Morgunblaðið - 07.11.2020, Page 18

Morgunblaðið - 07.11.2020, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2020 Rekstur hjúkrunarheimila - þjónusta við aldraða Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar lega ekki á þessum erfiðu tímum í rekstri sveitarfélaga þegar endur- skoða þarf öll útgjöld. Sjúkratrygg- ingar hafa óskað eftir því að sveit- arfélögin haldi rekstrinum áfram í átta mánuði, eftir að uppsögn tekur gildi, í tilviki Vestmannaeyja og Hornafjarðar, fram í ágúst eða sept- ember. Forsendan er sú að þá muni liggja fyrir niðurstaða úr vinnu verk- efnahóps heilbrigðisráðherra sem er að greina raunverulegan kostnað við rekstur hjúkrunarheimila og vænt- anlega þá aðgerðir ríkisins í kjölfar- ið. Vestmannaeyjabær og Sveitar- félagið Hornafjörður eru í viðræðum við Sjúkratryggingar Íslands um málið. Matthildur Ásmundardóttir, sveitarstjóri á Höfn, segir að ef hægt verði að hafa reksturinn á núlli næsta árið sé sveitarfélagið til í framlengingu. Telur hún ekki líklegt að samningar náist. Íris Róberts- dóttir, bæjarstjóri í Vestmanna- eyjum, telur framlengingu ekki góð- an kost fyrir sveitarfélagið, eins og staðan er í dag. Þótt bæjarstjórarnir vilji ekki fara út í efnisatriði samn- ingaviðræna má ráða af orðum þeirra að Sjúkratryggingar séu ekki tilbúnar til að ábyrgjast skaðleysi sveitarfélaganna af framlengingu samninga. Má því búast við að verkefni Heil- brigðisstofnunar Suðurlands aukist verulega í byrjun næsta árs, það er að segja ef henni verður falið að taka að sér rekstur hjúkrunarheimilanna Skjólgarðs og Hraunbúða, með alls 65 hjúkrunarrými. Þarf að finna leiðir Þeir sem standa að stórum sjálfs- eignarstofnunum ætla að reyna að þrauka í eitt ár til viðbótar, að því er fram kom í einni Morgunblaðsgrein Gísla Páls Pálssonar, forstjóra Grundarheimilanna og formanns Samtaka fyrirtækja í velferðarþjón- ustu. Ljóst er að þessar stofnanir geta ekki hleypt sér í miklar skuldir til að greiða niður rekstur sem ríkið á að kosta. Til tals hefur komið með- al sjómannasamtakanna sem standa að Hrafnistu hvort hægt væri að breyta heimilum í íbúðir og leigja eða selja. Það er dæmi um hugsun sem læðist að ábyrgu fólki sem þarf ekki aðeins að gæta hagsmuna heim- ilismanna heldur einnig þeim eign- um sem því hefur verið treyst fyrir. Aðrir hafa nefnt ferðaþjónustu í þessu sambandi en hún er ekki málið í dag. Hvar lenda þessi heimili annars staðar en hjá ríkinu, þegar staðan í rekstrinum er með þessum hætti? Jón Helgi Björnsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands og hjúkrunarheimilisins Hvamms á Húsavík, segir almennt ekki gott að Sveitarfélög lögð á flótta  Fjögur sveitarfélög hafa sagt upp þjónustusamningum við ríkið um rekstur hjúkrunarheimila  Stjórnarformaður Sóltúns telur skynsamlegt að nota einkaframkvæmd við uppbyggingu í framtíð Morgunblaðið/Eggert Hjúkrunarheimilið Seljahlíð Heimilisfólk og starfsfólk fór í svokallaða þríeykisgöngu í kringum heimilið í sumar, þegar kórónuveirufaraldrinum slotaði um hríð. Gangan var til heiðurs Þórólfi, Ölmu og Víði. Íbúar hjúkrunarheimila verða sífellt veikari þegar þeir flytja inn á heimilin og dvelja þar skemur. Jón Helgi Björnsson Matthildur Ásmundardóttir Þórir Kjartansson María Fjóla Harðardóttir Íris Róbertsdóttir  SJÁ SÍÐU 20 BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Flótti er brostinn á meðal samstarfs- aðila ríkisins í rekstri hjúkrunar- heimila. Nokkur sveitarfélög treysta sér ekki til að greiða með rekstr- inum lengur og stórar sjálfseign- arstofnanir eru einnig að hugsa sinn gang. Stjórnarformaður Öldungs hf., sem rekur hjúkrunarheimilið Sóltún, telur að ríkið ráði ekki við að byggja upp jafnmörg hjúkrunarrými og þörf verður á í framtíðinni með því fyrirkomulagi sem hefur verið. Kerf- ið sé of þungt í vöfum. Skynsamlegt sé að láta einkafyrirtæki um hluta uppbyggingarinnar. Rekstraraðilar hjúkrunarheimila skrifuðu allir undir nýja þjónustu- samninga við Sjúkratryggingar Ís- lands í lok árs 2019. Fram hefur komið áður að margir skrifuðu undir með óbragð í munni. Hjúkrunar- heimilin höfðu verið rekin allt árið 2019 án samnings þótt samtök þeirra hefðu ítrekað óskað eftir samningum. Í fjárlögum ársins 2019 var fjárveiting vegna aukinnar hjúkrunarþyngdar sem átti að deila á milli heimilanna en það var ekki hægt nema samningar væru í gildi. Hjúkrunarheimilin skrifuðu undir til að sú fjárveiting félli ekki dauð nið- ur. Töldu betra að fá það en ekkert. Í þessum samningum er sex mánaða uppsagnarfrestur sem sveitarfélög hafa verið að nýta sér að und- anförnu. Ekki líkur á framlengingu Mörg sveitarfélög hafa verið að greiða með rekstri hjúkrunarheim- ila, vegna lágra daggjalda, þótt við- urkennt sé að verkefnið sé heilbrigð- isþjónusta og á verksviði ríkisins en ekki sveitarfélaga. Akureyrarbær hefur sagt sig frá rekstri öldrunar- stofnana og losnar um áramót. Bær- inn gaf ekki kost á framlengingu. Vestmannaeyjabær og Sveitarfélag- ið Hornafjörður sögðu samningum upp á svipuðum tíma og eiga að losna um eða upp úr áramótum. Fjarða- byggð hefur einnig sagt upp sínum þjónustusamningi við ríkið og tekur uppsögnin gildi 1. apríl. Fleiri sveit- arfélög fylgjast með þróuninni en hafa ekki tekið ákvörðun um fram- haldið, eftir því sem best er vitað. Öll hafa sveitarfélögin í raun áhuga á að sinna þessari nærþjón- ustu við íbúana, en ekki á þeim for- sendum sem nú eru gefnar. Sérstak-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.