Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2020, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2020, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.11. 2020 FERÐALÖG hafðu það notalegt handklæðaofnum Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177 Eigum úrval af lands árið 1990 máttu aðeins banda- rísk, bresk og frönsk flugfélög fljúga áætlunarflug til Vestur-Berlínar. Tegel-flugvöllur var hannaður til að taka á móti 2,5 milljónum farþega á ári, en rúmlega 20 milljónir far- þega hafa farið þar um árlega undanfarin ár. Það hefur því verið þröng á þingi á flugvellinum, að- stæður erfiðar og best að segja sem minnst um salernisaðstöðuna. Hönnun flugvallarins var þó að mörgu leyti til fyrirmyndar, einkum og sér í lagi vegna þess að stutt var frá landgangi út úr flugstöðvarbygg- ingunni, jafnvel bara nokkrir tugir metra. Þá var öryggisleit við hvert hlið og innritun þægileg. Ætlunin var að loka Tegel árið 2012. Endalausar tafir við hinn nýja flugvöll urðu þó til þess að því var slegið á frest. Árið 2017 var efnt til kosningar borgarbúa um framtíð flugvallarins og greiddu þeir at- kvæði með því að hann yrði notaður áfram. Borgaryfirvöld ákváðu engu að síður að honum yrði lokað á þessu ári. Borgarstjóri Berlínar, Michael Müller, var þó hryggur í bragði og sagði að Berlín kveddi Tegel með sorg í hjarta. Tegel-flugvöllur var lagður á 90 dögum árið 1948 þegar lofbrúin var reist til að flytja vistir til Berlínar er Sovétmenn hugðust einangra hana. Nítján þúsund almennir borgarar Tegel-flugvelli í Berlín verðurformlega lokað í dag, sunnu-dag, klukkan þrjú að stað- artíma þegar flugvél Air France til Charles de Gaulle í París tekur á loft. Það er við hæfi að flugvélin sé frá franska flugfélaginu. Fyrsta flugið til Tegel var einmitt á vegum Air France snemma árs 1960, frá París til Berlínar með viðkomu í Frankfurt. Þá var Tegel í þeim hluta Berlínar, sem á kaldastríðsárunum var á valdi Frakka. Reyndar var það svo að fram að sameiningu Þýska- Spenntir Berlínarbúar bíða á Tegel eftir því að þýska lands- liðið í fótbolta snúi heim eftir að hafa landað heimsmeist- aratitli í Brasilíu 2014. AFP Unnið að lagningu Tegel-flugvallar í Vestur-Berlín sumarið 1948 þegar loftbrúin var reist til að svara tilraunum Sovétmanna til að einangra borgina. Vegir liggja til allra átta. Aðalsalur Tegel-flugvallar, sem nú verður lokað. Berlínarbúar kveðja Tegel með söknuði Nýr flugvöllur var opnaður í Berlín fyrir rúmri viku eftir mikinn vandræða- gang og margra ára töf. Sá gamli var löngu orðinn úreltur og allt of lítill til að þjóna hlutverki sínu, en verður þó kvaddur með söknuði. Sexhyrnd flugstöð Tegel-flugvallar var reist til að þjóna 2,5 milljónum farþega á ári. Þar fóru rúmlega 20 milljónir manna um á ári síðustu árin. gengu í verkið ásamt bandamönnum til að það gengi hratt og vel. Aðal- flugvöllur Vestur-Berlínar í Temp- elhof var ekki nógu stór til þess að stærstu vélarnar gætu lent þar. Flugbrautin var 2.428 metrar, sú lengsta í Evrópu á þeim tíma. Fyrsta vélin lenti á Tegel-flugvelli 5. nóv- ember með átta tonn af osti um borð. Sexhyrnd flughöfnin var reist á sjöunda áratugnum og tók við af Tempelhof sem aðalflugvöllur Vest- ur-Berlínar árið 1975. Tempelhof var lokað 2008 og nú er þar almenningsgarður og fólk leikur sér á hjólum og hjólabrettum á flug- brautunum. Ráðgert er að íbúða- byggð komi í stað Tegel, sem er um hálftíma akstur frá miðborginni. Þar er gert ráð fyrir tíu þúsund íbúum, verslunum, skólum og leikskólum. Þá á Beuth-háskóli að fá aðstöðu í gömlu flugstöðvarbyggingunni.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.