Morgunblaðið - 07.11.2020, Síða 29

Morgunblaðið - 07.11.2020, Síða 29
UMRÆÐAN 29 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2020 Beykidalur 8, 260 Reykjanesbæ Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is 3ja herbergja á efri hæð, með sérinngangi í Stapaskólahverfi. Fleiri myndir og lýsing á eignasala.is. Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555 Verð kr. 32.900.000 89,8 m2 Einn helsti kostur net-flixþáttaseríunnar TheQueens gambit er sá aðefnistökin eru hvorki ódýr né klisjukennd. Aðalpersónan, Beth Harmon, í meðförum leikkon- unnar Anya Taylor-Joy, er eitursvöl persóna sem skýtur öllum þeim körl- um sem á vegi hennar verða ref fyrir rass. Spennusagnahöfundurinn Stephen King hefur látið svo um- mælt að serían sé sú albesta sem komið hafi fram á þessu ári. Frá- sögnin er trúverðug, spennandi og áleitin. Í umfjöllun um skák hafa Bandaríkjamenn lengi átt erfitt með að slíta sig lausa frá nafni Bobbys Fischers. Í þáttaseríunni er hann hvergi nefndur. Söguhetjan, Beth Harmon, haslar sér þó völl um svip- að leyti og söguþráðurinn dregur að einhverju leyti dám af lífshlaupi Fischers og persónuleika: föð- urmissir, Moskvuferð, baráttan við sovésku stórmeistarana, óbilandi sigurvilji, lætur illa að stjórn. Það var galli á kvikmyndinni Pawn sacrifice, sem fjallaði um „einvígi aldarinnar 1972“, að stöður á skák- borðinu voru stundum viðvanings- lega valdar en í Queens gambit var Kasparov hafður til ráðgjafar og ég gat ekki betur séð en ein lokastaðan væri úr skák hans við Topalov árið 1995. Uppsetning skákviðburða í Bandaríkjunum er trúverðug; kepp- endur að mæta með töfl og klukkur, sigurvegarinn tilkynnir úrslit, vin- gjarnlegir skákstjórar o.s.frv. Þegar sögusviðið flyst til Rússlands mynd- ast biðraðir fyrir utan skákstað, úti- töfl hengd upp utandyra fyrir þá sem ekki komast inn, líkt og var í Sovét á ýmsum skeiðum síðustu aldar. Ég rýndi í leikmuni ýmsa, stóra svarta skákklukkan, sem vinsæl var í kring- um 1970 reyndist ósvikin vara. Glæsilegur klæðaburður og óaðfinn- anleg hárgreiðsla magnar þokka Beth Harmon. Einstaklingur í keppni er höfund- inum, Walter Tevis, hugleikið tilvist- arfyrirbrigði, ekki síst sú týpa sem ratað hefur í einhverjar skelfilegar ógöngur og er kannski komin fram á ystu nöf. „Kvikmyndirnar The Hustler og The Color of money, sem báðar skörtuðu Paul Newman, eru byggðar á sögum hans. Tevis bætir við eigin reynslu af lyfjafíkn en það er gjörsamlega útilokað að nokkur geti náð árangri í skák í viðjum slíkr- ar fíknar. Mikhail Tal var oft heilsu- tæpur og ánetjaðist sterkum verkja- lyfjum en braust úr viðjum þeirra og náði sér aftur á strik. Styrkleikamunur á körlum og konum á alþjóðavettvangi skák- arinnar var gríðarlegur á þeim tíma þegar myndaflokkurinn er látinn gerast. Þetta breyttist allt þegar Judit Polgar og systur hennar komu fram á sjónarsviðið. Bandaríkja- menn áttu eina skákkonu sem fræg var á þessum tíma; Lisu Lane var stundum stillt upp við hlið Bobby s Fischer í fjölmiðlum og prýddi m.a. forsíðu Sports Illustrated árið 1961. Saga hennar er merkileg og margt sem dreif á daga hennar á sam- svörun í The Queens gambit. Tímarit létu í veðri vaka að í æsku hefði hún verið vistuð á munaðarleysingjahæli. Erfið skólaganga er nefnd til sög- unnar og alvarlegt bílslys. Hún hætti keppni á Hastings-mótinu 1961-’62 er mikill söknuður eftir kærastanum sótti að henni. „Ástin mátar skák- drottningu,“ stóð skrifað í The New York Times. Hvort einhver skilaboð til kvenna fólust í þeirri fyrirsögn skal ósagt látið en Beth Harmon í Drottningarbragði er fulltrúi nýrra viðhorfa og kvenna sem geta allt. Átti hin eitursvala Beth Harmon sér fyrirmynd? Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Fyrirmynd? Lisa Lane að tafli. Morgunblaðið/Netflix Mögnuð Anya Taylor-Joy fer aldrei úr karakter sem Beth Harmon. Í Morgunblaðinu birtist nýlega grein eftir Ragnar Árna- son, prófessor em- eritus í hagfræði, þar sem hann kemst að þeirri niðurstöðu, að athugun hans á skýrslu COWI og Mannvits sýni að þjóðhagslegt núvirði fyrsta áfanga borg- arlínunnar er verulega neikvætt. Hann bendir réttilega á að á höf- uðborgarsvæðinu séu „allmargar framkvæmdir í samgöngumálum sem bæði hafa verulega jákvætt núvirði og tvímælalaust miklu hærra en borgarlínan og munu nýtast öllum vegfarendum“. Í sveitarstjórnum á höfuðborg- arsvæðinu er pólitísk samstaða um að bæta þjónustu almennings- vagna. Þá vaknar spurningin hvort ekki sé fyrir hendi hag- kvæmari kostur en borgarlínan til að ná því markmiði. Ferðatíðni Árið 2015 flutti Jarrett Walker, sem er virtur sérfræðingur í al- menningssamgöngum, erindi í Salnum í Kópavogi. Rauði þráð- urinn í erindi hans var mikilvægi þess að auka ferðatíðni strætó. Það skipti mun meira máli en gönguvegalengd að biðstöð og mætti því fækka strætóleiðum í staðinn til þess að takmarka aukningu á rekstrarkostnaði. Með þessu móti fengist hagkvæmasta lausnin fyrir bætta þjónustu strætó. Í erindi sínu minntist hann á hraðvagnakerfi (Bus Rapid Tran- sit, BRT) og léttlestakerfi, sem hann kallaði tæknilegar út- færslur. Í því sambandi líkti hann aukinni ferðatíðni við mat, en tæknilegu útfærslunum við um- búðir utan um matinn. Ef sam- gönguyfirvöld einblíndu um of á tæknilegu útfærslurnar væru þau að borða umbúð- irnar en fleygja matnum. Erindið má finna á heima- síðu SSH: http:// ssh.is/utgefidh-efni/ kynningarefni Tillaga Ég skora á sam- gönguyfirvöld á höfuðborgarsvæð- inu að endurskoða áætlanir um upp- byggingu borgarlínunnar. Bein- ast liggur við að skoða þann val- kost að fækka leiðum strætó og auka í staðinn ferðatíðni. Unnt er að stytta ferðatíma strætó með sama hætti og gert hefur verið fram til þessa, þ.e. bæta við ak- rein hægra megin við akbraut þar sem eru langar biðraðir bíla á álagstímum umferðar. Það er margfalt ódýrara en að gera sér- rými í miðeyju gatna eða sér- götur, eins og áætlað er fyrir borgarlínuna. Fyrir fram er ekki unnt að segja til um hvort þessi val- kostur geti einn og sér skilað samfélagslegum ábata. Sjálfsagt er að rannsaka það með ábata- greiningu. Hins vegar er ljóst að þjónustu strætó má stórbæta með tiltölulega litlum tilkostnaði. Síðast en ekki síst mætti nota fjármagnið sem sparast til að byggja upp samgönguinnviði sem eru margfalt arðsamari en borg- arlínan. Aukum ferðatíðni strætó Eftir Þórarin Hjaltason » Beinast liggur við að skoða þann val- kost að fækka leiðum strætó og auka í staðinn ferðatíðni. Þórarinn Hjaltason Höfundur er umferðarverkfræð- ingur og fyrrverandi bæjarverk- fræðingur í Kópavogi. thjaltason@gmail.com Þorvaldur Þorsteinsson mynd- listarmaður og rithöfundur fædd- ist á Akureyri 7. nóvember 1960 og hefði því orðið sextugur í dag. Þorvaldur nam íslensku, heim- speki og bókmenntir við HÍ og út- skrifaðist frá nýlistardeild Mynd- lista- og handíðaskóla Íslands árið 1987 og lauk meistaraprófi frá Jan Van Eyck Akademie í Hollandi 1989. Þorvaldur giftist Ingibjörgu Björnsdóttur leikkonu og ól upp dóttur hennar, Sigrúnu Jóns- dóttur. Seinni kona Þorvaldar var Helena Jónsdóttir danshöfundur, og ól hann upp son hennar, Dag Benedikt Reynisson. Þorvaldur var vinsæll og vin- margur og mjög fjölhæfur í list- sköpun sinni. Hann hélt yfir 40 einkasýningar, bæði hér heima og erlendis, auk tuga samsýninga. Á ritvellinum var fjölbreytnin ekki minni og hann skrifaði m.a. leikrit, bækur, verk fyrir sjónvarp og út- varp og barnabækur hans um Blíðfinn voru feikilega vinsælar og voru þýddar á fjölmörg tungumál. Þorvaldur naut alþjóðlegrar viðurkenningar fyrir listsköpun sína og hér heima hlaut hann m.a. Grímuverðlaunin árið 2002 sem besta leikskáld ársins, fyrir leik- verkið And Björk of course sem sýnt var í Borgarleikhúsinu og víða í Evrópu. Þorvaldur lést langt fyrir aldur fram 23. febrúar 2013. Merkir Íslendingar Morgunblaðið/Brynjar Gauti Þorvaldur Þorsteinsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.