Morgunblaðið - 07.12.2020, Side 4

Morgunblaðið - 07.12.2020, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 2020 Dekton er algjörlega öruggt gagnvart blettum svo sem kaffi, rauðvíni, sítrus og ryði. Dekton þolir að það slettist á það ofnahreinsir, klór og stíflueyðir og þolir mikinn hita. Blettaþolið SýruþoliðHögg- og rispuþolið Viðarhöfða 1, 110 Reykjavík | Sími 566 7878 | rein.is HÁTT HITAÞOL Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir segir að það sé eðlilegt að fólk hafi spurningar og efasemdir um þau bóluefni sem hafa verið kynnt og séu í framleiðslu til að takast á við Co- vid-19. Hins vegar sé ekki tímabært að ræða hugs- anlegar auka- verkanir af efninu þar sem sér- fræðinefnd á veg- um Lyfjastofn- unar Evrópu á eftir að fara yfir rannsóknanið- urstöður. Mun því ljúka fyrir lok árs. „Eðlilegt er að fólk hafi spurningar og efasemdir um nýtt bóluefni. Það er ekki búið að birta niðurstöður á rannsóknum á bólu- efninu og því er erfitt að ræða eða segja nokkuð um bóluefnin fyrr en sérfræðinefndin er búin að fjalla um málið,“ segir Þórólfur. Að sögn hans verða rannsóknirnar metnar og í framhaldinu verður bóluefnið borið saman við alvarleika Covid-sýkingarinnar. „Þá geta menn metið hvort það sé betra að fá Covid- sýkinguna eða verra heldur en að fá bóluefni,“ segir Þórólfur. Hann bendir á að ekkert sé slakað á kröfum í rannsóknum á bóluefn- unum þótt ferlið sem alla jafna taki tíu ár hafi tekið innan við ár núna. Farið var í gegnum öll nauðsynleg stig líkt og venjulega þegar ný bólu- efni eru rannsökuð. „Þó liggur alveg ljóst að það er bara hægt að sjá bráð- ar aukaverkanir en ekki lang- tímaaukaverkanir ef einhverjar eru. En hve lengi ætlum við að bíða til að sjá langtímaaukaverkenir á bóluefn- inu? Er það í fimm ár eða tíu ár? Þá er þessi faraldur löngu genginn yf- ir.“ Aðspurður segir Þórólfur að það sé afar fátítt að langtímaaukaverk- anir af bóluefnanotkun komi fram. Frægt nýlegt dæmi er af auka- verkunum í formi drómasýki sem komu fram hjá börnum og ungling- um í tengslum við bólusetningu gegn svínaflensu. Að sögn Þórólfs er enn margt á huldu varðandi tengslin milli bóluefnisins og drómasýkinnar. Ekki síst þar sem tengslin komu ein- ungis fram í sumum löndum. „Ef við berum saman langtímaaukaverkanir af Covid-sýkingum og bóluefninu ár- ið 2009 þá eru þær miklu miklu al- gengari af Covid-sýkingum,“ segir Þórólfur. Spilin verða lögð á borðið Að sögn Þórólfs verða spilin lögð á borðið þegar rannsóknum á bóluefn- inu lýkur og aukaverkanir kynntar ef einhverjar eru. Einnig verður far- ið yfir alvarlegar aukaverkanir Co- vid-sýkingarinnar. „Svo þarft þú að taka ákvörðun um það hvort þú vilt eiga á hættu að fá Covid og þær al- varlegu aukaverkanir sem tengjast þeim eða hvort þú vilt taka bóluefnið. Við vitum hins vegar ekkert um neinar aukaverkanir fyrr en búið er að fara yfir rannsóknirnar. Ef það verða alvarlegar aukaverkanir, þá gæti komið upp sú staða að menn myndu ekki telja það áhættunnar virði að nota þetta bóluefni. Fyrstu fregnir um bóluefnið gefa hins vegar ekki í skyn að neinar alvarlegar aukaverkanir séu til staðar,“ segir Þórólfur. Betra en inflúensubóluefni Tvö þeirra bóluefna sem búið er að kynna eru með 90-95% virkni og eitt þeirra með 70% virkni. Bóluefni sem notað er í barnabólusetningum er alla jafna með hærri virkni eða allt að 99% virkni. Til samanburðar er hins vegar mun lægri virkni í hefð- bundinni inflúensubólustetningu. Að sögn Þórólfs er virkni þeirra bólu- efna 40-80%. „Það þarf alltaf að breyta bóluefni við inflúensu frá ári til árs því inflúensan breytist alltaf. Bóluefnið passar misvel við inflúens- una sem gengur og því getur virknin verið frá 40-80%,“ segir Þórólfur. Eðlilegt að efast um bóluefni  Langtímaaukaverkanir afar fátíðar Þórólfur Guðnason Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Þorri almennings hefur almenna skynsemi til að bera. Ég gef mér því að flestir mæti í sprautu þegar bólu- efnið gegn kórónuveirunni er komið. Auðvitað geta því fylgt einhver óþægindi sem þó eru mjög léttvæg í samanburði við aðalatriði máls- ins, sem er að brjóta þessa óværu á bak aft- ur,“ segir Krist- inn Tómasson geðlæknir. Nokkur um- ræða hefur skap- ast um fyrirhug- aða bólusetningu. Sumir óttast aukaverkanir, aðrir telja þetta óþarfa, einstaklingsfrelsi er viðbára sumra og svo mætti áfram telja. Öll þessi sjónarmið segir Kristinn mega ræða fram og til baka, en í sínum huga sé þó bólusetning sem allra flestra nauðsynleg. Lyfin sem eru að koma á markað gefi sömuleiðis góðar væntingar, svo sannarlega sé tilefni til bjartsýni. Góður árangur Íslendinga „Þær ráðstafanir sem gerðar hafa verið á Íslandi vegna veirunnar hafa sannað sig. Nú verðum við að stíga skrefið til fulls og fá sem flesta í sprautu,“ segir Kristinn. Til marks um árangur Íslendinga í baráttu við veiruna bendir hann á að dánartíðnin á hverja milljón íbúa í New Jersey sé um 1.900 manns og um 1.400 í Belg- íu. Á Íslandi sé þetta hlutfall um 79 á hverja milljón. „Hér búum við að starfi heilbrigð- isyfirvalda sem í mörg ár hafa verið að útbúa og þróa viðbragðsáætlanir vegna heimsfaraldra, sem geta verið af ýmsum stofnum. Sjálfur sótti ég í mínu fyrra starfi, sem yfirlæknir Vinnueftirlits ríksins, tugi ráðstefna um þessi efni. Veit því að góð þekk- ing hefur verið til staðar sem gagnast vel í núverandi ástandi. Ég tel því allar líkur á því að kór- ónuveiran verði lögð að velli með bóluefninu sem væntanlegt er.“ Endurhæfing er risastórt verkefni Ætli fólk sér til lífs og leiks í fram- tíðinni fer það í bólusetningu og mál- ið er ekki flókið, að mati Kristins sem kveðst þó hafa áhyggjur af því fólki sem hefur veikst af Covid-19 og ekki náð vopnum sínum að nýju. Fregnir víða að hafi borist af fólki sem eigi í langvarandi erfiðleikum með að ná þrótti að nýju eftir að hafa veikst. Öndunarfærasýkingar séu þar efst á blaði. „Endurhæfing þessara sjúklinga, ásamt ýmsum fyrirbyggjandi ráð- stöfunum, eru risastórt viðfangsefni heilbrigðiskerfisins á næstunni og raunar samfélagsins alls. Þá eru andlegar afleiðingar langvarandi lokana og samkomutakmarkana ekki teknar með. Margir hafa í einveru sóttkvíar verið mjög illa staddir and- lega. Einnig eigum við eftir að sjá hvaða áhrif takmarkanir í skóla- og íþróttastarfi hafa á þroska og fé- lagsmótun barna og af því hef ég sem geðlæknir nokkrar áhyggjur,“ segir Kristinn. Samningar við Pifzer undirritaðir í vikunni Samningar um kaup Íslands á bóluefni gegn kórónuveirunni af lyfjaframleiðandanum Pfizer verða undirritaðir nú í vikunni. Búist er svo við að lyfið fái markaðsleyfi þann 29. desember næstkomandi og þá kemur skammtur til Íslands sem á að duga 115 þúsund manns. Bólu- setningin gæti þá hafist af fullum krafti strax þegar nýtt ár er gengið í garð. Um framkvæmd þess hefur heilsugæslan meðal annars verið í samstarfi við sveitarfélög. Þar hefur meðal annars verið rætt um að bólu- setning fari fram í skólum og íþrótta- húsum, rétt eins og þær byggingar eru nýttar þegar fólk gengur að kjörborði. Bólusetning mikilvæg og óþægindin léttvæg  Óværan brotin á bak aftur  Óttast andlegar afleiðingar AFP Sprauta Hjúkrunarfræðingar á Royal Free-sjúkrahúsinu í London hófu um helgina þjálfun fyrir bólusetningar sem hefjast af krafti eftir helgina. Allt er klárt og efasemdarröddum um gagnsemi lyfsins er svarað kröftuglega. Kristinn Tómasson Alls greindust fjögur ný smit kór- ónuveirunnar innanlands á laug- ardag. Allir fjórir voru í sóttkví við greiningu. „Við þurfum að sjá hvort það er einhver fylgni í þessum töl- um. Maður er hóflega bjartsýnn,“ segir Rögnvaldur sem vonast til að þróunin verði með svipuðum hætti áfram. Að hans sögn er hugsanlegt að létt verði á aðgerðum ef fram heldur sem horfir. „Þá er ég mjög bjartsýnn og þá verður til svigrúm til að létta á. Við þurfum þó að sjá framhald á þessu.“ Segir Rögnvaldur að vonir séu bundnar við að fólk hafi farið eftir tilmælum sóttvarnayfirvalda um helgina. „Maður er smeykur þar sem fólk er mikið að hittast á að- ventunni. Maður er hræddur um hvernig helgarnar koma út,“ segir Rögnvaldur. Fjögur smit greind- ust innanlands  Vonast til þess að hægt verði að aflétta Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sýnataka Alls voru rúmlega 1.000 sýni tekin á laugardag vegna Covid-19. BÓLUEFNI GEGN KÓRÓNUVEIRUNNI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.