Morgunblaðið - 07.12.2020, Side 15
15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 2020
Gluggaþvottur Þegar horft er á heiminn þarf rúðan að vera hrein, svo myndin sé skýr.
Kristinn Magnússon
Mikill styr stendur
um frumvarp um-
hverfis- og auðlinda-
ráðherra um að gera
miðhálendi Íslands að
þjóðgarði. Náttúru-
verndarfólk fagnar
hugmyndinni, en
sveitarstjórnarmenn
eru því andsnúnir,
telja að freklega sé
gengið á rétt sveitar-
stjórna til að fara með
stjórnsýslu- og skipulagsvald á
landi sveitarfélags. Samt er ekki
langt síðan þær höfðu engan laga-
legan rétt á hálendinu, enda var
það utan sveitarfélagamarka fram
til 1998.
Samkvæmt Grágás var hálend-
inu skipt niður milli landsfjórðung-
anna. Hver íbúi viðkomandi fjórð-
ungs átti þar rétt til veiða svo og
beitarrétt á þeim hluta þess, sem
tengdist fjórðungnum. Að öðru
leyti gilti hin almenna evrópska
regla um ferðamenn, að þeim væri
heimilt að nýta landsins gæði á leið
sinni um hálendið, veiða sér til
matar, tína ber og æja hestum sín-
um, eins og tíðkaðist á miðöldum.
Réttur fjórðunganna færðist
hins vegar smám saman yfir til
hreppanna, sem „eignuðust“ sér-
staka afrétti inni á hálendinu og
stýrðu beit með ítölu búfénaðar inn
í þá. Heiðarbýli voru oft byggð til
að fylgjast með fénu. Þau urðu
stundum að lögbýlum. Þannig
myndaðist eignarréttur á landi sem
var í raun almannaeign. Eignar-
hald á þessum afréttum var því frá
upphafi frekar óljóst. Hæstiréttur
hafnaði til dæmis ávallt kröfum um
viðurkenningu á eign-
arrétti hálendissvæða,
hvort sem um væri að
ræða íslenzka ríkið,
sveitarfélög eða ein-
staklinga og félög
þeirra.
Hugtakið hálendi Ís-
lands var ekki til fyrr
en á 19. öld. Í umræð-
unum á Alþingi um há-
lendið 1919 kom Gísli
Sveinsson, þingmaður
Vestur-Skaftfellinga,
með þá skilgreiningu á
mismunandi svæðum hálendisins,
sem enn er notuð.
Næstu áratugina var lítið fjallað
um hálendið. Einstaka sinnum
komu upp deilur um veiðirétt, bæði
til silungsveiði í vötnum og rjúpna-
veiði í afréttum, sem oftar en ekki
leiddu til sýknu veiðimanna á þeim
forsendum að um almenningsland
væri að ræða.
Þegar fyrsta stórvirkjun lands-
manna, Búrfellsvirkjun, var í und-
irbúningi, hugsuðu sveitarstjórnar-
menn sér gott til glóðarinnar. Það
hlyti að vera hægt að ná einhverj-
um gjöldum af ríkinu vegna þeirra
„fasteigna“ sem ætti nú að byggja
inni á hálendinu.
Þeir höfðu erindi sem erfiði og
fengu sveitarstjórnarlögum breytt
1961. Það gerði sveitarfélögum sem
áttu notkunarrétt á afrétti, þar sem
mannvirki stórra virkjana voru
reist, kleift að leggja fasteignagjöld
á gjaldskyld byggingarvirki. Búr-
fellsvirkjun og Álverið í Straums-
vík voru framkvæmdir sem öll
þjóðin stóð að. Eðlilegra hefði verið
að fasteignagjöld af þessum mann-
virkjum hefðu frekar runnið í Jöfn-
unarsjóð sveitarfélaga.
Árið 1990 vildi umhverfis-
ráðherra láta skilgreina miðhálendi
Íslands sem sérstakt stjórnsýslu-
svæði. Stjórn þess skyldi kjörin á
Alþingi til fjögurra ára í senn og
hafa sömu skyldur og sveitar-
stjórnir. Þetta stjórnsýslusvæði
hefði að vísu enga fasta íbúa, en
væri fyrir allan almenning í land-
inu. Páll Líndal, ráðuneytisstjóri
umhverfisráðuneytisins, ráðlagði
að taka styttra skref, þar sem bú-
ast mætti við mikilli andstöðu
sveitarstjórnarmanna.
Umhverfisráðherra skipaði því
fyrst nefnd fulltrúa skv. tilnefningu
allra þingflokka á Alþingi, tiltek-
inna ráðuneyta og Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga í október
1990 til að gera skýrslu um mið-
hálendið, sem lögð skyldi fyrir
Alþingi fyrir lok kjörtímabilsins.
Eins skyldi hún undirbúa frumvarp
til laga um tilhögun stjórnsýslu á
hálendi Íslands og verndun þess.
Nefndin ræddi hvort ætti að
framlengja mörk sveitarfélaga,
sem liggja að hálendinu, þannig að
landinu öllu yrði skipt niður milli
sveitarfélaga. Þessi hugmynd var
hvorki talin raunhæf né fram-
kvæmanleg, jafnvel þótt öræfa- og
jöklasvæði yrðu undanskilin.
Nefndin var sammála um að öræfi,
jöklar og almenningar væru utan
byggðar og því utan sveitarfélaga.
Eina skynsamlega leiðin var talin
sú að koma byggingar- og skipu-
lagsmálum hálendisins undir eina
sameiginlega stjórn.
Eiður Guðnason, umhverfis-
ráðherra 1991-1994, lagði síðan
fram frumvarp til laga um stjórn
skipulags- og byggingarmála á
miðhálendi Íslands á Alþingi vorið
1992. Sveitarstjórnamenn voru lítt
hrifnir og féllu þung orð í garð
umhverfisráðherra, sem var gerður
afturreka með frumvarp sitt um
„Eiðshrepp“.
Eftir þessar hrakfarir tókst þó
að stofna skipulagsnefnd fyrir há-
lendið á grundvelli lagabreytingar
á skipulagslögum 1993. Sveitar-
stjórnarmenn gátu sætt sig við þá
ráðstöfun, þar sem það var mjög
skýrt, að ekki væri um neina stjórn
á hálendinu að ræða, heldur fag-
nefnd sem væri til ráðgjafar um
skipulagsmál þess.
Á vorþingi 1998 var hins vegar
frumvarp félagsmálaráðherra Páls
Péturssonar um breytingar á
sveitarstjórnarlögunum samþykkt,
sem fól í sér að öllu landinu, að
jöklum undanskildum, yrði skipt
niður milli sveitarfélaga. Voru
þessi viðbótarlönd sveitarfélaganna
gjarnan nefnd tertusneiðarnar.
Samhliða þessum breytingum
var samþykkt frumvarp um þjóð-
lendur ríkisins. Með þjóðlendu-
lögunum var gert ráð fyrir að ríkið
öðlaðist eignarhald á öllu landi,
sem ekki var áður talið eignarland
og utan sveitarfélaga, og eignaðist
öll hlunnindi og nýtingarrétt á
auðlindum innan þeirra. Eftir sem
áður skyldu þjóðlendurnar lúta
stjórn viðkomandi sveitarfélags
skv. hinum nýju sveitarstjórnar-
lögum.
Í þjóðlendulögunum var gert ráð
fyrir að skipuð yrði sérstök nefnd,
Óbyggðanefnd, sem skyldi falið að
skera úr um hvaða landsvæði væru
almenningslönd og féllu þannig
undir þjóðlendur og hver væru
eignarlönd. Í langflestum tilvikum
sættu landeigendur sig ekki við
úrskurði Óbyggðanefndar og upp-
hófust miklar deilur og mála-
rekstur sem enn sér ekki fyrir
endann á. Þess ber þó að geta að
ríkið hefur haft betur í flestum
þessara mála.
Af framansögðu má álykta að
forfeður vorir hafi skilgreint há-
lendið sem almenning, er fólkið í
landinu hefði jafnan aðgang að.
Það var ekki gert ráð fyrir því að
því yrði skipt niður milli margra
sveitarfélaga, sem fengju hvert
stjórnvald yfir sínum skika. Það
má því segja að með stofnun þjóð-
garðs á miðhálendinu sé komið til
móts við þau markmið að miðhá-
lendi Íslands verði sértækt stjórn-
sýslusvæði, eins og stefnt var að
1990.
Eins og komið hefur fram í frétt-
um munu virkjunarkostir falla und-
ir rammaáætlun, en með miðhá-
lendisþjóðgarði er væntanlega
komið í veg fyrir að farið verði í
margar Hvalárvirkjanir á miðhá-
lendinu fyrir tilstilli einstakra
sveitarstjórna.
Vonandi bera alþingismenn gæfu
til að samþykkja frumvarp um-
hverfis- og auðlindaráðherra um
stærsta þjóðgarð í Evrópu á
miðhálendi Íslands.
Eftir Júlíus Sólnes » Vonandi bera
alþingismenn gæfu
til að samþykkja frum-
varp umhverfis- og
auðlindaráðherra um
stærsta þjóðgarð í Evr-
ópu á miðhálendi Ís-
lands.
Júlíus Sólnes
Höfundur er fv. umhverfisráðherra.
Hálendisblús
Nýlega var Dag-
ur B. Eggertsson
borgarstjóri í út-
varpsviðtali í þætt-
inum Reykjavík
síðdegis á Bylgj-
unni og voru orð
hans þar oftar en
ekki uppfull af alls
kyns rangfærslum,
hvort sem það var
með vilja gert eða
af því að hann veit ekki betur.
Hann m.a. fullyrti að fyrrverandi
flugmálastjóri, Þorgeir Pálsson,
hefði kallað eftir nýjum vara-
flugvelli því Reykjavíkur-
flugvöllur væri of lítill. Þetta er
rangt því Þorgeir Pálsson sagði í
samtali við mbl.is hinn 9. nóv-
ember 2019 að borgarstjóri
drægi ekki upp rétta mynd af
skýrslu um öryggishlutverk
Reykjavíkurflugvallar. Hann
sagði jafnframt að borgarstjóri
léti ógert að nefna margvíslega
fyrirvara sem gerðir væru við
Hvassahraun sem flugvallar-
stæði sem kæmi í veg fyrir að
hægt væri að taka ákvörðun um
byggingu flugvallar á þeim stað.
Tilefni þessara ummæla var við-
tal við borgarstjóra í Morgun-
blaðinu í byrjun nóvember sama
ár. Borgarstjóri sagði jafnframt í
viðtalinu að hinar nýju 737
MAX-flugvélar Icelandair gætu
alls ekki notað Reykjavíkur-
flugvöll. Þessi fullyrðing hans er
alröng. Þær geta það og gera, og
reyndar stærsti hluti flota fé-
lagsins, sem þá taldi yfir 30 flug-
vélar, getur einmitt notað
Reykjavíkurflugvöll sem vara-
flugvöll og gerir. Fimm farþega-
þotur komast fyrir á Egilsstaða-
flugvelli og Akureyrarflugvelli,
þ.e. á hvorum fyrir
sig, en mun fleiri
komast hins vegar
fyrir á Reykjavík-
urflugvelli. Þó ekki
eins margar í dag
og áður eftir að
hindranir voru sett-
ar á malbik fyrrver-
andi brautar 06/24
sem kölluð var
neyðarbrautin eftir
að henni var lokað
þökk sé Degi B.
Eggertssyni. Á
neyðarbrautinni
hefðu komist fyrir nokkrar far-
þegaþotur líka ef á þyrfti að
halda. Vert er í því sambandi að
benda á að flugvellir geta lokast
ekki eingöngu vegna veðurs eins
og dæmin sýna. Ingvar Tryggva-
son, formaður öryggisnefndar
Félags íslenskra atvinnuflug-
manna, hefur ítrekað bent á
þetta og eins það að það sé al-
vörumál að setja fram rang-
færslur og afvegaleiða um-
ræðuna eins og borgarstjóri
hefur gert. Í viðtalinu sem tekið
var við borgarstjóra á Bylgjunni,
sem fyrr er vitnað í, talaði hann í
hringi um sjúkraflugið eins og
t.d. að lendingarstaður skipti
minna máli en aðrir þættir og
setti svo fram óskiljanlegar full-
yrðingar um að flutningstími
væri langur. Hver einasta mín-
úta skiptir máli þegar verið er að
flytja alvarlega veika eða slasaða
einstaklinga á milli landshluta.
Steininn tók þó úr þegar borgar-
stjóri fullyrti að það tæki marga
klukkutíma að kalla út sjúkra-
flugvél. Slíkt er rakalaust bull
eins og framkvæmdastjóri Flug-
félagsins Mýflugs útskýrði í
sama þætti næsta dag. Borgar-
stjóri hóf því næst að tala um
umbúnað innanlandsflugs og að
hann yrði betri annars staðar.
Dagur B. Eggertsson hefur ver-
ið manna duglegastur sjálfur að
þrengja skipulega að flugvellin-
um svo hann á stærstan þátt í því
að „umbúnaður“ innanlandsflugs
skuli ekki vera betri en hann er í
dag. Seinna í viðtalinu deleraði
borgarstjóri um að þyrlur
myndu leysa sjúkraflug af. Því er
til að svara að þó að þær séu
vissulega frábærar þar sem flug-
vélum verður ekki komið við
henta þær ekki eins í sjúkra-
flutninga á milli landshluta þar
sem tíminn skiptir máli. Má
nefna hversu hægfleygari þær
eru og eins hitt að þær eru ekki
búnar jafnþrýstibúnaði eins og
flugvélarnar, líkt og fagfólk í
fluginu hefur ítrekað bent á. Ef
flugvöllurinn færi úr Vatnsmýr-
inni gætu þyrlur Landhelgis-
gæslunnar ekki lent við spítala
eða nálægt honum þegar lág-
skýjað væri eða slæmt skyggni
vegna þess að þá væri ekki leng-
ur til staðar til þess nauðsyn-
legur blindflugsbúnaður flugvall-
arins. Í slíkum veðurskilyrðum
þyrftu þær að lenda í Keflavík
eða á einhverjum öðrum flug-
völlum. Er ekki mál að rang-
færslum um flugvöllinn í Vatns-
mýrinni linni hjá Degi B.
Eggertssyni borgarstjóra?
Eftir Vigdísi
Hauksdóttur » Þorgeir Pálssonsagði í samtali
við mbl.is að borgar-
stjóri drægi ekki
upp rétta mynd af
skýrslu um öryggis-
hlutverk Reykja-
víkurflugvallar.
Vigdís
Hauksdóttir
Höfundur er lögfræðingur og
borgarfulltrúi Miðflokksins.
Rangfærslur borgarstjóra
um flugvallarmál