Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2020, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2020, Blaðsíða 12
Lady Guðný, bátur Kristjáns bróður Guðnýjar, sem gerður er út á vesturströnd Bandaríkjanna. Hún var kokkur á bátnum veturinn 2006-07. VIÐTAL 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.11. 2020 lausa landi tækifæranna. Hún hreifst af þeim sögum og ákváðu þær vinkonur báðar að flytja vestur um leið og þær hefðu aldur til. Þau áform fengu svo byr undir báða vængi þegar þær kynntust hermönnum á Vellinum. Sá sem Guðný hitti hét Jeff Emmons og fljótlega eftir að hann lauk herskyldu á Íslandi flutti Guðný út til hans. „26. september 1963 hélt ég sem leið lá til Memphis, Tennessee, þar sem Jeff tók á móti mér,“ segir Guðný en hún var sautján ára á þessum tíma. Kristján, bróð- ir hennar, varð eftir heima en flutti seinna til Bandaríkjanna og býr þar enn, í Seattle. Elsti bróðirinn, Karl, býr í Illinois. Jeff Emmons var tónlistarmaður; spilaði á öll möguleg hljóðfæri, án þess að lesa nótur. „Hann var snillingur í músík,“ segir Guðný en þegar hún kom út lék Jeff með bandi hins vin- sæla rokkara Jerrys Lee Lewis, sem einmitt bjó við hliðina á þeim í Memphis. „Við leigðum stórt hús, hálfgerða höll, sem ég hef ekki hug- mynd um hvernig við höfðum efni á, og ég eign- aðist líka bíl. Við skemmtum okkur mikið en alltaf án áfengis; það var ekkert þannig vesen.“ Hélt við Jack Ruby Jeff átti systurina Jeanette Emmons sem var á þessum tíma að slá sér upp með engum öðr- um en Elvis Presley. „Manstu eftir leikkonunni Janet Leigh?“ spyr Guðný. – Já. „Jeanette var nauðalík henni. Algjör fegurð- ardrottning sem vafði karlmönnum um fingur sér. Rosaleg stúlka sem lét sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Áður en hún kynntist Elvis langaði hana að hitta Jerry Lee Lewis. Og veistu hvernig hún fór að því? – Nei. „Hún keyrði bílinn sinn út í sundlaugina við húsið hans. „Þannig kemst hann ekki hjá því að tala við mig!“ Það var samt aldrei neitt á milli þeirra.“ Skömmu áður hélt Jeanette við annan mann í Dallas. „Það var bara svona „sugar daddy“ sem gaf henni skartgripi og alla vega tvo bíla. Hann átti næturklúbba og hét Jack Ruby.“ – Nei, hættu nú alveg. Sá sem skaut Lee Harvey Oswald? „Einn og sami maðurinn. Eins og ég segi, þá lét Jeanette sér ekkert fyrir brjósti brenna.“ Jeanette sló sér upp með Elvis um nokkurra mánaða skeið. „Við vorum oft með henni heima hjá honum í Graceland; þau sungu mikið og spiluðu, systkinin og Elvis, en þar sem ég er ekkert í tónlistinni fékk ég bara að synda í sundlauginni á meðan. Önnur systir Jeffs, Virginia, bjó úti í sveit og Elvis kunni mjög vel við sig hjá henni; sagði það minna sig á bernsk- una. Þau sungu stundum saman í tröppunum við húsið hennar og einu sinni sleit Elvis streng í gítarnum sínum. Honum fannst ekki taka því að skipta, þannig að hann gaf Virginiu bara gítarinn. Hann hékk í mörg ár uppi á vegg hjá henni en seinna seldi hún hann. Veit ekki hvað hún fékk fyrir gítarinn en það hefur verið eitthvað. Virginia dó núna í sumar.“ Skaut á björgunarhringina – Hvernig náungi var Elvis? „Hann var bara yndislegur og almennilegur. Ég talaði svo sem ekki mikið við hann, var korn- ung og flaut bara með hinum. Eitt fannst mér þó skrýtið og frekar asnalegt; þegar ég var rek- in upp úr lauginni þannig að Elvis gæti skotið úr byssu á björgunarhringi sem hent hafði verið út í. Þetta fannst honum alveg ofboðslega gaman.“ Guðný náði því líka að fara í tvö eða þrjú skipti í bíó með Elvis og föruneyti hans. Það var ekki gert á almennum sýningartímum. „Þegar Elvis fór í bíó leigði hann stóra bíóhöll til að hafa salinn út af fyrir sig. Þetta var á sunnudögum og við vorum svona fimm eða tíu saman. Ég man því miður ekki hvaða myndir við sáum,“ segir hún hlæjandi. Elvis hafði sem kunnugt er kynnst hinni barnungu Priscillu Beaulieu, þegar hann gegndi herþjónustu í Þýskalandi árið 1959 og þau verið í sambandi síðan. Priscilla kom til Bandaríkj- anna 1963 en fékk ekki að búa hjá Elvis fyrst um sinn. Þessi tvo sambönd stönguðust því aug- ljóslega á. „Einu sinni birtist Priscilla allt í einu í Graceland, þegar Jeanette var þar og varð brjáluð enda var hún búin að ákveða fyrir löngu að hún ætlaði að eiga þennan mann. Það varð til þess að Elvis bað Jeanette um að fara og upp frá því var ekkert meira á milli þeirra.“ Það varð kveikjan að símtalinu sem getið var um hér í upphafi. Elvis dó, eins og allir vita árið 1977, og Jeanette féll frá fyrir tæpum ára- tug. Áður hafði hún fengið heilablóðfall og ver- ið í hjólastól seinustu tíu ár ævi sinnar. Hún var fædd 1940. Barneignir og hjúkrun Guðný og Jeff fluttu til Texas um áramótin 1963/64. Frumburður þeirra, Connie Elísabet, fæddist 1964 og Brenda 1966. Sú síðarnefnda er mikill Íslendingur í hjarta sér og fékk nafni sínu breytt með lögformlegum hætti og heitir nú Brynja Laxfoss. Dæturnar búa báðar í Texas. Fyrst um sinn starfaði Guðný sem dagmóðir og var mest með sautján börn á heimilinu. Las fyrir þau og hjálpaði þeim með heimanámið. Að því kom að hún virti ósk móður sinnar og fór að læra hjúkrun; lauk prófi árið 1975 og vann eftir það lengst af sem hjúkrunarfræðingur á spítala í Dallas til ársins 2012, aðallega á slysadeild. Árið 1977 ákvað hún að skilja við Jeff sem tók því hreint ekki vel. „Þetta var ljótur skiln- aður. Hann hótaði okkur öllu illu, þannig að ég þorði ekki annað en að flýja með stelpurnar heim til Íslands. Vissi að hann myndi ekki leita okkar þar. Til öryggis skipti ég þeim niður á tvo staði. Ég fór fljótlega aftur út en stelp- urnar voru í heilt ár á Íslandi. Jeff leitaði lengi að mér; beið til dæmis fyrir utan alla spítalana í Dallas, og þeir eru margir, í þeirri von að ég kæmi gangandi út. Hann fann mig loksins eftir fjóra mánuði en þá hafði bráð töluvert af hon- um. Við það batnaði andrúmsloftið og Jeff gerði mér aldrei neitt. Hann sagðist hins vegar myndu bíða eftir mér alla ævi og eftir að hafa skilið við fjórar næstu konur, hann gifti sig alls átta sinnum, kom hann alltaf aftur til að kanna hvort ég myndi ekki taka við honum. Það vildi ég ekki og á endanum gafst hann upp.“ – Hann hefur þá fengið að hitta dæturnar aftur? „Já, hann fékk það og reyndist þeim ágæt- lega.“ Jeff lést árið 2018. „I’m high on life!“ Árið 1979 gekk Guðný að eiga dómara í Dallas en það hjónaband stóð stutt. „Ég áttaði mig ekki á því fyrr en ég var búin að giftast honum að maðurinn var alkóhólisti, þannig að það hjóna- band rann fljótt út í sandinn. Sjálf drakk ég ekki áfengi og notaði alls ekki dóp. Mér var reglulega boðið kókaín, sem sagt var það besta í heimi, en hafnaði því alltaf. „Hvernig verður þú þá svona hátt uppi?“ var ég spurð á móti. Ég átti ekki nema eitt svar við því: „I’m high on life!““ Hún hlær. Árið 1982 flutti Guðný heim til Íslands og fór að vinna, lengst á slysadeild Borgarspít- alans en einnig á Landakoti. „Það var ynd- islegur tími en ég var heima í tvö ár. Ætlaði reyndar ekki að vinna við hjúkrun en það þró- aðist þannig. Ég var ein á þessum tíma og var alltaf að skemmta mér og ferðast um heiminn. Gerði bara það sem mig langaði að gera og hafði nægan tíma enda þótt ég ynni langar vaktir, því eins og þú manst þá þurfti ég bara að sofa í tvo til þrjá tíma á sólarhring. Það breyttist ekki fyrr en um sextugt. Núna sef ég alveg sjö tíma.“ Guðný hélt aftur vestur um haf og var lengi ein, eða þangað til hún kynntist Ivan Downs. Þau gengu í heilagt hjónaband árið 2012. „Ivan er yndislegur maður. Fæddur í Ava en ólst upp í Washingon-ríki, þar sem faðir hans var bóndi. Sjálfur var Ivan skóari í gamla daga.“ – Skósmiður? „Nei, skógari,“ segir Guðný hlæjandi og nú heyri ég hljóða g-ið. Sumsé skógarhöggs- maður. Skóflan eins og baðkar „Við erum bæði sest í helgan stein en auk þess að sjá um kindurnar okkar hérna á þessum fimmtán ekrum sem við eigum þá vinnur Ivan svolítið við tré og mokar mold með risastórri gröfu sem hann keypti sér. Skóflan er eins stór og baðkar. Honum finnst agalega gaman að leika sér á gröfunni. Þú veist að við erum að tala um þig, elskan,“ segir hún skyndilega. Ég heyri Ivan jánka því á bak við. „Hann er hérna í tölvunni við hliðina á mér en skilur ekki ís- lensku. Sperrir þó eyrun þegar ég segi Ivan eða Keisarinn. Hann þekkir það gælunafn sem vinkona mín á Íslandi gaf honum.“ Enn hlær hún. Sjálf fórnaði Guðný sínu gamla gælunafni, Minný, þegar hún flutti vestur, fannst það ekki passa þar. Bandaríkjamenn ráða ekkert við nafnið Guðný, þannig að þeir fá að nota Gwyn. Íslendingar kalla hana á hinn bóginn áfram Guðnýju eða Minný eða hvort tveggja. Talandi um hið ástkæra ylhýra þá er ekki á Guðnýju að heyra að hún hafi búið í meira en hálfa öld í Bandaríkjunum. Margir Íslendingar sem þangað flytjast þróa snemma með sér þykkan hreim en það er engu líkara en að Guðný sé bara á Hólmavík eða Hvammstanga. „Þakka þér kærlega fyrir það,“ segir hún þeg- ar ég hef orð á þessu. „Sumt fólk er bara með þannig heila að það á auðvelt með að læra og varðveita tungumál. Ætli ég sé ekki bara ein af þeim. Mest talaði ég sjö tungumál og hafði gott vald á þeim flestum.“ Þetta er bersýnilega í móðurmjólkinni því dætur hennar tala báðar reiprennandi ís- lensku, eins dótturdóttirin, Amanda Laxfoss, dóttir Brynju, en hún heyrir til annarri kyn- slóð fæddri í Bandaríkjunum. Guðný meðan hún var í hjúkrunarnáminu í Texas snemma á áttunda áratugnum. Guðný Laxfoss í Smokey-fjöllunum í Norður-Karólínu. AP ’Þetta var ljótur skilnaður.Hann hótaði okkur öllu illu,þannig að ég þorði ekki annað enað flýja með stelpurnar heim til Íslands. Vissi að hann myndi ekki leita okkar þar. Til öryggis skipti ég þeim niður á tvo staði. Elvis Presley við upphaf ferils síns árið 1956. Guðný kynntist honum ár- ið 1963 og segir hann hafa verið hinn almennilegasta.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.