Morgunblaðið - 07.11.2020, Síða 50
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2020
Í bókinni Tók ég eftir því þá eða tók
ég eftir því eftirá? rekur Halla
Birgisdóttir reynslu sína af því að
missa tökin á raunveruleikanum og
fara í geðrof. Bókin segir frá því er
Halla heldur með sambýlismanni
sínum og barni í ferðalag til Madr-
ídar með millilendingu í Lundúnum.
Þar verður ljóst að Halla er á leið í
geðrof sem ágerist í Lundúnum og
endar með því að ekkert verður af
ferð til Madrídar heldur er Halla
lögð inn á geðsjúkrahús. Í bókinni
lýsir hún þessari atburðarás með
orðum og fjölda teikninga og lýkur
frásögninni þar sem hún áttar sig á
því hvað það var sem henti hana,
tekur eftir því eftirá.
Aðspurð hvort það hafi ekki verið
erfitt að ganga svo nærri sér í frá-
sögninni, að opna sig svo mikið, seg-
ir Halla að þegar hún hafi byrjað á
verkinu fyrir næstum áratug, þá hafi
það sprottið af innri þörf. „Ég birti
eina færslu á dag á bloggsíðu og
nokkrum árum síðar ákvað ég að
setja þær í bókarform og klára sög-
una. Núna mörgum árum seinna,
þegar ég tók upp handritið aftur og
fór í þessa útgáfuvinnu, þá velti ég
því alveg fyrir mér af hverju væri ég
að segja öllum frá þessu en var kom-
in svo langt með þetta að það var
erfitt að bakka út úr því. Mér fannst
líka mikilvægara að þessi saga fengi
að heyrast en að mínar tilfinningar
fyrir þessu kæmu í veg fyrir það.“
– Í bókinni segir þú: „Það er svo
skrýtið að hafa upplifað eitthvað
sem gerðist í alvöru og af mikilli al-
vöru þar að auki, en eiga bara minn-
ingar sem eru óljósar og fjarlægar.
Eins og þetta hafi gerst í æsku eða
alls ekki gerst yfirhöfuð.“
„Þetta hefur fjarlægst og þess
vegna er ég líka glöð að hafa skrifað
þetta niður og haldið utan um það.
Ég veit ekki alveg hvort það að ég
skrifaði þetta niður og kom því ein-
hvern veginn frá mér geri að verk-
um að þetta sé ekki jafn ljóslifandi,
hvort minningarnar myndu ásækja
mig meira ef ég lokaði þetta inni og
fæli þetta.“
– Á öðrum stað í bókinni segir þú:
„Hvernig áttar maður sig á hvaða
viðbrögð manns við samskiptum við
fólk eru heilbrigð og hver ekki?“
Listamaðurinn sér alls konar hluti
sem þeir sjá ekki sem eru ekki lista-
menn og fer líka yfir alls konar
mörk.
„Bæði sem listamaður og sem
manneskja sem vill halda sér í and-
legu jafnvægi þá stundum er þetta
svolítið vegasalt. Ég var á fyrirlestri
einu sinni hjá listamanni sem var að
kynna verk sín og tala um sköpunar-
ferlið. Hún tók myndir af sjónvarp-
inu til að ná einhverri hugmynd sem
hún fékk. Fyrir mig sem listamann
er það kannski eðlilegt að taka
myndir af sjónvarpinu til að fanga
hugmynd en á sama tíma er það
merki um að ég gæti kannski verið
að detta í einhverja geðhæð. Þannig
að það er svolítið þunn lína þarna á
milli.“
Var rannsóknarvinna
– Teikningarnar í bókinni eiga
sinn þátt í að gera hana eins góða og
hún vissulega er. Eru þær frá þess-
um tíma, eða ertu að teikna minn-
ingar?
„Ég útskrifast af geðdeild 2011 og
síðan útskrifast ég úr Listaháskól-
anum 2013. Útskriftarverkið mitt úr
skólanum fjallaði um þessa reynslu
mína og í framhaldi af því fór ég að
teikna og fanga minningarnar í þess-
ar teikningar. Stundum er ég að
teikna myndir eftir ljósmyndum, en
listamaðurinn í mér gerði að verkum
að þegar ég var úti í London var ég
að skrásetja, tók myndir og lét taka
myndir af mér þannig að ég á ljós-
myndir sem undir eðlilegum kring-
umstæðum væru ekki til. Ég var svo
með útgáfuhóf fyrir bókina og sýndi
þar teikningar sem ég var að taka
upp úr kassa. Svo á ég líka fullt af
krassi í bók sem ég segi frá í sög-
unni, ég er með sjúkraskýrsluna og
sms frá systur minni, þetta var
rannsóknarvinna.“ arnim@mbl.is
Mikilvægt að sagan fengi að heyrast
Í bókinni Tók ég eftir því þá eða tók ég eftir því eftirá? rekur Halla Birgisdóttir reynslu sína af því
að lenda í geðrofi Byggir söguna á minningum sínum og annarra, minnisbókum og teikningum
Konungleg Halla mátaði ýmis hlutverk og reyndi að ganga konunglega um.
Loksins Halla, Daníel og Þórhalla með Þorvaldi bróður Daníels.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rannsóknarvinna Halla Birgisdóttir myndlistarkona og rithöfundur segir
frá erfiðri reynslu í bókinni Tók ég eftir því þá eða tók ég eftir því eftirá?
Tákn Í geðrofinu tók Halla ástfóstri við kolkrabbabangsa dóttur sinnar.
Gamanmyndin Síðasta veiðiferðin
verður endurgerð í Rúmeníu og
segir annar handritshöfunda og
leikstjóra myndarinnar, Örn Mar-
inó Arnarson, að undirbúningur sé
langt á veg kominn og að tökur
muni að öllum líkindum hefjast í
þessum mánuði, stefnt að 19. nóv-
ember. Örn og Þorkell Harðason
gerðu myndina saman og skrifuðu
þeir undir samning við rúmenska
framleiðslufyrirtækið Midnight
Sun Film í september um endur-
gerðina. Meðal þeirra sem reka
Midnight Sun Film er Pétur Sig-
urðsson. Leikstjóri myndarinnar
verður Valeriu Andriuta, þekktur
leikari í heimalandi sínu, og leik-
arar myndarinnar eru einnig
þekktir í Rúmeníu, þeirra á meðal
Serban Pavlu, Adrian Titieni og
Adrian Paduraru, að því er fram
kemur á vefnum Klapptré og Örn
Marinó vísar í.
Spurður hvort til standi að
endurgera myndina í fleiri löndum
segir Örn Marinó að jú, nokkur
svæði séu til skoðunar og viðræður
„á lokametrunum“. Rúmenska
endurgerðin sé aftur á móti komin
vel af stað og verið að púsla hlut-
unum saman. „Covid er náttúrlega
að þvælast eitthvað fyrir þeim líka,
meiri lokanir þar, en þeir ætla að
reyna að koma sér niður eftir á
tökuslóðir og vera þar í vinnu-
sóttkví og taka upp bíómynd,“ segir
Örn Marinó en tökustaður er óseyri
Dónár við Svartahaf.
Sýnd í Noregi
Fleiri endurgerðir eru í píp-
unum, sem fyrr segir, í Þýskalandi,
Bandaríkjunum og í Skandinavíu,
að sögn Arnar Marinós og eru sölu-
aðili og umboðsmaður að vinna í
þessum málum fyrir þá Þorkel. Bú-
ið er að selja Síðustu veiðiferðina til
dreifingar í Noregi þar sem hún
verður sýnd í kvikmyndahúsum og
segir Örn Marinó að átt hafi að
sýna myndina fyrir jól en sýningum
hafi verið frestað vegna farsótt-
arinnar og líklega hefjist þær eftir
áramót. Rúmenska endurgerðin
verður að öllum líkindum frumsýnd
á vormánuðum, ef Covid-19 leyfir.
helgisnaer@mbl.is
Veiðiferð tekin upp í Rúmeníu
Morgunblaðið/Arnþór Birkisson
Veiðimenn Þorkell Harðarson og
Örn Marinó Arnarson.
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is
Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga
VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI,
TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI?
Fjölmör
stuttnáms
í handve
g
keið
rki.
Skráning og upplýsingar á
www.handverkshusid.is