Bæjarins besta


Bæjarins besta - 07.06.1990, Page 12

Bæjarins besta - 07.06.1990, Page 12
12 BÆJARINS BESTA Lóðabalarnir hengu yfir hausunum á okkur Er við vorum allir komnir um borð í björgunarbátinn byrjaði mikið basl að komast frá skipinu. Allt þvældist fyr- ir okkur, radar, stög og mastur sem endaði með því að báturinn rifnaði að ofan. Reyndum við nú allt sem við gátum til að komast fram að hinum björgunarbátnum sem var bundinn ofan á lúk- arskappann. Það ætlaði aldrei að ganga en loksins án þess að gera sér grein fyrir hvað gerðist komumst við fram með skipinu að hinum bátnum. Það var ekki glæsi- legt að vera fastur við hlið- ina á skipinu með lóða- balana hangandi yfir Glaðbeittur ungur sjómaður á síld á Norðfirði. þeir bara upp og vita ekkert af fyrr en að þeir eru orðnir ofkældir og hjartað stoppar. Maður fann í raun og veru ekki hvað maður var orðinn kaldur fyrr en að maður var kominn um borð í varðskip- ið. Ég var alltaf staðráðinn í því að við myndum bjargast og trúði aldrei öðru. Ég stakk upp á því við félaga mína að við færum með Fað- irvorið og það hressti mann- skapinn mikið. Fyrir mína parta kom áfallið ekki fyrr en heim var komið. Þá var maður alveg búinn. Við hefðum ekki lifað marga klukkutíma í viðbót um borð í björgunarbátnum því að menn voru orðnir svo dofnir. Það er erfitt að halda á sér hita þegar maður situr í sjó í svona langan tíma. Það var það versta. Ætluðum allir að hætta á sjó Ég get sagt þér það að ég ætlaði að hætta á sjó eftir þetta. Og ég held að við höf- Jón á unga aldri ásamt móður sinni. stöðugu sambandi við Hálf- dán skipstjóra á Sólrúnu. Það var mikið lán að Hálf- dán skyldi heyra í okkur því að hann er glöggur maður. Hann fann okkur síðan um kl. 18.30. Fjórir tímar í gúmmí- björgunarbát Vistin um borð í gúmmí- björgunarbátnum var ekki gíæsileg. Og ég er alveg handviss á því, alveg sama hvað snillingur heldur öðru fram í dag, að við hefðum aldrei rétt bátinn af við þessi skilyrði. Þarna var 10-12 stiga frost, hörkugaddur. Menn eru ekki tilbúnir í slíkt. Menn voru blautir því báturinn var hálf fullur af sjó. Við höfðum varla undan að ausa bátinn. Við heyrðum alltaf þegar brot var að ríða yfir. Manni fannst maður heyra í brotinu Svanur ÍS 214. Áfallið mest eftirá En hvað hugsa menn um borð í gúmmíbjörgunarbáti í vitlausu veðri sem vita ekki hvort þeir muni hafa hlutina af? „Menn hugsa náttúrulega geysilega margt. Eftir að hlutirnir fóru að róast og við komnir um borð í gúmmí- björgunarbátinn fórum við að hugsa um möguleikanna sem við höfðum. Þeir voru vissulega ekki margir. Ég var aftur á móti alltaf bjart- sýnn. Við töluðum um ýmsa hluti. Auðvitað voru sumir svartsýnir en ég held að á- fallið hafi verið einna mest fyrir ungu strákanna. Þeir voru aðeins 15-16 ára. Það þurfti oft að ýta við þeim til þess að halda þeim vakandi því menn dofna voðalega fljótt upp í svona kulda. Ef menn eru ekki á stöðugri hreyfingu dofna endurtek neyðarkallið þrisvar sinnum, renni síðan stönginni niður og fer að telja mannskapinn. Við taln- inguna hjá mér tel ég alltaf fimm manns, þrír voru komnir um borð í björgunar- bátinn og ég og Grétar vor- um uppi á stýrishúsinu. Við vorum sex á skipinu þannig að það vantaði einn en ég mundi ekki hver það var. Ég bið því Grétar að kalla niður því að það sé einn maður eft- ir. Hann fer síðan niður og kallar og heyrir þá öskrin í Kjartani bróður mínum. Hann hafði fengið að sofa í kojunni minni vegna þess að það svaf enginn frammí í svona veðri. Kjartan vakn- aði við brotið en þá er allt í myrkri. Hann vissi ekki einu sinni að skipið snéri öfugt og ætlaði því aldrei að finna uppganginn. Hann heyrir hávaðann í okkur en sér ekk- ert og veit ekkert. Hann var alveg kolruglaður á því að finna dyrnar sem síðan voru beint fyrir ofan hann. Hann gat síðan klórað sig áfram, upp stigann og út. hausunum á okkur. Áður en okkur skaut frá Svaninum náði Grétar að skera gúmmíbátinn sem var frammá lausan, og blésum við hann upp er okkur tókst að komast frá skipinu. í lát- unum við að komast á milli bátanna brotnaði ioftnets- stöngin á talstöðinni með þeim afleiðingum að það gekk erfiðlega að ná í okkur nema á stuttum vegalengd- um. Mjög fljótlega eftir að við komum um borð í seinni björgunarbátinn heyrði Sól- rún frá Bolungarvík í okkur og ég talaði við Hálfdán skipstjóra. Hann tjáði mér að varðskip sem statt var undir Grænuhlíð hefði heyrt neyðarkallið og væri á fullri ferð út. Varðskipsmenn heyrðu aftur á móti ekki hvaða skip var að senda neyðarkall. Varðskipsmenn skipulögðu síðan leit af okk- ur og stjórnuðu aðgerðum. Við vorum aftur á móti í Jón lengst til vinstri ásamt þremur félögum sínum í Súðavík. Þeir fórust allir. tíu mínútum áður en það skall á. Maður heyrði þessi ógurlegu sog þegar brotin voru að koma. Það var ó- hugnarlegt. Þegar brotin voru að nálgast pössuðum við okkur alltaf á því að sitja eins þétt saman vindmegin eins og hægt var. Og þegar brotin skullu á bátnum, skullum við allir saman í miðjunni. Maður fann að báturinn flaug báru af báru. Ég man að þegar ég talaði við Hálfdán í fyrsta skipti að ég lét hann vita að við vær- um allir um borð í bátnum þannig að hann gæti látið vita í land svo að aðstand- endur hefðu einhverja von með okkur. Og það var mikil gleði um borð þegar við heyrðum Hálfdán segja í tal- stöðina „Við erum búnir að finna ykkur. Þið eruð við hliðina á okkur. Verið bara rólegir" Þeirri stund gleymi ég seint.

x

Bæjarins besta

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.