fjár vegna riðunnar. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur veitt undanþágu fyrir urðun í Skarðsmóum, aflögðum urðunarstað í Skagafirði, vegna þessa. Í tilkynn- ingu á vef Stjórnarráðsins kemur fram að skilyrði laga um almanna- heill hafi verið uppfyllt og umsögn fengin frá Skipulagsstofnun. Undanþágan gildir um 100 tonn af sauðfé úr Tröllaskagahólfi og ein- göngu um hræ sem ekki er unnt að koma í brennslu. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sauðfé Alls þarf að skera niður um 2.500 gripi í Skagafirði vegna riðuveiki. Hafa skorið niður fé á tveimur bæjum  Fengu undanþágu fyrir urðun í gær

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.