Morgunblaðið - 09.11.2020, Qupperneq 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 2020
Raðauglýsingar
Tilkynningar
Mat á umhverfisáhrifum
Álit Skipulagsstofnunar
Stækkun eldisstöðvar Ísþórs í Þorlákshöfn,
Sveitarfélaginu Ölfusi
Skipulagsstofnun hefur gefið álit sitt um mat á umhverfisáhrifum sam-
kvæmt lögum nr. 106/2000. Álitið liggur frammi hjá Skipulagsstofnun,
Borgartúni 7b, Reykjavík. Álitið og matsskýrslu Eldisstöðvarinnar Ísþórs
er einnig að finna á vef stofnunarinnar www.skipulag.is.
Félagsstarf eldri borgara
Seltjarnarnes Mæting á námskeiðin eru í samráði við leiðbeinendur.
Kaffikrókurinn og samveran er eingöngu opin fyrir íbúa Skólabrautar
3-5 með þeim takmörkunum og sóttvarnarreglum sem gilda. Jóga
fyrir íbúa Skólabrautar kl. 10 og fyrir fólk utan úr bæ kl. 11. Munið að
ganga beint inn á ykkar svæði án viðkomu annars staðar. 10 manns
hámark, handþvottur, spritt og grímuskylda.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Ýmislegt
Húsviðhald
Vantar þig
pípara?
FINNA.is
✝ Ottó SvavarViktorsson
fæddist í Flatey á
Breiðafirði 5. októ-
ber 1927. Hann lést
á hjúkrunarheim-
ilinu Seljahlíð 30.
október 2020.
Foreldrar hans
voru Viktor
Guðnason, póst- og
símastjóri í Flatey,
f. 10. september
1899 á Þingeyri, d. 5. ágúst
1964, og Jónína G. Ólafsdóttir,
húsmóðir í Flatey, f. 22. nóv-
ember 1893 í Reykjavík, d. 13.
janúar 1974. Bróðir Ottós var
Ingólfur Viktorsson, f. 16. apríl
1924, d. 23. ágúst
2004.
Ottó kvæntist
Kristrúnu Gríms-
dóttur, f. 3. júlí
1931 í Kollsvík í
Rauðasandshreppi,
d. 2. mars 2019,
þau skildu síðar.
Börn þeirra eru
Hallgrímur Árni, f.
24. apríl 1955, eig-
inkona hans er Ást-
rós Gunnarsdóttir. Jón Viktor,
f. 16. nóvember 1960, hann lést
af slysförum 9. nóvember 1964,
Kristín Guðný, f. 7. mars 1963,
Victoría Eyrún, f. 13. febrúar
1965, Valgerður Ósk, f. 9. júlí
1967. Barnabörn hans eru 13 og
langafabörn 20.
Ottó ólst upp í Flatey á
Breiðafirði, hann hafði gaman
af tónlist enda ekki langt að
sækja það þar sem faðir hans
var organisti í Flateyjarkirkju
og kórstjóri. Ottó spilaði sjálfur
bæði á orgel og munnhörpu. Í
Flatey vann hann ungur ýmis
störf, t.d. sem vörubílstjóri og
vélstjóri á Konráð. Hann fluttist
ungur til Reykjavíkur og bjó
þar til dánardags. Þar starfaði
hann fyrstu árin sem verka-
maður. Hann starfaði í mörg ár
sem bensínafgreiðslumaður hjá
Nesti og seinna hjá Shell. Hann
vann mikið alla tíð og sum-
arfríin notaði hann yfirleitt til
að fara sem dagmaður í vél á
fraktskipum, oftast á Dísafelli.
Síðustu árin starfaði hann hjá
Bæjarútgerð Reykjavíkur.
Útför hans fer fram í kyrr-
þey.
Elsku yndislegi Ottó pabbi,
það er sárt að kveðja en á sama
tíma er ég óendanlega þakklát
fyrir allar góðu minningarnar
sem þú skilur eftir. Þú hafðir ein-
staklega hlýja og góða nærveru,
alltaf jafn pollrólegur og sama
hvað gekk á, þá var skap þitt allt-
af eins og mild sumarblíða. Þegar
ég hugsa til þín sé ég fallega hlýja
brosið þitt og ég minnist þess
þegar þú spilaðir á orgelið heima
og söngst fyrir mig Kolbrún mín
einasta. Ég minnist líka ísbíltúr-
anna á sunnudögum þegar við
keyrðum niður á höfn að skoða
skipin og bátana. Þú elskaðir
harmonikkutónlist og fótbolta og
ég heyri ennþá Bjarna Fel óma
úr stofunni að lýsa enska boltan-
um. Þú varst eldheitur stuðnings-
maður Liverpool og með söknuði
langar mig að kveðja þig með
þýðingu á Liverpoollaginu „You
will never walk alone“ Það á vel
við líka vegna þess að þú fórst í
gegnum þína stóru storma í lífinu
en þú gekkst í gegnum þá alla og
barst höfuðið hátt.
Meðan veðrið er stætt berðu höfuðið
hátt
og hræðstu eigi skugga á leið.
Bak við dimmasta él glitrar lævirkjans
ljóð
upp við ljóshvolfin björt og heið
þó steypist í gegn þér stormur og regn
og þó byrðin sé þung sem þú berð
þá stattu fast og vit fyrir víst
þú ert aldrei einn á ferð.
Hvíldu í friði elsku pabbi.
Þín
Kolbrún.
Ottó Svavar
Viktorsson
Með því dýr-
mætasta í þessu
lífi er að eiga góða
vini og hún Milla
vinkona mín var einstök. Hún
var ósérhlífin og hugsaði fyrst
Amalía Berndsen
✝ Amalía Bernd-sen fæddist 22.
september 1959.
Hún lést 18. októ-
ber 2020.
Útför Amalíu fór
fram 4. nóvember
2020.
og fremst um aðra
en sjálfa sig og
kom það berlega
fram í veikindum
hennar.
Okkar kynni
hófust þegar við
unnum saman í
launadeildinni hjá
Eimskipafélagi Ís-
lands ungar að ár-
um og urðum við
fljótt góðar vinkon-
ur og kærustum okkar, síðar
eiginmönnum, varð vel til vina.
Þessi vinskapur hefur haldist
alla tíð.
Meðan börnin uxu úr grasi
fórum við oft í ferðalög saman.
Já þetta voru góðir tímar, mik-
ið spilað og hlegið.
Undanfarin ár ferðuðumst
við meira erlendis og margar
ferðir voru í smíðum hjá okkur
á komandi árum. En enginn
veit hvað morgundagurinn ber í
skauti sér og nú er ljóst að
ferðirnar verða ekki fleiri með
þér Milla mín. Þá ber að minn-
ast allra skemmtilegu ferðanna.
Skíðaferðirnar til Vail eru
ógleymanlegar. Milla og Bjössi
lögðu ríka áherslu á það að við
yrðum að vera í betra formi en
við vorum í afmælisferðinni
hans Guðjóns árið á undan. Já,
þau skipuðu okkur að fara til
einkaþjálfara a.m.k. þremur
mánuðum áður, sem við og
gerðum í bæði skiptin. Með
Millu og Bjössa var ekki slegið
slöku við, ó nei. Í fjallið þegar
það var opnað og niður með
síðustu lyftu ef ekki var hægt
að skíða niður. Þetta var eins
og þau voru búin að lýsa þessu;
brekkurnar breiðar, langar,
margar og færið frábært allan
daginn.
Í byrjun júlí hringdi Milla og
spurði hvort við hjónin værum
ekki til í smá bíltúr og gista í
Vík. Jú, við vorum sko til í það.
Keyrðum um uppsveitir Suður-
lands, með borð og stóla eins
og í gamla daga, og svo alla leið
í Jökulsárlón. Komum til baka
sæl og glöð eftir 872 km
skemmtiferð.
Fyrir nokkrum árum keyptu
þau bæinn Miðdal í grennd við
Bolungarvík ásamt systur
Millu og manni hennar. Í sveit-
inni kynntust þau góðum vin-
um og var Milla hrókur alls
fagnaðar og mikill höfðingi
heim að sækja. Síðla sumars
undanfarin ár höfum við Guð-
jón farið þangað og átt frá-
bæra tíma með þeim ásamt
hópi af barnabörnunum þeirra
og okkar. Ávallt hefur verið
mikil tilhlökkun ár hvert fyrir
ferðinni, enda einn af hápunkt-
um hvers sumars. Á hverjum
morgni í Miðdal var morgun-
matur Millu „style“; yfirhlaðið
borð af veitingum eins og
henni var einni lagið. Eftir að
barnabörnin okkar voru send
með flugi heim nú í sumar fór-
um við í „ferðalagið okkar“
sem við vorum búnar að tala
um og skipuleggja í allt sumar.
Ferðalag um sunnanverða
Vestfirði sem var farin í logni
og blíðu. Svo sannarlega frá-
bær ferð. Þrátt fyrir að þrótt-
ur Millu væri farinn að dvína
gaf hún ekkert eftir og labbaði
m.a. með okkur hálfa leið upp
að Dynjanda. Já, það var engin
uppgjöf.
Elsku Milla mín, þakka þér
fyrir allt. Vinátta þín var mér
mikils virði.
Bjössi minn, Inga Björk,
Haraldur, Berglind, makar og
barnabörnin Friðrik, Amalía,
Brynjar og Hera Lind, missir
ykkar er mikill en góðar minn-
ingar lifa með ykkur.
Guðný Edda.
„Þetta lagast!“
Þessa setningu
sagði Maddi svili
minn og vinur alltaf
hátt og ákveðið, hló dátt og
trommaði gjarnan á lærið á sér.
Þó að þessi tvö orð hljómi stans-
laust í höfði mér sé ég ekki alveg
akkúrat þessa dagana að nokkuð
geti lagast, þó ég voni svo sann-
arlega að það geri það með tím-
anum.
Það er þyngra en tárum taki
að horfast í augu við þann raun-
veruleika að hann elsku Maddi
hefur nú kvatt þessa jarðvist en
hann varð bráðkvaddur á heimili
Magnús Hans
Magnússon
✝ Magnús HansMagnússon
fæddist 2. febrúar
1952. Hann lést 19.
október 2020.
Útför Magnúsar
var gerð 5. nóv-
ember 2020.
sínu hinn 19. októ-
ber sl., aðeins 68
ára að aldri.
Það var haustið
2018 að ég var
stödd hjá honum og
Bobbu konu hans,
þegar nákomin
frænka mín lést og
Bobba spurði mig
hversu gömul hún
hefði verið. „68
ára,“ svaraði ég.
„Guð minn góður, Maddi,“ segir
hún. „Hugsaðu þér ef við ættum
bara tvö ár eftir!“ Svo urðu árin
hans Madda bara tvö.
Maddi var sterkur persónu-
leiki og hafði sterkar skoðanir.
Hann var frumkvöðull. Rétt-
sýnn, glaðlyndur og jákvæður og
gerði gott úr öllu. Hann var vin-
ur vina sinna og höfðingi heim að
sækja enda sóttum við hjónin
líka gjarnan í að halda til hjá
þeim bæði fyrr og síðar á ferða-
lögum okkar og var oft skrafað
og hlegið fram á nætur.
Efst í huga mér er þakklæti
og sérstaklega þakklát er ég fyr-
ir það að hann var guðfaðir
yngstu dóttur minnar, Tinnu
Marínu. Hann var líka alltaf
fyrsti maður ásamt Bobbu sinni
á alla viðburði sem að henni
sneru í tónlistinni. Studdu hana
með því að sýna það í verki með
nærveru sinni. En fyrst og
fremst þakklát fyrir það hver
hann var. Tryggur og traustur
vinur, sem gerði kraftaverk án
þess að vita af því.
Það þarf ekki að orðlengja það
hversu erfiðir tímar þetta eru
fyrir alla og ekki hjálpar cov-
id-19. Það að komast ekki heim
og umvefja fjölskylduna er óend-
anlega þungt og sárt. En – þetta
lagast!
Elsku Maddi. Hjartans þakkir
fyrir allt og allt. Minning þín er
ljós í lífi mínu og okkar allra.
Elsku Bobba mín og fjölskyld-
an öll. Við fjölskyldan sendum
okkar innilegustu samúðarkveðj-
ur. Hugur okkar er hjá ykkur.
Blessuð sé minning Magnúsar
H. Magnússonar.
Anna Jóna Snorradóttir.
HINSTA KVEÐJA
Kveðja
Heima þar sem golan hlý
hjúfrar sig að hjarta
er veröldin ávallt undur blíð
með lífið skjótt og bjarta
Við fjörðinn sæla og þorpið þitt
sem fast í minnið ritar
göfuga ljósið sanna þitt
allt Guð sinn litar
Þó kveðjir svo skjótt skal minning
þín
í firðinum á allt vita
Því Guð kallar á börnin sín
sem jörðina sína lita
Snöggt þó kallið komi nú
kæra þökk fyrir árin
keikur og kankvís ávallt þú
meðtekur trega tárin
(RH)
Samúðarkveðjur til fjöl-
skyldu Magnúsar.
Steinunn Ingimundardóttir,
Ragnheiður Hákonar og
fjölskylda, fjölskyldan frá
Reykjarfirði við Djúp.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GUÐRÚN INGÓLFSDÓTTIR,
Skarðshlíð 14, Akureyri,
sem lést 3. nóvember, verður jarðsungin frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 13. nóvember klukkan 13:30.
Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða aðeins nánustu
aðstandendur viðstaddir útförina.
Streymt verður frá útförinni á facebookslóðinni: jarðarfarir í
akureyrarkirkju – beinar útsendingar.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Skógarhlíðar fyrir gott atlæti
síðustu árin.
Ingi Hólmar Jóhannesson
María Ingadóttir Daníel Guðjónsson
Laufey Ingadóttir Kristján V. Kristjánsson
Bryndís Sæunn Ingadóttir
Ingibjörg Ingadóttir Bergþór Aðalsteinsson
Agnes Ingadóttir Þór Sigurðsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn