Morgunblaðið - 07.11.2020, Qupperneq 49
FÓTBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Valur dróst í gær á móti Glasgow
City FC í 2. umferð Meistaradeildar
Evrópu og mætast liðin á Hlíð-
arenda 18. eða 19. nóvember.
Þótt kvennalið Vals sé stórveldi í
knattspyrnunni á Íslandi þá eru
samt sem áður liðin ellefu ár frá því
liðið lék síðast í Evrópukeppni. Er
það athyglisverð staðreynd. Þá lék
Valur einmitt á móti Glasgow City.
Þær skosku höfðu betur 3:0 á Hlíð-
arenda en í Glasgow fór 1:1. Hall-
bera Guðný Gísladóttir, sem nú er
fyrirliði Vals, tók þátt í leikjunum
sem og Mist Edvardsdóttir. Elín
Metta Jensen var einnig með, en
kornung.
Glasgow City verður tæplega auð-
veldur andstæðingur fyrir Val.
Raunar gæti maður ímyndað sér að
liðið sé mjög svipað bestu liðunum á
Íslandi. Ef horft er til árangurs liðs-
ins í Meistaradeildinni þá hefur það
fallið úr keppni í 16 liða eða 32 liða
úrslitum á undanförnum árum. Þar
hafa fulltrúar Íslands yfirleitt fallið
úr keppni. Í liðinu eru tveir leik-
menn sem léku hér á Íslandi á síð-
asta tímabili. Mairead Fulton lék
með Keflavík í efstu deild og Lauren
Wade skoraði 20 mörk fyrir Þrótt í
næstefstu deild.
Glasgow City hefur verið besta
liðið í Skotlandi og á þar mikilli vel-
gengni að fagna. Valur mætir
reyndu liði því margir leikmanna
liðsins hafa leikið fjölda landsleikja.
Liðin eiga það því sameiginlegt því
mikil reynsla býr í leikmönnum eins
og Dóru Maríu Lárusdóttur, Gunn-
hildi Yrsu Jónsdóttur, Hallberu og
Söndru Sigurðardóttur hjá Val á al-
þjóðlegum vettvangi.
„Þetta lið hefur mjög oft unnið
skosku deildina og er með markatöl-
una 10:1 eftir fyrstu tvo leikina. Mér
hefur oft fundist þær skosku spila
fótbolta sem er áþekkur okkar leik-
stíl,“ sagði Dóra María meðal annars
í gær en viðtalið við hana í heild sinni
er að finna á mbl.is/sport.
Morgunblaðið/Eggert
Meistaradeildin Dóra María í leiknum á móti HJK á dögunum.
Útlit fyrir spennandi viðureign
Í liði Glasgow City eru leikmenn sem léku hérlendis á síðasta tímabili
ÍÞRÓTTIR 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2020
Íslandsmótinu í fótbolta
lauk óhátíðlega og hispurslaust á
dögunum. Síðasti leikur tíma-
bilsins var spilaður 6. október en
örlög mótsins voru þó ekki end-
anlega ráðin fyrr en 30. október
þegar KSÍ loks bugaðist vegna
aðstæðna í samfélaginu.
Skiptar skoðanir eru á
þessum endalokum eins og við
var að búast. Margir voru fegnir,
enda tímabilið orðið langt og
staðan innanborðs hjá mörgum
félögum orðin erfið. Aðrir voru
auðvitað síður kátir, enda áttu
ýmis lið að miklu að keppa á
endasprettinum. Eitt þeirra er
félagar mínir í Safamýrinni.
Framarar misstu af úrvals-
deildarsæti á markatölu þegar
tvær umferðir voru enn óleiknar í
fyrstu deildinni. Sú niðurstaða
var Safamýrarpiltum eðlilega
þungbær og í gær bárust þær
fregnir að félagið hefði kært
ákvörðun KSÍ til áfrýjunardóm-
stóls sambandsins. Slást þeir
þar í hóp með KR-ingum sem
sömuleiðis hafa sent inn kæru
vegna endaloka tímabilsins.
Mér þykir í sjálfu sér eðlilegt
og sjálfsagt að forráðamenn fé-
lagsins láti á þetta reyna. Það er
eitt og annað óljóst varðandi
reglugerðina sem KSÍ setti sér
vegna kórónuveirunnar og ágætt
að þar til bærir aðilar úrskurði
um réttmæti hennar.
Von mín er þó ekki síður sú að
við Framarar, og allir þeir sem
eftir sitja með sárt ennið, látum
þetta mótlæti ekki slá okkur út
af laginu. Við megum ekki leggj-
ast í sjálfsvorkunn og gleyma því
frábæra tímabili sem kom okkur
einmitt í þá stöðu að vera marka-
tölu frá draumalandinu þegar að-
eins tveir leikir voru eftir. Auðvit-
að eru allir fótboltaáhugamenn
svekktir með svona endalok, en
aftur kemur dýrlegt sumar með
sól og blóm og fótbolta.
BAKVÖRÐUR
Kristófer
Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Knattspyrnu-
deild Njarðvíkur
hefur ráðið
Bjarna Jóhanns-
son og Hólmar
Örn Rúnarsson
til starfa sem
þjálfara karlaliðs
félagsins.
Gera þeir
tveggja ára
samninga við
Njarðvík og taka við af Mikael Niku-
lássyni sem var rekinn í vikunni.
Víkurfréttir greindu fyrst frá.
Bjarni hóf þjálfaraferilinn fyrir 35
árum sem spilandi aðstoðarþjálfari
Þróttar í Neskaupstað og er hann
því einn allra reynslumesti þjálfari
landsins. Síðan þá hefur hann þjálf-
að lið á borð við Grindavík, Fylki,
Breiðablik, ÍBV, Stjörnuna, KA og
síðast Vestra, en hann kom Vestra
upp úr 2. deild og upp í þá næstefstu
á síðasta ári.
Hólmar Örn er töluvert reynslu-
minni þjálfari en hann hefur þjálfað
Víði í 2. deildinni með Guðjóni Árna
Antoníussyni síðustu tvö tímabil.
Hann gat hins vegar ekki komið í
veg fyrir fall Víðisliðsins niður í 3.
deild.
Njarðvík hafnaði í fjórða sæti 2.
deildarinnar í sumar og var þremur
stigum frá öðru sæti, sem gefur
þátttökurétt í 1. deild.
Bjarni og
Hólmar til
Njarðvíkur
Bjarni
Jóhannsson
frá því að fara upp um styrkleikaflokk hjá
FIFA og takist það, meðal annars með góð-
um úrslitum gegn Dönum og Englend-
ingum, gæti Ísland staðið betur að vígi fyr-
ir undankeppni heimsmeistaramótsins
2022.
„Ég einbeiti mér fyrst að leiknum gegn
Ungverjalandi enda er hann okkur gríð-
arlega mikilvægur, við viljum fara á EM.
Svo hugsum við um Danmörku og England,
það skiptir máli að standa okkur vel þar,“
bætti Hamrén við.
Tuttugu þúsund áhorfendur
Ungversk yfirvöld hafa í samráði við
UEFA ákveðið að leyfa um 20 þúsund
áhorfendur á Puskás-leikvanginum í Búda-
pest. Þótt þeir verði nánast allir með tölu
stuðningsmenn heimamanna er Freyr Al-
exandersson aðstoðarlandsliðsþjálfari
hæstánægður með að þeir verði á staðnum.
„Það er stórkostlegt að spila fyrir framan
fólk,“ sagði hann á blaðamannafundinum.
„Við munum örugglega fá að heyra það en
það er hluti af leiknum, við munum njóta
þess að hafa stemningu.“
Yngra landsliðið einnig að berjast
Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari
U21 árs liðs karla, hefur tilkynnt hvaða
leikmenn mæta Ítalíu, Írlandi og Armeníu í
þremur mikilvægum leikjum í undankeppni
EM. Sjá nánar á mbl.is/sport.
LANDSLIÐIÐ
Kristófer Kristjánsson
kristoferk@mbl.is
Erik Hamrén, landsliðsþjálfari Íslands,
kynnti í gær 24 manna leikmannahópinn
sinn fyrir umspilsleikinn mikilvæga gegn
Ungverjalandi næsta fimmtudag sem og
gegn Dönum og Englendingum í Þjóða-
deildinni þar á eftir. Hópinn skipa allir
helstu landsliðsmenn Íslands síðustu ár,
byrjunarlið Íslands í Evrópukeppninni
sögufrægu í Frakklandi fyrir fjórum árum
er allt mætt til leiks og þá voru þessir leik-
menn flestallir á HM í Rússlandi sumarið
2018. Það vantar því ekki reynsluna fyrir
Ungverjaleikinn.
Hópurinn er í raun sá sami og var valinn
fyrir undanúrslitaleikinn gegn Rúmeníu í
síðasta mánuði nema að þeir Jón Dagur
Þorsteinsson og Mikael Anderson eru ekki
með. Þá var hinn 17 ára Ísak Bergmann
Jóhannesson ekki valinn þrátt fyrir að hafa
farið á kostum í Svíþjóð undanfarna mán-
uði. Jón Dagur og Ísak eru báðir í hópi U21
landsliðsins sem leikur mikilvæga leiki
gegn Ítalíu, Írlandi og Armeníu um sæti á
EM.
Staðan á leikmönnum góð
Allar líkur eru á því að Hamrén muni
stilla upp sterkasta liðinu sem kostur er á
gegn Ungverjum í Búdapest, enda allt und-
ir varðandi möguleikann á að komast á EM
næsta sumar. Nokkrir af lykilmönnum liðs-
ins hafa verið að glíma við smávægileg
meiðsli undanfarnar vikur en Svíinn er
bjartsýnn á að þeir geti allir verið með og
segir stöðuna á hópnum almennt góða.
Alfreð Finnbogason, Jóhann Berg Guð-
mundsson, Kári Árnason og Ragnar Sig-
urðsson hafa allir verið að glíma við smá-
vægileg meiðsli. Þá eru auðvitað Kári,
Hannes Þór Halldórsson og Birkir Már
Sævarsson allir á mála hjá íslenskum liðum
en ekkert hefur verið hægt að æfa né
keppa hérlendis um nokkurra vikna skeiða
vegna hertra sóttvarnaaðgerða yfirvalda.
Meðal annars vegna þess mun landsliðs-
hópurinn koma saman í Augsburg í Þýska-
landi á mánudaginn til að undirbúa sig.
„Það er reynsla, gæði og mikið hungur í
þessum leikmannahópi. Við viljum fara á
Evrópumeistaramótið,“ sagði Hamrén
áræðinn á blaðamannafundi íslenska liðsins
í gær. „Við höfum beðið eftir þessum leik
síðan í mars.“
Þótt allra augu séu auðvitað á leiknum
gegn Ungverjum skipta viðureignirnar við
England og Danmörku í Þjóðadeildinni
vissulega máli. Ísland er tveimur sætum
Reyndir og hungraðir
Allir lykilmenn Íslands í hópnum fyrir leikinn mikilvæga gegn Ungverjalandi
Einnig mikilvægt að ná úrslitum í Þjóðadeildinni gegn Danmörku og Englandi
Morgunblaðið/Eggert
Úrslit Íslensku landsliðsmennirnir fagna sigri gegn Rúmeníu í undanúrslitaleiknum á Laugardalsvelli.
Nú er komið að úrslitaleiknum sjálfum um sæti á EM gegn Ungverjalandi í Búdapest á fimmtudaginn.
MARKVERÐIR:
Hannes Þór Halldórsson Val .................................... 72 leikir
Ögmundur Kristinsson Olympiacos .................................. 16
Rúnar Alex Rúnarsson Arsenal ........................................... 6
VARNARMENN:
Ragnar Sigurðsson FC Köbenhavn ................................... 96
Birkir Már Sævarsson Val ..................................................93
Kári Árnason Víkingur R. ................................................... 85
Ari Freyr Skúlason Oostende ............................................ 74
Sverrir Ingi Ingason PAOK ................................................ 33
Hörður B. Magnússon CSKA Moskva ............................... 32
Hjörtur Hermannsson Bröndby ......................................... 17
Hólmar Örn Eyjólfsson Rosenborg .................................... 17
MIÐVALLARLEIKMENN:
Aron Einar Gunnarsson Al Arabi ....................................... 89
Birkir Bjarnason Brescia ................................................... 89
Gylfi Þór Sigurðsson Everton ............................................ 76
Jóhann Berg Guðmundsson Burnley ................................ 76
Arnór Ingvi Traustason Malmö .......................................... 37
Rúnar Már Sigurjónsson Astana ....................................... 28
Guðlaugur Victor Pálsson Darmstadt .............................. 20
Arnór Sigurðsson CSKA Moskva ....................................... 10
SÓKNARMENN:
Kolbeinn Sigþórsson AIK .................................................. 59
Alfreð Finnbogason Augsburg .......................................... 59
Jón Daði Böðvarsson Millwall ........................................... 52
Viðar Örn Kjartansson Vålerenga ..................................... 27
Albert Guðmundsson AZ Alkmaar .................................... 15
Landsliðshópurinn