Morgunblaðið - 18.11.2020, Blaðsíða 21
DÆGRADVÖL 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. NÓVEMBER 2020
„HVERNIG ÆTLIÐ ÞIÐ AÐ KOMA ÍBÓTAR-
ATÓMUM INN Í KÍSILSKÍFU MEÐ JÓNA-
ÍGRÆÐSLU OG NOTA ÖR BYLGJ UOFN?”
„EF ÞÚ HEFUR SVONA MIKLAR ÁHYGGJUR
AF ÞVÍ AÐ SMITAST AF ÞESSU SKALTU
BARA SOFA Í ELDHÚSINU.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að semja til hennar
ástarlag.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
HEI,
GRETTIR…
HEFURÐU SÉÐ
STÓRU FERÐA-
TÖSKUNA?
MEINARÐU
NÝJA NESTIS-
BOXIÐ MITT?
GELT GELTGELT
VOFF
VO
FF
EKKI VERA FÚL ÚT Í
MIG! ÉG GAT EKKI
STOPPAÐ HRÓLF
Í AÐ TAKA ÞAÐ SEM
HANN VILDI!
ÉG HEYRÐI ÞIG GRÁTBIÐJA HRÓLF
UM AÐ TAKA FÍFÍ MEÐ SÉR!VOFF
Börn Önundar og Díönu eru Kor-
mákur Andri Þórsson, f. 25.4. 1997
(stjúpsonur), sálfræðinemi í Cleveland
Mississippi í Bandaríkjunum;
Emelía Nótt Önundardóttir, f.10.3.
2003, framhaldsskólanemi í Fjöl-
brautaskóla Garðabæjar, og Kristófer
Máni Önundarson, f. 31.10. 2005,
grunnskólanemi í Heiðarskóla. Systk-
ini Önundar eru Jónas Dagur Jón-
asson, deildarstjóri fjármáladeildar
HS veitna, f. 11.12. 1974 og Bryndís
Björg Jónasdóttir, skrifstofustjóri og
nemi, f. 27.6. 1979. Bæði eru búsett í
Reykjanesbæ.
Foreldrar Önundar eru Fanney El-
ísdóttir, húsmóðir og fiskverk-
unarkona, f. 23.4. 1947 og Jónas Gunn-
ar Ingimundarson, fiskmatsmaður og
þúsundþjalasmiður, f. 4.8. 1948, d. 11.5.
2014. Fanney og Jónas voru í sambúð
og bjuggu í Keflavík. Í dag býr Fann-
ey í húsinu sem Jónas byggði árið
1977.
Önundur
Jónasson
Valfríður Ólafsdóttir
húsfreyja í Hvarfsdal,
Skarðssókn, Dal., og Hvammi
í Hvammssveit, síðast bús. í
Kópavogi
Oddur Bergsveinn Jensson
bóndi í Hvarfsdal,
Skarðssókn, Dal., Hvammi
í Hvammssveit, Dal. og í
Sælingsdal í sömu sveit
Guðrún Valfríður Oddsdóttir
húsfreyja í Sælingsdal í
Hvammssveit í Dölum
Jens Elís Jóhannsson
bóndi í Sælingsdal, Hvammssveit
í Dölum, síðast búsettur í
Hvammshreppi
Fanney Elísdóttir
húsmóðir og fiskverkakona
Halldóra Ólafsdóttir
húsfreyja á Hlíðarenda,
Stóru-Vatnshornssókn, Dal.
Jóhann Benedikt Jensson
hreppstjóri á Hlíðarenda,
Stóru-Vatnshornssókn, Dal.
Guðrún Margrét
Guðjónsdóttir
húsfreyja á Ósi,
Hrófbergshreppi, Strand.
Dagur Guðmundsson
vinnumaður á Skógum,
Staðarsókn, Barð.,
1901, síðar bóndi á Ósi,
Hrófbergshreppi, Strand.
Njóla Dagsdóttir
vinnukona í Reykjavík
Ingimundur Magnússon
sjómaður í Kaldbaksvík og
Ásmundarnesi, síðar í Keflavík
Guðbjörg Jónsdóttir
húsfreyja á Kleifum,
Kaldrananeshreppi, Strand.
Magnús Jóhannsson
bóndi á Kleifum,
Kaldrananeshreppi, Strand.
Úr frændgarði Önundar Jónassonar
Jónas Gunnar
Ingimundarson
fiskmatsmaður í Keflavík
og starfaði síðar við
byggingar og viðhald
ÁBoðnarmiði yrkir HólmfríðurBjartmarsdóttir á degi íslenskr-
ar tungu:
„Hví skyldi ég ekki reyna að byrla Braga
full“
til bjargar minni covid-hrelldu sál.
Hefðin er svo ágæt og íslenskan er gull
því ætla ég, í gulli, að segja; skál!
Skál fyrir degi íslenskrar tungu!
Gunnar J. Straumland á sömu nótum:
Þjóðinni ól dagsins önn
íslenskan, víðfeðm og sönn,
svo ef þú vilt sletta
og ambögur flétta
þá vefjist þér tunga um tönn.
Dagbjartur Dagbjartsson hélt
áfram:
Á munn þér ratast saga sönn
ég segi bara þetta.
Stöðugt vefst mér tunga um tönn
og tekst því ekki að sletta.
Og síðan Bjarni Gunnlaugur
Bjarnason:
Íslensk tunga er eflaust góð
ei skal hana bletta
áfram mun samt þessi þjóð
þurfa dönsku að sletta!
Guðmundur Beck yrkir „Andvaka“
og er dýrt kveðið:
Ótt á nóttu, óttinn drótt að sótti,
undan blundi lund mín stundum skundar.
Hrellir ellin hallan rellinn skalla,
húms frá búi nú má lúinn snúa.
Brag að laga bagann trega sagar,
þá brandar vandinn andans standi grandar.
Glæður fræða væðum gæða kvæðum,
góðu ljóðin bjóðum rjóðum fljóðum.
Sigrún Grímsdóttir yrkir og veit
sínu viti:
Ég veit það er nauðsyn „að ætla sér af“
með aldrinum verð ég þó fegin
að nota þá orku sem Guð minn mér gaf
ég get alltaf hvílst hinum megin.
Hér er fróm ósk Mannsins með
hattinn:
Viltu Drottinn gera greiða
gömlum lúnum vísnastrák?
Að hann megi áfram skeiða
um allt á sínum skáldafák.
Símon Dalaskáld orti „Alvarlegar
vísur“:
Ekki vil ég eiga núna’ af æðra tagi,
heldur bónda dóttur dýra,
dygðum búna, fagra, skýra.
Betri’ eru margar búnar ullar bættum
voðum,
en sveipaðar í silkiklæðum
sæturnar með hrókaræðum.
Jón Árnason Víðimýri orti:
Fyrir allt mitt ferðalag
fæ ég litla borgun.
Nú má ekki drekka í dag
ef duga skal á morgun.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Íslenskan er gull