Morgunblaðið - 07.11.2020, Page 24
24 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2020
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Joe Biden var nánast með sigur í
bandarísku forsetakosningunum í
hendi sér í gærkvöldi en þá var lít-
ilræði atkvæða enn ótalið, aðallega
utankjörfundaratkvæði sem tíma-
frekt hefur reynst að telja. Dagar
Donalds Trumps í embætti þóttu
taldir en hann hefur ekki tekið í
mál að játa ósigur og endurtók í
gær að verið væri að reyna að stela
kosningunum.
Niðurstaðan eru tvísýnar og
spennuþrungnar kosningar sem
fram fóru sl. þriðjudag. Allt leit út
fyrir að úrslit fengjust seint í gær-
kvöldi eða í morgun í fjórum ríkj-
um sem réðu úrslitum um dreifingu
kjörmanna, sem velja forsetann síð-
ar í haust í samræmi við úrslit
kjörmannakjörsins.
Þróun atkvæðatalningarinnar
snerist Biden mjög í hag síðdegis í
fyrradag og í gærmorgun. Komst
hann þá upp fyrir Trump í Arizona,
Georgíu, Nevada og síðan í gær-
morgun í Pennsylvaníu; í síðast-
talda ríkinu þegar aðeins var eftir
að telja tvö prósent atkvæða. Eftir
að hann hafði tekið forystu í kapp-
hlaupinu um húsbóndavaldið í
Hvíta húsinu hélt Biden taktinum
og jók forskot sitt jafnt og þétt.
Var staðan í fyrrakvöld orðin sú að
Trump hefði þurft að vinna sigur í
þessum ríkjum öllum til að eiga
möguleika á forsetastarfanum.
Virtist ekkert annað en sigur Biden
blasa við.
Biden komst einnig upp fyrir
Trump í Georgíuríki þegar aðeins
var eftir að telja eitt prósent at-
kvæða. Var forysta hans í Nevada
og Arizona sömuleiðis mjög naum.
Á þessu stigi hafði Biden tryggt
sér 253 kjörmenn og Trump 213 en
270 þurfti til sigurs. Um miðjan
dag að íslenskum tíma í gær var
ljóst að sigur í einhverjum tveimur
af þessum fjórum ríkjum hefði dug-
að Biden til sigurs.
Donald Trump forseti hélt áfram
staðhæfingum þess efnis að hann
hafi unnið forsetakjörið, og það
meðan talning var í gangi í fjölda
ríkja. Kvartaði forsetinn undan
„hrikalegri spillingu og svindli með
póstatkvæðin“. Sagði hann m.a. að
ólöglegum atkvæðum hefði verið
bætt við og að eftirlitsmönnum
Repúblikana með talningunni hefði
verið haldið frá talningunni og því
ekki getað fylgst með hvort að rétt
væri að henni staðið.
Joe Biden ávarpaði fjölmiðlafólk í
gærmorgun og hvatti landsmenn
sína til að sýna stillingu meðan at-
kvæðin væru talin. Sagði hann taln-
inguna hafa dregist á langinn
vegna hinnar miklu kjörsóknar.
Mældist hún 66,9% og hefur ekki
verið meiri í 120 ár. Kvaðst hann „í
engum vafa“ um hvert stefndi og
kosningasigur hans væri yfirvof-
andi.
Kjörstjórn Georgíuríkis ákvað
síðdegis í gær að endurtelja öll at-
kvæði vegna þess hversu mjótt var
á munum. Þegar nær öll atkvæðin
höfðu verið talin munaði einungis
1.500 atkvæðum á Biden og Trump.
„Munurinn er of lítill, endurtaln-
ing fer fram í ríkinu,“ sagði Brad
Raffensperger, innanríkisráðherra
Georgíuríkis í Atlantaborg. Hann
sagði muninn of lítinn til að kynna
sigurvegara fyrr en að endurtaln-
ingu lokinni. Georgía hefur verið
vígi repúblikana en breytt samsetn-
ing íbúa eftir uppruna og mikil
þátttaka kjósenda af afrísku bergi
brotnum gerði það að verkum að
Biden hafði forystu í talningunni í
gær.
Nancy Pelosi, forseti full-
trúadeildar Bandaríkjaþings og
áhrifakona í Demókrataflokknum,
lýsti Joe Biden sem „nýkjörnum
forseta“ eftir að hann tók forystu í
talningunni í gær. „Það er nú ljóst í
dag, að Biden-Harris-framboðið
mun sigra í keppninni um Hvíta
húsið,“ sagði Pelosi við blaðamenn.
„Hamingjudagur fyrir landið okkar,
Joe Biden er maður sameining-
arinnar og er staðráðinn í að sam-
eina þjóðina. Til þess hefur hann
traust umboð.“
Framboð Trumps gerði at-
hugasemdir við framgang Bidens í
atkvæðatalningunni og hélt því
fram í gær, að kosningunum væri
ekki lokið. Yfirlýsing þessa efnis
var send út er Biden tók fram úr
Trump í talningunni í Pennsylv-
aníuríki þar sem 20 kjörmenn voru
í boði, en með því að hljóta þá hefði
Biden unnið sigur. „Falskar spár
um að Joe Biden væri búinn að
AFP
Kosningar Stuðningsmenn Joe Biden efndu til fagnaðar við Lafayette-torgið við hliðina á Hvíta húsinu í gær.
Biden með embættið í hendi sér
Þróun atkvæðatalningar í bandarísku forsetakosningunum snerist Joe Biden mjög í hag í gær
Hann þótti hafa sigurinn nánast í hendi sér í gærkvöldi Trump hefur þó ekki enn játað ósigur
vinna forsetakjörið eru órökstuddar
og byggðar á talningu í fjórum ríkj-
um sem engan veginn er lokið,“
sagði Matt Morgan, kosningastjóri
Trumps. Samfélagsvefurinn Twitter
límdi athugasemdir yfir fjölda inn-
leggja Morgans eftir að hann tók
að halda því fram að framboð Bi-
dens hefði stundað svikráð.
Andrew Bates, talsmaður fram-
boðs Bidens hótaði í gær, að fylgja
Trump út úr Hvíta húsinu með
valdi samþykki hann ekki nið-
urstöðu kosninganna.
Heimildamenn með tengingu inn
í Hvíta húsið sögðu í gærkvöldi að
háttsettir samverkamenn Trumps
væru farnir að draga sig frá forset-
anum, til þess að vernda eigin pólí-
tísku stöðu, að kosningunum lokn-
um. „Hann er næstum einsamall í
þessu máli.“ Ráðgjafinn sagði að
enn væri samt nokkrir aðstoðar- og
bandamenn kringum forsetann og
leyfðu honum að heyra það sem
hann vildi heyra. Það yrði til þess
að yfirlýsingagleðin myndi halda
áfram.
Breytir Biden utanríkiskúrs?
Bandarísku forsetakosningarnar
skipta ekki bara Bandaríkjamenn
máli, heldur sýna öll ríki heims
þeim athygli þar sem forsetinn er
einn allra valdamesti þjóðarleiðtogi
heims. Hvernig hann svo fer með
vald sitt getur haft gríðarleg áhrif
á alþjóðastjórnmál og ríkiser-
indrekstur. Undanfarin fjögur ár
hefur Trump rekið stefnu undir
kjörorðinu „Bandaríkin fyrst“ og
ýmist endursamið um mál eða
dregið sig út úr viðskiptasamn-
ingum, samstarfi í varnarmálum og
alþjóðlegum sáttmálum á þeirri for-
sendu að þeir hafi verið óhagstæðir
Bandaríkjunum.
Joe Biden hefur heitið breyt-
ingum og til að mynda taka strax
aftur þátt í samstarfinu vegna Par-
ísarsamningsins um aðgerðir í
loftslagsmálum. Sagði breska út-
varpið BBC viðhorf hans varðandi
stöðu Bandaríkjanna á verald-
arsviðinu hefðbundin.
Danska ríkisstjórnin boðaði í gær
harðar aðgerðir á Norður-Jótlandi
til að tryggja að stökkbreytt afbrigði
af kórónuveirunni, sem virðist hafa
borist úr minkum í fólk, breiðist ekki
út.
Veiruafbrigðið hefur fundist í
minkum á fimm minkabúum á svæð-
inu. Er þegar byrjað að lóga dýrum
þar. Öllum börum og veitingahúsum
verður lokað í sjö sveitarfélögum á
Jótlandi og íbúar eru hvattir til að
fara ekki út fyrir mörk sinna sveitar-
félaga. Fram kom í gær að lögregla
mun fylgjast með umferð á svæðinu,
einkum í kringum Álaborg.
Harðar aðgerðir
á Norður-Jótlandi
Veirustökkbreyting tengd dönskumminkum
Heimild: Dönsk stjórnvöld
7 sveitarfélög á Jótlandi
Ferðatakmarkanir
Börum, veitingastöðum lokað
DANMÖRK
ÞÝSKALAND
SVÍÞJÓÐ
KAUPMANNAHÖFN
50 km
Jótland
Öllumminkum í landinu
15-17 milljónum, verður lógað
Íbúar á Norður-Jótlandi
hafa sýkst af stökkbreyttu
veiruafbrigði röktu til minka
Um 280 þúsund íbúar á
Norður-Jótlandi í ferðabanni
5% sjúklinga á Norður-Jótlandi
gætu verið með afbrigðið
Danir óttast að stökkbreytingin
gæti grafið undan áhrifum
bóluefnis
Takmarkanir