Morgunblaðið - 09.11.2020, Síða 32
Röð tónleika í
Háskóla Ís-
lands heldur
áfram göngu
sinni á mið-
vikudag, 11.
nóvember, en
þá mun ung-
sveitin
Dymbrá koma
fram í hátíð-
arsal aðal-
byggingar kl.
12.15. Tónleik-
unum verður
streymt og salurinn tómur, utan tæknifólks og tón-
listarmanna, og hægt verður að horfa á beint en
einnig njóta síðar í upptökuformi. Streymi má nálg-
ast á slóðinni livestream.com/hi/dymbra. Dymbrá
vakti athygli á Músíktilraunum 2018 og skipa hana
Nína Solveig Andersen, Eir Ólafsdóttir og Eyrún Úa
Þorbjörnsdóttir.
Dymbrá á Háskólatónleikum
MÁNUDAGUR 9. NÓVEMBER 314. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Englandsmeisturum Liverpool mistókst að endur-
heimta toppsæti úrvalsdeildarinnar eftir 1:1-jafntefli
gegn Manchester City á Etihad-leikvanginum í stórleik
8. umferðarinnar í gærkvöldi. Leikur tveggja bestu liða
landsins síðustu ár var í járnum en Kevin de Bruyne
fékk þó gullið tækifæri til að taka stigin þrjú fyrir City
er honum brást bogalistin á vítapunktinum. Manchest-
er United vann kærkominn sigur gegn Gylfa Þór Sig-
urðssyni og félögum í Everton en Arsenal beið afhroð á
heimavelli gegn ólíkindatólunum í Aston Villa. »27
Vængbrotnir Englandsmeistarar
Liverpool neita að játa sig sigraða
ÍÞRÓTTIR MENNING
heima á sumrin og lifði því tvöföldu
lífi, vetrarlífi og sumarlífi, eins og
krakkar úti á landi gjarnan gerðu.“
Þegar Ragnheiður var sex ára og
nýbúin að læra að skrifa gaf móðir
hennar henni litla vasabók. „Þá byrj-
aði ég að semja ljóð,“ segir hún.
Lengst af hafi hún að mestu skrifað
fyrir skúffuna fyrir utan eitt og eitt
ljóð sem hafi birst í tímaritum og
blöðum, en ljóðin í bókinni hafi hún
samið á undanförnum tveimur árum.
Í ljóðinu „1900 og eitthvað“ kemur
fram að Ragnheiður hafi neitað að
taka þátt í fegurðarsamkeppni. „Ég
ætlaði mér að skrifa smásögu um
veru mína í vegavinnunni,“ útskýrir
hún og vísar sérstaklega á þessa
beiðni sem hún hafnaði. „Ég var í
vegavinnu uppi á heiði, með skófluna
og í regngallanum, og þótti þetta
mjög fyndið. Minningar dingluðu í
höfðinu á mér í nokkur ár og áttu að
verða sagan, en síðan komu ljóðin.“
Í ljóðinu „Ég“ rekur höfundur
nokkur hlutverk sem hún hefur
gegnt um tíðina. „Skáldkonan er
nokkuð ofarlega í huga, því ég hef
skrifað frá barnsaldri, hef samt ekki
leyft henni að sýna sig, því ég hef
verið og er í annarri vinnu,“ segir
hún, en Ragnheiður hefur verið ís-
lenskukennari við Menntaskólann í
Kópavogi í 23 ár.
Verðlaunin skipta Ragnheiði mjög
miklu máli. „Þeim fylgdu mikil gleði
og uppörvun, ekki síst vegna þess að
ég hef ekki almennilega þorað að
gangast við skáldskapnum,“ segir
hún.
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Í fyrstu ljóðabók Ragnheiðar Lárus-
dóttur, 1900 og eitthvað, sem hún
fékk Bókmenntaverðlaun Tómasar
Guðmundssonar 2020 fyrir, eru 42
ljóð. „Þetta er ævisaga mín í stuttu
máli,“ segir hún, en bókaútgáfan
Bjartur er útgefandi.
Bókin er meðal annars tileinkuð
þremur börnum Ragnheiðar. „Ég
skrifaði þessi ljóð vegna þess að mig
langaði til þess að segja krökkunum
mínum frá því hvernig æska mín
var.“
Ragnheiður flutti með foreldrum
sínum, sr. Lárusi Þorvaldi Guð-
mundssyni, síðar sendiráðspresti í
Kaupmannahöfn, og Sigurveigu
Georgsdóttur
hjúkrunar-
fræðingi, að Holti
í Önundarfirði
1963, þegar hún
var tveggja ára.
„Lífshættirnir
voru allt öðruvísi
en nú,“ rifjar hún
upp. Faðir henn-
ar messaði í Holti,
á Flateyri, Ingjaldssandi og í Dýra-
firði og fjölskyldan fylgdi yfirleitt
með, ýmist siglandi eða keyrandi í bíl
eða á vélsleða, auk þess sem Lárus
fór oft gangandi á skíðum til messu.
Smásaga varð að ljóðabók
„Ég fór með í ýmsar svaðilfarir,“
segir skáldið og saknar ekki barátt-
unnar við náttúruöflin. „Eðlilegt
þótti að borða m.a. þverskorna ýsu
með vestfirskum hnoðmör og hringja
í sveitasíma. Pósturinn kom stund-
um einu sinni í viku á veturna, og
eina tengingin við umheiminn var út-
varpið. Ekkert sjónvarp og því síður
net.“ Til frekari skýringar á því um-
hverfi sem var nefnir hún að for-
eldrar sínir hafi viljað kaupa erlend
tímarit og fengið undanþágu til að
kaupa erlendan gjaldeyri þess
vegna. „Lifnaðarhættirnir voru allt
öðruvísi og það kemur vel fram í bók-
inni hvað tímarnir hafa breyst.“
Ragnheiður fór að heiman 13 ára,
fyrst í Héraðsskólann á Núpi í Dýra-
firði og svo til Reykjavíkur til að fara
í menntaskóla. „Ég var í vegavinnu
Ævisaga í 42 ljóðum
Ragnheiður Lárusdóttir verðlaunuð fyrir fyrstu bók
Saknar ekki baráttunnar við náttúruöflin fyrir vestan
Morgunblaðið/Eggert
Skáld Ragnheiður Lárusdóttir menntaskólakennari er byrjuð á næstu bók.