Morgunblaðið - 07.11.2020, Síða 39

Morgunblaðið - 07.11.2020, Síða 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2020 ✝ Hermann Al-bert Jónsson fæddist á Sléttu í Sléttuhreppi við Ísafjarðardjúp 12. apríl 1940. Hann lést á Landspít- alanum 25. október 2020. Foreldrar Her- manns voru Jón Guðnason bóndi og Emilía Alberts- dóttir húsfreyja. Systkini hans voru: Guðni, Hulda, Hanna, Gísli og Ingvi Jónsbörn. Þau eru nú öll látin. Eftirlifandi eig- inkona Hermanns er Svana Ólafsóttir, f. 10. september 1943 í Vopnafirði. Hermann og Svana gengu í hjónaband 17. ágúst 1962 og eignuðust tvo syni, þá Jón og Höskuld. Hermann var menntaður húsa- smíðameistari og starfaði við iðnina alla sína starfsævi. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. Kær frændi er látinn, Her- mann Albert eða Hemmi eins og við kölluðum hann alltaf, sá síð- asti af sinni kynslóð, þeirra sem fæddust í Bólhúsinu á Sléttu í Jökulfjörðum. Hann var næst- yngstur af 6 börnum sem upplifðu miklar breytingar á högum sínum þegar flutt var á Ísafjörð eftir að jörðin fór í eyði 1947. Öll voru systkinin mjög glaðvær, samheld- in, söngelsk og hlý og var Hemmi engin undantekning þar á. Hemmi var alltaf mjög bóngóður, „elskan mín, við björgum þessu“ var alltaf viðkvæðið þegar maður leitaði ásjár hjá honum. Mikil samskipti voru á milli Hemma og föður okkar, Guðna, enda voru þeir perluvinir og miklir félagar. Við viljum votta Svönu, eigin- konu Hemma, og börnum og fjöl- skyldu þeirra okkar dýpstu sam- úð og þakka fyrir allar góðu stundirnar í gegnum lífið. Dagný, Selma, Jón Ólafur og Edda Ýr. Fallinn er frá vinur og sam- starfsmaður til margra ára, Her- mann Albert Jónsson. Hemmi eins og hann var alltaf kallaður fæddist á Sléttu í Sléttuhreppi við Ísafjarðardjúp 12. apríl 1940. Það hefur sjálfsagt verið harðbýlt á þessum stað en sjórinn og bjargið skapaði möguleika til að lifa af. Það þurfti þó töluvert til því systkinin voru alls sex talsins en þau eru nú öll látin. Þegar Hemmi var um fermingu flutti fjölskyld- an til Ísafjarðar. Fljótlega fór drengurinn að vinna fyrir sér með sjómennsku, því það þurfti að færa björg í bú. Hann var á síld á sumrin og oft var það allslark- samt eins og staðið var að síld- veiðum í þá daga á litlum mót- orbátum. Það var svo í einni landlegunni á Austfjörðum að hann kynntist ungri og fallegri stúlku frá Vopnafirði, henni Svönu sinni, og þá varð ekki aftur snúið. Hermann vildi ekki gera sjómennsku að ævistarfi sínu, hafði hann hug á því að læra hús- gagnasmíði en það gekk ekki eft- ir. En það varð úr að hann komst í nám í húsasmíði hjá miklum heið- ursmanni, Jóni Hannessyni bygg- ingarmeistara. Það var hjá Jóni Hannessyni sem fundum okkar Hermanns bar saman, þar mynd- aðist vinskapur sem entist ævi- langt. Fyrstu árin bjuggu Hemmi og Svana í Reykjavík en fljótlega fór hann að huga að húsbyggingu. Hann fékk lóð að Hraunbraut 14 í Kópavogi undir tvíbýlishús og byggði það í samvinnu við Jakob Jensson húsasmið. Þetta var auð- vitað ofurmannlegt átak hjá ung- um félitlum húsasmið sem ný- kominn var úr námi. En með samstöðu og samhaldssemi þeirra Svönu tókst þeim að gera sér yndislegt heimili á Hraun- brautinni. Það sem meira var, for- eldrar hans fengu litla íbúð í hús- inu og bjuggu þar til æviloka. Hermann og Svana eignuðust tvo syni, þá Jón, fæddur 1962 og Höskuld, fæddur 1966. Jón lærði húsasmíði hjá föður sínum og starfar við iðnina enn í dag, en Höskuldur er tölvunarfræðingur hjá utanríkisþjónustunni. Þegar drengirnir voru komnir úr föður- húsum minnkuðu þau hjónin við sig og bjuggu síðustu árin að Álf- konuhvarfi 39 í Kópavogi. Árið 1972 hófst nýr kafli í vinskap okk- ar Hermanns þegar við stofnuð- um fyrirtækið HB innréttingar sem í upphafi var starfrækt við Auðbrekku í Kópavogi. Árið 1978 var fyrirtækið flutt í framtíðar- húsnæði á Smiðjuvegi 12, þar var það starfrækt allt til ársins 2006. Þetta voru því orðin heil 34 ár sem við Hermann störfuðum saman í sjálfstæðum rekstri. All- an þann tíma bar aldrei neinn skugga á samstaf okkar sem reyndist mjög farsælt í alla staði. Með þessum fáu orðum vil ég þakka þér einlæga vináttu í gegn- um tíðina. Allt á sinn endapunkt, svo er einnig með lífið. Nú ertu horfinn á vit feðranna. Kæri Her- mann, takk fyrir allt og allt! Svana, Jón og Höskuldur, inni- legar samúðarkveðjur til ykkar og fjölskyldna. Guð blessi minn- ingu vinar míns Hermanns A. Jónssonar. Björgvin Elíasson. Hermann Albert Jónsson ✝ Sólrún Her-mannsdóttir fæddist á Suður- eyri við Súg- andafjörð 7. októ- ber 1945. Hún lést á dvalar- og hjúkrunarheim- ilinu Grund í Reykjavík 4. októ- ber 2020. For- eldrar hennar voru Hermann Guðmundsson, stöðvarstjóri Pósts og síma á Suðureyri, f. 12.6. 1917, d. 12.12. 2005, og kona hans Þórdís Ólafsdóttir, f. 2.5. 1922, d. 2.7. 1982. Sól- rún var elst fimm systkina, en systkini hennar eru: Svein- björg, f. 25.12. 1946, d. 14.12. 2001, gift Hlöðveri Kjart- anssyni; Herdís Jóna, f. 24.6. 1049, gift Gísla Vilhjálmi Jóns- syni; Guðmundur Óskar, f. 25.5. 1950, kvænt- ur Bryndísi Ein- arsdóttur, og Hall- dór Karl, f. 6.12. 1958, sambýlis- kona hans er Guð- rún Ólöf Sigurð- ardóttir. Dóttir Sólrúnar er Þórdís Ingjalds- dóttir, f. 11.7. 1968. Þórdís gift- ist Guðmundi Arn- arssyni, f. 11.2. 1966. Eiga þau þrjú börn, Sólrúnu Sif, f. 2.5. 1993, Arnar Orra, f. 7.2. 2001, og Sigríði Birtu, f. 30.7. 2009. Sólrún ólst upp á Suðureyri, hún stundaði nám við Héraðs- skólann á Núpi og sótti síðar nám í Húsmæðraskóla Reykja- víkur. Sólrún starfaði ávallt sem talsímavörður. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sólrún systir er látin. Þar er skarð fyrir skildi og eftirsjá. Að hún sem var okkar systkinanna elst og ráðdeildarríkust, yfir- veguð og hugljúf, skuli nú hafa kvatt þetta jarðlíf rétt að verða 75 ára. Minningar eru góðar frá æsku til lokadags. Við ólumst upp í foreldrahúsum á Suður- eyri við Súgandafjörð, börnin þeirra pabba og mömmu, þrjár systur elstar og tveir yngri bræður. Samkomulag var gott meðal systkina eins og ávallt er og æskuljómi í foreldrahúsum. Lífshlaup er leikur, skóli og vinna. Sjá sér farborða og klára lífsstríðið. Það gerði Sólrún með sóma. Hún fluttist til Reykjavíkur á árunum eftir landspróf frá Núpi og bjó þar það sem eftir lifði. Til hennar var alltaf gott að koma. Sólrún eignaðist svo dótturina Þórdísi 1968, hún er gift Guðmundi Arnarsyni og eiga þau þrjú mannvænleg börn, Sólrúnu Sif, Arnar Orra og Sigríði Birtu. Faðir Þórdísar er Ingjaldur Pétursson. Hjá dóttur sinni átti hún góða vinkonu, en þær mæðgur voru samrýndar alla tíð og meir og meir eftir því sem leið á æviskeiðið og tengdasonurinn og barnabörnin stór þáttur í lífsbaráttunni, annars einstæðrar móður. Hamingja og ráðdeildarsemi fara oft vel saman í bland við glaðværð og umhyggju. Fjöl- skyldan með ömmu í fyrirrúmi var samhent og barnabörnin í sérstöku uppáhaldi að séð varð. Eftir sjötugt virtist einhver kvilli gera vart við sig, kannski smá öldrun, með jafnvægisleysi og minnkandi hreyfigetu. Gott var eftir sem áður að vera í ná- vist hennar, kaffisopi og spjall og fjölskyldusamkomur við viss tækifæri. Erfiðir tímar komu svo snemma á þessu ári, sem covid-19 er, og erfiðara um vik með samskipti. Þá var dóttur- fjölskyldan mikils virði. Við systkinin söknum nú stóru systur, en með þakklæti fyrir samferðina í þessu jarð- neska lífi. Við vottum þér, elsku Þórdís, Mummi og börn- um ykkar einlæga samúð. Sól- rún systir, sofðu rótt og góður Guð geymi þig. Minningin lifir. Herdís Hermanns- dóttir, Guðmundur Hermannsson, Halldór Hermannsson og fjölskyldur. Sólrún Hermannsdóttir Amma okkar Veiga eða amma í Kópó er fallin frá. Við eigum góðar minningar um ömmu og margar þeirra eru úr Hrauntungunni í Kópavoginum. Í heimsóknum þar fékk sköpunargleðin að njóta sín. Við föndruðum og bjuggum til klippimyndir, hún var óhrædd við að leyfa okkur að nota skæri og stundum fengum við að leika með eld og kertavax. Það var eflaust hennar leið til að kenna okkur að umgangast hluti sem börnum var kennt að forðast. Það var mikið spilað í Hraun- tungunni, til dæmis rommí, mast- ermind, sjóorrusta og matador. Plötuspilarinn var líka stundum notaður, Dýrin í Hálsaskógi og Kardimommubærinn voru í uppáhaldi. Amma var með græna fingur og fórum við út í garð að sækja laufblöð til að þurrka í bókum. Á sumrin fengu fallegi rósarunninn og litríku blómin í innkeyrslunni að njóta sín og búnir voru til fal- legir blómvendir. Í garðinum var búið að gróðursetja björk og hlyn og það var passað sérstaklega upp á þau. Amma var stúdent úr Mennta- skólanum á Akureyri og bóka- safnsfræðingur úr Háskóla Ís- lands. Hún vann við tölvur og tileinkaði sér tækninýjungar og var komin tölva með netinu strax og það var í boði, svo bætti hún við myndaskanna og prentara í þokkabót. Amma var eldklár og það var gott að hafa bókasafnsfræðing við höndina til að hjálpa við heim- ildaritgerðir. Hún var mikil tungumálamanneskja og fóru barnabörnin til hennar að fá hjálp, ekki skipti máli hvort það var enska, danska, þýska eða franska. Rannveig Gísladóttir ✝ RannveigGísladóttir fæddist 17. febrúar 1932. Hún andaðist 16. október 2020. Útför Rann- veigar fór fram 30. október 2020. Amma hélt sér vel við, meðal ann- ars með því að skrifa frönskustíla nokkrum vikum áð- ur en hún fór. Skemmtilegar sögur sem hún sagði og einkennandi hlátur eru góðar minningar. Stund- um átti hún erfitt með að klára sögur því hún hló svo mikið. Þar sem amma vann við að flokka bækur vissi hún einhvern veginn eitt- hvað um allt. Hún fylgdist vel með fréttum og því var hægt að spjalla við hana um hvað sem er. Hvort sem það voru ungir rapp- arar eða úrslitin í enska boltan- um. Síðustu misserin las hún Krúnuleikana (Game of Thrones- bækurnar), bjó til ættartré til að átta sig á samhenginu, samhliða horfði hún svo á þættina. Amma var mikill safnari og safnaði frímerkjum, myntum, póstkortum og tók mikið af ljós- myndum. Hún setti óþekkt við- mið í skipulagningu og flokkun á þessu öllu sem einungis er hægt að líta upp til og dást að en ómögulegt að leika eftir. Þegar afi dó tók amma því með miklu æðruleysi. Sagði að nú tæki nýr kafli við. Hún flutti úr Hrauntungunni yfir í Fannborg- ina í Kópavogi. Henni fannst skemmtilegt að velja sjálf inn í íbúðina og sagði þetta minna sig á heimavistina í menntaskóla. Eitt af því sem hún valdi sér var hvítt jólatré sem hana hafði dreymt um. Amma hvatti okkur til að elta drauma okkar og taka okkar ákvarðanir sjálf, ekki láta aðra ákveða fyrir okkur. Fólk sér nefnilega ekki eftir ákvörðunum sem það tekur sjálft. Elsku amma, þú varst okkur góð fyrirmynd og það var ynd- islegt að hafa þig til staðar í gegnum lífið. Við vitum að þú kvaddir þetta líf sátt og þú hefur það gott núna með afa. Takk fyrir allt, hafðu það sem allra best. Björk, Hlynur, Þórarinn og Sigrún Dís. Við þökkum samúð og hlýhug við fráfall föður okkar, tengdaföður og afa, ÓLAFS GUÐMUNDSSONAR, Hrafnistu, Laugarási, sem lést hinn 22. október. Útförin hefur farið fram. Arngrímur Friðrik Ólafsson Ásta Ólafsdóttir Vignir Jónsson Einar Ólafsson Gunnhildur Stefánsdóttir Sveinn Ólafsson og barnabörn Innilegar þakkir fyrir veitta samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, RANNVEIGAR GÍSLADÓTTUR bókasafnsfræðings, sem lést 16. október. Guðmundur Ingason Gyða Jónsdóttir Örn Erlendur Ingason Guðbjörg Rós Sigurðardóttir Haukur Ingason Katrín Þórarinsdóttir Sólborg Erla Ingadóttir Kristinn Vestmann Harðarson Þórdís Ingadóttir Snorri Þorgeir Ingvarsson barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ARNBJARGAR ÞÓRÐARDÓTTUR. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Fossheima fyrir hlýhug og góða umönnun. Helga Þórdís Guðmundsd. Vigfús Guðmundsson Guðbjörg Fríða Guðmundsd. Sigurdór Már Stefánsson Jóhann Björn Guðmundsson Anna Þóra Guðmundsdóttir Hermann V. Baldursson Lárus Arnar Guðmundsson Íris Ellertsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Hann hefur nú kvatt þessa tilveru hann Steini bróðir, elstur okkar þriggja bræðra, en var svo óheppinn að frá fæðingu voru hnökrar í andlegri tilveru hans, hnökrar sem fylgdu hon- um alla ævi og voru honum oft fjötur um fót. Við ólumst upp á góðu heimili með frábæra foreldra og segja má að lífið hafi leikið við okkur. Nám var Steina ekki sérlega auðvelt en hann lærði smíðar, öðlaðist meistararéttindi og síðar bætti hann við sig byggingafræði í Danmörku en þetta nýttist honum ekki sem skyldi. Hann var með hraustustu mönnum, rammur að afli og hans góðu dagar voru helst við mótaupp- slátt í vitlausu vetrarveðri. Steini var ávallt glaðsinna, brosmildur, mannblendinn og hafði hjarta úr gulli. Ævi hans litaðist mest af þessum eig- inleikum við leik og störf. Hann lagði ýmislegt fyrir sig í lífshlaupinu, hélt til Svíþjóðar í atvinnuleysinu 1969 og tengdist með því bæði Svíþjóð og Danmörku í árafjöld. Steini var ákaflega ættrækinn og var í góðu sambandi við ættingja okkar í Danmörku alla tíð. Hér heima sýslaði hann við ýmislegt svo sem smíðar, múr- Steingrímur Sigurjónsson ✝ SteingrímurSigurjónsson fæddist 20. ágúst 1944. Hann lést 27. september 2020. Steingrímur var jarðsunginn 3. nóv- ember 2020. verk, rútuakstur og annað sem til féll. Fyrir all- nokkrum árum hannaði hann og teiknaði vinnu- tröppur sem voru smíðaðar upp úr frákasts-timbri á vinnustöðum, fékk þær viðurkenndar sem var nauðsyn- legt vegna örygg- ismála á vinnustöðum og þóttu þessar tröppur afburðaþægi- legar við vinnu, af þessum smíðum var hann stundum kallaður Steini tröppusmiður. Þetta var honum ágæt búbót síðustu árin, sérstaklega eftir að hann hætti formlegri vinnu. Síðustu árin var mikill sam- gangur á milli okkar bræðra allra, kom það til meðal ann- ars vegna sumarbústaðar móð- ur okkar við Laugarvatn og síðan einnig líka vegna þess að Steini var orðinn mikið til ein- stæðingur, var hann hjá okkur bræðrum alla hátíðisdaga og aðra fjölskyldudaga. Af honum dró nokkuð síðustu árin en alltaf var hann jafn glaður, sama hvaða mótlæti á hann lagðist, hvort heldur var á lík- amann eða sálina. Þetta skap- lyndi var Steina mikið til léttis þegar af honum dró, þessu mikla hraustmenni fyrri tíðar sem mátti muna fífil sinn fegri. Hann er nú horfinn til Sumarlandsins, kannski hitt- umst við þar aftur ef svo vill til að við fáum þar aðgang. Vertu sæll, bróðir og mág- ur. Sveinn Geir og Salóme.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.