Morgunblaðið - 02.12.2020, Page 21

Morgunblaðið - 02.12.2020, Page 21
hafa þeir haldið sambandi síðan. Þeg- ar Neskaupstaður, Eskifjörður og Reyðarfjörður sameinuðust varð ljóst að fækka yrði sýslumönnum. Bjarni sótti þá um stöðu í Hólmavík og var skipaður sýslumaður þar árið 1998 og var þar næstu fjögur árin þar til hann réð sig til Blönduóss, þar sem hann hefur verið sýslumaður frá árinu 2002. „Það var dásamlegur tími að vera með Strandamönnum á Hólma- vík og þegar ég fór til Blönduóss sögðu gárungarnir að nú væri ég kominn með fínt útsýni yfir Strand- irnar.“ Bjarni unir sér afar vel á Blönduósi. „Í tíð Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra, 1986, var ákveðið að stofna hér innheimtumiðstöð sekta- og sakarkostnaðar, sem áður hafði verið hjá 26 embættum úti um allt land. Þetta var mikil hagræðing- araðgerð og í dag eru 24 stöðugildi hjá sýslumanninum á Norðurlandi vestra.“ Fjölskylda Eiginkona Bjarna er Hrefna Teits- dóttir, grunnskóla- og leikskólakenn- ari, f. 20.2. 1951. Foreldrar hennar eru hjónin Teitur Þorleifsson, f. 6.12. 1919, d. 30.5. 2003, kennari og skóla- stjóri, og Inga Magnúsdóttir, f. 6.3. 1916, d. 1.9. 1997, kennari í Reykja- vík. Barn Bjarna og Hrefnu er Ása Bjarnadóttir, f. 27.5. 1974. Hún hefur lokið prófi í söng- og upptökustjórn frá Berklee College of Music í Bost- on, er nú húsmóðir í Marcy í New York-ríki. Eiginmaður hennar er William J. Confer „Amos“, prófessor í tölvunarfræðum við Suny Polytec- hnic Institute í Utica, NY, í Banda- ríkjunum. Dóttir þeirra og barnabarn Bjarna og Hrefnu er Inga Babette Confer, f. 2014. Albróðir Bjarna er Stefán S. Stef- ánsson, f. 28.7. 1957, tónlistarmaður og skólastjóri Tónlistarskóla Árbæj- ar í Reykjavík. Systkini samfeðra eru Einar Stefánsson, f. 19.5. 1952, augn- læknir í Reykjavík; Pétur Stef- ánsson, f. 2.6. 1955, rekstrarhagfræð- ingur í Reykjavík, og Þórunn Stefánsdóttir, f. 8.10. 1958. Foreldrar Bjarna eru Ása Bjarna- dóttir, f. 10.8. 1927, d. 30.11. 2019, sjúkraliði í Reykjavík, og Stefán Pét- ursson, f. 9.4. 1926, d. 18.2. 1998, hæstaréttarlögmaður og aðstoð- arbankastjóri í Landsbanka Íslands í Reykjavík. Þau gengu ekki í hjúskap. Bjarni Guðmundur Stefánsson Helga Bjarnadóttir húsfreyja á Ísafirði Guðmundur Viborg Jónatansson gullsmiður á Ísafirði og síðar í Rvík. Þórunn Ingibjörg Guðmundsdóttir húsfreyja og listakona í Reykjavík Pétur Magnússon hrl., bankastj., alþingism. og fjármálaráðherra í Rvík. Stefán Pétursson hrl. og aðstoðarbankastjóri Landsbanka Íslands, Rvík. Sigríður Pétursdóttir Sívertsen húsfreyja á Gilsbakka í Borgarfirði Magnús Andrésson alþingism., prestur og prófastur á Gilsbakka í Borgarfirði Arnfríður Guðmundsdóttir húsfreyja á Gelti og Suðureyri við Súgandafjörð Jón Hálfdán Guðmundsson sjómaður og bóndi á Gelti við Súgandafjörð Sumarlína Sigurborg Jónsdóttir húsmóðir, Suðureyri við Súgandafjörð Bjarni Guðm. Friðriksson sjómaður og vitavörður, Suðureyri við Súgandafjörð Elísabet María Andrésdóttir húsfreyja á Flateyri í Önundarfirði Friðrik Þórður Bjarnason sjómaður á Flateyri í Önundarfirði Úr frændgarði Bjarna Guðmundar Stefánssonar Ása Bjarnadóttir sjúkraliði í Reykjavík DÆGRADVÖL 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 2020 „ÉG ER MÓTTÖKURITARI – EN ÉG ER LÍKA FJÖLMIÐLAFULLTRÚI FYRIRTÆKISINS. ÉG ER „BULLTRÚI”.” „ÞÚ ÆTLAÐIR AÐ LAGA NETBYGGINGUNA FYRIR SEX MÁNUÐUM.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... ljúfir draumar. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann TIKK TIKK TIKK TIKK TIKK TIKK TIKK TIKK TIKK ÉG ER AÐ SKRIFA ÆVISÖGUNA HANS PÚKA ÉG KEM EF TIL VILL STÖKU SINNUM VIÐ SÖGU STANS! ÉG VEIT ÞAÐ EKKI! HVERN KAUSTU? HVER ER Á FERÐ? VINUR EÐA VARGUR? ÉG HATA PÓLITÍK! Á„svörtum föstudegi“ skrifaðiEinar K. Guðfinnsson: „Ég vissi eiginlega ekki hvaðan á mig stóð veðrið þegar ég barði augum for- síður dagblaðanna núna áðan. Sama fyrirsögn í báðum blöðunum og báð- ar á ensku; ellefu dögum eftir árleg- an Dag íslenskrar tungu. Mér létti þó ósegjanlega þegar ég áttaði mig á því að þetta voru auglýsingar vegna verslunarhátíðar sem nýlega hefur hafið innreið sína hér á landi; illu heilli þó undir enskum formerkjum. En ég vitna í sjálfan Jónas: Allt er í heiminum hverfult og hvar er þín fornaldar frægð?“ Af þessu tilefni orti Atli Harðarson, heimspekingur og háskólakennari: Öðlast hefur sé ég sess siður lítið fagur og geldur tungan þjóðar þess. Það er svartur dagur. Nú dauðsé ég eftir að hafa talað svona illa um blessaðan daginn, sagði Atli og gerði því yfirbót: Mola narta má nú í. Minn er bjartur hagur. Ég gleðst af hjarta og þakka því að það er svartur dagur.“ Jónas Frímannsson yrkir og tek ég undir með honum: Veira fór í Víði vænan heilsusoldátann. Frá öllum landsins lýði fær lof og batakveðjur hann. Indriði á Skjaldfönn skrifar á Boðnarmjöð: „Stór rannsókn við Ox- ford-háskóla hefur leitt í ljós að veg- anfólki er 43% hættara við bein- brotum hvar sem er í líkamanum en þeim sem borða kjöt og fisk.“ Kálið lítil gæði gaf. Gerast beinin veik, fái þau ei fylli af fiski og lambasteik. Jón Atli Játvarðarson svaraði: Gæti orðið brattur batinn úr bráðum vanda og nauð ef kjúkling vænan velja í matinn og veturgamlan sauð. Dagbjartur Dagbjartsson spann áfam: Flestri til að firra nauð framan bæði og aftan veturgamlan vildi ég sauð en varla pútuskrattann. Jón Atli aftur: Léttreykta síðu á sunnudag et af sauðnum er vaktaði smalinn. En pútan á þriðjudag mældist þó met ég meðsekur taldist og galinn. Stefán Sigurðsson hélt þræðinum: Vel reytt hænsni reykja má renna þá ljúfast niður þessu er sælt að segja frá og sæmilegur friður. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Svartur dagur og brothætt veganfólk Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | Akranesi | Sími 511 2022 | dyrabaer.is Úrval náttúrulegra bætiefna og fóðurs fyrir hunda og ketti. Nánar á dyrabaer.is HOLLUSTA OG HEILBRIGÐI FRÁ

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.