Morgunblaðið - 07.11.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2020
35 cm verð 109.000,-
50 cm verð 159.000,-
70 cm verð 249.000,-
Atollo
Borðlampi – Opal gler
Vico Magistretti 1977
CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (meðVisa / Euro) í allt að 6 mánuði.
Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is
Opið virka daga 10-18, laugardaga 11-15
Fréttamiðillinn Eurobserversegir frá því að í fyrra hafi
628.000 manns frá löndum utan
Evrópusambandsins verið ólöglega
innan sambandsins og þetta sé
aukning um 10%
frá fyrra ári.
Eftir hryðju-verkaöldu að
undanförnu hafa
ráðamenn lýst
miklum áhyggjum
af ástandinu og
Macron forseti Frakklands hefur
kallað eftir gagngerri endur-
skoðun á Schengen-samstarfinu.
Hann vill herða eftirlit á ytri
landamærum sambandsins en vill
líka styrkja samstarf um innra eft-
irlit og öryggismál, en hefur ekki
útskýrt nákvæmlega hvað í því
ætti að felast.
Áhyggjur ráðamanna innanESB eru eðlilegar enda hefur
verið vakin athygli á því að
hryðjuverkamaðurinn sem lét til
skarar skríða í Vín hafi, þrátt fyr-
ir að hafa hlotið dóm í Austurríki
fyrir að skipuleggja hryðjuverk,
getað ferðast til Slóvakíu til að
reyna að kaupa skotfæri í AK-47-
hríðskotariffil, sem virðist reyndar
ekki hafa tekist, skotfærin fékk
hann annars staðar.
Svipuð dæmi um ferðir hryðju-verkamanna yfir landamæri
Schengen-svæðisins hafa komið
upp og ljóst má vera að ekki þarf
hátt hlutfall þeirra sem dvelja
ólöglega innan svæðisins að hafa
illt í huga til að illa geti farið.
Nú hlýtur að verða að vega ogmeta mögulegan ávinning af
vegabréfalausum ferðum innan
Schengen-svæðisins á móti hætt-
unni af því að hryðjuverkamenn
misnoti þetta fyrirkomulag til
ódæðisverka.
Emmanuel
Macron
Óþarft að auðvelda
illvirkjum ódæðin
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Birgir Már Pétursson,
fv. héraðsdómari og
sýslumaður, lést á
Hrafnistu í Hafnarfirði
31. október síðastliðinn,
á 81. aldursári.
Már fæddist 11. des-
ember árið 1939 á Guð-
laugsstöðum í Blöndu-
dal í A-Húnavatns-
sýslu, sonur Huldu
Pálsdóttur, kennara og
húsfreyju á Höllustöð-
um, og Péturs Péturs-
sonar, hreppstjóra og
bónda þar.
Már varð stúdent frá
Menntaskólanum á Akureyri árið
1960 og lauk embættisprófi í lögfræði
frá Háskóla Íslands 1967. Hann
stundaði framhaldsnám í réttarfari,
félagsrétti og skaðabótarétti við
Kaupmannahafnarháskóla veturinn
1969-1970. Sótti jafnframt fyrirlestra
í stjórnmálafræði við sama skóla og
kynnti sér starfsemi dómstóla í Dan-
mörku og Suður-Svíþjóð.
Á námsárum sínum vann Már á
sumrum á jarðvinnsluvélum í Húna-
þingi og síðar sem veiðieftirlitsmaður
og erindreki Framsóknarflokksins.
Að námi loknu hóf hann störf sem
fulltrúi bæjarfógeta í Hafnarfirði og
sýslumanns Gullbringu- og Kjósar-
sýslu frá 1967 til 1972. Már var hér-
aðsdómari í Hafnarfirði 1972 til 1987
og bæjarfógeti í Hafnarfirði, Garða-
bæ og á Seltjarnarnesi
og sýslumaður Gull-
bringu- og Kjósarsýslu
frá 1987 til 1992. Þá var
Már skipaður héraðs-
dómari við Héraðsdóm
Reykjaness og gegndi
því embætti til 1997.
Eftir það sinnti hann
ýmissi lögfræðilegri
ráðgjöf, einkum fyrir
Bændasamtök Íslands,
til starfsloka 2008.
Már var virkur í fé-
lagsmálum og stjórn-
málum. Gegndi fjölda
trúnaðarstarfa fyrir
Framsóknarflokkinn og átti sæti í
ýmsum nefndum og ráðum á há-
skólaárum sínum og síðar fyrir
Reykjavíkurborg og Hafnarfjörð.
Hann var formaður hinnar ís-
lensku Víetnamnefndar 1967-8, Sam-
taka herstöðvaandstæðinga 1971-
1972, Dómarafélags Reykjavíkur og
BHMR, svo dæmi séu tekin af for-
mennsku hans. Már átti einnig sæti í
kjaradómi og var um skeið vara-
dómari í Landsdómi. Hann ritaði
fjölda greina um þjóðmál í blöð og
tímarit.
Eftirlifandi eiginkona Más er Sig-
ríður Jósefsdóttir lögfræðingur. Már
verður jarðsunginn miðvikudaginn
11. nóvember kl. 15 frá Víðistaða-
kirkju, að viðstöddum nánustu að-
standendum og vinum.
Andlát
Már Pétursson
Huawei Sweden AB gerir alvarlegar
athugasemdir við frumvarp til fjar-
skiptalaga sem er til meðferðar á Al-
þingi. ADVEL lögmenn hafa sent
umsögn fyrir hönd svæðisskrifstofu
kínverska tæknirisans í Svíþjóð til
umhverfis- og samgöngunefndar.
Bent er á að enn sé gert ráð fyrir að
ráðherra geti með reglugerð útilokað
búnað framleiðenda frá ríkjum sem
standa utan öryggissamstarfs Ís-
lands eða Evrópska efnahagssvæð-
isins. Ekki sé gert ráð fyrir aðkomu
sérfróðra aðila eða hagsmunaaðila,
eins og fjarskiptafyrirtækja, að því að
skilgreina hvað teljist vera við-
kvæmur hluti farnets eða fram-
kvæmd eiginlegs öryggismats.
Einkum tveir framleiðendur bún-
aðar þjónusti íslensk fjarskipta-
fyrirtæki, þ.e. Huawai og Ericson.
„Ef annar þessara framleiðenda væri
útilokaður frá íslenskum markaði
myndi það leiða til þess að hinn fram-
leiðandinn öðlaðist í raun einokunar-
stöðu á markaði. Ekki þarf að fjöl-
yrða um hvaða afleiðingar það gæti
haft á kostnað íslenskra fjarskipta-
fyrirtækja og þannig neytenda í land-
inu. Að sama skapi kunna slíkar
ákvarðanir að fela í sér alvarleg áhrif
á samkeppnisstöðu einstakra fyrir-
tækja á íslenskum fjarskiptamark-
aði.“
Gagnrýnt er að gert sé ráð fyrir að
umsögn ráðherra sem fara með utan-
ríkis- og varnarmál, almannavarnir
og löggæslu verði undanþegin upp-
lýsingarétti almennings. Enga um-
fjöllun sé að finna um hvernig ákvæð-
ið samrýmist íslenskri réttarskipan
og réttindum borgaranna eða hvernig
meta eigi öryggishagsmuni. „Verður
að setja spurningarmerki við hvort
svo viðamikil takmörkun á almennum
réttindum borgara eða aðila máls
samræmist hugmyndum um réttar-
öryggi og lýðræði.“ omfr@mbl.is
Huawei gagnrýnir fjarskiptafrumvarp
Getur haft alvarleg áhrif á kostnað fjarskiptafyrirtækja og neytenda