Morgunblaðið - 18.11.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 18.11.2020, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 2020 Tilboð/útboð Breyting á Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020 Bjarkarás Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti þann 22. september 2020 tillögu að óveru- legri breytingu á gildandi Aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020 samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. Gerð er minniháttar breyting á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar 2008-2020. Uppdráttur aðalskipulags er óbreyttur, þ.m.t. stærð og aðkoma. Gerð er breyting á texta greinar- gerðar á bls. 26 sem snýr að heimild frá því að reisa einbýlishús á einni hæð yfir í tvær hæðir. Breytingin hefur verið send Skipulagsstofn- un til staðfestingar. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta haft samband við skipulags- og umhverfisfulltrúa Hvalfjarðarsveitar, skipulag@hvalfjardarsveit.is Sveitarstjóri Hvalfjarðarsveitar Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi ytra Samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér auglýst tillaga að breytingum á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016/2028 Jarlsstaðir, breyting á landnotkun Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 12.11.2020 að gerðar verði nauðsynlegar breytingar á skilgreiningu landnotkunar í aðalskipulagi sveitarfélagsins fyrir Jarlsstaði, svæði merkt F74, þar sem hluti núverandi landbúnaðarsvæðis verði gert að frístundabyggð. Samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 eru hér auglýstar tillögur að eftirfarandi deiliskipulagsáætlunum Rangárslétta, Rangárþingi ytra, deiliskipulag Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 12.11.2020 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Rangársléttu úr landi Leirubakka. Um er að ræða deiliskipulag sem gerir ráð fyrir uppbyggingu á 11 stórum frístundalóðum frá 1,5-5,5 ha. Aðkoma að skipulagssvæðinu er frá Landvegi (nr. 26) og í gegnum frístundabyggð Fjallalands. Borgir, Rangárþingi ytra, deiliskipulag Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 12.11.2020 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Borgir úr landi Sólvalla. Um er að ræða deiliskipulag sem gerir ráð fyrir byggingu íbúðarhúss, bílskúrs og gestahúss. Aðkoma að skipulagssvæðinu er af Suðurlandsvegi (1), um Oddaveg (266) og um núverandi aðkomuveg að Sólvöllum. Gaddstaðir, Rangárþingi ytra, deiliskipulag Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 9.5.2019 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir heildarsvæðið að Gaddstöðum, bæði núverandi frístundasvæði og nýtt íbúðasvæði. Áformað er að lóðir verði óbreyttar en aðkomum breytt að sumum þeirra og byggingarmagn endurskoðað. Vegna tímaákvæðis í skipulagslögum er tillagan auglýst hér að nýju. Klettamörk, Rangárþingi ytra, deiliskipulag Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 12.11.2020 að auglýsa að nýju tillögu að deiliskipulagi fyrir Klettamörk úr landi Maríuvalla. Áform eru uppi um að reist verði alls 8 gistiskálar til útleigu, ásamt íbúðarhúsi til íveru. Aðkoma verður frá Gunnarsholtsvegi. Sólstaður Klettholt, Rangárþingi ytra, deiliskipulag Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 12.11.2020 að auglýsa tillögu að deiliskipulagi fyrir Sólstað - Klettholt úr landi Köldukinnar. Deiliskipulagið tekur yfir stærstan hluta gildandi deili- skipulags; Kaldakinn í Rangárþingi ytra-deiliskipulag jarðar, sem staðfest var í B-deild dags. 03.12.2018. Skipulagssvæði Sólstaðar / Klettholts er felldur úr deiliskipulaginu fyrir Köldukinn og unnið nýtt deiliskipulag fyrir það svæði. Samhliða er gerð deiliskipulagsbreyting fyrir Köldukinn svo þar stendur aðeins eftir jörðin Kaldakinn L165092. Í deiliskipulaginu er gert ráð fyrir byggingum sem tengjast landbúnaði en mögulegt byggingarmagn fer eftir stærð lóða/jarða. Aðkoma er af Landvegi (26) og um Árbæjarveg (271). Tillögurnar liggja frammi hjá Skipulagsfulltrúa, Suðurlandsvegi 3, Hellu og á heimasíðu Rangárþings ytra, www.ry.is Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar og er frestur til að skila inn athugasemdum til og með 30. desember 2020. Þeir sem óska nánari upplýsinga geta snúið sér til Skipulagsfulltrúa Rangárþings ytra í síma 488-7000 eða með tölvupósti birgir@ry.is Har. Birgir Haraldsson Skipulagsfulltrúi Rangárþings ytra RANGÁRÞING YTRA Auglýsing um skipulagsmál í Rangárþingi eystra Samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, eru auglýstar eftirfarandi tillögur að deiliskipulagi í Rangárþingi eystra Kirkjuhvolsreitur – Breyting á deiliskipulagi Deiliskipulagstillagan tekur til allt að 2.300 m2 stækkunar á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Kirkjuhvoli. Gert er ráð fyrir stækkun á Heilsugæslustöðinni um allt að 500 m2 og allt að 23 íbúðum fyrir 60 ára og eldri. Íbúðirnar verða í raðhúsum og parhúsum á einni hæð og er gert ráð fyrir að hluti þeirra verði með bílskúr. Kirkjulækjarkot – Deiliskipulag Deiliskipulagstillagan tekur til tveggja íbúðarlóða. Á hvorri lóð er gert ráð fyrir íbúðarhúsi og bílskúr, allt að 250 m2 að stærð. Ofangreindar deiliskipulagstillögur er hægt að skoða á heimasíðu Rangárþings eystra, www.hvolsvollur.is og á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa frá 18. nóvember 2020. Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar, og er frestur til að skila inn athugasemdum til 30. desember 2020. Athugasemdum skal skila skriflega á skrifstofu skipulags- og byggingarfulltrúa Rangárþings eystra, Austurvegi 4, 860 Hvolsvelli. F.h. Rangárþings eystra Guðmundur Úlfar Gíslason Skipulags- og byggingarfulltrúi Félagsstarf eldri borgara Seltjarnarnes Námskeiðin í leir og gleri eru í samráði við leiðbein- endur. Kaffikrókurinn og samveran og handavinnan eftir hádegi er eingöngu fyrir íbúa Skólabrautar á meðan 10 manna hámarkinu er haldið og munum að virða fjarlægðamörk, grímuskyldu og aðrar persónulegar sóttvarnir. Raðauglýsingar 569 1100 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Bílar Nýir 2020 Mitsubishi Outlander bílar í mörgum litum á staðnum. Nú borgar sig að kaupa áður en þeir hækka um næstu áramót vegna tolla breytinga. Okkar verð er langt undir lista- verði á 5.890.000,- www.sparibill.is Hátúni 6 A – sími 577 3344. Opið kl. 12–18 virka daga. með morgun-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.