Morgunblaðið - 07.11.2020, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2020
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
„Stóra málið fyrir mér er að það er
verið að setja gríðarlegt fjármagn
inn í þann hluta kerfisins sem þarf
ekki á því að
halda,“ segir
Kristrún Frosta-
dóttir, aðalhag-
fræðingur Kviku.
Vísar hún þar til
efnahagsaðgerða
stjórnvalda og
Seðlabankans í
kjölfar heimsfar-
aldurs kórónu-
veiru.
Að hennar sögn
hefur aukið fjármagn innan kerfisins
ekki ratað til réttra aðila. Þannig
heldur fyrirtækjum, sem ekki hafa
fengið nauðsynlegt fjármagn, áfram
að blæða. Þar á meðal eru veitinga-
staðir og ferðaþjónustufyrirtæki.
Bendir Kristrún á að rúmlega 100
milljarðar króna hafi bæst við skuld-
ir heimilanna frá því í mars. „Seðla-
bankinn hefur sjálfur greint frá því
að þetta séu heimili sem standa bet-
ur en meðaltalið í lánabókum bank-
anna. Þetta er innspýting fjármagns
til aðila sem þurfa ekkert á því að
halda. Nýir peningar í umferð hefðu
átt að örva þann hluta hagkerfisins
sem lenti í áfalli,“ segir Kristrún sem
kveðst hafa áhyggjur af ástandinu.
Nær ekkert fer til fyrirtækja
Undanfarna mánuði hefur verið
gripið til ýmissa aðgerða til að bregð-
ast við erfiðu ástandi sökum kórónu-
veiru. Í kjölfar faraldursins voru við-
skiptabankarnir jafnframt nýttir til
að miðla fjármagni, sem nýtast átti
fyrirtækjum í rekstrarörðugleikum.
Segir Kristrún að það hafi verið mis-
tök að treysta nær alfarið á mark-
aðinn við að koma fjármagni til fyr-
irtækja í tekjustoppi.
„Ríkið hefði átt að setja peningana
beint inn í fyrirtækin. Bankarnir
hafa engar viðskiptalegar forsendur
til að veita slík lán og eru þar af leið-
andi í erfiðri stöðu. Þeir hafa ekkert
til að miða við varðandi tekjuflæði í
framtíðinni. Þess vegna hefur fjár-
magnið farið í húsnæðislán,“ segir
Kristrún og bætir við að langstærst-
ur hluti aukins fjármagns í umferð
hafi farið í húsnæðislán. „Bankarnir
hafa stækkað um 330 milljarða frá
upphafi veirunnar. Af þeim hafa um
200 milljarðar farið í húsnæðislán og
90 milljarðar í ríkisvíxla. Loks hafa
um 30 milljarðar farið til fyrirtækja,
sem er auðvitað ekki neitt.“
Margir verða gjaldþrota
Að hennar sögn miðast svigrúm til
aðgerða við umsvif í hagkerfinu og
nýtingu á nýju peningamagni. Þá
hafi fjármagnið farið inn á eigna-
markað, þar sem fjármagn skorti
ekki. Þannig minnki svigrúmið til að
styðja við fyrirtæki sem glíma við
tekjuhrun. „Ég er hrædd um að það
hafi verið gengið á dýrmætt svigrúm
með því að setja svona mikið fjár-
magn inn á húsnæðismarkaðinn.
Þetta var mjög vanhugsuð aðgerð.
Það þarf að fara í beinar fjárveiting-
ar til geiranna sem líða fyrir sótt-
varnir,“ segir Kristrún og bætir við
að staðan í ferðaþjónustunni sé graf-
alvarleg. Lítið hafi verið gert fyrir
fyrirtækin auk þess sem stutt er þar
til umrædd fyrirtæki þurfa að standa
skil á frestuðum gjöldum.
„Það eru svona 40 til 50 milljarðar
sem sitja á ferðaþjónustunni. Þessar
frestanir hafa skapað mjög falska
stöðu í kerfinu. Nú þegar hefur um
helmingur starfa tapast og það virð-
ist vera lítill vilji til að varðveita störf
innan geirans. Á sama tíma á að
keyra í gang verkefni til að skapa
störf. Það er ekkert að þessum
óvirku störfum þótt við viljum sjá
vöxt í öðrum greinum. Þú eyðileggur
ekki undirliggjandi getu þótt þú vilj-
ir vaxa annars staðar. Það er verið að
hola efnahagsreikninga fyrirtækj-
anna að innan og hættan er sú að það
verði ekki viðspyrnugeta þegar að
því kemur,“ segir Kristrún.
Aðgerðir stjórnvalda vanhugsaðar
Fjármagn hefur ekki ratað til réttra aðila Stærstur hluti aukins fjármagns í umferð hefur farið í
húsnæðislán Fjölmörg fyrirtæki munu fara í þrot að óbreyttu Staðan í kerfinu gefur falska mynd
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Laugavegur Fáir hafa verið á ferli í miðbæ Reykjavíkur í faraldrinum og fyrirtæki í ferðaþjónustu eru í vanda.
Kristrún
Frostadóttir
Komdu í BÍLÓ!
M.BENZ E 350E AVANTGARDE
Nýskráður 05/2018, ekinn 21 Þ.km, bensín
& rafmagn, sjálfskiptur, widescreen stafrænt
mælaborð, 18“ álfelgur o.fl. TILBOÐSVERÐ
6.290.000 kr. Raðnúmer 251514
VW PASSAT GTE
Nýskráður 05/2018, ekinn 17 Þ.km, bensín
& rafmagn, sjálfskiptur, stafræntmælaborð,
leiðsögukerfi, leðursæti o.fl. Verð 4.990.000 kr.
Raðnúmer 251852
Funahöfði 1 | 110 Reykjavík | Sími 567 4840 | www.bilo.is | bilo@bilo.is NÝ HEIMASÍÐA: BILO.IS– ALLTAF VIÐ SÍMANN 771 8900 –
AUDI A3 E-TRONDESIGN
Nýskráður 08/2018, ekinn 30 Þ.km, bensín & rafmagn,
sjálfskiptur. Stafræntmælaborð, leiðsögukerfi, 18“
Design álfelgur o.fl. Verð 4.490.000.
Raðnúmer 251865
M.BENZ E 300DE AMG-line
Nýskráður 02/2019, ekinn 21 Þ.km, dísel &raf-
magn , sjálfskiptur. Glerþak, widescreen stafrænt
mælaborð, leiðsögukerfi o.fl. TILBOÐSVERÐ
7.990.000 kr. Raðnúmer 251568
M.BENZ C 300e 4MATIC AMG-line
Nýskráður 01/2020, ekinn 11 Þ.km, bensín &
rafmagn, sjálfskiptur, fjórhjóladrifinn. Stafrænt
mælaborð, dráttarkrókur o.fl. Verð 8.490.000 kr.
Raðnúmer 251752
PLUG IN HYBRID
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Útganga Breta úr Evrópusamband-
inu um áramót hefur haft mikil áhrif
á strandríkjafundum haustsins um
stjórnun veiða úr deilistofnum, en þar
hafa Bretar tekið sæti sem sjálfstætt
strandríki. Niðurstaða náðist ekki á
fundi um makríl og verður fundað á
ný ekki síðar en 25. nóvember. Varð-
andi norsk-íslenska síld var ákveðið
að setjast niður í janúar til að ræða
stöðu Evrópusambandsins og hvort
skilgreina eigi sambandið sem
strandríki eða veiðiríki í síld. Ekkert
heildarsamkomulag hefur verið í gildi
síðustu ár um veiðar á deilistofnum í
Norðaustur-Atlantshafi.
„Á fundinum um norsk-íslenska
síld fór nokkur umræða fram um
strandríkisstöðu einstakra aðila en
eftir útgöngu Bretlands úr Evrópu-
sambandinu er ljóst að Evrópusam-
bandið, sem fékk viðurkenndan
strandríkishlut í samningum strand-
ríkjanna frá 1996 og síðan aftur árið
2007, telst ekki lengur vera strand-
ríki. Þetta mál var ekki útkljáð á
fundinum en Noregur, sem boðandi
þessa fundar, mun kalla til sérstaks
aukafundar í janúar þar sem þetta
mál verður útkljáð,“ sagði í frétt á
heimasíðu sjávarútvegsráðuneytisins
í lok október.
Veiði umfram ráðgjöf
Kristján Freyr Helgason, formað-
ur íslensku sendinefndarinnar í við-
ræðum um deilistofna, segir að til að
teljast strandríki þurfi fiskurinn,
ungur eða gamall, að vera á ein-
hverjum tímapunkti í lögsögu þess.
Hann segir að hlutdeild ESB í veið-
um á norsk-íslenskri síld hafi verið
6,51% samkvæmt samningi frá 2007,
en síldin hafi lítið sem ekkert veiðst í
lögsögu ESB síðustu ár. Á sama tíma
geri bæði Færeyingar og Norðmenn
kröfu um aukinn hlut.
Frá árinu 2015 hafa stofnar kol-
munna og norsk-íslenskrar síldar
verið veiddir án heildarsamkomulags
um skiptingu og hefur árleg veiði því
verið um 20-30% umfram ráðgjöf,
segir í frétt ráðuneytisins. Líkt og
fyrri ár skiluðu fundirnir í ár engum
árangri öðrum en þeim að aðilar sam-
þykktu að við setningu einhliða kvóta
skuli miða við heildarafla í samræmi
við gildandi aflareglur og ráðgjöf
ICES.
Aukin óvissa í makríl
við útgöngu Breta
Samkomulag Evrópusambandsins,
Noregs og Færeyja frá árinu 2014
um stjórnun makrílveiða rennur út í
árslok og tók Bretland nú þátt í mak-
rílviðræðum í fyrsta sinn sem sjálf-
stætt strandríki. Norðmenn hafa í ár
veitt 90% af makrílafla sínum í haust
á bresku hafsvæði og 70-80% síðustu
ár. Þeir vita ekki frekar en aðrir
hvernig samningar verða á milli ESB
og Bretlands við útgöngu Breta um
áramót.
Í makrílnum er því mikil óvissa um
þróun mála vegna Brexit og ekkert
liggur fyrir um hvort þriggja ríkja
samkomulagið verður framlengt eða
hvort Bretar verða aðilar að því.
Samkvæmt því samkomulagi skiptu
ESB, Noregur og Færeyjar á milli
sín 84,6% af ráðgjöf ICES, en skildu
15,6% eftir fyrir Ísland, Grænland og
Rússland.
Brexit sveif
yfir fundum
Makrílfundi frestað Staða ESB
sem strandríkis í síld rædd í janúar
Stjórnun Makrílveiðar hafa verið deiluefni og svo er um fleiri deilistofna.
Norsk-íslenska síldin hefur verið óvenju lengi í íslenskri lögsögu í haust.
Færeysk skip eru enn að veiðum á Austfjarðamiðum og í gær voru Finnur
Fríði, Nordborg, Christian í Grótinum og Fagraberg þar að veiðum. Fær-
eyingar hafa landað yfir 60 þúsund tonnum af síld úr íslenskri lögsögu í
ár. Íslensk skip hafa lokið síldveiðum ársins og munu næst huga að kol-
munnaveiðum.
Færeyingar á miðunum
NORSK-ÍSLENSKA SÍLDIN ENN FYRIR AUSTAN