Morgunblaðið - 07.12.2020, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 2020
STOFNAÐ 1956
Ísafold 41
fundarstóll m. örmum
5.415 kr. m.vsk
Tilboðsverð
Bæjarlind 8-10
201 Kópavogur
sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
3
Fjöldi áklæða í boði
Ásdís Kristjánsdóttir, aðstoð-arframkvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins, skrifaði pistil í
Viðskiptablaðið í liðinni viku um
erfiða stöðu ferðaþjónustunnar
hér á landi og benti
á að hagtölur sýndu
hve alvarleg efna-
hagsstaðan væri
vegna kór-
ónuveirufaraldurs-
ins: „Samdráttur í
landsframleiðslu
mælist nú meiri en
í bankahruninu, at-
vinnuleysi hefur aldrei mælst
hærra og nú stefnir í að 30 þúsund
manns verði án atvinnu um ára-
mótin. Áhrif kreppunnar hér
heima eru þung í sögulegum og al-
þjóðlegum samanburði. Því skýtur
skökku við að laun á Íslandi séu
ekki aðeins ein þau hæstu í heimi
heldur séu launahækkanir mun
hærri en þær sem við sjáum meðal
flestra vestrænna ríkja. Á öðrum
ársfjórðungi hækkuðu laun hér á
landi um 6,5% milli ára en til sam-
anburðar hækkuðu laun að með-
altali um 1,9% á hinum Norð-
urlöndunum. Á sama tíma er
atvinnuleysi hér eitt það hæsta í
Evrópu. Ekki alls kostar ósvipað
þeim atvinnuleysistölum sem við
sjáum í syðri hluta álfunnar.
Fyrir vinnuaflsfreka atvinnu-grein eins og ferðaþjónustu
kemur hár launakostnaður beint
niður á áfangastaðnum Íslandi,
sem er í beinni samkeppni um
ferðamenn við önnur lönd.“
Ásdís lýsir þarna grafalvarlegristöðu en vandinn er sá að við-
semjendur SA og fleiri fulltrúar
launþega á vinnumarkaði láta sem
hér ríki enn góðæri. Launahækk-
anirnar sem Ásdís nefnir halda
áfram eins og ekkert hafi í skorist
og því miður er fyrirsjáanlegt að
þeim muni fylgja meira atvinnu-
leysi og auknir erfiðleikar fjöl-
skyldnanna í landinu.
Ásdís
Kristjánsdóttir
Samhengi
hlutanna
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Gert er ráð fyrir að Vestmanna-
eyjabær verji á næsta ári rösklega
einum milljarði króna til ýmissa
framkvæmda og verkefna, utan lög-
bundins rekstrar bæjarfélags, skv.
fjárhagsáætlun sem samþykkt var
fyrir helgina. Þar má nefna bygg-
ingu slökkvistöðvar, endurbyggingu
ráðhússins, ljósleiðaravæðingu og
framkvæmdir við aðstöðu fyrir ný-
sköpunar- og frumkvöðlastarf. Þá
er gert ráð fyrir að verja hartnær
300 milljónum króna til heilsuefl-
ingar, umhverfisbóta, spjaldtölvu-
væðingar í grunnskólunum, átaks í
ferðamálum og fleira.
Samkvæmt fjárhagsáætlun verða
tekjur Vestmannaeyjabæjar á
næsta ári um 6,7 ma. kr. og gjöldin
svipuð. Niðurstaða ársins er jákvæð
um rétt rúmar 100 millj. kr. og að
handbært fé í lok næsta árs verði
um 2,6 ma. kr. Þetta sagði Íris Ró-
bertsdóttir bæjarstjóri sýna sterka
stöðu bæjarins. Vestmannaeyjabær
þurfi þó að mæta ýmsum áskor-
unum, því framlög úr Jöfnunarsjóði
sveitarfélaga hafa lækkað töluvert
milli ára. Þá er ekki er gert ráð fyr-
ir loðnuvertíð í útsvarstekjunum.
Sömuleiðis hafi þrýstingur á aukna
fjárfestingu bæjarins aukist, til
þess að viðhalda og efla atvinnustig.
sbs@mbl.is
Fjárfesta fyrir milljarð kr. í Eyjum
Ljósleiðari og nýsköpun Ekki er
gert ráð fyrir loðnuvertíð í áætlun
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vestmannaeyjar Tekjur bæjarsjóðs
áætlaðar um 6,7 ma. á næsta ári.
Norræna fer í sína síðustu ferð í bili
frá Seyðisfirði í næstu viku því hún
fer í tveggja og hálfs mánaðar við-
gerð og endurbætur í skipa-
smíðastöð í Danmörku. Búið er að
taka á leigu annað skip til að flytja
vörur á meðan en skipið er ekki með
aðstöðu til að flytja farþega.
Frijsenborg, skipið sem Smyril
line, hefur tekið á leigu til að leysa
vöruflutningahlutverk Norrænu er
nýlegt skip, svokallað RO/RO-skip,
það er að segja flutningatækjunum
er ekið um borð og frá borði. Skipið
er í eigu danskrar útgerðar en siglir
undir ítölskum fána. Skipið kemur í
fyrstu ferð til Seyðisfjarðar 5. janúar
og siglir síðan vikulega á milli Seyð-
isfjarðar, Þórshafnar og Hirtshals,
þar til Norræna kemur úr slipp.
Fær andlitslyftingu
Norræna gegnir mikilvægu hlut-
verki í flutningi vara til og frá Aust-
urlandi og Norðurlandi. Almennur
varningur er fluttur til landsins með
skipinu en uppistaðan í útflutn-
ingnum er ferskur fiskur og ekki síð-
ur lax sem kemur bæði frá laxeldis-
fyrirtækjunum á Austfjörðum og
Vestfjörðum.
Norræna fer ekki aðeins í hefð-
bundna viðgerð heldur fær skipið
andlitslyftingu og klefum verður
fjölgað. Það verður gert með því að
byggja yfir efstu hæð skipsins. Með
breytingunni fást 50 tveggja manna
káetur, auk nýs útsýniskaffihúss.
Lítið er að gera í farþegaflutn-
ingum vegna kórónuveirufaraldurs-
ins. Linda Gunnlaugsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Smyril Line á Íslandi,
segir að vonandi verði allt komið á
fulla ferð aftur þegar skipið kemst í
gagnið á ný, í byrjun mars.
helgi@mbl.is
Flutningaskip leysir
Norrænu af hólmi
Norræna frá fram
í mars vegna endur-
bóta og viðgerða
Frijsenborg Danskt-ítalskt flutn-
ingaskip siglir með vörurnar.