Morgunblaðið - 07.11.2020, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2020
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
„Þetta er ótrúleg stífni hjá borgar-
stjóra að vilja ekki tryggja framtíð-
arsvæði hestamanna í Víðidal með
lóðarleigusamningum til 50 ára og
uppkaupsákvæðum að leigutíma
loknum eins og gildir alls staðar ann-
ars staðar,“ sagði Sigurbjörn Magn-
ússon, lögmaður, hestamaður og
hesthúseigandi í
Víðidal. Hann hef-
ur jafnframt gætt
hagsmuna Félags
hesthúseigenda í
Víðidal.
Deilur um ólíka
lóðarsamninga
vegna hesthúsa í
Reykjavík, þ.e. í
Faxabóli, Víðidal
og Almannadal,
hafa staðið lengi.
Sigurbjörn sagði að engin málefnaleg
rök væru fyrir afstöðu borgarinnar,
nema að hún gæti hugsað sér að
leggja Víðidalinn undir íbúðabyggð.
Sigurbjörn sagði að hesthúsin í
Víðidal hefðu gengið kaupum og söl-
um mörgum sinnum síðan þau voru
byggð á 8. og 9. áratug síðustu aldar.
Mismunun í lóðarleigusamningum í
upphafi um það hvort borgarsjóður
keypti mannvirki á lóðunum eða ekki
að samningstíma loknum geti ekki
verið grundvöllur fyrir neitun borg-
arráðs í dag um breytt ákvæði lóðar-
leigusamninganna.
„Árið 1986 gerði Reykjavíkurborg
50 ára samninga með uppkaups-
ákvæðum um öll önnur hesthús og
mannvirki í Faxabóli á Fákssvæðinu,
sem er nánast sama svæðið og Víði-
dalur,“ sagði Sigurbjörn. Hann sagði
að hesthúseigendur í Víðidal gætu
ekki fallist á að það væru lögfræðileg
eða málefnaleg rök fyrir mismunandi
lóðarleigusamningum í Víðidal og
Faxabóli né heldur fyrir höfnun borg-
arráðs á samræmingu lóðarleigu-
samninga varðandi uppkaupsákvæði
og gildistíma sambærilegra húsa á
sama svæði.
Sigurbjörn minnti á orð Sigurborg-
ar Óskar Haraldsdóttur, formanns
skipulags- og samgönguráðs, á liðnu
sumri um að það gæti þurft að tak-
marka umferð bíla og ríðandi fólks í
Heiðmörk á komandi árum. „Yfirlýs-
ingu borgarstjóra um að Víðidalurinn
verði hestasvæði til frambúðar ber í
ljósi framangreinds að taka með fyr-
irvara, bæði með það að borgin vilji
ekki binda hendur sínar til frambúðar
og að takmarka eigi umferð hesta-
manna í Heiðmörkinni,“ sagði Sigur-
björn. Hann sagði sporin úr Elliðaár-
dal og úr Kópavogi hræða. Þar
umlukti íbúðabyggð hestasvæði og
hestamenn voru síðan hraktir á brott.
Sigurbjörn sagði að hesthúseig-
endur og hestamenn í Víðidal myndu
halda baráttu sinni áfram fyrir því að
fá sambærilega lóðarleigusamninga
og gilda fyrir hesthúsin í Faxabóli og
í Almannadal. „Frambjóðendur
verða krafðir um skýr svör hvað þetta
varðar fyrir næstu borgarstjórnar-
kosningar árið 2022,“ sagði Sigur-
björn.
Ósáttir við ólíka samninga
Eigendur hesthúsa í Víðidal vilja sitja við sama borð og
aðrir eigendur hesthúsa Taka yfirlýsingu með fyrirvara
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Víðidalur Þar er fjöldi hesthúsa en lóðarsamningarnir ekki allir eins.
Sigurbjörn
Magnússon
„Við hefðum
viljað sjá
lausnamið-
aða nálgun
hjá borginni
og einhvern
sáttavilja í
þessu máli,“
sagði Hildur
Björnsdóttir,
borgar-
fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, varðandi lóð-
arsamningana í Víðidal. Hún
sagði mikilvægt að auka jafn-
ræði á milli svæða hestamanna.
Minnihluti borgarráðs gerði
bókun þegar meirihlutinn hafn-
aði því að breyta lóðarleigu-
samningunum til samræmis við
aðra lóðarleigusamninga vegna
hesthúsa hinn 25. júní sl. Þar
sagði m.a.: „Það er mikilvægt
að tryggja framtíð þessa hest-
húsasvæðis og auka jafnræði
aðila á svæðinu. Það er miður
að borgarstjórnarmeirihlutinn
geti ekki nálgast þetta með við-
eigandi lausn í huga og tryggt
þetta mikilvæga græna svæði
tli framtíðar.“
Áheyrnarfulltrúi Miðflokksins
bókaði einnig og tók undir sjón-
armið hestamanna í Víðidal um
að jafnræðis yrði gætt.
Hefðu viljað
sjá sáttavilja
MINNIHLUTI BORGARRÁÐS
Hildur
Björnsdóttir
Matur
SMARTLAND
MÖRTU MARÍU
Skipholti 29b • S. 551 4422
SKOÐIÐ LAXDAL.IS
DRAUMAJÓLAGJÖF
VÖNDUÐ OG HLÝ DÚNÚLPA
Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.isEngjateigi 5 // 581 214 // hjahrafnhildi.is
SKOÐIÐ
hjahrafnhildi.is
FALLEGAR
YFIRHAFNIR
Hljóðvarnir • Veiruvarnir • Eldvarnir • Reykvarnir
Upplýsingar í síma 692 7909
protak@protak.is • virusvarnir@protak.is • virusvarnir.is
Langtíma
NANO yfirborðsvörn
gegn covid
Drepur allar veirur og bakeríur í allt að 7-10 daga
Nokkurs konar bólusetning á yfirborðið
Pantanir og upplýsingar í síma 692 7909
og protak@protak.is • Opið allan sólarhringinn
Við mætum á staðinn, sótthreinsum og berum á veiruvarnir.
Einnig alla aðra sameiginlega snertifleti
• Skrifstofuhúsnæði
• Stimpilklukkur
• Kaffistofur
• Tölvur
• Lyftuhús
• Stigaganga
• Íbúðarhúsnæði
Allt um sjávarútveg