Morgunblaðið - Sunnudagur - 08.11.2020, Blaðsíða 32
SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2020
Suðurlandsbraut 24
108 Reykjavík
Sími 554 6969
lur@lur.is • lur.is
LÁTTU ÞÉR
LÍÐA VEL
MADE INDENMARK
Lama rúmin eru vönduð, falleg og þekkt
fyrir að veita heilbrigðan og góðan svefn.
Þau hafa verið framleidd í Danmörku síðan 1939.
Hægt er að fá þau með eða án stillanlegum botni. Í
boði eru þrír litir á áklæði og margar tegundir fóta
og rúmgafla.
Lama Premium rúmin eru með sérstakan mjóbaks-
stuðning og meiri dýpt fyrir axlir. Ef þú vilt að öxlin
detti meira ofan í dýnuna er Premium línan fyrir þig.
Íslenska óperan fagnar fertugsafmæli sínu á þessu ári og af því
tilefni hefja nýir örþættir göngu sína í Ríkissjónvarpinu á mið-
vikudaginn kemur. Þeir kallast Óperuminning og verða á dag-
skrá á eftir Kiljunni á miðvikudögum og Landanum á sunnudög-
um næstu vikurnar, alls sautján þættir.
Í þáttunum rifja söngelskir Íslendingar upp kærar minningar
úr Íslensku óperunni og ríður tenórsöngvarinn Elmar Gilberts-
son á vaðið á miðvikudaginn kemur og á sunnudaginn eftir viku
er röðin komin að Kristjönu Stefánsdóttur djasssöngkonu.
Þættirnir eru samstarfsverkefni RÚV og Íslensku óperunnar.
Íslenska óperan var formlega stofnuð 3. október árið 1980 að
frumkvæði Garðars Cortes og var markmiðið að gefa söngv-
urum tækifæri til þess að vinna að list sinni og að gera óperu-
listformið aðgengilegt fyrir íslenska áheyrendur. Fyrstu þrjá
áratugina var Óperan til húsa í Gamla bíói en frá 2011 í Hörpu.
Diddú í essinu sínu í Töfra-
flautunni í Hörpu 2011.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Minningar úr Óperunni
Elmar Gilbertsson tenórsöngvari ríður á vaðið
með óperuminningu á miðvikudaginn kemur.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Nýir örþættir, Óperuminning, hefja
göngu sína á RÚV á miðvikudaginn.
Líf og fjör var í kvikmyndahúsum
landsins fyrir réttum sextíu ár-
um, í byrjun nóvember 1960.
Austurbæjarbíó sýndi „Elsk-
endur í París“, sem var
„skemmtileg og áhrifamikil ný
þýzk kvikmynd í litum byggð á
hinni þekktu Parísar-ástarsögu
eftir Gabor von Vaszary“. Fyrir
þá sem ekki skildu þýskuna var
boðið upp á danskan texta. Í
aðalhlutverkum voru Romy
Schneider, „ein vinsælasta leik-
kona Þjóðverja um þessar
mundir“, og Horst Buchholz,
„James Dean Þýzkalands“.
Trípolí-bíó bauð upp á Um-
hverfis jörðina á 80 dögum sem
var „heimsfræg, ný, amerísk
stórmynd tekin í litum og Cin-
ema Scope af Mike Todd. Gerð
eftir hinni heimsfrægu sögu Jules
Verne með sama nafni“. Með
aðalhlutverkið fór enginn annar
en David Niven „ásamt 50 af
frægustu kvikmyndastjörnum
heims“. Vel í lagt þar.
Stjörnubíó var með The
Strange One með Ben Gazzara
sem að sjálfsögðu útlagðist
„Hinn miskunnarlausi“.
Gary Cooper var með aðsetur
í Gamla bíói en stórmyndin
Friendly Persuation hét „Elska
skaltu náungann“ upp á íslensku.
Bæjarbíó var léttara á bár-
unni, sýndi „Liana – hvíta amb-
áttin“ sem var „ævintýramynd í
eðlilegum litum“. Framhald af
„Liana nakta stúlkan“.
GAMLA FRÉTTIN
Elskendur
í París
Romy Schneider og
Horst Buchholz í
Elskendum í París.
ÞRÍFARAR VIKUNNAR
Anthony Fauci
sóttvarnalæknir
Þórólfur Guðnason
sóttvarnalæknir
Guðmundur Þ. Guðmundsson
landsliðsþj́álfari í handbolta