Morgunblaðið - 07.11.2020, Qupperneq 51

Morgunblaðið - 07.11.2020, Qupperneq 51
MENNING 51 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2020 SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALINánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SPLÚNKUNÝ MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI. MYNDIN SEM HEFUR SLEGIÐ Í GEGN Í EVRÓPU UNDANFARNAR VIKUR. TRYGGÐU ÞÉR MIÐA INNÁ SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Hrekkjavökuvika í Sambíóunum Sjáðu nokkrar að frægustu Hrollvekjum allra tíma Dansað í átt að sólu lenskar sveitir eins og Þú og ég og Ljósin í bænum koma í hugann, jafnvel Jóhann G. Samtímasveitir eins og Boogie Trouble hafa og verið að vinna með þetta. Bresk ný-sálartónlist frá tíunda áratugnum (Brand New Heavies, Galliano) gerir líka vart við sig. Þetta skapalón er fullkomnað á „Upp“, melódísku sálarpoppi og giska langt frá því afstrakt r og b-i sem lék um fyrstu plötuna. Plötunni er lokað með „Áður en dagur rís“ þar sem Birnir gestasyngur. Hörkusmíð, stórgott popplag sem rígheldur. Þarna njóta þessar þreifingar sem lagt er upp með á plötunni sín í botn. Rétt á undan fengum við hins vegar að heyra „Trúðu mér“, sem er meira í ætt við eldri lögin. Ljúft og dularfullt og endar með skemmtilegum til- raunum. Sömuleiðis þrælvel heppnað, þótt af allt öðrum toga sé. GDRN tekur með þessari plötu hug- rökk og í raun bráðnauðsynleg skref fram á við. Endurtekning á síðustu formúlu var greinilega ekki uppi á borðum, sem betur fer. Sem tónlistarkona er GDRN, nú sem áður, hin frambærilegasta. Sjarmerandi og „púllar“ poppstjörnuáruna með glans. Ég skil vel hvert hún er að fara á þessari plötu og uppleggið er skýrt. GDRN er um margt brautryðjandi og fyrirmynd og ég vil að fleiri stúlkur láti skeika að sköpuðu, gefi út, prófi sig áfram og taki pláss. Platan hefur enda lifað góðu lífi á þessu ári, lögin heyr- ast reglubundið í ýmsum miðlum og fólk er að bíða eftir því að geta séð söngkonuna á sviði, nært smíðarnar og gefið þeim það líf sem þær eiga skilið, eins lífrænar og grú- vandi og þær nú eru. » Sem tónlistarkona erGDRN, nú sem áður, hin frambærilegasta. Sjarmerandi og „púllar“ poppstjörnuáruna með glans. Önnur plata GDRN, samnefnd henni, kom út í upphafi þessa árs, rétt áður en allt fór fjandans til. Á henni var markvisst skref tekið fram á við, sköpunarlega, og verður platan tekin til kostanna hér. Kófið eitt veit svo hvenær við eigum kost á að sjá listamanninn kynna gripinn en útgáfutónleikum hefur nú verið frestað tvisvar. TÓNLIST Arnar Eggert Thoroddsen arnareggert@arnareggert.is Frumburður GDRN, Hvað ef (2018),var svellkaldur og svalur en hér erhins vegar meira um birtu og yl. Hvað ef vakti verðskuldaða athygli á söng- konunni, svalt og nýmóðins r og b, stálkalt flæði og mínimalískt. Heilsteypt verk og skarpar línur dregnar, hvort heldur í tónlist eða almennri framsetningu. Já, GDRN steig í raun fullmótuð fram, öll stílisering á hreinu, í framkomu, útliti, umslagshönnun o.s.frv. GDRN leit út eins og poppstjarna frá fyrsta degi og þá er hálfur björninn unninn. Á þessari plötu sem GDRN (Guðrún Ýr Ey- fjörð) vinnur með Magn- úsi Jóhanni Ragnarssyni og Arnari Inga Ingasyni kveður við annan tón þó að grunnstoðin sé sú sama. Notum árstíðirnar til að skilja þetta. Yfir fyrstu plötunni var haustblær, fagrir en fölir litir. Viss fjarlægð og kuldi, sem gerði hana svala. Dálítið nýjabrum líka og hráleiki sem gerði plötuna í raun ómótstæðilega. Styrkur sakleysisins. En nú er komið vor. Hiti og gróðurinn er að lifna við. Mýkt, hlýja og sól. Þetta er undirstrikað með lifandi hljóð- færaleik, sem vísar grimmt í sálar- og fönk- tónlist áttunda áratugarins (og enn frekar er á þessu hnykkt með umslagi og letur- gerð). Platan byrjar enda með lagi sem heitir „Vor“. Það fellur miðja vegu á milli gömlu plötunnar og þessa nýja sniðs, svona eins og til að róa mannskapinn (okkur) aðeins. Hipphopptaktar en líka vel grúvandi hljóð- gervill og píanó. Heitt og kalt. Söngur er lágstemmdur en um leið svalur og seiðandi. „Af og til“ færir okkur nær sálargrúvinu sem er unnið með út plötuna. Gamlar ís- Stjarna GDRN, bjartsýn og björt í upphafi þessa herrans árs.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.