Morgunblaðið - 18.11.2020, Page 10

Morgunblaðið - 18.11.2020, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 2020 Hugsum áður en við hendum! www.gamafelagid.is 577 5757 Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Þeir sem standa að Suðurnesjavett- vanginum hafa ákveðið að hraða inn- leiðingu hringrásarhagkerfisins í landshlutanum. Í því felst meðal annars skuldbinding um að vinna áfram að aðgerð- um gegn losun gróðurhúsaloft- tegunda, samein- ast gegn þeirri ógn sem felst í plasti í umhverf- inu og ráðast gegn aðgerðum gegn matarsóun. Sveitarfélögin fjögur á Suður- nesjum, Isavia og Kadeco hafa unnið saman að innleið- ingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna í á annað ár, að frumkvæði starfsmanns Isavia. Kristín María Birgisdóttir, upplýsinga- og mark- aðsfulltrúi Grindavíkurbæjar sem átti sæti í skipulagshópnum, segir að það sé í fyrsta skipti sem heill lands- hluti gangi þessa leið saman. Undirbúnir voru íbúafundir um mismunandi verkefni en þau eru blómlegt og fjölbreytt atvinnulíf, traustir og hagkvæmir innviðir, vel menntað og heilbrigt samfélag og sjálfbært og aðlaðandi samfélag. Vegna kórónuveirufaraldursins var ekki hægt að halda hefðbundna íbúa- fundi en í staðinn var efnt til rafræns umræðufundar. Kristín segir að ekki hafi verið hægt að láta þá vinnu sem unnin hafði verið fara í súginn. Um 140 tóku þátt í umræðufund- inum, heimamenn auk fimm ráð- herra úr ríkisstjórninni. „Þetta tókst vel. Við erum ánægð með niðurstöðu fundarins sem bæjarstjórarnir fjórir kynntu,“ segir Kristín María. Í niðurstöðunum kemur fram að það sé sameiginlegur vilji allra að Suðurnesin verði hringrásarhag- kerfi, dregið verði úr úrgangi og endurvinnsla aukin. Fram kom það sjónarmið að ræða ætti um rusl sem hráefni. Sveitarfélögin og fyrirtækin áforma að vinna saman kolefnis- bókhald, mæla kolefnisfótspor og setja sér markmið um losun. Rætt var um vistvæna iðngarða í nágrenni Keflavíkurflugvallar og þá hugmynd að flugvöllurinn verði hleðslustöð fyrir vistvænar flugvélar framtíðar- inar. Loks kom fram hugmynd um að komið verði á fót alþjóðlegum um- hverfisháskóla á Suðurnesjum og umhverfisfræðsla verði ríkari þáttur í kennslu í grunnskólum og upp úr. Verður fylgt eftir Kristín María segir að sum þess- ara verkefna séu einföld og hægt að koma strax í ferli en önnur séu kostnaðarsöm og taki lengri tíma. Ætlunin sé að fylgja málinu strax eftir með áframhaldandi samvinnu þeirra sem standa að Suðurnesja- vettvangnum. Forgangsraða þurfi hugmyndunum og meta hvernig þeim verði best komið í framkvæmd. Suðurnesin eru háð ferðaþjónustu og er mikið atvinnuleysi í landshlut- anum vegna áhrifa kórónuveiru- faraldursins á atvinnugreinina. Kristín María segir að þótt innleið- ing heimsmarkmiða bjargi ekki at- vinnuástandinu sé það liður í að und- irbúa jarðveginn með styrkingu innviða þannig að þegar allt fer af stað aftur verði landshlutinn betur í stakk búinn til að taka á móti ferða- fólki á nýjan leik. Innleiða hringrásarhagkerfið  Sveitarstjórnir og tvö stór fyrirtæki á Suðurnesjum hraða innleiðingu heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna  Dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda og plasts út í umhverfið og ráðist gegn matarsóun Morgunblaðið/Sigurður Bogi Ásbrú Hugmyndir eru um vistvæna iðngarða við Keflavíkurflugvöll og hleðslustöð fyrir vistvænar flugvélar. Kristín María Birgisdóttir Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Áhugavert er fyrir Arctic Fish að fá íslenska lífeyrissjóði í hluthafahópinn en einnig aðra fjárfesta, að sögn for- stjórans. Hlutafjárútboði er ætlað að skapa möguleika til fjárfestinga til að styrkja fyrirtækið. Ekki hefur verið ákveðið hvort það byggir upp eigin laxavinnslu eða slátrar í samvinnu við önnur fyrirtæki. Vestfirska fisk- eldisfyrirtækið Arctic Fish til- kynnti á dögunum að það hefði feng- ið banka og ráð- gjafarfyrirtæki til að kanna mögu- leika á skráningu félagsins á Merk- ur-markaðinn í kauphöllinni í Ósló. Í tengslum við þessi áform verður nýtt hlutafé boðið út. Eignarhaldsfélög Fiskeldis Austfjarða og Arnarlax voru skráð á þennan markað fyrr á þessu ári, einnig í tengslum við hlutafjáraukn- ingu. Samkvæmt upplýsingum Steins Oves Tveitens, forstjóra Arctic Fish, hefur fyrirtækið áhuga á að fá ís- lenska fjárfesta til að taka þátt í upp- byggingunni. Nánar spurður um þetta segir hann að áhugavert væri að fá íslenska lífeyrissjóði til liðs við fyrirtækið ásamt öðrum fjárfestum. Almennt kveðst hann vona að ís- lenskir fjárfestar sjái möguleika og ávinning af því að taka þátt í viðskipt- um framtíðarinnar. Þörf á fjárfestingum Ekki hefur verið upplýst hversu mikið hlutaféð verður aukið. Stein Ove segir að fyrirtækið sjái afar áhugaverð verkefni og möguleika í framtíðinni sem það vilji hrinda í framkvæmd. Forstjórinn segir stefnt að því að fullnýta framleiðslugetu fyrirtækisins með sérstakri áherslu á seiðaframleiðslu en einnig að sjá til þess að nauðsynleg framleiðslugeta verði í framtíðinni í slátrun og pökk- un. Arctic Fish nýtir vinnsluna á Bíldudal, samkvæmt þjónustusamn- ingi við Arnarlax. Ekki hefur verið ákveðið hvernig staðið verður að þeim málum í framtíðinni. Bæði komi til greina samvinna við aðra og eigin lausnir, að sögn forstjórans. Segir Stein Ove ljóst að þörf sé á fjárfest- ingum í framtíðinni til að styrkja fyrirtækið. Markmið þess ferlis sem það er nú með í gangi sé að tryggja nauðsynlega getu til fjárfestinga. Vilja frekar bæta við sig Norway Royal Salmon, NRS, sem á 50% hlutafjár Arctic Fish, hefur lýst því yfir að fyrirtækið hyggist ekki selja neitt af sínum hlut og frek- ar gefið til kynna að það hafi áhuga á að auka við sig og eignast þannig meirihlutann. Pólski athafnamaður- inn Jerzy Malek á 47,5% hlutafjár. Ekkert hefur verið gefið út um áform hans í tengslum við skráningarferlið eða smærri hluthafana. Gert hefur verið ráð fyrir að félag- ið verði skráð á Merkur-markaðinn á fyrsta fjórðungi næsta árs. Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Patreksfjörður Unnið við sjókvíar hjá Arctic Fish á Vestfjörðum. Eigin vinnsla kemur til greina  Arctic Fish vill íslenska hluthafa Stein Ove Tveiten Dreifð álagsárás var gerð á aðila innan fjármálageirans mánudaginn 9. nóvember sl., svokölluð DDos- árás. Um var að ræða stóra árás á íslenskan mælikvarða. Hafði árásin afleiðingar víðar, s.s. hjá fjarskiptafélögunum, vegna bilunar í erlendri varnarþjónustu sem alla jafna hefði dregið mjög úr stærð hennar. Frá þessu er greint á vefsíðu Póst- og fjarskiptastofnunar. „Árásin hafði víðtæk áhrif, hún hríslaðist um fjarskiptainnviði landsins og kom einnig niður á greiðsluþjónustu og auðkennisþjón- ustu hér á landi. Með góðri sam- vinnu tókst þó að lágmarka skað- ann eins og hægt var,“ segir í umfjölluninni. Fram kemur að CERT-IS, sem er netöryggissveit stofnunarinnar, vinnur nú með fjarskiptafélögunum og fjármálageiranum að greiningu á árásinni og mótvægisaðgerðum til þess að minnka möguleg áhrif á lykilinnviði við slíkar aðstæður í framtíðinni. Umfangsmikil netárás á aðila innan fjármálageirans hafði afleiðingar víða Morgunblaðið/Júlíus Fjarskipti Um var að ræða stóra netárás.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.