Morgunblaðið - 07.11.2020, Page 33

Morgunblaðið - 07.11.2020, Page 33
ALDARMINNING 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2020 Messur á morgun ÁSKIRKJA | Hin mæta morgunstundin. Tón- list, ritningarorð og morgunhugvekja úr Áskirkju flutt á heimasíðu kirkjunnar; askirkja.is, kl. 9.30 á sunnudögum og fimmtudögum. Almenn- ar sunnudagsguðsþjónustur í Áskirkju falla nið- ur um óákveðinn tíma vegna Covid-19- veirufaraldursins. GRAFARVOGSKIRKJA | Sunnudaginn 8. nóv- ember kl. 11 verður streymt frá helgistund á Fa- cebooksíðu kirkjunnar. Sr. Guðrún Karls Helgu- dóttir þjónar. Organisti er Hákon Leifsson. Sunnudagaskólinn verður á Facebooksíðu kirkj- unnar kl. 9.30. PRESTBAKKAKIRKJA Hrútafirði | Sunnu- dag kl. 11 árdegis verður streymt frá messu. Fermingarbörn aðstoða. Einleikur María Björg Sigurðardóttir. Orgel Louise Price. SELTJARNARNESKIRKJA | Helgistund í streymi á facebókarsíðu Seltjarnarneskirkju kl. 12 (ath. breyttan tíma). Sr. Bjarni Þór Bjarnason þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Eygló Rúnarsdóttir syngur. Steinunn Einars- dóttir og Svana Helen Björnsdóttir lesa ritning- arlestra. Sæmundur Þorsteinsson les bænir. Tæknimaður er Sveinn Bjarki Tómasson. Bænastund í streymi á facebókarsíður Sel- tjarnarneskirkju miðvikudaginn 11. nóvember kl. 12. Orð dagsins: Konungsmaðurinn (Jóh. 4) Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Kirkjuhvammskirkja. Í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá fæðingu Óskars Ágústssonar íþróttakennara, 8. nóvember 1920. Haustið 1944 renndi rúta í hlaðið á Laugum í Reykja- dal. Um borð í henni var nýr íþróttakenn- ari Laugaskóla, Sunnlendingur að nafni Óskar Ágústsson. Með sömu rútu kom einnig nýr nemandi við skólann, Elín Friðriksdóttir úr Skagafirði. Þau kynntust þennan vetur, íþróttakennarinn og nemandi hans, og giftu sig síðan nokkrum árum síðar eða hinn 18. septem- ber árið 1948 eftir að hún hafði tekið húsmæðrakennarapróf frá Húsmæðrakennaraskóla Íslands. Hjónabandið entist á meðan bæði lifðu. Ekki voru allir Þingeyingar ánægðir með að fá íþróttakennara að sunnan og gerðu sumir grín að málfari hans sem þótti heldur sunnlenskt. Hann var þó fljótt tekinn í sátt og varð Óskar sannur og jafnvel meiri Þingeyingur en þeir sem fyrir voru í sýslunni. Í Þingeyjarsýslu vildi hann búa og hvergi annars staðar. Þar fannst honum umhverfið fallegt og mannlífið gott. Óskar fæddist í Árnessýslu 8. nóvember 1920 en ólst upp í Sauð- holti í Rangárvallasýslu. Hann lauk prófi frá Héraðs- skólanum á Laugarvatni árið 1940 og íþróttakennaraskólanum á Laugarvatni árið 1941, þá 21 árs gamall. Hann var fyrsti farkennari UMFÍ og ÍSÍ og fór víða um land og sinnti því starfi í þrjú ár. Hann varð síðan íþróttakennari við Laugaskóla árið 1944 og starf- aði þar allt til ársins 1985 eða í 41 ár. Hefur enginn kennt lengur við Laugaskóla. Óskar var góður kennari og mjög starfsamur. Hann hafði ein- stakt lag á að fá fólk til að vinna með sér og var vel liðinn af nem- endum sínum og samstarfsmönn- um. Árið 1945 tók Óskar við sund- námskeiðum sem haldin voru á Laugum á hverju vori fyrir börn og unglinga. Námskeiðin voru haldin fyrir börn úr báðum Þing- eyjarsýslunum því eina sundlaug- in var á Laugum. Um átta þúsund börn lærðu að synda á þessum námskeiðum og komu þau allt frá Raufarhöfn og Húsavík ásamt nær öllum sveitum allt til Eyja- fjarðar. Óskar var í stjórn Héraðssam- bands Þingeyinga, HSÞ, í tæp 30 ár og þar af formaður í 19 ár. Árið 1961 tók hann að sér að vera fram- kvæmdastjóri landsmóts UMFÍ á Laugum sem haldið var af mjög miklum myndarskap og metnaði. Óskar á Laugum hafði unun af mannlegum samskiptum. Honum leiddist iðjuleysi og varð ætíð að hafa nóg fyrir stafni. Hann tók snemma við rekstri mötuneytis Laugaskóla en talsverð vegalengd var í næstu verslun sem var Kaup- félag Þingeyinga, KÞ á Húsavík. Óskar sá strax að erfitt væri að afla aðfanga fyrir mötuneytið svo hann fór þess á leit við KÞ að opn- að yrði útibú frá kaupfélaginu á Laugum. Sú hugmynd þótti ekki arðvænleg og var hafnað svo úr varð að Óskar opnaði sína eigin sveitaverslun sem hann og Elín kona hans ráku svo í mörg ár. Opið var daglega í versluninni á vetrum milli kl. 13 og 16 en ef sveitungar komu og þurftu af- greiðslu utan þess tíma þótti ekki mikið tiltökumál að opna búðina, sama á hvaða tíma sólarhringsins það var. Kaupfélagsmenn sáu of- sjónum yfir þessari verslun sem seldi vörur sínar á mun lægra verði en í KÞ á Húsavík. Óskar keypti sem dæmi sjálfur fóðurbæti beint frá heildsölum í Reykjavík og flutti norður. Fóðurbætir- inn kom í 50 kg sekkjum sem var sturtað í snjóskafl fyrir utan búðina. Ægivald kaupfélags- ins var hins vegar slíkt að bændur komu eingöngu í skjóli myrkurs til að kaupa ódýr- ari fóðurbæti í verslun Óskars. Þeir vildu ekki eiga á hættu að falla í ónáð hjá kaupfélagsmönn- um. KÞ brást á endanum við samkeppninni og vildu þeir kaupa verslun Óskars og gera hann að verslunarstjóra. Óskar vildi hins vegar ekki selja og hætti ekki verslunarrekstrinum fyrr en KÞ opnaði útibú á Laugum. Óskar tók við bréfhirðingu á Laugum árið 1948. Fyrst var bréf- hirðingin í einum skáp í stofu þeirra hjóna í aðalbyggingu Laugaskóla. Síðan var þetta „pósthús“ staðsett í kompu undir stiga í húsi sem heitir Dverga- steinn. Pósthúsið flutti svo í gott húsnæði í nýbyggðu húsi sem kall- aðist Draugasteinn. Þessi póst- þjónusta var rekin í um 40 ár. Óskar var hótelstjóri og ráku þau hjónin sumarhótelið fyrir Laugaskóla í samtals 40 ár eða til ársins 1989. Óhætt er að segja að hótelrekstur Óskars hafi haft mik- ið að segja fyrir sýsluna því arður af hótelinu fór í viðhald og upp- byggingu héraðsskólans. Hótel- rekstrinum fylgdi mikil vinna og utanumhald enda var Óskar á vakt nær allan sólarhringinn og voru öll hús á Laugum notuð und- ir gesti, húsmæðraskólinn líka. Vinnan hófst kl. sjö á morgnana og var húsunum læst á miðnætti, en Óskar var sjálfur í hlutverki næturvarðar. Vegna tekna af rekstri sumar- hótelsins var viðhald mun betra en í öðrum héraðsskólum enda er Laugaskóli einn eftir af héraðs- skólunum og er í dag starfræktur sem Framhaldsskólinn á Laug- um. Auk Hótels Lauga rak Óskar sumargistingu á Stóru-Tjörnum og Hafralæk. Einnig átti hann svo Hótel Akureyri og rak hann því um tíma samtals fjögur hótel. Vegna kennslu sinnar, annarr- ar vinnu og félagsmála var frítím- inn nánast enginn og Óskar alltaf á ferðinni. Fræg er saga frá Landsmótinu á Laugum árið 1961, er maður nokkur spurði hvar Óskar væri staddur því hann þurfti nauðsynlega að ná tali af honum. Manninum var réttilega tjáð að eina leiðin til þess væri að standa bara kyrr því þá mundi Óskar koma fljótlega. Óskar var einn af stofnendum Lionsklúbbsins Náttfara. Eftir að þau hjónin fluttu til Reykjavíkur árið 1985 var hann ötull í starfi eldri borgara í Reykjavík, sat í ferðanefnd félagsins til fjölda ára og var þar fararstjóri og leiðsögu- maður. Auk þess tók hann virkan þátt í félagsstarfi eftirlaunakenn- ara í Reykjavík. Óskar hlaut margar viðurkenn- ingar fyrir störf sín. Hann var sæmdur starfsmerki UMFÍ árið 1971, gullmerki UMFÍ árið 1976 og heiðursorðu ÍSÍ árið 1970. Hann var gerður að heiðursfélaga ÍSÍ árið 1980 og sæmdur riddara- krossi hinnar íslensku fálkaorðu hinn 17. júní árið 1996 fyrir störf í þágu íþrótta- og æskulýðsmála. Óskar og Elín eignuðust fjögur börn, Friðrik Ágúst, Hermann, Knút og Unu Maríu. Barnabörn og barnabarnabörn eru fjölmörg. Óskar á Laugum lést 27. júlí ár- ið 2011 á 91. aldursári. Ágúst Óskarsson. Óskar Ágústsson Ég vil hér vekja athygli á lítt grund- uðum og yfirkeyrðum stjórnunarháttum heilbrigðisyfirvalda, með heilbrigðis- ráherra og forsætis- ráðherra í farar- broddi, þar sem COVID og COVID- sjúklingar er tekið fram yfir alla aðra og nánast allan annan rétt og hagsmuni hinna ýmsu þjóðfélagshópa í landinu; líka fram yfir aðra sjúklinga, sem þó kunna oft að vera veikari og í meiri hættu. 540 skurðaðgerðum frestað; stór hluti sjúklinga kvalinn Það kom fram í fréttum 29. október, að landlæknisembættið hefði fyrir- skipað frestun „valkvæðra aðgerða með svæfingu“. Var þetta gert til að mögu- leiki hugsanlegra COVID-sjúklinga, til að komast að á bráðamóttöku eða Landspítala, yrði ekki skertur. Bara hjá Orkuhúsinu þýddi þetta frestun um 540 aðgerða. Væntanlega urðu aðrar einkareknar heilbrigðis- stofnanir og skurðstofur fyrir þessu líka. Heildarfjöldi frestaðra rannsókna og aðgerða, bara nú, kann því að vera miklu hærri. Með öðrum orðum forgangsraðaði landlæknisembættið COVID-sjúk- lingum langt fram fyrir alls kyns aðra sjúklinga, sem þó voru alvarlega veikir, margir þjáðir, og höfðu beðið aðgerðar, á sama tíma og COVID-sjúklingarnir voru í raun alls ekki til staðar; þetta var bara hópur heilbrigðs fólks, sem hugsanlega kynni að veikjast og þurfa á sjúkraþjónustu að halda. 1.913 hafa látist, þar af aðeins 18 af COVID; 0,9% Flestum ber saman um, að skaðsemi og hættu af sjúkdómi beri einkum að meta út frá dánartíðni. Það er auðvitað líka ljóst, að sumir – ég held þó eingöngu þeir, sem veiktust í fyrri bylgju, þegar veiran var miklu skæðari og hættulegri, en nú í annarri bylgju – hafa liðið lengi og mikið af eftirköstum, þó að þeir séu flestir smám saman að ná sér, og það liggur fyrir, að 18 manns hafa látizt af COVID janúar- október, en á sama tíma hafa 1.895 manns látizt af öðrum sjúkdómum og völdum, sem þýðir það, að aðeins 0,9% dauðsfalla, það sem af er árinu, stafa af COVID; 99,1% af öðrum sjúkdómum og völdum! Má ýta 99,1% sjúklinga til hliðar og rústa mannlíf í landinu út af 18 dauðsföllum!? Já, greinilega má það ekki aðeins, heldur hefur það verið gert. Illu heilli fyrir land og þjóð; mannlíf, atvinnulíf og vel- ferð í landinu. Stundum er talað um, að bjarga eyrinum og henda krón- unni, þegar menn nálgast við- fangsefnin með þessum hætti. Ef vandi steðjar að fyrirtækjarekstri, eru viðbrögð oftast þau, að gripið er til margvíslegra ólíkra en samstilltra að- gerða. Einfaldar og einhliða aðgerðir teljast ekki til nútímalegra stjórnunar- aðferða. Stjórnvöld virðast aðeins kunna eina leið: „Lok, lok og læs og allt í stáli“ Í stað þess að leita að og beita blönd- uðum lausnum, eins og gert er í fyrir- tækjarekstri – en íslenzka ríkið er auð- vitað stærsta fyrirtæki landsins – virðast ríkisstjórn og heilbrigðisyfirvöld ekkert vita eða skilja, nema eina leið: Takmarka, hindra eða loka á frelsi manna til lífs og athafna; að leggja dauðsmannshönd á þjóðlífið. Bakari hengdur fyrir smið Akkúrat nú voru nýjar, geysilega hertar aðgerðir, að taka gildi. Skal fyrst nefndur sá punktur, að það orki tvímæl- is, að þær standist lög og stjórnaskrá landsins. Fyrir undirrituðum hefur eng- inn í ríkisstjórn eða stjórnsýslu það of- urvald, sem hér var beitt gagnvart frelsi landsmanna til lífs og athafna, nema Al- þingi. Það, sem skiptir mestu máli akkúrat nú, er þó þetta: Hér voru í gangi takmarkanir og að- gerðir, sem voru að skila árangri og virtust vera á réttri leið. Svo gerist það, vegna afglapa eða fyr- ir óviðráðanlega slysni, að stórfellt smit kemur upp á Landakoti, sem breiðist svo út í margar áttir – virðist m.a. leiða til tveggja nýrra dauðsfalla og tvöföld- unar COVID-sjúklinga á sjúkrahúsi – en þetta er auðvitað einangrað fyrir- brigði, sem hafði lítið eða ekkert með al- menna starfsemi og mannlíf í landinu að gera. Hvernig stenzt það þá, að refsa fólki almennt; fjölskyldum, fyrirtækjum, námsmönnum, íþróttamönnum, sund- mönnum, listamönnum, ferðamönnum og alls konar skemmti-, líkamsræktar- og samkomuþjónustu, sem hafði ekkert með skelfilegt hópsmitið á Landakoti að gera, með nýjum harðræðisaðgerðum!? Hér er þó virkilega verið að hengja bakara fyrir smið! Hvaða önnur leið var fær? Nú liggur fyrir, m.a. skv. staðreynd- um og tölum hér að ofan, að COVID- hættan hefur reynzt meira huglægur vandi en raunverulegur. Aðeins 18 manns hafa látizt af COVID síðustu 10 mánuði, á sama tíma og 1.895 hafa látizt af öðrum völdum. Og, sem sagt, nú í seinni bylgju hafa mest fjórir verið í gjörgæzlu í einu, sem ætti að vera mælikvarði nr. 2 á skaðsemi sjúkdómsins. Á sama tíma lá fyrir í maí, skv. land- lækni, að þá hafi verið hægt að tryggja allt að 32 gjörgæzlurúm í landinu. Þörfin á gjörgæzlurúmum hefur því ekki verið nema um 10%, af þeim fjölda, sem var til staðar. Dánartíðni og gjör- gæzluþarfir vegna COVID hafa því, í raun, verið „smávægilegar“. Guði sé lof. Það, sem eftir stendur, með tilliti til COVID-heilbrigðisþjónustu, er þá al- menn þörf til innlagningar smitaðra á sjúkrahús, án þess að veikindi séu alvar- leg. Þessir sjúklingar geta líka verið heima, meðan á veikindum stendur, með læknisráðgjöf í síma, eða á göngudeild. Til þessarar þjónustu, sem er meira til þæginda og öryggis, þarf enga há- tækni. Engar sjúkrastofur með dýrum og fullkomnum tækjabúnaði. Gott og hreint rúm og herbergi með eftirliti, umönnun og ráðgjöf, ekki endi- lega bara faglærðra, kannski að hluta t.a.m. fyrrverandi flugfreyja, hefði hér dugað. Hví var ekki farið í það, að tryggja aukinn fjölda legurúma, fyrir meðal og minna veika COVID-sjúklinga, sem treystu sér ekki til að vera heima – kannski einfaldlega með starfsliði – með nýtingu á auðum hótelrýmum, eins og á Náttúru, Sögu eða Oddsson? Ef hugleiðingar og ráðstafanir í þessa átt hefðu átt sér stað, hefði kannske mátt hlífa mönnum og fyrirtækjum – landsmönnum í heild sinni – við þeim miklu áföllum; vanlíðan, óöryggi, kvíða og þeirri óhamingju, sem þvinganir, harðar takmarkanir og lokanir hafa í för með sér. Eftir Ole Anton Bieltvedt » COVID-sjúklingar eru teknir fram yfir alla aðra þjóðfélagshópa í land- inu; líka fram yfir aðra sjúklinga sem þó kunna oft að vera í meiri hættu. Ole Anton Bieltved Höfundur er alþjóðlegur kaupsýslumaður og stjórnmálarýnir. Forgangsröðun vegna COVID ranglát, siðlaus og forkastanleg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.