Morgunblaðið - 09.11.2020, Side 14

Morgunblaðið - 09.11.2020, Side 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Ríkisútvarpiðhefur miklasérstöðu meðal ríkisstofnana að því leyti að það telur að lög sem um það gilda séu allt frá því að vera aðeins til laus- legrar viðmiðunar niður í að skipta alls engu máli. Þannig er þekkt að sérstakt lagaákvæði um hlutleysi í umfjöllun telja starfs- menn stofnunarinnar að hafi ekk- ert með þá að gera. Annað dæmi snýr að laga- fyrirmælum um stofnun dóttur- félags um samkeppnisrekstur. Í tvö ár gerði Ríkisútvarpið ekkert með þessa löggjöf og komst upp með það án þess að gripið væri til aðgerða. Er það í samræmi við að- gerðaleysið gagnvart stofnuninni þegar kemur að lögbrotum vegna hlutleysis umfjöllunar. Í skýrslu fjölmiðlanefndar um Ríkisútvarpið sem kom út á dög- unum má finna enn eitt dæmið um það hvernig Ríkisútvarpið um- gengst lögin. Þar kemur fram að í lögum um Ríkisútvarpið komi fram að „Ríkisútvarpið skuli vera virkur þátttakandi í íslenskri kvikmyndagerð, m.a. með kaupum frá sjálfstæðum framleiðendum og að í þjónustusamningi ráðherra við Ríkisútvarpið skuli mælt fyrir um lágmarkshlutfall dagskrár- efnis sem keypt er af sjálfstæðum framleiðendum“. Í þjónustusamningi við mennta- og menningarmála- ráðuneytið segir að Ríkisútvarpið skuli „verja að lágmarki 10% af heildartekjum á árinu 2018 til kaupa eða meðframleiðslu á leiknu sjónvarpsefni, kvikmynd- um, heimildarmyndum eða öðru dagskrárefni í miðlum Ríkis- útvarpsins“. Ríkisútvarpið gefur að sögn fjölmiðlanefndar upp að það verji rúmum 13% af heild- artekjum til þessa þáttar og sé því vel yfir mörkunum. Vandinn er hins veg- ar sá að Ríkisútvarpið beitir af- skaplega skapandi skilgreiningum á kostnaðarliðum til að koma hlut- fallinu upp í 13%. Samkvæmt lög- um telst sjálfstæður framleiðandi vera lögaðili, sem sagt fyrirtæki sem stundar framleiðslu á hljóð- eða myndefni, og þarf að vera óháður Ríkisútvarpinu. Stofnunin hefur hins vegar orðið uppvís að því að flokka undir „sjálfstæða framleiðendur“ starfsmenn henn- ar sem fá verktakagreiðslur og þykist geta gert þetta þrátt fyrir lagaákvæðið vegna eigin túlkunar á þjónustusamningi, sem byggður er á lögunum. Fjölmiðlanefnd, sem hefur ver- ið Ríkisútvarpinu afskaplega þægileg svo ekki sé meira sagt, segir í skýrslu sinni að hún telji að Ríkisútvarpið geti „vart talist“ hafa uppfyllt lagaskilyrði með því að skilgreina verktaka sína sem sjálfstæða framleiðendur. Nefnd- in segir túlkun Ríkisútvarpsins fela í sér að það gæti í raun skil- greint „allar greiðslur til ein- staklinga sem starfa við dag- skrárgerð hjá Ríkisútvarpinu undir greiðslur til sjálfstæðra framleiðenda, að því tilskildu að um verktakagreiðslur væri að ræða“. Ekki þarf að efast um að Ríkis- útvarpið kemst upp með þetta lög- brot eins og önnur og heldur áfram að kaupa það hlutfall af sjálfstæðum framleiðendum sem því sýnist. Og hvers vegna skyldi það ekki gera það? Það veit að það fær bara klapp á bakið í formi aukinna fjárframlaga eða breyttra reglna fyrir þetta brot eins og önnur. Ríkisútvarpið heldur uppteknum hætti }Ítrekuð lögbrot Allar líkur eru áað Joe Biden taki við embætti for- seta Bandaríkjanna í janúar næstkom- andi. Helstu fjöl- miðlar vestra, sem sumir virðast telja að úrskurði um sigurvegara kosn- inga, hafa fullyrt að svo fari, en rétt er að hafa enn þann fyrirvara á að dómsmál eru fram undan sem hugsanlega gætu breytt niður- stöðunni. Alvarlegar ásakanir hafa verið settar fram um misferli við kosningarnar. Sumt blasir við, annað á eftir að sanna og allt slíkt verður vitaskuld að sanna fyrir dómi eigi það að hafa áhrif. Slagurinn nú rifjar upp slaginn á milli varaforsetans Als Gores og frambjóðandans George W. Bush fyrir réttum tveimur áratugum. Margt er líkt með stöðunni þá og nú en annað ólíkt. Gore kærði talningu ítrekað og gaf sig ekki fyrr en undir miðjan desember eftir dóm Hæstaréttar Banda- ríkjanna. Allan tímann frá kosn- ingum hafði Bush verið talinn sigurvegari og Gore jafnvel viður- kennt ósigur, en dró þá viðurkenningu til baka þegar hann eygði von um að geta barist fyrir dóm- stólum. Varaforsetinn Gore hafði rétt til að kæra þá og það hefur forsetinn Trump einnig nú. Það sem upp úr stendur er þó að kosninga- fyrirkomulagið í Bandaríkjunum er algerlega óviðunandi og endur- skoðun er nauðsynleg. Jeb Bush, sem var ríkisstjóri í Flórída þegar tekist var á þar fyrir tuttugu ár- um, ritaði grein í The Wall Street Journal um helgina og fór yfir hvernig Flórída tók til hjá sér eft- ir þau vandræði og væri nú til fyr- irmyndar. Eftir þessar kosningar bíður Bandaríkjanna að taka al- varlega til í þessum málum. Það verður að laga það sem viðkemur póstkosningum og gera skýra kröfu um að allir sem kjósa færi sönnur á hverjir þeir eru. Í því ríki sem vill leiða hinn vestræna heim gengur ekki að kosningar einkennist ítrekað af óreglu og jafnvel svindli. Bandaríkin geta ekki búið áfram við óreglu og jafnvel svindl í kosningum} Kosningar í ólestri É g bjó á Vonarstræti þegar ég var í Bandaríkjunum (BNA). Ég var þar þegar Obama var kosinn og sá hvaða von fólk bar til þess sem hann hafði fram að bjóða. Ég sá líka hvernig kerfið barðist á móti því og hvern- ig, að lokum, það murkaði lífið úr þeirri von sem kosningabarátta Obama byggðist á. Í BNA sá ég mjög fjölbreyttan hóp fólks. Allt frá fólki sem fékk gefins hús frá foreldrum sín- um til þeirra sem voru nánast á götunni. Í Dexter Park spilaði þetta fólk saman spark- bolta alla laugardaga á sumrin. Fyrrverandi hermenn, prófessor úr Brown-háskólanum, yfirbruggari Revival-brugghússins, frétta- teymi stöðvar 12, forritarar, listamenn, verka- menn, atvinnulausir og margir fleiri. Karlar, konur, krakkar og kynsegin fólk af öllum gerð- um alls staðar frá. Eins ólíkt og fólkið var, hvort sem það var demókratar, repúblikanar eða eitthvað annað, þá skildi það allt þá von sem Obama talaði um því það var eitthvað meiriháttar mikið að í BNA. Sú von sem flæddi yfir ríkin árið 2008 breyttist hins vegar í vonleysi og reiði og Bandaríkjamenn sem rekja uppruna sinn í flótta frá einræði í Evrópu brugðust við á fyrirsjáanlegan hátt. Hvernig sem niðurstöður kosninganna í BNA hefðu ver- ið í ár þá er nokkuð öruggt að vandamál BNA munu ekki leysast á næsta kjörtímabili. Hvorugur frambjóðandinn hafði neitt fram að færa í þá áttina, því þeir standa fyrir sitt valdakerfið hvor sem er hið raunverulega mein BNA og breytingar eru erfiðar. Grasrót- arhreyfingar geta ómögulega unnið sig upp í áhrif á landsvísu. Bylgjur eins og Occupy fjara út í stærð BNA eins og gárur á vatni gera. Í dag er ég með skrifstofu á Vonarstræti og ég sé stjórnmál BNA frá því fyrir Trump end- urspeglast að vissu leyti hérna á Íslandi. Árið 2012 var gefin von um öflugra lýðræði á Ís- landi. Von um skýrari ábyrgð valdhafa, þjóð- areign á auðlindum og umhverfisvernd. Í stað- inn fengum við litla útgáfu af Trump sem er enn að væla yfir þeirri ósanngirni að mega ekki fara með peninga í skattaskjól og segist vera fórnarlamb meintra falsfréttamiðla. Það er eitthvað meiriháttar mikið að á landi þar sem valdið hunsar niðurstöður þjóðar- atkvæðagreiðslu en ólíkt BNA eru fleiri val- möguleikar á Íslandi en tveir fulltrúar valdsins. Það er hægt að velja flokka og fólk sem hefur lofað að skila vald- inu til þjóðarinnar og þá meina ég ekki þá flokka sem hafa lofað því en hætt við. Þar er vonin um sáttari framtíð, betri framtíð. Í þeirri einföldu staðreynd að valdaflokkarnir þurfa að gefa frá sér valdið til þjóðarinnar. Það má búast við kvarti og kveini frá þeim sem eru van- ir að ráða en þegar allt kemur til alls þá ræður þjóðin. Við búum í lýðræði en eins og er þá erum við í raun bara lýð- ræði á fjögurra ára fresti. Saman getum við gert betur. Björn Leví Gunnarsson Pistill Von og vald Höfundur er þingmaður Pírata. bjornlevi@althingi.is STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen SVIÐSLJÓS Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Mér sýnist ljóst að það eigiþarna að mismuna eftirdýrategundum. Þaðvirðist sem sameina eigi undir einn hatt hunda, ketti og eflaust fleiri dýr en einungis hundaeigendur eigi að greiða fyrir það,“ segir Freyja Kristinsdóttir, formaður Félags ábyrgra hundaeigenda. Á dögunum var kynnt skýrsla stýrihóps um þjónustu við gæludýr hjá Reykjavíkurborg. Í skýrslunni er lagt til að öll málefni dýra í borginni verði sameinuð undir einum hatti, Dýraþjónustu Reykjavíkur. Áhersla verði lögð á að fjölga skráð- um dýrum í borg- inni, komið verði á fót rafrænu skráningarferli fyrir skráning- arskyld dýr, leyf- isgjöld verði lækkuð og skráningar einfaldaðar. Hugað verði að dýravelferð og átak gert til að bæta hundasvæði. Freyja segir að enn sé verið að fara yfir skýrsluna á vettvangi Félags ábyrgra hundaeigenda og vænta megi formlegrar yfirlýsingar þegar þeirri yfirferð lýkur. Hún segir að sér sjálfri sýnist að margir ágætir punkt- ar séu í skýrslunni en margt sé þó gagnrýni vert. Telja eftirlitið gagnslaust Í skýrslunni er rakið að aðeins séu ríflega tvö þúsund hundar skráðir í Reykjavík en talið sé að hunda sé að finna á yfir níu þúsund heimilum. „Það er óskiljanlegt hvað borginni virðist finnast ofboðslega mikilvægt að vita nákvæmlega hvar allir hundar eiga heima,“ segir Freyja. Hún bætir við að örmerkjagagnagrunnur Dýra- læknafélagsins sé til staðar og í lönd- unum í kringum okkur þyki slíkur gagnagrunnur fullnægjandi. Sérstök skráning innan sveitarfélaga hafi víða verið lögð niður og þyki of kostn- aðarsöm. Hún bendir á að hundaeigendur borgi tugi milljóna á ári í gjöld og þeir peningar fari í að halda við umræddu skráningarkerfi og halda úti hunda- eftirliti, ekki í aðstöðumál. „Borgin vonast til að þetta muni fjölga skrán- ingum en ég held að það sé alger ósk- hyggja. Það mun áfram vera þannig að þeir ábyrgu skrá hundana sína en hinir munu ekki sjá ástæðu til þess. Og það eru þeir sem hundaeftirlits- menn eru að skipta sér af. Við erum semsagt að borga fyrir það,“ segir Freyja en félag hennar hefur gagn- rýnt hundaeftirlit hér á landi og furð- að sig á þeim fjármunum sem til þess sé varið. Staðreyndin sé sú að flestir hundar sem týnist finnist nú í gegn- um facebook og Matvælastofnun sinni málum er varða vanrækslu dýra. Samráð í skötulíki „Við sjáum ekki tilganginn með hundaeftirlitinu og höfum viljað fá að vita hvað eftirlitsmennirnir gera í sín- um vinnutíma,“ segir formaðurinn sem telur það áhyggjuefni að borgar- yfirvöld virðist ætla að halda sömu starfsmönnum við eftirlit í nýrri dýra- þjónustu sinni. Aðspurð játar Freyja því að samráð hafi verið haft við félag henn- ar við gerð áðurnefndrar skýrslu. Það samráð hafi þó verið í skötulíki. „Við fengum hálftíma fund með þeim í mars, það var það eina. Við munum klárlega gera athugasemd við það að í skýrslunni segir að hundaeigendur hafi ekki óskað eftir því að skráning- argjöldin verði lögð niður. Við höfum ítrekað lagt það til og gerðum það meðal annars á þessum hálftíma fundi.“ Hundaeigendur borgi fyrir önnur dýr Morgunblaðið/Hari Hundahald Til stendur að málefni gæludýra verði sameinuð undir einn hatt í Reykjavík. Hundaeigendur gjalda varhug við þessum hugmyndum. Freyja Kristinsdóttir „Með stofnun DÝR er gert ráð fyrir að þjónusta við hundaeig- endur og aðra dýraeigendur verði efld með aukinni áherslu á fræðslu og upplýsingagjöf. Fríðindi fylgi því að skrá hund- inn sinn, t.d. lægra eða ekkert handsömunargjald. Miðlæg ábyrgðartrygging gagnvart tjóni þriðja aðila verði áfram innifalin í gjaldinu. Kannaður verði sérstaklega fýsileiki þess að bjóða skráðum hundaeig- endum miðlæga sjúkratrygg- ingu með svipuðum hætti og gildir nú um ábyrgðartrygg- inguna,“ segir í skýrslu stýri- hóps um þjónustu við gæludýr. „Gert er ráð fyrir að hunda- hald verði heimilt í Reykjavík að uppfylltum þeim skilyrðum sem fram koma í samþykkt sem og öðrum lögum og reglu- gerðum. Í skráningu um hunda- hald verði umsækjanda leið- beint um hvaða samþykktir, lög og reglur séu forsenda hunda- haldsins.“ Fríðindi fylgi skráningu BOÐA BÆTTA ÞJÓNUSTU

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.