Morgunblaðið - 07.12.2020, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 2020
Vefuppboð nr. 513
Rauðarárstígur 12-14, sími 551 0400 · www.uppbod.is
JÓLAPERLUR
vefuppboð til 9. desember
Stórval
Forsýning á verkunum hjá
Fold uppboðshúsi og á vefnum uppbod.is
Fold uppboðshús kynnir
Jóhannes S. Kjarval
Tryggvi Ólafsson
Svavar Guðnason
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Umferð um íslenska flugumferð-
arstjórnarsvæðið er um þessar
mundir aðeins um 30-40% af því
sem gerist við eðlilegar að-
stæður. Ráðstafanir vegna Co-
vid-19 eru ástæða þessa, þó ekki
hafi tekið fyrir samgöngur að
öllu leyti. Mikið er nú um flug til
og frá til dæmis Arabísku
furstadæmunum og Indlandi til
Bandaríkjanna og Kanada. Þeg-
ar flugvélar á þessum leiðum
fara vestur um haf er flogið yfir
Evrópu, norður yfir Íslandi og
Grænlandsjökul og þaðan til
vesturs. Þetta er svokölluð Stór-
baugsleið.
Frá Norðurpól til suðurs
„Stjórn flugumferðar yfir
Norður-Atlantshafið er starf-
semi sem munar mjög um, segir
Ásgeir Pálsson, fráfarandi fram-
kvæmdastjóri Isavia ANS ehf.
Fyrirtækið, sem er í eigu Isavia
ohf., starfrækir meðal annars
flugstjórnarmiðstöðina á
Reykjavíkurflugvelli, en þaðan
er umferð á flugstjórnarsvæði
Íslands stýrt. Svæðið er 5,4
milljónir ferkílómetra; nær um
330 kílómetra suður fyrir land-
ið, að Norðurpólnum og úr
vestra frá Noregi til austur-
strandar Kanada.
„Þegar best lætur fara um
800 flugvélar á dag um flug-
stjórnarsvæðið, en meðaltalið er
sennilega um 550. Nú er þetta
minna og verður uns Bandaríkin
og Evrópa opnast að nýju,“ seg-
ir Ásgeir sem lét af störfum fyr-
ir skemmstu. Að baki er 46 ára
ferill við flugleiðsöguþjónustu
og skyld verkefni, en Ásgeir
verður þó viðloðandi Isavia ANS
til áramóta.
Tekjur á ári 7 ma. kr.
„Það er alls ekki sjálfgefið
að flugumferðarstjórnin á þessu
stóra svæði haldist hér á Íslandi
til allrar framtíðar. Til þess að
svo megi verða þarf öfluga for-
ystu og frumkvæði. Upplýsingar
til dæmis úr ratsjár- og móttöku-
stöðvum og frá flugvélunum
sjálfum eru send til flugstjórn-
armiðstöðva, en með gagnaflutn-
ingsleiðum nútímans geta þær
landfræðilega í raun verið hvar
sem er. Margar þjóðir, til dæmis
Bretar, Kanadamenn, Írar og
Danir hafa sýnt áhuga á því að
ná þessari starfsemi til sín og
hefur kallað á talsverða baráttu
af hálfu okkar Íslendinga,“ segir
Ásgeir og heldur áfram:
„Tekjunar sem stjórn flug-
umferðar hér á Norður-
Atlantshafinu skilar okkur eru
um sjö milljarðar króna á ári að
meðaltali. Auðvitað verða þær
miklu minni í ár, af skiljanlegum
ástæðum. Flugfélögin greiða
Isavia ANS fyrir þjónustu eftir
því hve langir ferlar véla þeirra
eru innan flugstjórnarsvæðisins .
Því munar mjög, um greiðslur til
dæmis frá félögum sem er á
ferðinni milli Mið-Austurlanda
og Bandaríkjanna. Flug milli
heimsálfa nú er í vaxandi mæli
tekið í einum legg og á minni
vélum en áður. Stóru breiðþot-
unum sem tóku kannski 500-600
farþega fækkar. Í stað þeirra
eru að koma minni þotur, sem
henta betur fyrir beinar teng-
ingar milli áfangastaða.“
Kosovo, Grænland
og Færeyjar
Flugleiðsagan á Íslandi hef-
ur tekið að sér ýmis önnur verk-
efni. Þar má nefna að Isavia ANS
hefur með höndum stjórn flug-
umferðar á flugvellinum í Syðri-
Straumsfirði á Grænlandi. Einn-
ig sinntu Íslendingar flug-
leiðsöguþjónustu í mörg ár á
Pristina-flugvelli í Kosovo. Þá er
aðflugi að Vogaflugvelli í Fær-
eyjum stjórnað frá Reykjavík.
Fyrirtækið og starfsfólk þess
annast einnig ýmis verkefni fyrir
flugvelli á Íslandi, svo sem við-
hald og eftirlit með aðflugsbún-
aði, ljósabúnaði og fleiru.
„Breytingar á flugumferð og
þjónustu við hana á þessum 46
árum sem ég hef starfað á þess-
um vettvangi eru miklar. Fyrstu
árin starfaði ég í flugturninum í
Keflavík og þá, í miðju kalda
stríðinu, fóru orrustuvélar frá
Varnarliðinu allt að 200 sinnum
á ári til móts við sovéskar vélar
sem komu inn í íslenska flug-
stjórnarsvæðið. Þessu lauk með
falli Berlínarmúrsins, en nú er
þetta flug raunar hafið aftur þó í
mun minna mæli sé áður var. Nú
er fylgst er með flugi hern-
aðarlegs eðlis í gegnum radsjár-
stöðvarnar sem eru hver á sínu
horni landsins og eru jafnframt
mikilvægar fyrir flugumferð-
arstjórn,“ segir Ásgeir sem bætir
við að frá degi til dags sé flug-
umferðin yfir Atlantshafið sí-
breytileg vegna háloftavindanna,
sem eru vestanlægir.
„Í flugi til Norður-Ameríku
reyna flugstjórar eftir megni að
forðast þessa vinda og sæta lags,
en nýta sér þá í flugi til austurs.
Gjarnan eru þessir vindar á 200
kílómetra hraða og farþegar
með Icelandair þekkja vel að
flugið til Íslands heim frá Banda-
ríkjunum tekur gjarnan hálftíma
til klukkustund skemmri tíma en
ferðin vestur.“
Útflutningur
sem fáir þekkja
Ásgeir Pálsson kveðst láta
af störfum hjá Isavia ANS afar
sáttur. Vel hafi tekist til við að
byggja upp starfsemi við stjórn
flugs yfir Norður-Atlanshafinu,
sem samanlagt veitir um 300
manns atvinnu og gjaldeyristekj-
urnar eru miklar.
„Ég hef stundum sagt að
stjórn flugsins yfir hafið sé sú út-
flutningsgrein okkar sem fæstir
þekkja og það er gaman að hafa
tekið þátt í uppbyggingu hennar.
Einnig er tækniumhverfi i þess-
arar greinar spennandi og er í
stöðugri þróun og breytist
hratt.“
Ásgeir Pálsson lætur af störfum eftir 46 ár við flugleiðsöguþjónustu og alþjóðleg verkefni
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Flug Ekki sjálfgefið að flugumferðarstjórnin á Norður-Atlantshafi haldist
hér á Íslandi, segir Ásgeir Pálsson um um mikla hagsmuni sem eru undir
Forysta og frumkvæði í flugmálunum
Ásgeir Pálsson er fæddur
árið 1951 og var ráðinn sem
flugumferðastjóri hjá Flug-
málstjórn 1975. Deildarstjóri
og yfirflugumferðastjóri 1991.
Varð 1995 framkvæmdastjóri
flugumferðarsviðs Flugmála-
stjórnar og svo fram-
kvæmdastjóri hjá Isavia ANS
og fyrirrennurum í tæp 26 ár.
Formaður skipulagsnefndar
Alþjóðaflugmálastofnunar-
innar (ICAO) fyrir Norður-
Atlantshaf (North Atlantic Sys-
tems Planning Group) í 20 ár
og lengi fulltrúi Íslands í flug-
umferðarnefnd NATO.
Hver er hann?
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Loftrák Hvert liggur leiðin í dag?
Rúmlega 10 milljónir króna söfn-
uðust í góðgerðarátakinu Notum
netið til góðra verka sem lág-
vöruverðsverslunin Nettó stóð fyrir
í nóvember. Átakið fól í sér að 200
krónur af hverri pöntun úr netversl-
uninni runnu til góðgerðarmála. Það
kom svo í hlut viðskiptavina að velja
málefni til að styrkja og bárust yfir
2.000 tillögur. Í heild hefur Nettó
veitt um 44 milljónum króna til góð-
gerðarmála í ár, segir í tilkynningu.
Meirihluti styrkjanna rennur til
samtaka eins og Fjölskylduhjálpar
Íslands og annarra samtaka sem sjá
um matargjafir. „Á sama tíma styðj-
um við önnur brýn málefni eins og
Ljósið og Píeta-samtökin,“ segir
Gunnar Egill Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri verslunarsviðs Sam-
kaupa.
Söfnunarféð úr Notum netið til
góðra verka var veitt ýmsum góð-
gerðarfélögum við hátíðlega athöfn í
Nettó Mjódd fyrir helgi í tilefni
Nettódagsins. Fulltrúar flestra góð-
gerðarsamtakanna mættu til að
veita þeim viðtöku en sökum Co-
vid-19-faraldursins var umfangið
minna en síðastliðin ár.
Söfnun Ásgerður Jóna Flosadóttir frá Fjölskylduhjálp Íslands, til vinstri á
myndinni, tekur við styrk frá fulltrúa Nettó, við athöfn í Mjóddinni.
44 milljónir frá Nettó
Góðgerðarátak gegnum netverslun
skilaði 10 milljónum til hjálparstarfs