Morgunblaðið - 07.11.2020, Síða 50

Morgunblaðið - 07.11.2020, Síða 50
50 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2020 Í bókinni Tók ég eftir því þá eða tók ég eftir því eftirá? rekur Halla Birgisdóttir reynslu sína af því að missa tökin á raunveruleikanum og fara í geðrof. Bókin segir frá því er Halla heldur með sambýlismanni sínum og barni í ferðalag til Madr- ídar með millilendingu í Lundúnum. Þar verður ljóst að Halla er á leið í geðrof sem ágerist í Lundúnum og endar með því að ekkert verður af ferð til Madrídar heldur er Halla lögð inn á geðsjúkrahús. Í bókinni lýsir hún þessari atburðarás með orðum og fjölda teikninga og lýkur frásögninni þar sem hún áttar sig á því hvað það var sem henti hana, tekur eftir því eftirá. Aðspurð hvort það hafi ekki verið erfitt að ganga svo nærri sér í frá- sögninni, að opna sig svo mikið, seg- ir Halla að þegar hún hafi byrjað á verkinu fyrir næstum áratug, þá hafi það sprottið af innri þörf. „Ég birti eina færslu á dag á bloggsíðu og nokkrum árum síðar ákvað ég að setja þær í bókarform og klára sög- una. Núna mörgum árum seinna, þegar ég tók upp handritið aftur og fór í þessa útgáfuvinnu, þá velti ég því alveg fyrir mér af hverju væri ég að segja öllum frá þessu en var kom- in svo langt með þetta að það var erfitt að bakka út úr því. Mér fannst líka mikilvægara að þessi saga fengi að heyrast en að mínar tilfinningar fyrir þessu kæmu í veg fyrir það.“ – Í bókinni segir þú: „Það er svo skrýtið að hafa upplifað eitthvað sem gerðist í alvöru og af mikilli al- vöru þar að auki, en eiga bara minn- ingar sem eru óljósar og fjarlægar. Eins og þetta hafi gerst í æsku eða alls ekki gerst yfirhöfuð.“ „Þetta hefur fjarlægst og þess vegna er ég líka glöð að hafa skrifað þetta niður og haldið utan um það. Ég veit ekki alveg hvort það að ég skrifaði þetta niður og kom því ein- hvern veginn frá mér geri að verk- um að þetta sé ekki jafn ljóslifandi, hvort minningarnar myndu ásækja mig meira ef ég lokaði þetta inni og fæli þetta.“ – Á öðrum stað í bókinni segir þú: „Hvernig áttar maður sig á hvaða viðbrögð manns við samskiptum við fólk eru heilbrigð og hver ekki?“ Listamaðurinn sér alls konar hluti sem þeir sjá ekki sem eru ekki lista- menn og fer líka yfir alls konar mörk. „Bæði sem listamaður og sem manneskja sem vill halda sér í and- legu jafnvægi þá stundum er þetta svolítið vegasalt. Ég var á fyrirlestri einu sinni hjá listamanni sem var að kynna verk sín og tala um sköpunar- ferlið. Hún tók myndir af sjónvarp- inu til að ná einhverri hugmynd sem hún fékk. Fyrir mig sem listamann er það kannski eðlilegt að taka myndir af sjónvarpinu til að fanga hugmynd en á sama tíma er það merki um að ég gæti kannski verið að detta í einhverja geðhæð. Þannig að það er svolítið þunn lína þarna á milli.“ Var rannsóknarvinna – Teikningarnar í bókinni eiga sinn þátt í að gera hana eins góða og hún vissulega er. Eru þær frá þess- um tíma, eða ertu að teikna minn- ingar? „Ég útskrifast af geðdeild 2011 og síðan útskrifast ég úr Listaháskól- anum 2013. Útskriftarverkið mitt úr skólanum fjallaði um þessa reynslu mína og í framhaldi af því fór ég að teikna og fanga minningarnar í þess- ar teikningar. Stundum er ég að teikna myndir eftir ljósmyndum, en listamaðurinn í mér gerði að verkum að þegar ég var úti í London var ég að skrásetja, tók myndir og lét taka myndir af mér þannig að ég á ljós- myndir sem undir eðlilegum kring- umstæðum væru ekki til. Ég var svo með útgáfuhóf fyrir bókina og sýndi þar teikningar sem ég var að taka upp úr kassa. Svo á ég líka fullt af krassi í bók sem ég segi frá í sög- unni, ég er með sjúkraskýrsluna og sms frá systur minni, þetta var rannsóknarvinna.“ arnim@mbl.is Mikilvægt að sagan fengi að heyrast  Í bókinni Tók ég eftir því þá eða tók ég eftir því eftirá? rekur Halla Birgisdóttir reynslu sína af því að lenda í geðrofi  Byggir söguna á minningum sínum og annarra, minnisbókum og teikningum Konungleg Halla mátaði ýmis hlutverk og reyndi að ganga konunglega um. Loksins Halla, Daníel og Þórhalla með Þorvaldi bróður Daníels. Morgunblaðið/Árni Sæberg Rannsóknarvinna Halla Birgisdóttir myndlistarkona og rithöfundur segir frá erfiðri reynslu í bókinni Tók ég eftir því þá eða tók ég eftir því eftirá? Tákn Í geðrofinu tók Halla ástfóstri við kolkrabbabangsa dóttur sinnar. Gamanmyndin Síðasta veiðiferðin verður endurgerð í Rúmeníu og segir annar handritshöfunda og leikstjóra myndarinnar, Örn Mar- inó Arnarson, að undirbúningur sé langt á veg kominn og að tökur muni að öllum líkindum hefjast í þessum mánuði, stefnt að 19. nóv- ember. Örn og Þorkell Harðason gerðu myndina saman og skrifuðu þeir undir samning við rúmenska framleiðslufyrirtækið Midnight Sun Film í september um endur- gerðina. Meðal þeirra sem reka Midnight Sun Film er Pétur Sig- urðsson. Leikstjóri myndarinnar verður Valeriu Andriuta, þekktur leikari í heimalandi sínu, og leik- arar myndarinnar eru einnig þekktir í Rúmeníu, þeirra á meðal Serban Pavlu, Adrian Titieni og Adrian Paduraru, að því er fram kemur á vefnum Klapptré og Örn Marinó vísar í. Spurður hvort til standi að endurgera myndina í fleiri löndum segir Örn Marinó að jú, nokkur svæði séu til skoðunar og viðræður „á lokametrunum“. Rúmenska endurgerðin sé aftur á móti komin vel af stað og verið að púsla hlut- unum saman. „Covid er náttúrlega að þvælast eitthvað fyrir þeim líka, meiri lokanir þar, en þeir ætla að reyna að koma sér niður eftir á tökuslóðir og vera þar í vinnu- sóttkví og taka upp bíómynd,“ segir Örn Marinó en tökustaður er óseyri Dónár við Svartahaf. Sýnd í Noregi Fleiri endurgerðir eru í píp- unum, sem fyrr segir, í Þýskalandi, Bandaríkjunum og í Skandinavíu, að sögn Arnar Marinós og eru sölu- aðili og umboðsmaður að vinna í þessum málum fyrir þá Þorkel. Bú- ið er að selja Síðustu veiðiferðina til dreifingar í Noregi þar sem hún verður sýnd í kvikmyndahúsum og segir Örn Marinó að átt hafi að sýna myndina fyrir jól en sýningum hafi verið frestað vegna farsótt- arinnar og líklega hefjist þær eftir áramót. Rúmenska endurgerðin verður að öllum líkindum frumsýnd á vormánuðum, ef Covid-19 leyfir. helgisnaer@mbl.is Veiðiferð tekin upp í Rúmeníu Morgunblaðið/Arnþór Birkisson Veiðimenn Þorkell Harðarson og Örn Marinó Arnarson. Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI, TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI? Fjölmör stuttnáms í handve g keið rki. Skráning og upplýsingar á www.handverkshusid.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.