Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2020, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2020, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8.11. 2020 08.00 Strumparnir 08.20 Blíða og Blær 08.45 Greppibarnið 09.10 Mæja býfluga 09.20 Adda klóka 09.45 Zigby 09.55 Mia og ég 10.20 Lína langsokkur 10.40 Latibær 11.05 Lukku láki 11.30 Ævintýri Tinna 12.00 Nágrannar 12.20 Nágrannar 12.40 Nágrannar 13.05 Nágrannar 13.25 Nágrannar 13.50 Impractical Jokers 14.10 Supernanny 14.55 Kviss 15.40 Your Home Made Per- fect 16.40 60 Minutes 17.40 Víglínan 18.26 Veður 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.40 Sportpakkinn 18.50 Ísland í dag 19.05 Adela 19.25 Who Wants to Be a Millionaire 20.10 Eurogarðurinn 20.45 Björnstad 21.40 Ummerki 22.05 The Sister 22.55 The Third Day 23.55 Shameless 00.50 Shameless ÚTVARP OG SJÓNVARP Sjónvarp Símans RÚV Rás 1 92,4  93,5 Omega N4 Stöð 2 Hringbraut 20.00 Sögur frá Grænlandi – þáttur 4 20.30 Lífsviljinn 21.00 Tónlist á N4 Endurt. allan sólarhr. 16.00 Trúarlíf 17.00 Times Square Church 18.00 Tónlist 18.30 Ísrael í dag 19.30 Jesús Kristur er svarið 20.00 Blönduð dagskrá 21.00 Blönduð dagskrá 19.00 Matur og heimili 19.30 Þjóðleikhúsið í 70 ár 20.00 Mannamál (e) 20.30 Suðurnesja-magasín Víkurfrétta (e) 21.00 Eldhugar: Sería 2 21.30 Fjallaskálar Íslands 13.15 Dr. Phil 14.00 Dr. Phil 14.45 Superstore 15.10 90210 16.30 Family Guy 16.50 The King of Queens 17.10 Everybody Loves Ray- mond 17.35 Kevin (Probably) Saves The World 18.20 This Is Us 19.15 Hver ertu? 20.00 The Block 21.20 The Comey Rule 22.15 Cobra 23.05 Love Island 23.55 The Paperboy 06.55 Bæn og orð dagsins. 07.00 Fréttir. 07.03 Hringsól. 08.00 Morgunfréttir. 08.05 Á tónsviðinu. 09.00 Fréttir. 09.03 Svona er þetta. 10.00 Fréttir. 10.15 Bók vikunnar. 11.00 Guðsþjónusta í Sand- gerðiskirkju. 12.00 Hádegisútvarp. 12.20 Hádegisfréttir. 13.00 Sögur af landi. 14.00 Víðsjá. 15.00 Glans. 16.00 Síðdegisfréttir. 16.05 Úr tónlistarlífinu: Pí- anótríó og Umbreyt- ingar Hafliða. 17.25 Orð af orði. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Það sem breyt- ingaskeiðið kenndi mér. 18.50 Veðurfregnir. 18.53 Dánarfregnir. 19.00 Óskastundin. 19.40 Tveir bókmenntamenn. 20.35 Gestaboð. 21.30 Fólk og fræði. 22.00 Fréttir. 22.10 Meistaraverk Beetho- vens. 23.10 Frjálsar hendur. 24.00 Fréttir. 07.15 KrakkaRÚV 07.16 Tulipop 07.19 Kalli og Lóa 07.30 Klingjur 07.41 Lalli 07.48 Friðþjófur forvitni 08.10 Nellý og Nóra 08.17 Robbi og Skrímsli 08.39 Hæ Sámur 08.46 Unnar og vinur 09.09 Flugskólinn 09.31 Múmínálfarnir 09.53 Millý spyr 10.00 Þvegill og skrúbbur 10.05 Geimfarar – Erfiðasta starf í alheiminum 11.00 Silfrið 12.10 Edda – engum lík 12.45 Norskir tónar: Håkan Kornstad og KORK 13.45 Ísþjóðin með Ragnhildi Steinunni 14.10 Trump-sýningin 15.00 Mamma mín 15.15 Attenborough: Furðudýr í náttúrunni 15.40 Bækur og staðir 15.50 Poirot – Klukkurnar 17.20 Menningin – samantekt 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 KrakkaRÚV 18.01 Stundin okkar 18.25 Lífsins lystisemdir 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir á sunnudegi 19.40 Veður 19.50 Landinn 20.25 Ráðherrann 21.15 Snilligáfa Einsteins 22.10 Evrópskir bíódagar: Tvöfalt líf Veróniku 22.15 La double vie de Véroni- que 23.50 Silfrið 10 til 14 100% helgi á K100 Stefán Valmundar rifj- ar upp það besta úr dagskrá K100 frá liðinni viku, spilar góða tónlist og spjallar við hlustendur. 14 til 18 Algjört skronster Partíþáttur þjóðarinnar í umsjá Ásgeirs Páls. Hann dregur fram DJ græjurnar klukkan 17 og býður hlustendum upp á klukkutíma partí-mix. 18 til 22 100% helgi á K100 Besta tónlistin á laug- ardagskvöldi. Svali Kaldalóns sólar sig í gamla bænum á Tener- ife þessa dagana en þangað er hann aftur flutt- ur eftir stutta dvöl hér á landi. Í viðtali við morgunþáttinn Ísland vaknar á K100 sagði hann að búið væri að skipta Spáni upp í ákveðin sótt- varnahéruð eða svæði. Kanaríeyjar eru á allt öðrum stað varðandi kórónuveirusmit en meginlandið og staðan er allt önnur í Valencia en Barcelona. Smit eru á hraðri niðurleið á Spáni, að sögn Svala, sem nýtur sólarinnar og lífsins á Tenerife. Skemmtilegt viðtal við Svala má finna á K100.is. Sumar og sól á Tene Hlauparinn Letesenbet Gidey frá Eþíópíu er meðal þeirra kvenna, sem tilnefndar voru til að hljóta við- urkenninguna íþróttamaður ársins í hópi kvenna. Gidey sló heimsmetið í 5.000 metra hlaupi með glæsilegum hætti á sögulegu móti í Valencia í október. Þar sló Joshua Cheptegei frá Úganda heimsmetið í 10.000 metrum og er hann tilnefndur til að hljóta viðurkenninguna í flokki karla. Bæði heimsmetin voru glæsileg. Gidey, sem er 22 ára, bætti met landa síns Tirunesh Tibaba frá 2008 um heilar fjórar sekúndur og hljóp 5.000 metrana á 14:06.62 mínútum. Cheptegei bætti met Kenenisa Be- kele frá 2005 um sex sekúndur og hljóp á 26:11.00 mínútum. Þessi árangur á mótinu var engin tilviljun. Hlaupararnir tóku nýja tækni í þjónustu sína og er talað um að búast megi við mörgum metum á næstunni líkt og þegar heilfatnaður var kynntur til sögunnar í sundi og met féllu hver um önnur þver þar til hann var bannaður. Nýir skór og ljósasýning Cheptegei og Gidey voru í gadda- skóm frá Nike sem nefnast ZoomX Dragonfly. Skórinn er laufléttur og er sagður veita þá tilfinningu að hann gefi kraft í hverju skrefi. Sumir halda fram að skórnir séu tæknileg hliðstæða við lyfjanotkun til að bæta frammistöðu, en aðrir að um sé að ræða byltingarkenndar tækni- framfarir. Gaddarnir undir skónum eru hins vegar samþykktir. Auk þess að vera í þessum undras- kóm var ljósatækni, sem nefnist Wavelight, notuð sem nokkurs konar taktmælir fyrir hlauparana. Gefa ljósin til kynna hversu hratt þarf að hlaupa til að ná tilteknum tíma, í þessu tilfelli til að slá heimsmet. „Það er líklegt að þetta sé komið til frambúðar þegar á að slá met,“ sagði Geoff Burns, sem rannsakar aflfræði líkamans og frammistöðu íþrótta- manna við Michigan-háskóla, við AFP eftir mótið í Valencia um Wave- length. „Líkt og með skóna er ég á báðum áttum, annars vegar er þetta meiri háttar fyrir stuðningsmenn þar sem kapphlaupið við klukkuna verður nánast áþreifanlegt og dregur áhorf- andann inn í þá baráttu. Hins vegar léttir hún þann sálræna þrýsting á hlauparann að halda uppi hraðanum sem er ein af hinum stórfenglegu og fallegu áskorunum hlaupanna.“ Aðeins í kappi við tímann Í Valencia voru engir áhorfendur og hlaupararnir í aðeins í kappi við tím- ann. Viðburð sem þennan má í raun rekja til þess að Ólympíuleikunum, sem halda átti í sumar, var frestað. Cheptegei sagði í viðtali við lets- run.com að tæknilegar framfarir væru hluti af hlaupunum og það væri undir íþróttamönnum hvers tíma komið að færa sér þær í nyt. „Nú er árið 2020, við erum ekki á níunda eða tíunda eða áttunda áratugnum.“ Sebastian Coe, forseti Alþjóða- frjálsíþróttasambandsins, sem á sín- um tíma vann tvisvar gull á Ólympíu- leikum í 1.500 metrum og setti 12 heimsmet á ferlinum kvaðst ekki gera athugasemdir við ljósatæknina. Menn hefðu áratugum saman notað sínar aðferðir til að halda uppi hrað- anum, sagði hann, og tiltók sér- staklega að það hefði verið gert þegar Roger Bannister hljóp eina mílu fyrst undir fjórum mínútum árið 1954. Tilkynnt verður um íþróttamenn ársins í frjálsum íþróttum 5. desem- ber og verður Gidey að teljast sig- urstrangleg, en Cheptegei á í harðri keppni við sænska stangarstökkv- arann Armand Duplantis, sem sló heimsmet Úkraínumannsins Sergeys Bubka frá 1994 þegar hann stökk 6,15 metra. Gidey og Cheptegei fagna eftir að hafa sett glæsileg heimsmet, hún í 5.000 og hann í 10.000 metra hlaupi. AFP ÍÞRÓTTAMENN ÁRSINS TILNEFNDIR Ný tækni, ný met Letesenbet Gidey á fullri ferð í átt að nýju heimsmeti, 14:11.05 mínútum, í 5.000 metra hlaupi á móti í Valencia á Spáni 7. október. AFP–– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR um auglýsingapláss: Berglind Bergmann Sími: 569 1246 berglindb@mbl.is BÍLA-SÉRBLAÐ BÍLA fylgir Morgunblaðinu þriðjudaginn 17. nóvember 2020BLAÐ

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.