Morgunblaðið - 02.12.2020, Side 4

Morgunblaðið - 02.12.2020, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2020 VERIÐ VELKOMIN Í SJÓNMÆLINGU Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200 Opið: Virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14 Sóttvarnaráðstafanir haldast óbreyttar til 9. desember nk. Svan- dís Svavarsdóttir heilbrigðisráð- herra greindi frá þessu í gær en reglugerðin er í fullu samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Þar með er ljóst að áfram verður tíu manna samkomubann í gildi auk takmark- ana á skólastarfi. Í tilkynningu sem birt var á vef Stjórnarráðsins kemur fram að upphaflega hafi sóttvarna- læknir lagt upp með varfærnar til- slakanir á gildandi sóttvarnalögum. Hins vegar hafi tillögurnar verið endurskoðaðar með hliðsjón af þró- un faraldursins. Alls greindust 18 kórónuveirusmit innanlands í fyrradag. Þar af voru sjö utan sóttkvíar, eða rétt um 38%. Nú eru 689 í sóttkví og 898 í skim- unarsóttkví. Einn sjúklingur lést á Landspítala vegnu kórónuveiru og því eru alls 27 látnir úr sjúkdómnum hér á landi. Langflestir þeirra sem látist hafa í þriðju bylgju faraldurs- ins smituðust í hópsýkingu tengdri Landakoti. Óánægja með ákvörðunina Að sögn Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra var hæfilegt að halda sóttvarnaaðgerðum óbreytt- um í viku til viðbótar. Þannig sé jafn- framt hægt að endurmeta stöðuna reglulega. Spurð sagðist hún ekki finna fyrir auknum þrýstingi um af- léttingar umfram það sem áður var. „Mér finnst þó skiljanlegt að það færist meiri þungi í vangaveltur og efasemdir eftir því sem faraldrinum vindur fram,“ sagði Svandís. Mikil reiði er innan íþróttahreyf- ingarinnar með ákvörðunina í gær. Benedikt Guðmundsson, landsliðs- þjálfari kvenna í körfuknattleik, sagði m.a. við mbl.is að enginn skiln- ingur væri á íþróttum innan raða Vinstri-grænna. Halda aðgerðum áfram til streitu  Mikil óánægja meðal íþróttafólks Kórónu- veirusmit Nýgengi innanlands: 41,5 ný smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa 199 eru með virkt smit og í einangrun 689 einstaklingar eru í sóttkví 40 eru á sjúkrahúsi, þar af 2 á gjörgæslu Nýgengi, landamæri: 12,8 18 ný inn an lands smit greindust sl. sólarhring 27 einstaklingar eru látnir H ei m ild : c ov id .is Einn lést sl. sólarhring Fulltrúar stúdenta við Háskóla Íslands lögðu blómsveig að leiði Jóns Sigurðssonar forseta í gær, í tilefni af full- veldisdeginum 1. desember. Með þeim var Jón Atli Benediktsson, rektor skólans. Sara Þöll Finnboga- dóttir, lánasjóðsfulltrúi Stúdentaráðs, og Isabel Alej- andra Diaz, forseti Stúdentaráðs, leggja hér blómin að leiði Jóns en á bak við þær stendur Hólmfríður María Bjarnadóttir, ritstjóri Stúdentablaðsins. Stúdentaráð fagnar 100 ára afmæli sínu nú um stundir og af því til- efni fer fram málþing á föstudaginn, að viðstöddum forseta Íslands, forsætisráðherra og menntamála- ráðherra. Verður málþinginu streymt á netinu og þar meðal annars sýndur bútur úr nýrri heimildarmynd um 100 ára baráttusögu stúdenta við HÍ. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Stúdentar heiðruðu Jón forseta Fullveldisdagurinn 1. desember víða haldinn hátíðlegur Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Verðskrá Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs hækkar um 25-33% nú um mánaðamótin. Fráfarandi fram- kvæmdastjóri félagsins segir að búið sé að ráða þann fjölda starfsmanna sem þörf er á og verði órofin þjón- usta ferjunnar. Raunar sigldi skipið ekki í gær en það var vegna óhag- stæðs veðurs. Öllu starfsfólki Herjólfs var sagt upp störfum í haust vegna endur- skipulagningar reksturs og endur- skoðunar samninga við Vegagerðina um reksturinn. Tóku uppsagnirnar gildi 30. nóvember. Stjórn félagsins hefur að mestu lokið við gerð nýs þjónustusamnings til næstu þriggja ára. Áfram er gert ráð fyrir 6-7 ferð- um á dag. Guðbjartur Ellert Jónsson, fráfar- andi framkvæmdastjóri Herjólfs ohf., segir að búið sé að ráða þann mannskap sem þörf verði á til rekst- urs fyrirtækisins í vetur. Eru það nokkuð færri starfsmenn en voru hjá félaginu enda bendir hann á að kröf- ur um mönnun farþegaferja taki mið af fjölda farþega hverju sinni. Ekki sé útlit fyrir marga farþega í vetur en vonandi rætist úr því í vor og þá verði væntanlega ráðnir fleiri starfs- menn. Sértekjur hafa minnkað Stjórn félagsins hefur unnið að gerð rekstraráætlunar fyrir næstu þrjú ár og tilkynnti hækkun verð- skrár í tengslum við þá vinnu og samninga við ríkið. Hækkunin er 25% á farmiða fyrir farþega en 30- 33% fyrir bíla. Guðbjartur segir að fyrirtækið fái fast framlag frá ríkinu en sértekjur þurfi að standa undir meirihluta kostnaðar. Þegar sértekjurnar minnki jafn mikið og raun ber vitni vegna kórónuveirufaraldursins þurfi að grípa til aðgerða til að halda þessu samgöngukerfi gangandi. Stjórnin hafi því þurft að taka erfiðar ákvarð- anir til að spyrna við fótum í rekstr- inum. Gjaldskráin hækkar um 25-33%  Búið að ráða áhöfn Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs og reksturinn verður órofinn  Ekki eru allir endurráðnir  Vonast til að farþegum fjölgi með vorinu  Gjaldskráin hækkuð til að mæta tekjufalli Morgunblaðið/Óskar Pétur Ferja Herjólfur sigldi ekki í gær vegna þess að hvorki var fært í Landeyja- höfn né til Þorlákshafnar. Reiknað var með siglingu til Þorlákshafnar í dag. Ný gjaldskrá » Almennt fargjald hækkar úr 1.600 krónum í 2.000 kr., eða um 25%. Fargjald unglinga, ellilífeyrisþega, öryrkja, náms- manna og fólks sem á lög- heimili í Vestmannaeyjum hækkar úr 800 kr. í 1.000 kr. » Fargjöld fyrir minni bíla hækka úr 2.300 kr. í 3.000 eða um 30% en stærri bíla úr 3.000 í 4.000 sem er hækkun um þriðjung. Fólk sem búsett er í Eyjum fær 50% afslátt. Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Þegar fyrsta bylgja kórónuveirunnar gekk yfir í mars og apríl sl. virðist hún hafa haft neikvæð áhrif á bæði hreyf- ingu og mataræði fullorðinna Íslend- inga. Þetta má lesa út úr reglulegum mælingum landlæknisembættisins á heilsuhegðun og líðan Íslendinga, sem greint er frá í Talnabrunni land- læknis. „Niðurstöðurnar benda til að fyrsta bylgja Covid-19, í mars-apríl 2020, hafi almennt haft merkjanleg, neikvæð áhrif á hreyfingu fullorðinna. Á heildina litið eru vísbendingar um að hlutfallslega fleiri fullorðnir hafi stundað litla eða enga miðlungserfiða og erfiða hreyfingu í mars-apríl árið 2020 heldur en á sama tíma árið 2019,“ segir þar. Í ljós kemur að í mars og apríl fjölgaði þeim hlutfallslega frá árinu á undan sem sögðust hreyfa sig lítið sem ekkert. Tæplega fjórðungur full- orðinna stundaði miðlungserfiða og erfiða hreyfingu í eina klukkustund eða minna á viku í fyrstu bylgju far- aldursins samanborið við 20% á síð- asta ári. Þá eru vísbendingar um að þeim hafi fjölgað í öllum aldurshópum sem stunduðu nánast enga miðlungs- erfiða eða erfiða hreyfingu í mars og apríl. Kannanir á síðasta ári og í jan- úar-febrúar sl. sýndu að konur voru líklegri en karlar til að hjóla eða ganga í vinnu eða skóla. Þetta snerist við í mars og apríl þegar margir þurftu að vinna heima vegna samkomutak- markana. Þá fækkaði konum sem ferðuðust með þessum hætti eða úr 23% í fyrra í 13,5% en hlutfall karla sem hjóluðu eða gengu breyttist nán- ast ekkert milli ára. Könnun á mataræði Íslendinga frá janúar til ágústloka bendir til að Íslendingar hafi borðað minna af ávöxtum og berjum en á sama tíma í fyrra og dró sérstaklega úr daglegri neyslu ávaxta og berja meðal karla í fyrstu bylgju faraldursins. Hins vegar dró ekkert úr neyslu á grænmeti mið- að við neysluna í fyrra. omfr@mbl.is Hreyfðu sig minna en áður í fyrstu bylgju faraldursins  Minna borðað af ávöxtum  Munur á körlum og konum

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.