Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2020, Blaðsíða 10
VIÐTAL 10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.11. 2020 S nemma árs 1964 hringdi síminn um miðja nótt heima hjá Guðnýju Lax- foss og kærasta hennar, Jeff Em- mons, í Dallas, Texas. Það var Elv- is Presley. Eins og gengur. Hann hafði verið að slá sér upp með systur Jeffs, Jea- nette, en látið hana róa. Hún tók það óstinnt upp, datt í’ða og lagði af stað akandi frá Memp- his til Dallas. Var stöðvuð af lögreglu á leiðinni og stungið í steininn fyrir ölvunarakstur. Not- aði símtalið sitt til að láta Elvis vita og honum rann blóðið til skyldunnar. Bað Guðnýju og Jeff lengstra orða að fara og leysa aumingja stúlkuna úr haldi enda gæti hann ekki látið sjá sig þar sjálfur. „Þetta er mér að kenna og þið megið til með að aðstoða mig,“ bað Kóngurinn og Guðný og Jeff létu ekki segja sér það tvisv- ar. „Þetta var okkur dýrt, tólf hundruð doll- arar, að mig minnir. En hvað gerir maður ekki fyrir Elvis?“ segir Guðný hlæjandi. „Svona er lífið. Þetta er búið að vera við- burðaríkt og skemmtilegt,“ heldur hún áfram gegnum símann frá Ava, Missouri, þar sem hún býr í dag með núverandi eiginmanni sín- um, Ivan Downs. Keisaranum, eins og hún kallar hann. Guðný var nýflutt til Bandaríkj- anna þegar Elvis sló á þráðinn þarna um nótt- ina. Þau höfðu verið í nokkrum samskiptum mánuðina á undan vegna sambands hans við Jeanette. En þetta var það síðasta sem þau heyrðu frá honum. „Maður fylgdist bara með honum úr fjarlægð þangað til hann dó, langt fyrir aldur fram. Það var ofboðslega sorglegt.“ Guðný bjó fyrstu mánuðina í Memphis, síðan í um hálfa öld í Dallas og seinustu árin í Dou- glas-sýslu sem tilheyrir Ava. „Maðurinn minn er ættaður héðan og hér er yndislegt að vera. Við búum úti í sveit og erum hérna með nokkur lömb sem einmitt stendur til að slátra eftir nokkra daga. Ég er vön að taka slátur, þannig að mig vantar blóð. Veit ekkert hvað slátr- ararnir segja við því; þeir eiga eflaust eftir að reka upp stór augu,“ segir Guðný hlæjandi. Eiginmaður hennar er hændur að lömb- unum en finnst þau ekki eins góð á bragðið. „Hann er ekki alinn upp við að borða lamba- kjöt, bara naut, og honum þykja svið og vamb- ir algjör viðbjóður. Missir alla matarlyst. Þess vegna erum við að hugsa um að fá okkur naut í stað lambanna sem er synd, þar sem mér finnst lambakjöt svo gott og ofboðslega gaman að taka slátur.“ Lengi býr að fyrstu gerð. Ólst upp hjá einstæðri móður Guðný fæddist í Reykjavík árið 1946 en flutti sex ára gömul til Suðurnesja, fyrst Njarðvíkur í eitt ár og síðan Keflavíkur. Hún var á fimmta ári þegar foreldrar hennar skildu og eftir það ól móðir hennar, Guðný Jóhannesdóttir úr Vest- mannaeyjum, hana og þrjá bræður hennar upp ein. „Pabbi var ekki inni í myndinni; hafði meiri áhuga á flöskunni en okkur,“ segir Guðný. Hún segir móður sína á hinn bóginn hafa verið duglegustu konu sem hún hafi nokkurn tíma kynnst. „Eftir á sér maður að við áttum ekki mikið en samt fattaði ég aldrei, meðan ég var að vaxa úr grasi, að við værum fátæk. Við sultum aldrei enda var mamma mjög sniðug að búa til mat úr engu. Einu sinni komum við mamma að ungum dreng sem var að borða hráar kartöflur upp úr matjurtagarðinum okk- ar. Ég spurði mömmu hvort ég ætti að reka hann burt. Þá svaraði mamma: „Nei, Minný mín. Leyfðu honum að borða!“ Drengurinn var greinilega verr settur en við og eftir þetta tengdi ég fátækt alltaf við það að borða hráar kartöflur.“ Sjálf byrjaði Guðný að vinna aðeins fimm ára gömul; við að bera út dagblöð, fyrst í Reykjavík en síðan á Suðurnesjum. „Það voru alltaf blöð afgangs sem ég seldi. Ég fór í stafa- skóla fimm ára og kunni að telja, þannig að það var lítið mál. Blöðin kláruðust alltaf og ég held ég hafi selt fleiri Mogga en Óli kóngur nokk- urn tíma,“ rifjar hún upp hlæjandi en það var frægur blaðasali í Keflavík. „Það var góður aukapeningur.“ Kastaði upp blóði á nóttunni Móðir Guðnýjar glímdi lengi við vanheilsu. „Hún var með blæðandi magasár sem auðvelt væri að lækna í dag en lítið var vitað um í þá daga. Seinustu fjögur árin sem hún lifði hjálp- aði ég henni oft að kasta upp blóði á nóttunni. Mamma var ægilega mögur og allt var reynt til að fita hana en allt kom fyrir ekki. Hún þreifst ekki almennilega. Á endanum fór hún í uppskurð og ég gleymi aldrei augnablikinu þegar ég heimsótti hana á spítalann eftir að- gerðina. Til að byrja með virtist allt í lagi með mömmu en síðan kastaði hún upp blóði með miklum látum; spýjan skall á veggnum í þriggja metra fjarlægð. Þetta var hræðilegt.“ Móðir Guðnýjar lést skömmu eftir aðgerð- ina, í október 1960, fimmtug að aldri. „Mamma var þá nýbúin að taka af mér það loforð að ég myndi verða hjúkrunarfræðingur. Nokkuð sem ég gat ekki hugsað mér á þeim tíma eftir þessa lífsreynslu en það fór á annan veg síðar,“ segir Guðný. Faðir Guðnýjar hafði engan áhuga á að taka börnin að sér og elsti bróðir hennar, Karl, sem var tvítugur, var fluttur til Bandaríkjanna. Eftir stóðu Gunnar Valsberg, fimmtán ára, Guðný, fjórtán ára og Kristján, tólf ára. Nán- ustu ættingjar, presturinn og skólastjórinn komu saman til að ákveða „hvað gera átti við grislingana,“ eins og Guðný orðar það. „Fólki leist rétt mátulega á að taka okkur að sér. Það var smá vesen á Kristjáni, yngri bróður mín- um, á þessum tíma; hann hafði verið að stela bílum á nóttunni. Skilaði þeim að vísu alltaf aftur að morgni en þetta komst upp vegna þess að meira bensín var yfirleitt á bílunum en kvöldið áður. Kristján borgaði nefnilega alltaf fyrir „lánið“. Fólk hafði meiri áhuga á mér, enda var ég harðdugleg og hafði unnið frá blautu barnsbeini, auk þess sem ég þurfti ekki að sofa nema í tvo til þrjá tíma á nóttunni. Amma mín sá sér leik á borði enda þýddi það að hún gat látið vinnukonuna fara. Það var bara út af því sem hún vildi mig.“ Fórst með Stuðlaberginu Guðný vildi á hinn bóginn ekki fara til ömmu sinnar, þannig að Gunnar bróðir hennar stakk upp á því að hann tæki ábyrgð á yngri systk- inum sínum og þau byggju áfram heima. Það var samþykkt til reynslu í eitt ár. „Og allir urðu lifandis fegnir.“ Gunnar stundaði sjóinn og aðeins fimmtán mánuðum eftir andlát móður þeirra, í febrúar 1962, dundi annað reiðarslag yfir; Gunnar fórst með Stuðlaberginu NS í ofsaveðri út af Stafnesi, aðeins sautján ára að aldri. „Þá kom fólk aftur saman til að ákveða hvað yrði um okkur Kristján og þar sem það áttaði sig á því að þetta hafði bara gengið ljómandi vel hjá okkur var mér falin ábyrgð, alla vega næsta árið. Það eina sem var öðruvísi í þetta skiptið var að pabbi lét í sér heyra. Ekki til að skipta sér af okkur Kristjáni, heldur til að sækja arfinn eftir Gunnar. Sem hann fékk. Maður sem aldrei hafði greitt krónu í meðlag.“ Það eina sem hún hefur frá föður sínum er eftirnafnið en hann ólst upp í Borgarfirði, rétt við Laxfoss. „Við vildum ekki kenna okkur við pabba, þannig að Laxfoss kom í góðar þarfir,“ segir Guðný. Stefndi skónum vestur Hún átti hálfbandaríska vinkonu í Keflavík, Jóhönnu Clark að nafni, sem hafði búið vestra og sagt Guðnýju ýmsar sögur frá þessu maka- Guðný Laxfoss ásamt núverandi eiginmanni sínum, Ivan Downs, á brúðkaupsdaginn 2012. Elvis hringdi um miðja nótt Sautján ára gömul brá Guðný Laxfoss sér í bíó með Elvis Presley og synti í sundlauginni í Graceland en Kóngurinn sló sér á þeim tíma upp með mágkonu hennar. Guðný ólst upp við nauman kost á Íslandi og missti móður sína og bróður á unglingsaldri. Eftir það ákvað hún að freista gæfunnar í Bandaríkjunum og býr þar enn. Óhætt er að fullyrða að lífshlaup Guðnýjar, sem er hjúkrunarfræðingur, hafi verið viðburðaríkt. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’ Til að byrja með virtist allt ílagi með mömmu en síðankastaði hún upp blóði með miklum látum; spýjan skall á veggnum í þriggja metra fjarlægð. Þetta var hræðilegt.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.