Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2020, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.11. 2020
FERÐALÖG
hafðu það notalegt
handklæðaofnum
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - www.ofnasmidja.is - sími 577 5177
Eigum úrval af
lands árið 1990 máttu aðeins banda-
rísk, bresk og frönsk flugfélög fljúga
áætlunarflug til Vestur-Berlínar.
Tegel-flugvöllur var hannaður til
að taka á móti 2,5 milljónum farþega
á ári, en rúmlega 20 milljónir far-
þega hafa farið þar um árlega
undanfarin ár. Það hefur því verið
þröng á þingi á flugvellinum, að-
stæður erfiðar og best að segja sem
minnst um salernisaðstöðuna.
Hönnun flugvallarins var þó að
mörgu leyti til fyrirmyndar, einkum
og sér í lagi vegna þess að stutt var
frá landgangi út úr flugstöðvarbygg-
ingunni, jafnvel bara nokkrir tugir
metra. Þá var öryggisleit við hvert
hlið og innritun þægileg.
Ætlunin var að loka Tegel árið
2012. Endalausar tafir við hinn nýja
flugvöll urðu þó til þess að því var
slegið á frest. Árið 2017 var efnt til
kosningar borgarbúa um framtíð
flugvallarins og greiddu þeir at-
kvæði með því að hann yrði notaður
áfram. Borgaryfirvöld ákváðu engu
að síður að honum yrði lokað á þessu
ári. Borgarstjóri Berlínar, Michael
Müller, var þó hryggur í bragði og
sagði að Berlín kveddi Tegel með
sorg í hjarta.
Tegel-flugvöllur var lagður á 90
dögum árið 1948 þegar lofbrúin var
reist til að flytja vistir til Berlínar er
Sovétmenn hugðust einangra hana.
Nítján þúsund almennir borgarar
Tegel-flugvelli í Berlín verðurformlega lokað í dag, sunnu-dag, klukkan þrjú að stað-
artíma þegar flugvél Air France til
Charles de Gaulle í París tekur á
loft. Það er við hæfi að flugvélin sé
frá franska flugfélaginu. Fyrsta
flugið til Tegel var einmitt á vegum
Air France snemma árs 1960, frá
París til Berlínar með viðkomu í
Frankfurt. Þá var Tegel í þeim hluta
Berlínar, sem á kaldastríðsárunum
var á valdi Frakka. Reyndar var það
svo að fram að sameiningu Þýska-
Spenntir Berlínarbúar bíða á
Tegel eftir því að þýska lands-
liðið í fótbolta snúi heim eftir
að hafa landað heimsmeist-
aratitli í Brasilíu 2014.
AFP
Unnið að lagningu Tegel-flugvallar í Vestur-Berlín sumarið 1948 þegar loftbrúin
var reist til að svara tilraunum Sovétmanna til að einangra borgina.
Vegir liggja til allra átta. Aðalsalur
Tegel-flugvallar, sem nú verður lokað.
Berlínarbúar kveðja Tegel með söknuði
Nýr flugvöllur var opnaður í Berlín fyrir rúmri viku eftir mikinn vandræða-
gang og margra ára töf. Sá gamli var löngu orðinn úreltur og allt of lítill til
að þjóna hlutverki sínu, en verður þó kvaddur með söknuði.
Sexhyrnd flugstöð Tegel-flugvallar var reist til að þjóna 2,5 milljónum farþega á
ári. Þar fóru rúmlega 20 milljónir manna um á ári síðustu árin.
gengu í verkið ásamt bandamönnum
til að það gengi hratt og vel. Aðal-
flugvöllur Vestur-Berlínar í Temp-
elhof var ekki nógu stór til þess að
stærstu vélarnar gætu lent þar.
Flugbrautin var 2.428 metrar, sú
lengsta í Evrópu á þeim tíma. Fyrsta
vélin lenti á Tegel-flugvelli 5. nóv-
ember með átta tonn af osti um borð.
Sexhyrnd flughöfnin var reist á
sjöunda áratugnum og tók við af
Tempelhof sem aðalflugvöllur Vest-
ur-Berlínar árið 1975.
Tempelhof var lokað 2008 og nú er
þar almenningsgarður og fólk leikur
sér á hjólum og hjólabrettum á flug-
brautunum. Ráðgert er að íbúða-
byggð komi í stað Tegel, sem er um
hálftíma akstur frá miðborginni. Þar
er gert ráð fyrir tíu þúsund íbúum,
verslunum, skólum og leikskólum.
Þá á Beuth-háskóli að fá aðstöðu í
gömlu flugstöðvarbyggingunni.