Morgunblaðið - 02.12.2020, Síða 20

Morgunblaðið - 02.12.2020, Síða 20
B jarni G. Stefánsson fædd- ist 2. desember 1950 í Reykjavík. Hann ólst upp hjá móður sinni í Reykjavík og dvaldist jafnframt löngum hjá afa sínum og ömmu vestur á Suðureyri við Súg- andafjörð. „Eins og siður var á þeim tíma fóru ungmenni að vinna við fisk- vinnslu á Suðureyri um 11 til 12 ára aldur. Þegar ég var 14 ára fór ég á sjó með Bjarna afa og Eyjólfi móð- urbróður mínum á fjögurra tonna trillu, og vann við það næstu fimm sumur.“ Bjarni gekk í fyrstu í Miðbæjarskól- ann í Reykjavík en síðustu tvö árin var hann í Barnaskólanum á Suðureyri. Síðan lá leiðin í Gagnfræðaskólann við Lindargötu þar sem hann lauk námi með 30 tonna skipstjórnarréttindi úr sjóvinnudeild. Bjarni varð stúdent úr eðlisfræðideild Menntaskólans við Hamrahlíð og loks cand.jur. úr laga- deild Háskóla Íslands árið 1983. Íþróttir hafa átt stóran þátt í lífs- hlaupi Bjarna og þá helst frjálsar íþróttir. Hann tók þátt með góðum ár- angri í frjálsum íþróttum árið 1966 á Héraðsmóti á Núpi í Dýrafirði fyrir íþróttafélagið Stefni á Súgandafirði. Síðar gekk hann í KR og keppti lengi með þeim. Bjarni var landsliðsmaður í frjálsum íþróttum á árunum 1969- 1976 og setti sjö Íslandsmet í spretthlaupum. Bjarni keppti á Ól- ympíuleikunum í München 1972 í 100 og 400 m hlaupi og komst þar í milli- riðla í 400 m hlaupi og setti tvö Ís- landsmet. Leikarnir komust á blöð sögunnar fyrir ódæðisverk arabíska hryðjuverkahópsins Svarta sept- ember sem ruddust inn í íbúð Ísr- aelsmanna og drápu tvo menn og níu voru teknir í gíslingu. Í skotbardaga á flugvellinum náðust þrír hryðjuverka- mannanna, en þeir náðu að sprengja upp þyrluna og allir níu gíslarnir fór- ust. Eins og gefur að skilja var fólk harmi slegið á leikunum sem áttu að vera óður til gleðinnar, en snerust þarna upp í andhverfu sína. Fjórum árum síðar fór Bjarni á Ólympíu- leikana í Montreal og keppti í 100 og 400 m hlaupi en náði ekki jafn góðum árangri og í München. Eftir stúdentsprófið gekk Bjarni til liðs við lögregluna í Reykjavík árið 1973 og síðar í rannsóknarlögregluna í Reykjavík, sem heyrði þá undir Sakadóm Reykjavíkur, áður en hann hóf nám í lögfræði og vann áfram með náminu. Strax eftir útskrift 1983 flutti Bjarni með fjölskyldu sinni til Eskifjarðar og vann sem löglærður fulltrúi hjá sýslumanni í þrjú ár og fékk héraðsdómsréttindi. Síðar varð hann bæjarstjóri Eskifjarðar í eitt kjörtímabil, frá 1986. Jólin á Eskifirði 1986 urðu ansi eftirminnileg. Breska lýsisflutningaskipið Syneta, með tólf manna áhöfn, fórst við eyna Skrúð í mynni Fáskrúðsfjarðar. Þá var eng- inn sýslumaður staddur á Eskifirði og Bjarni settur sýslumaður og lög- reglustjóri í fjarveru hans. „Þetta tók mikið á fjölskylduna og hafði mikil áhrif á byggðarlagið.“ Eftir kjör- tímabilið, árið 1990, flutti fjölskyldan til Reykjavíkur í tvö ár þar sem Bjarni starfaði sem héraðsdóms- lögmaður á Málflutningsskrifstofu Guðmundar Péturssonar, föður- bróður Bjarna, og fleiri. Síðan var Bjarni skipaður sýslumaður í Nes- kaupstað 1992. Þar reyndi á þegar björgunarskipið Goðinn strandaði í Vöðluvík 10. janúar 1994, þegar var verið að reyna að losa togbátinn Bergvík VE-505. Landhelgisgæslan var kölluð út en varð frá að snúa vegna veðurs, einnig var leitað til varnarliðsins sem sendi tvær þyrlur og loks tókst að bjarga sex skipverj- um af Goða. Annar ameríski flug- stjórinn varð góður vinur Bjarna og Bjarni G. Stefánsson sýslumaður á Norðurlandi vestra – 70 ára Fjölskyldan Bjarni, Ása og Hrefna við útskrift Ásu úr Berklee College of Music í Boston árið 2010. Sprettharði sýslumaðurinn Íþróttirnar „Myndin er líklega frá 1971 og er af mér og Jóhannesi heitnum Sæmundssyni, þjálfara mínum, og syni hans; Guðna Th. Jóhannessyni, nú forseta Íslands, sem er í beisli eins og tíðkaðist á þessum tíma.“ Morgunblaðið/Ómar Forsetaheimsókn Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Dorrit Moussaieff, Bjarni Stefánsson sýslumaður og kona hans, Hrefna Teitsdóttir, í heimsókn forseta til Húnaþings vestra 14.-16. október árið 2002. 20 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2020 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Mikilvægar ákvarðanir bíða þín í starfi. Verkefni sem krefjast einbeitingar og úthalds liggja vel fyrir þér. 20. apríl - 20. maí  Naut Láttu ekki illa, þótt þér finnist dag- skráin í dag mótuð af öðrum og lítið tillit tekið til þinna þarfa. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú ert nógu sjálfstæður til þess að láta ekki aðra vaða ofan í þig á skít- ugum skónum. Einhver sérstakur verður á vegi þínum. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Taktu ekki að þér fleiri verkefni, fyrr en þú hefur lokið við þau sem þú fæst við. Láttu aðra um að leysa sín mál og sinnt þú þínum eigin. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú hefur í mörg horn að líta og nauman tíma, svo þú skalt temja þér að fara vel með þá stund sem þér er til starfa gefin. Bjartar hugsanir hjálpa þér við að halda sól í sinni. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það hefur ekkert upp á sig að stinga höfðinu í sandinn, vandamálin hverfa ekkert við það. Líttu á þetta sem tækifæri til að ganga frá lausum endum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú mátt í engu slaka á viljirðu búa við áframhaldandi velgengni. Sýndu hvers þú ert megnugur og þá muntu öðl- ast virðingu samstarfsmanna þinna. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú stendur frammi fyrir kröfum um aukna ábyrgð en ert eitthvað tvístígandi. Láttu slag standa. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það veldur miklum um- skiptum í lífi þínu að þér tekst að finna lausn á persónulegu vandamáli sem hef- ur lengi þjakað þig. 22. des. - 19. janúar Steingeit Farðu þér hægt, þegar ný við- skipti eru annars vegar. Njóttu þess að finna að fólk sé farið að meta þig að verðleikum. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Alvaran hefur ráðið ríkjum hjá þér og nú er orðið tímabært að þú veitir svolítilli gleði inn í líf þitt. 19. feb. - 20. mars Fiskar Einhverjir vilja pranga inn á þig hlutum sem þú hefur í raun og veru enga þörf fyrir. Leggðu áherslu á að þér líði sem best og þeim sem í kringum þig eru. Til hamingju með daginn Reykjavík Þann 5. janúar 2020 fæddist Atlanta Von Ingólfsdóttir Crawford í Reykjavík, klukkan 06:07. Hún vó 3.515 g og var 48 sm á lengd. Foreldrar hennar eru Aníta Karen Crawford og Ingólfur Kolbeinn Bjarnason. Nýr borgari 40 ára Katrín ólst upp í Ólafsvík en flutti til Hafnarfjarðar árið 2003 og hefur búið þar síðan. Katrín er í meist- aranámi í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Helstu áhugamál Katr- ínar eru tónlist og kvikmyndir, ferðalög og öll útivist og samvera með fjölskyldu og vinum. Maki: Júlíus Ingi Júlíusson, f. 1980, hús- gagnasmiður hjá Þúsund fjölum. Börn: Viktor Árni, f. 2004 og Kristófer Logi, f. 2007. Foreldrar: Jóhanna Scheving blóma- skreytir, f. 1959 og Knútur E. Knudsen leigubílstjóri, f. 1958. Þau búa bæði í Reykjavík. Katrín Knudsen 30 ára Einar Freyr ólst upp í Sólheima- hjáleigu í Mýrdal en býr núna á Loðmund- arstöðum. Einar Freyr er oddviti sveitar- stjórnar Mýrdals- hrepps og tekur þátt í fjölskyldurekstri á gistiheimili og sauð- fjárbúi. Síðan er hann tónlistarmaður í hjáverkum. Hann er nýbúinn að gefa út sitt fyrsta lag, Bjartur, sem er komið á Spotify og hann er með fleiri lög í vinnslu. Börn: Gréta Björk, f. 2013, Ásmundur Kristinn, f. 2018 og Hlöðver Þór, f. 2020. Foreldrar: Elín Einarsdóttir, f. 1967, skólastjóri og Magnús Þór Snorrason, f. 1966, d. 2020. Einar Freyr Elínarson - meira fyrir áskrifendur Lestumeira með vikupassa! Fyrir aðeins 1.890 kr. færð þú netaðgang að öllu efni úr blaði dagsins og næstu 6 daga. - Fréttir - Ritstjórnargreinar - Menning - Íþróttir - Daglegt líf - Viðskipti - Fastir þættir - Aðsendar greinar - Aukablöð - Viðtöl - Minningargreinar - Umræðan Vikupassi er auðveldari leið til að lesaMorgunblaðið á netinu. Fáðu þér vikupassa af netútgáfu Morgunblaðsins.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.