Morgunblaðið - 18.11.2020, Blaðsíða 4
BÓLUEFNI GEGN KÓRÓNUVEIRUNNI4
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 2020
Í baráttu við COVID-19
býður Donnamaska, grímur
og andlitshlífar sem eru
gæða vara frá DACH og
notuð um allan heim.
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Öryggið í fyrirrúmi fyrir lærða sem leika
Sími 555 3100 www.donna.is
Heildsöludreifing
Type II 3ja laga
medical andlitsgríma
FFP3 Respirator Comfort
andlitsgríma með ventli
FFP3 High-Risk
andlitsgríma
Andlitshlíf
móðufrí
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Gangi allt að óskum má gera ráð fyr-
ir að fyrstu skammtar af bóluefni við
kórónuveirunni komi hingað til lands
í byrjun næsta árs. Tvö bóluefni eru
mjög langt komin í prófunum, en
framleiðendur þeirra ráðgera að sótt
verði um leyfi til fjöldaframleiðslu á
næstu dögum eða vikum. Framleið-
endurnir sem um ræðir eru annars
vegar Moderna og hins vegar Pfizer
og BioNTech. Virkni umræddra
bóluefna hefur lofað mjög góðu.
Bóluefni kemur í skömmtum
Haraldur Briem, fyrrverandi sótt-
varnalæknir, segir að dreifing bólu-
efna muni taka skamman tíma um
leið og öll tilskilin leyfi hafa verið
uppfyllt. Þannig er hugsanlegt að
bólusetningar geti hafist hér á landi
á næstu þremur mánuðum. „Ef allt
gengur eftir gæti þetta orðið í janúar
eða febrúar á næsta ári. Ég veit ekki
alveg hvernig kaupsamningarnir eru
en við erum í samfloti með Evrópu-
sambandinu,“ segir Haraldur og
bætir við að bóluefnin muni koma í
skömmtum. Því sé ólíklegt að allir
landsmenn verði bólusettir í fyrstu
atrennu. „Þetta kemur ekki allt í
einu. Það má gera ráð fyrir því að
byrjað verði á framlínufólki í heil-
brigðisþjónustu og framlínufólki
annars staðar. Auk þeirra verði þeir
sem eru með undirliggjandi sjúk-
dóma og yfir sextugu í forgangi. Svo
verður þetta tekið rólega með yngra
fólkið.“
Samkvæmt upplýsingum frá emb-
ætti landlæknis vinnur starfshópur
nú að fyrirkomulagi dreifingar bólu-
efnis. Er hópurinn m.a. skipaður
fulltrúum sóttvarnalæknis og heil-
brigðisráðherra. Ekki fengust upp-
lýsingar um hvenær gert væri ráð
fyrir fyrstu skömmtum hingað til
lands. Undirbúningur miðast þó við
að hlutirnir geti gerst mjög hratt um
leið og viðkomandi framleiðendur
hafa fengið grænt ljós frá banda-
ríska lyfjaeftirlitinu. Í framhaldinu
verður hægt að hefja fjöldafram-
leiðslu bóluefnanna, ef hún er ekki
nú þegar hafin. Þá hefur verið tryggt
að Ísland muni njóta sama aðgangs
að bóluefnunum og önnur aðildarríki
Evrópusambandsins.
Dreifing tekur skamman tíma
Distica, fyrirtæki sem sérhæfir sig
í innflutningi, vörustjórnun og dreif-
ingu á vörum tengdum heilbrigðis-
þjónustu, mun sjá um dreifingu og
geymslu bóluefna hér á landi. Júlía
Rósa Atladóttir, framkvæmdastjóri
Distica, segir að dreifing innanlands
muni taka mjög skamman tíma.
„Innflutningur á bóluefnum er í
höndum stjórnvalda og framleið-
enda, en við munum sjá um hýsingu
á Íslandi. Flutningur til landsins og
dreifing innanlands mun ekki taka
langan tíma, kannski einhverja daga.
Við erum tilbúin og höfum verið að
undirbúa okkur,“ segir Júlía sem
kveðst ekki geta sagt til um hvenær
bóluefnin séu væntanleg. Þá séu
mörg bóluefni komin langt í þróun.
„Þetta eru getgátur ennþá, en um
leið og leyfi fást fer allt af stað. Ef
allt gengur upp gæti þetta verið
komið hingað á fyrsta ársfjórðungi
næsta árs. Það er bjart yfir þessu
eins og staðan er núna.“
Aðspurð segir Júlía að bóluefnið
muni koma hingað til lands í
skömmtun. Þá hafi fyrirtækið engar
upplýsingar um hversu stór fyrsti
skammtur kann að vera. „Ég á von á
því að þetta verði margir litlir
skammtar,“ segir Júlía og bætir við
að bóluefnin komi hingað til lands í
svokölluðum hettuglösum. Þá sé
misjafnt hvernig geyma þarf bólu-
efnin. „Einhver bóluefni þarf að
geyma við -80° en önnur eru í tveim-
ur til átta gráðum.“
Bólusetning hefjist í ársbyrjun 2021
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bólusetning Ef allt gengur að óskum kemur bóluefni á næstunni.
Ef fram heldur sem horfir kemur bóluefni hingað til lands á næstu mánuðum Distica sér um dreif-
ingu og hýsingu Nokkur bóluefni á lokametrunum Starfshópur vinnur að fyrirkomulagi dreifingar
Haraldur
Briem
Júlía Rósa
Atladóttir
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Hve vel hefur gengið að þróa bólu-
efni við veirunni sem veldur Covid-19
sýnir hvað hægt er að gera þegar vís-
indamenn úr ólíkum greinum vinna
saman,“ segir Sveinbjörn Gizurarson,
prófessor í lyfjafræði við Háskóla Ís-
lands. Hann hefur fylgst vel með
þrotlausu starfi vísindamanna við leit
að vörn gegn kórónaveirunni. Fram-
ar væntingum þykir að bóluefni sé nú
senn væntanlegt, aðeins um ári eftir
að veirunnar varð fyrst varst. Það
bóluefni sem flestir horfa til í dag er
afrakstur samstarfs þýska fyrir-
tækisins BioNTech og alþjóðlega
lyfjafyrirtækisins Pfizer.
Sprautað undir húð
Sveinbjörn lýsir málum þannig að
margar veirur, eins og kórónuveiran,
eru með sprota utan á sér sem vænst
sé að ónæmiskerfi
mannsins greini.
„Ef veira sem
inniheldur þessa
sprota, lætur sjá
sig viljum við að
ónæmiskerfið
þekki hana undir
eins. Aflífi hana
áður en hún kem-
ur sér fyrir, fjölg-
ar og veldur sjúk-
dómnum,“ útskýrir Sveinbjörn og
segir margar leiðir færar við kynna
þessa sprota fyrir ónæmiskerfinu. Sú
leið sem Pfizer og BioNTech fari sé
að nota efni sem innihaldi uppskriftir
af ýmsum efnum í flokki próteina og
peptíða. Í þessu tilfelli séu fyrirtækin
með mRNA-bút sem inniheldur upp-
skriftina að þessum sprotum sem ein-
ungis finnst á yfirborði kórónuveir-
unnar (SARS-CoV-2). Þegar þessu sé
sprautað undir húð eða í vöðva, fara
þessir mRNA-bútar inn í frumuna á
svæðinu, sem síðan byrja að fram-
leiða þessa sprota.
„Ónæmiskerfið veit hvað tilheyrir
okkur. Þegar kerfið sér þessi fram-
andi efni byrjar það að fjarlægja þau,
en á sama tíma leggur kerfið efnin á
minnið. Ef einstaklingurinn er síðan
bólusettur í annað sinn, þá bregst
ónæmiskerfið við á ný, en nú með
mun meiri krafti en áður og setur
þessar upplýsingar í langtímaminn-
ið,“ segir Sveinbjörn.
90% vörn
Niðurstöðurnar sem fyrirtækin
kynntu sýna að sjö dögum eftir seinni
bólusetninguna fæst yfir 90% vörn.
Því er stefnt að því að allir verði bólu-
settir tvisvar. Bóluefnið sem fyrir-
tækið Moderna hefur þróað, byggir á
sömu tækni. AstraZeneca nýtir sér
tækni sem þróuð var í Oxford – og er
sambærileg þótt virkni sé önnur.
Prótein og peptíðar
aflífa veirusprotana
Bóluefni kemur senn Ónæmiskerfi með langtímaminni
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Lyf Bóluefnið nýja er afrakstur samstarfs hins þýska BioNTech og alþjóðlega lyfjafyrirtækisins Pfizer.
Sveinbjörn
Gizurarson
Sjö ný kórónuveirusmit greindust
innanlands á mánudag. Sex hinna
smituðu voru í sóttkví við greiningu
en einn utan sóttkvíar. 57 liggja á
sjúkrahúsi og eru fjórir á gjör-
gæslu, samkvæmt tölum á Covid.is.
Alls eru 563 í sóttkví og 302 í ein-
angrun. Nýgengi innanlandssmita
mælist nú 61,1. Þegar litið er til
fjölda smita frá útlöndum þá
greindust tvö smit við landamærin
á mánudag en í báðum tilvikum er
mótefnamælingar beðið. Á mánu-
dag voru tekin 870 einkennasýni,
301 sýni var tekið við landamæras-
kimun og 293 í skimunum Íslenskr-
ar erfðagreiningar.
Þegar einangrun og sóttkví er
skoðuð eftir landshlutum eru 193 í
einangrun á höfuðborgarsvæðinu
og 419 í sóttkví. Næstflestir eru í
einangrun og sóttkví á Norðurlandi
eystra. Þar eru 57 í einangrun og
46 í sóttkví.
Nýgengi innanlands:
61,1 nýtt smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa
7 ný inn an lands smit greindust sl. sólarhring
100
80
60
40
20
0
302 eru með virkt smit og í einangrun
júlí ágúst september október nóv.
Fjöldi staðfestra smita
innanlands frá 30. júní
H
ei
m
ild
: c
ov
id
.is
75
716
99
86
Sjö ný smit innanlands