Morgunblaðið - 02.12.2020, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2020
Fæst í verslunum okkar
á Selfossi og í Ármúla 42
KINDAsögur
2. BINDI
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
í sérstaka eldvarða poka og komið
fyrir í farþegasætum vélarinnar á
útleiðinni. Þannig fæst mjög góð
nýting á vélinni.
„Við megum fara með farþega frá
Grænlandi þótt við megum ekki
flytja farþega þangað,“ sagði Vigfús.
„Sætin sem eru í boði fram til jóla
eru næstum því uppbókuð.“
Hann sagði að fraktflutningar inn-
anlands með flugi væru að fara á
fullt og komin jólastemning. „Fólk
flykkist hingað með pakka sem það
er að senda út á land,“ sagði Vigfús.
vor. Þegar flugið til Nuuk hófst aftur
var því ákveðið að hafa viðkomu í
Kulusuk svo hægt væri að þjóna
báðum stöðum með vöruflutninga.
Flugvélin nýtist vel
Til flugsins er notuð Bombardier
Q200-flugvél sem félagið hefur notað
til Grænlandsflugsins. Vigfús sagði
hana henta mjög vel til vöruflutn-
inga. Á henni eru stórar vörudyr og
svo er auðveldlega hægt að stækka
vörurýmið með því að fækka far-
þegasætum. Vörur eru einnig settar
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Air Iceland Connect er nú með viku-
legar áætlunarferðir til Kulusuk og
Nuuk á Grænlandi. Flogið er út með
vörur og póst en fólk til baka.
„Við fórum til Grænlands 5. nóv-
ember en eftir það lokuðu þeir á far-
þegaflug til landsins. Svo var farið
12. nóvember til að sækja farþega,“
sagði Vigfús Vigfússon, deildarstjóri
innanlands- og Grænlandsflutninga
hjá Icelandair Cargo á Reykjavíkur-
flugvelli.
Mikil þörf fyrir flutningana
Hann sagði að mikið hefði verið
spurt um fraktflutninga með flugi til
Grænlands og því verið ákveðið að
setja upp vikulega ferð, á hverjum
fimmtudegi. Fyrsta ferðin var farin í
síðustu viku og er áætlað að fljúga
vikulega til jóla. Komið er við í Kulu-
suk á austurströnd Grænlands á út-
leiðinni og svo farið þaðan til Nuuk á
vesturströndinni. Frá Nuuk er svo
flogið beint til Reykjavíkur.
„Þetta er mikið póstur og svo alls
konar verslunarvara sem kemur að
miklu leyti frá Danmörku. Pósturinn
kemur frá Post Nord í Danmörku og
svo mikið af frakt frá Blue Water
Shipping-flutningsmiðluninni,“
sagði Vigfús. Hann sagði að ekkert
hefði verið flogið til Kulusuk frá því í
Frakt til Grænlands
og farþegar til baka
Air Iceland Connect flýgur nú vikulega til Grænlands
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Bombardier Q200 Flugvélin hentar mjög vel til vöru- og farþegaflutninga.
Hún annast nú vikulegt flug til Grænlands og flytur vörur út og fólk heim.
Hækkun á verði búvara leiðir af
þeim áformum landbúnaðarráð-
herra að hverfa tímabundið aftur
til eldra fyrirkomulags á útboði
tollkvóta fyrir búvörur. Þetta er
skoðun Félags atvinnurekenda,
sem mótmælir þeirri ráðstöfun sem
er í undirbúningi. Fyrsta útboðið á
tollkvótum samkvæmt tollasamn-
ingi við ESB með nýrri aðferð, svo-
kölluðu jafnvægisútboði, var síðast-
liðið vor. Samkvæmt því er gjald á
hvert kíló nautakjöts í jafnvægis-
útboði 200 kr., en 331 kr. í útboði
með fyrri aðferð. Gjald á hvert kíló
af þurrkaðri og reyktri skinku með
aðferðinni sem nú er aftur tekin
upp er 200 kr. og fer úr 5 kr. eins
og gilti um skamman tíma.
Frumvarp um tollabreytingar
hefur verið lagt fram og í grein-
argerð er tilgangurinn sagður vörn
fyrir íslenskan landbúnað, sem hafi
fengið á sig högg af völdum Covid.
„Margar atvinnugreinar hafa
fengið á sig högg vegna faraldurs-
ins en eingöngu í þessu tilviki grípa
stjórnvöld til þess ráðs að leggja
stein í götu samkeppni í stað þess
að vísa fyrirtækjum á almennar að-
gerðir, styrki og lán. Það er með
miklum ólíkindum að ríkisstjórnin
beiti sér fyrir hækkun á matarverði
á sama tíma og þúsundir ganga at-
vinnulausar,“ segir Ólafur Þ.
Stephensen, framkvæmdastjóri FA,
í samtali við Morgunblaðið.
sbs@mbl.is
Hækkun er með miklum ólíkindum
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Gert er ráð fyrir að rekstrarhalli á
A-hluta Reykjavíkurborgar verði
11,3 milljarðar á næsta ári. Rekstr-
artekjurnar verði tæpir 134 milljarð-
ar og aukist um átta milljarða frá út-
komuspá í ár og gjöldin hækka um
tíu milljarða milli ára og verða rúmir
137 milljarðar. Áætlað er að rekstr-
arniðurstaða samstæðu borgarinnar
verði neikvæð um 2,7 milljarða.
Borgaryfirvöld gera ráð fyrir að
ný langtímalán samstæðu borgar-
innar á næsta ári verði upp á 51,8
milljarða og afborganir lána eru
áætlaðar 21,8 milljarðar. Langtíma-
skuldir samstæðunnar verða skv.
áætlun tæpir 304 milljarðar á næsta
ári. Hækka um 35 milljarða milli
ára.
Afleiðingar veirufaraldursins
rista djúpt í fjárhagsáætlun borg-
arinnar 2021, sem lögð var fram í
borgarstjórn í gær ásamt fimm ára
áætlun og fjárfestingarstefnu til
næstu tíu ára. Haft er eftir Degi B.
Eggertssyni borgarstjóra í kynn-
ingu að mikilvægt sé að borgin legg-
ist ekki í vörn við þessar aðstæður
heldur snúi vörn í sókn og fari í um-
fangsmiklar fjárfestingar. Heildar-
fjárfesting samstæðu borgarinnar
næstu þrjú ár nemi 175 milljörðum
króna. Samdrætti og tekjufalli verði
mætt með lántökum og borgin nýti
styrk sinn og vaxi út úr samdrætt-
inum á nokkrum árum. Borgin ætlar
að fjárfesta fyrir um 28 milljarða á
næsta ári. Vakti Dagur athygli á því
er hann mælti fyrir fjárhagsáætlun-
inni í borgarstjórn í gær, að stór-
auknar fjárfestingar borgarinnar á
næstu árum skæru sig úr í saman-
burði við fjárfestingaráform annarra
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Á yfirstandandi ári er tekjufall
borgarinnar áætlað 12,5 milljarðar
og útgjöld aukast um 2,6 milljarða
þannig að umskiptin til hins verra
nema rúmum 15 milljörðum.
Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæð-
isflokksins, benti á við umræðurnar í
borgarstjórn í gær að borgin hefði
safnað skuldum í góðærinu og það
gerði verkefnið sem nú blasti við
miklu erfiðara en annars hefði orðið.
Lýsti hann einnig áhyggjum af því
að grunnrekstur borgarinnar væri
ekki sjálfbær til framtíðar. „Ef við
keyrum allt áfram með skuldsetn-
ingu, eins og reyndin verður með
ekki bara fjárfestingar heldur líka
rekstur á þessu ári og næsta, þá á
endanum verða skuldirnar það mikl-
ar að þær verða einn aðalútgjaldalið-
urinn og við getum þá ekki sinnt
skyldum okkar sem borg,“ sagði Ey-
þór. Þegar vextirnir færu að hækka
á ný yrði gríðarlega þungt að eiga
við þessa miklu skuldasöfnun.
Veltufé frá rekstri, sem sýnir það
svigrúm sem borgarsjóður og sam-
stæðan hafa til að standa við afborg-
anir og til fjárfestinga, lækkar veru-
lega á næsta ári, sérstaklega hjá
A-hlutanum (sjá meðfylgjandi töflu).
Taka á 51,8 milljarða að láni 2021
11,3 milljarða hallarekstur hjá borginni á næsta ári Kórónukreppan setur mark á fjárhagsáætlun
Meirihluti borgarstjórnar boðar 175 milljarða fjárfestingu samstæðunnar á næstu þremur árum
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar
Veltufé frá rekstri og brúttó
fjárfestingar, % af tekjum á
breytilegu verðlagi, A-hluti
Rekstrarniðurstaða A-hluta og fi mm ára áætlun, á breytilegu verðlagi
1,4
-7,2
-11,3
-2,9
1,7
0,9
5,66,3
-1,6
-3,5
3,6
10,0
11,4
16,2
2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025-15
-10
-5
0
5
10
15
20
M
a.
kr
.
10,1%
0,4%
-3,0%
2,7%
5,0%
6,9%
9,6%
13,0%
16,2%
21,4% 22,7%
21,1%
13,1%
11,5%
2019 2020 2021 2022 2023 2024 2025
Veltufé frá rekstri, % af tekjum
Brúttó fjárfesting, % af tekjum
Rekstrarniðurstaða
Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir, EBITDA
-5%
0%
5%
10%
15%
20%
25%
Heimild: Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2021
Dagur B.
Eggertsson
Eyþór
Arnalds
Útsvarsprósentan í borginni
verður óbreytt á næsta ári en
gert er ráð fyrir að tekjustofnar
verði áfram veikir 2021 og 2022
og útsvarið nái ekki fyrri styrk
fyrr en árið 2025.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
lögðu til á borgarstjórnarfund-
inum í gær að 2,8 milljarða kr.
arðgreiðslum Orkuveitu Reykja-
víkur yrði ráðstafað til lækk-
unar útsvars, álagningarhlutfall
útsvars verði 14,07% í stað
14,52% og til lækkunar fast-
eignaskatts og fráveitugjalds
elli- og örorkulífeyrisþega.
Í fjárhagsáætlun borgarinnar
er almennt gert ráð fyrir að
gjaldskrár hækki á næsta ári í
samræmi við verðlag eða um
2,4% nema hjá Sorpu þar sem
boðaðar eru töluverðar breyt-
ingar á gjaldskrám. Álagning-
arhlutföll fasteignaskatts verða
óbreytt nema af iðnaðar-, skrif-
stofu- og verslunarhúsnæði og
mannvirkjum í ferðaþjónustu
sem lækka úr 1,65% í 1,60%.
Verja á milljarði kr. í að búa til
ný störf fyrir atvinnulausa og
stuðning og virkni fyrir þá sem
fá fjárhagsaðstoð á næsta ári.
Búist er við að notendum fjár-
hagsaðstoðar fjölgi í 1.852 eða
um 35% milli ára.
Vilja lækkun
með arði OR
ÓBREYTT ÚTSVAR 2021
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt tvo karl-
menn fyrir kynferðisbrot gegn börnum. Annar
maðurinn hlaut tveggja ára og sex mánaða dóm
auk greiðslu miskabóta til brotaþola. Hann braut
gegn stjúpbarnabarni sínu og var auk þess dæmd-
ur fyrir vörslu barnakláms.
Hinn maðurinn var dæmdur til níu mánaða
fangelsisvistar og greiðslu 800.000 króna í skaða-
bætur fyrir að hafa brotið kynferðislega á barn-
ungri frænku sinni þegar hún var sex og sjö ára gömul. Ári áður hafði mað-
urinn játað að hafa brotið kynferðislega á systur sinni frá því að hún var
níu ára og þangað til hún varð ellefu ára gömul.
Dómur Mennirnir
brutu gegn börnum.
Dæmdir fyrir kynferðisbrot gegn börnum