Morgunblaðið - 07.11.2020, Síða 51
MENNING 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2020
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALINánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SPLÚNKUNÝ MYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
MYNDIN SEM HEFUR SLEGIÐ Í GEGN
Í EVRÓPU UNDANFARNAR VIKUR.
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
Hrekkjavökuvika
í Sambíóunum
Sjáðu nokkrar að frægustu Hrollvekjum allra tíma
Dansað í átt að sólu
lenskar sveitir eins og Þú og ég og Ljósin í
bænum koma í hugann, jafnvel Jóhann G.
Samtímasveitir eins og Boogie Trouble hafa
og verið að vinna með þetta. Bresk
ný-sálartónlist frá tíunda áratugnum (Brand
New Heavies, Galliano) gerir líka vart við
sig. Þetta skapalón er fullkomnað á „Upp“,
melódísku sálarpoppi og giska langt frá því
afstrakt r og b-i sem lék um fyrstu plötuna.
Plötunni er lokað með „Áður en dagur rís“
þar sem Birnir gestasyngur. Hörkusmíð,
stórgott popplag sem rígheldur. Þarna
njóta þessar þreifingar sem lagt er upp með
á plötunni sín í botn. Rétt á undan fengum
við hins vegar að heyra „Trúðu mér“, sem
er meira í ætt við eldri lögin. Ljúft og
dularfullt og endar með skemmtilegum til-
raunum. Sömuleiðis þrælvel heppnað, þótt
af allt öðrum toga sé.
GDRN tekur með þessari plötu hug-
rökk og í raun bráðnauðsynleg skref fram á
við. Endurtekning á síðustu formúlu var
greinilega ekki uppi á borðum, sem betur
fer. Sem tónlistarkona er GDRN, nú sem
áður, hin frambærilegasta. Sjarmerandi og
„púllar“ poppstjörnuáruna með glans. Ég
skil vel hvert hún er að fara á þessari plötu
og uppleggið er skýrt. GDRN er um margt
brautryðjandi og fyrirmynd og ég vil að
fleiri stúlkur láti skeika að sköpuðu, gefi út,
prófi sig áfram og taki pláss. Platan hefur
enda lifað góðu lífi á þessu ári, lögin heyr-
ast reglubundið í ýmsum miðlum og fólk er
að bíða eftir því að geta séð söngkonuna á
sviði, nært smíðarnar og gefið þeim það líf
sem þær eiga skilið, eins lífrænar og grú-
vandi og þær nú eru.
» Sem tónlistarkona erGDRN, nú sem áður, hin
frambærilegasta. Sjarmerandi
og „púllar“ poppstjörnuáruna
með glans.
Önnur plata GDRN, samnefnd henni, kom út í upphafi þessa
árs, rétt áður en allt fór fjandans til. Á henni var markvisst
skref tekið fram á við, sköpunarlega, og verður platan tekin til
kostanna hér. Kófið eitt veit svo hvenær við eigum kost á að sjá
listamanninn kynna gripinn en útgáfutónleikum hefur nú verið
frestað tvisvar.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Frumburður GDRN, Hvað ef (2018),var svellkaldur og svalur en hér erhins vegar meira um birtu og yl.
Hvað ef vakti verðskuldaða athygli á söng-
konunni, svalt og nýmóðins r og b, stálkalt
flæði og mínimalískt. Heilsteypt verk og
skarpar línur dregnar, hvort heldur í tónlist
eða almennri framsetningu. Já, GDRN steig
í raun fullmótuð fram, öll stílisering á
hreinu, í framkomu, útliti, umslagshönnun
o.s.frv. GDRN leit út eins
og poppstjarna frá fyrsta
degi og þá er hálfur
björninn unninn.
Á þessari plötu sem
GDRN (Guðrún Ýr Ey-
fjörð) vinnur með Magn-
úsi Jóhanni Ragnarssyni
og Arnari Inga Ingasyni kveður við annan
tón þó að grunnstoðin sé sú sama. Notum
árstíðirnar til að skilja þetta. Yfir fyrstu
plötunni var haustblær, fagrir en fölir litir.
Viss fjarlægð og kuldi, sem gerði hana
svala. Dálítið nýjabrum líka og hráleiki sem
gerði plötuna í raun ómótstæðilega. Styrkur
sakleysisins. En nú er komið vor. Hiti og
gróðurinn er að lifna við. Mýkt, hlýja og
sól. Þetta er undirstrikað með lifandi hljóð-
færaleik, sem vísar grimmt í sálar- og fönk-
tónlist áttunda áratugarins (og enn frekar
er á þessu hnykkt með umslagi og letur-
gerð).
Platan byrjar enda með lagi sem heitir
„Vor“. Það fellur miðja vegu á milli gömlu
plötunnar og þessa nýja sniðs, svona eins og
til að róa mannskapinn (okkur) aðeins.
Hipphopptaktar en líka vel grúvandi hljóð-
gervill og píanó. Heitt og kalt. Söngur er
lágstemmdur en um leið svalur og seiðandi.
„Af og til“ færir okkur nær sálargrúvinu
sem er unnið með út plötuna. Gamlar ís-
Stjarna GDRN,
bjartsýn og björt í
upphafi þessa
herrans árs.