Morgunblaðið - 07.11.2020, Síða 30

Morgunblaðið - 07.11.2020, Síða 30
30 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2020 Sýslumannsemb- ættin fara með fram- kvæmdarvald ríkisins í héraði eftir því sem lög og reglur mæla fyrir um. Á þeim grunni hafa þau um langa tíð annast fjölbreytt verk- efni hins opinbera um land allt. Nú ber svo við að tækifærin til fjárfestingar og ný- sköpunar á vettvangi embættanna hafa aldrei verið aðgengilegri. Embættin hafa þá sérstöðu meðal ríkisstofnana að hin fjölbreyttu verk- efni sem þau sinna eiga sér óvenju litríka lagastoð og varða nær öll fag- ráðuneyti Stjórnarráðsins. Net 27 starfsstöðva níu embætta um land allt veitir íbúum, fyrirtækjum og sveitarfélögum aðgang að fjölþættri þjónustu ríkisins á þessum grunni. Reynt og fjölhæft starfsfólk embætt- anna telur nú um 240 manns. Tækifæri í stafrænni vinnslu og þjónustu Auk hefðbundinna kjarnaverkefna sýslumanna hefur sérverkefnum, sem einstök embætti annast á lands- vísu, fjölgað umtalsvert og eru þau nú 35 talsins. Þessi þróun byggist á stefnu stjórnvalda, áhuga og eft- irfylgni alþingsmanna og starfsfólks stjórnarráðsins auk þátttöku rík- isstofnana og ráðuneyta. Sérverk- efnin eru margs konar en þau varða flest krefjandi, viðkvæm og flókin viðfangsefni sem starfsfólk embætt- anna sinnir af kostgæfni um land allt og reynslan er sannarlega góð. Ef litið er fram hjá Covid-19 hefur fátt meiri áhrif á starfsemina þessa dagana en stafræn þróun. Ýmsir inn- viðir embættanna taka nú stakka- skiptum á grundvelli samstarfs við Stafrænt Ísland og fleiri aðila. Og tækifærin blasa við! Landfræðileg staðsetning vinnslu, greiningar og þjónustu vel valinna verkefna hins opinbera hefur aldrei haft minni þýð- ingu. Gildir það jafnt um sér- fræðilegt vinnuframlag eða hvort verkefni eru unnin á höfuðborg- arsvæði eða landsbyggðum. Þetta hafa mörg nágrannalönd okkar nýtt sér í mun meiri mæli en hér þekkist. Nægir að nefna þverpólitíska stefnu danskra stjórnvalda, Regeringens Udflytniningsplan, sem staðið hefur frá árinu 2015 og áætlað er að skili um 8.000 opinberum störfum utan Kaup- mannahafnarsvæðisins. Stefnuframkvæmd Alþingis og ríkisstjórnar Stofnanaþróun síð- ustu ára hérlendis ein- kennist af samein- ingum og fækkun ríkisstofnana og eru sýslumannsembættin þar ekki undanskilin. Rifjað skal upp að eitt þriggja höf- uðmarkmiða löggjafans við samein- ingu embættanna um „[a]ð efla stjórnsýslu sýslumannsembættanna og gera þau betur í stakk búin til að taka að sér aukin verkefni“ var stutt sannfærandi rökum. Jafnframt ligg- ur fyrir að núverandi ríkisstjórn starfar á grundvelli stefnumiða um nútímavæðingu hins opinbera, blóm- lega byggð og jöfn tækifæri. Jafnvel fjármálaáætlun 2021-2025 og fjár- lagafrumvarp 2021 leggja grunn að sérstakri fjárfestingu í opinberum störfum á landsbyggðunum. Áform jafnt sem árangur Alþingis og ríkisstjórna fyrr og nú blasa því við í eigin orðum og fyrri gjörðum. Á sama tíma hafa tækifærin til nýsköp- unar, innviðanýtingar og samvinnu milli sýslumannsembættanna og annarra opinberra aðila aldrei verið auðsóttari. Stafrænn veruleiki á grundvelli traustra innviða, færni og fjölbreyttrar reynslu mannauðs ger- ir sýslumannsembættin enn fýsilegri vettvang framfara með hverjum deginum sem líður. Einhver myndi tala um dauðafæri í þessu sambandi. Það er því sérstök ástæða til að hvetja stjórnvöld til að fylgja eftir fjárfestingu í stafrænum innviðum og vista enn fleiri opinber verkefni og störf hjá sýslumannsembætt- unum. Eftir Svavar Pálsson » Tækifærin til ný- sköpunar, innviða- nýtingar og samvinnu milli sýslumannsemb- ættanna og annarra op- inberra aðila hafa aldrei verið auðsóttari. Svavar Pálsson Höfundur er sýslumaður á Norðurlandi eystra. svavar.palsson@syslumenn.is Sýslumenn og stafrænan – Hafsjór tækifæraSum hús hafa yfir sér reisn og myndug- leika. Stjórnendur Landsbankans á fyrri hluta síðustu aldar vildu að það mætti sjá á húsakynnum bankans að saman færi traust og íhaldssemi. Höfuð- stöðvar bankans voru í Reykjavík, í byggingu, sem Guðjón Samúels- son hannaði á rústum byggingar sem brann 1915. Þegar kom að því að reisa starfsstöðvar fyr- ir Landsbankann á Akureyri, Ísafirði og Selfossi, var útlit þeirra samræmt höfuðstöðvunum í Reykjavík. Nú er svo komið að byggingin á Selfossi er ekki talin henta nútíma- bankarekstri. Við sjáum þess mörg dæmi að notkun húsa breytist og sjálft Stjórn- arráðið hýsti áður fanga í betrunarvist. Getum við fundið þessu reisulega húsi göfugt hlutverk sem um leið auðgar og lyftir andanum? Landsbankahúsið á Selfossi gæti hýst hluta af Listasafni Íslands, sem nú er aðeins staðsett í Reykjavík. Sýning á verkum frumherja ís- lenskrar myndlistar á að vera úti á landsbyggð- inni, ekki síður en í Reykjavík. Flestir stærstu myndlistarmenn í upphafi 20. aldar voru „utan af landi“ og þaðan kom þeim andagiftin. Jafnframt er vel við hæfi að Lands- bankinn leyfi íslensku þjóðinni og gestum hennar að njóta þeirra stór- brotnu myndlistaverka íslenskra meistara sem bankinn á í sínum fór- um. Landsbankinn og Listasafn Ís- lands ættu að taka höndum saman um það verkefni og losa geymslu- pláss um leið. Húsið gæti einnig orðið rými fyrir tímabundnar einkasýn- ingar. Þegar á móti blæs á að hugsa stórt. Við höfum lært það, bæði sem þjóð og einstaklingar, að það eru menning- arverðmætin sem sameina okkur og halda áfram að gefa af sér kynslóð eftir kynslóð. Í því samhengi er hægt að tala um góða ávöxtun. Góð ávöxtun Eftir Unni Brá Konráðsdóttur Unnur Brá Konráðsdóttir » Þegar á móti blæs á að hugsa stórt. Menningarverðmætin sameina okkur og gefa af sér kynslóða á milli. Í því samhengi er hægt að tala um góða ávöxtun. Höfundur er varaþingmaður Sjálf- stæðisflokksins í Suðurkjördæmi unnurbra@gmail.com Yfirlýst markmið SÍM, Sambands íslenskra myndlistarmanna, er að bæta kjör og starfsumhverfi mynd- listarmanna, gæta hagsmuna þeirra og réttar. Þetta er tekið beint af heimasíðu sambandsins. Það að segja félagsmönnum á seinni stigum listsköpunar sinnar upp samningi um vinnustofur, án þess að leggja fram skýrar og gildar ástæður fyrir því, gengur fullkomlega í berhögg við yfirlýst markmið SÍM. Forsaga málsins er sú að fyrri stjórn SÍM, undir forystu Jónu Hlíf- ar Halldórsdóttur, ákvað síðsumars 2017 að endurskoða úthlutunar- reglur á vinnustofum á Korpúlfs- stöðum og Seljavegi. Þær reglur skyldu nú gilda að listamenn sem hefðu haft aðstöðu í vinnustofum í húsunum í níu ár eða lengur gætu ekki sótt um þær aftur þegar þær yrðu auglýstar til umsóknar næsta vor. Á Seljavegi eru rúmlega 50 vinnu- stofur sem leigðar eru út en eftir- spurnin hefur þó ekki verið meiri en svo að þær standa nokkrar auðar og ónýttar. Ósveigjanleiki stjórnar SÍM í þessu máli kemur okkur á óvart. Þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir hefur málið ekki heldur fengist rætt á félagsfundi. Til slíks fundar hefur ekki verið boðað þrátt fyrir yfirlýs- ingar stjórnar SÍM um að það yrði gert. Nú þegar hafa á sjöunda tug félagsmanna skrifað undir áskorun til stjórnarinnar um að draga til baka breytingar á úthlutunar- reglum. Tilgangur breyttra reglna er sagður sá að auka endurnýjun og hreyfingu listamanna inni í hús- unum. Á það hefur ekki skort á Seljavegi þann tíma sem við höfum verið þar. Einungis fjórir listamenn, sem leigðu vinnustofur í húsinu þeg- ar það upphaflega hóf starfsemi, eru þar enn. Okkur telst til að frá og með 31. mars 2021 verði 28 sjálf- stætt starfandi myndlistarmenn í báðum vinnustofuhúsunum reknir af vinnustað sínum. Hreyfing og endurnýjun í húsinu hefur verið lífræn og eftir þörfum. Þessi skýring heldur því ekki vatni. Þrjár af vinnustofunum, sem í ráði er að endurúthluta á Seljavegi, eru nýttar sem keramikverkstæði. Þeim fylgja þungir brennsluofnar og sér- hæfðar rafmagnslagnir sem ekki er auðvelt að flytja hvert og hvernig sem er. Áætlaður kostnaður ein- göngu vegna flutnings á búnaði er um 800 þúsund krónur. Þessir lista- menn eru virkir í sinni list, hafa nýtt vinnustofurnar nákvæmlega í þeim tilgangi sem þær eru ætlaðar til, greitt leigu samviskusamlega, bætt aðstöðuna með ýmsu móti í húsinu, staðið fyrir listrænum uppákomum í rýminu og, síðast en ekki síst, greitt félagsgjöld til SÍM allan sinn lista- mannsferil. Með ósveigjanlegri af- stöðu sinni býður SÍM félagsmönn- um sínum enga valkosti. Stjórn SÍM er eins fjarri þeim markmiðum sín- um að gæta hagsmuna og réttar félagsmanna sinna og hugsast getur. Við höfum mikið velt því fyrir okk- ur hvað ráði afstöðu SÍM í þessu máli. Fagleg sjónarmið ráða þar ekki för. Við viljum ekki trúa því að per- sónuleg óvild hafi eitthvað með þetta að gera. Hvað stendur þá eftir þegar ljóst er að hreyfing og endurnýjun á vinnustofunum er lífræn og eðlileg? Gæti verið að stjórn SÍM hafi dottið í þann fúla pytt að búa til leiðindi upp úr engu? Við neitum að trúa því að stjórn SÍM vilji koma höggi á lista- menn, sína félagsmenn, sem hafa ekki í neina sjóði að leita til að koma sér upp aðstöðu annars staðar nú þegar sígur á seinni hluta lista- mannsferils þeirra. Við þurfum svör. Að búa til leiðindi Eftir Ragnheiði I. Ágústs- dóttur, Ingunni Ernu Stefáns- dóttur og Erlu Þórarinsdóttur Ragnheiður I. Ágústsdóttir, Ingunn Erna Stefánsdóttir og Erla Þórarinsdóttir. » Ósveigjanleiki stjórnar SÍM í þessu máli kemur okkur á óvart. Höfundar eru myndlistarmenn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.