Morgunblaðið - 07.12.2020, Side 19

Morgunblaðið - 07.12.2020, Side 19
þessari setningu líka. Heiðurs- maður, húmoristi en fyrst og fremst einn besti félagi og bar- áttumaður sem ég hef kynnst. Það er okkar að taka við kyndl- inum sem Dóri Grön bar alla starfsævina í þágu vinnandi fólks. Ég votta Gretu, Evu og fjöl- skyldu og Arnari mína dýpstu samúð. Drífa Snædal, forseti ASÍ. Það er stundum sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp eitt barn og það á svo sannarlega við um lífið í Hraunbæ 166 þegar við ólumst þar upp. Íbúar stigagangsins urðu miklir vinir. Börnin gengu milli íbúða eins og þau byggju í þeim öllum og stundum var kvöldmat- ur borðaður á fleiri en einum stað eða þar sem hann var bestur. Þegar foreldrarnir voru í heim- sókn hvert hjá öðru voru símarn- ir, sem þá voru með snúru, gjarn- an settir fram á gang og dyrnar hafðar opnar. Stigagangurinn var leiksvæði okkar barnanna en segja má að hann hafi verið eins og eitt stórt heimili og í einni íbúðinni bjuggu Dóri, Greta og Eva, áður en Arnar fæddist. Þau voru hluti af stóru fjölskyldunni á stóra heimilinu í Hraunbænum. Við kunnum vel að meta þetta fjölskyldumynstur og það lýsti sér kannski best þegar eitt okkar sagði 7 ára gamalt: mikið átti ég góða æsku. Sumum okkar barnanna þótti mjög merkilegt að Dóri ætti tölvu og væri í námi erlendis. Dóri var góð fyrirmynd, hann var fróður, réttsýnn og fylginn sér. Hann var með góða nærveru, fyndinn og skemmtilegur. Það var ekki fyrr en við urðum eldri að við áttuðum okkur á hvert starf hans var. Hann var mikill baráttumaður verkalýðsins og þar fengu per- sónueinkenni hans að blómstra. Stolt horfðum við á Dóra í sjón- varpsviðtölum vegna vinnu sinn- ar. Dóri var einn af pöbbunum sem sköpuðu endalaust skemmti- legar minningar á æskuárum okkar og verður hans sárt sakn- að. Höggvið er nú skarð í stórfjöl- skylduna úr Hraunbænum og er þakklæti okkur efst í huga fyrir ógleymanleg ár í Hraunbænum sem færðu okkur minningar sem aldrei gleymast. Elsku Greta, Eva, Arnar, Björgvin, Benedikt, Baldur og litla Hildur María, við og fjöl- skyldur okkar sendum okkar innilegustu samúðarkveðjur, minning um góðan mann lifir. Fyrir hönd barnanna í Hraunbæ 166, Halldóra Ingvarsdóttir (Hádína) og Ingunn Heiða Kjartansdóttir (Inga Sama). Halldór Grönvold, aðstoðar- framkvæmdastjóri ASÍ og einn öflugasti baráttumaður fyrir réttindum launafólks í áratugi, er fallinn frá í blóma lífsins eftir skammvinn og hastarleg veik- indi. Halldór hefur verið náinn samstarfsmaður okkar starfs- fólks í félagsmálaráðuneytinu um langt skeið um fjölmörg fram- faramál á vinnumarkaði og hand- bragð hans er víða að finna á þeim baráttumálum sem leidd hafa verið í lög síðustu áratugi. Sérstaklega mætti þar nefna lagasetningu um fæðingar- og foreldraorlof en þess er minnst um þessar mundir að 20 ár eru liðin frá því að þau tóku gildi. Þá hefur varla nokkrum lögum eða reglum um atvinnuleysistrygg- ingar eða eftirlit með vinnuað- stæðum erlends starfsfólks í landinu verið breytt án þess að Halldór hafi þar komið nærri. Halldór var óþreytandi í starfi sínu og afar fylginn sér en ávallt sanngjarn og lausnamiðaður. Með því vann hann sér traust og virðingu samstarfsfólks og það er því með mikilli sorg og trega sem við kveðjum þennan góða félaga. Það verður mikill missir að hon- um. Við sendum fjölskyldu Hall- dórs og öðrum sem eiga um sárt að binda innilegar samúðarkveðj- ur á erfiðri stundu og biðjum Guð að blessa minningu hans. F.h. félagsmálaráðuneytisins, Gissur Pétursson. Í minningu vinar. Það voru mikil sorgartíðindin þegar ég fékk fréttir af því að Halldór Grönvold, félagi minn og afar náinn samstarfsmaður til margra ára, væri fallinn frá langt um aldur fram. Dóri var mikill hugsjónamaður og hafði bæði djúpan skilning og brennandi áhuga á réttindabaráttu launa- fólks, en hann hafði helgað alla sína starfsævi að málefnum þess. Innsýn hans og skilningur á gangverki vinnumarkaðarins og mikilvægi þess að standa vörð um bæði stöðu og sjálfstæði hins almenna launamanns var mikil og hæfileiki hans til að miðla þessu til okkar sem unnum með honum var aðdáunarverð. Þetta innsæi hans skilaði sér við mótun starfsmenntamála og námstæki- færi fyrir þá sem minnsta mennt- un hafa, uppbyggingu og þróun fæðingar- og foreldraorlofs bæði mæðra og feðra, stöðu erlendra starfsmanna og baráttu gegn hvers konar brotastarfsemi á vinnumarkaði og misnotkun. Fá- ir ef nokkur hefur haft eins mót- andi áhrif á uppbyggingu og þró- un íslenska vinnumarkaðsmód- elsins með sín sterku tengslu við hina norrænu samfélagsgerð, enda var hann afar duglegur að minna okkur á arfleifð okkar úr hreyfingu norrænna jafnaðar- manna. Ég naut þess að geta unnið með Dóra undanfarna mánuði að mótun tillagna um vinnumarkaðsaðgerðir fyrir þá sem misst hafa vinnuna í kjölfar Covid-19-faraldursins og var framlag hans að venju bæði mikið og verðmætt. Hans verður mikið saknað en mun jafnframt lifa áfram í minningunni sem góður félagi. Ég sendi Grétu, Evu og Arnari og aðstandendum mínar dýpstu og innilegustu samúðar- kveðjur. Gylfi Arnbjörnsson. Þegar ég hóf störf hjá Alþýðu- sambandi Íslands sl. vor var ég sérstaklega meðvituð um að hlut- verkum okkar Halldórs Grönvold væri dálítið skringilega skipt, eins og stundum vill verða þegar kynslóðaskipti standa fyrir dyr- um. Hann bjó yfir yfirburða- þekkingu og menntun á sviði vinnumarkaðsmála og tæplega þriggja áratuga starfsreynslu innan ASÍ. Ég var nýgræðingur á þessu sviði og langt frá því að komast með tærnar þar sem hann hafði hælana. Á okkar fyrsta fundi lagði Halldór línurn- ar: „Ég vil að þér gangi vel í starfi,“ sagði hann, „vegna þess að ég vil að ASÍ gangi vel.“ Við þetta stóð hann, hann studdi við bakið á mér – skilyrðislaust en ekki gagnrýnilaust – og ekki vegna þess að ég hefði á einhvern hátt áunnið mér tryggðina, held- ur vegna þess að ASÍ átti tryggð hans alla. Halldór tileinkaði verkalýðs- hreyfingunni starfsferil sinn og líf. Hann gjörþekkti hreyfingu launafólks á Íslandi og allt um- hverfi hennar og lét einnig til sín taka í alþjóðastarfi fyrir hönd ASÍ. Halldór ritaði fundargerðir miðstjórnar ASÍ nánast óslitið frá árinu 1993 og fram í ágúst á þessu ári, en það hlutverk gat krafist mikillar lagni í eldfimu umhverfi. Halldór átti ríkan þátt í að móta þau réttindi sem launa- fólk nýtur á Íslandi í dag og var þekktur fyrir að mæta því af hörku ef hann taldi að þeim rétt- indum vegið. Í tilfelli sumra leiðir langur starfsaldur til stöðnunar, en það átti sannarlega ekki við um Hall- dór. Hann var uppfullur af hug- myndum og eldmóði, opinn fyrir nýjum straumum og fylgdist sér- staklega vel með þróun verka- lýðsmála á alþjóðavettvangi. Eftir að hann var lagður inn á spítala í lok ágúst sl. vorum við reglulega í sambandi eða þar til veikindin urðu til þess að hann átti erfitt með að tala í síma. Á sjúkrabeðinum las hann yfir drög að frumvarpi til nýrra starfs- kjaralaga sem innihélt sum af baráttumálum hans til langs tíma og ég veit það fyrir víst að hann las fundargerðir af miðstjórnar- fundum sér til skemmtunar. Halldór var farinn að leggja drög að starfslokum. Sú fyrirætl- an þótti okkur á skrifstofunni skiljanleg en um leið kvíðvænleg, enda vissum við hreinlega ekki hvernig við ættum að fara að án hans. Nú höfum við víst ekki val um annað. En verkefni okkar er skýrt: að halda áfram með ævi- starf Halldórs Grönvold. Kæri félagi, takk fyrir sam- fylgdina, farðu í friði. Við munum gera okkar besta og starfa áfram í þínum anda. Gretu, Evu og fjölskyldu og Arnari votta ég mína dýpstu sam- úð. Halla Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri ASÍ. Það er sárt að kveðja góðan fé- laga allt of snemma. Halldór var sannur baráttumaður fyrir mál- efnum launafólks. Hafði mjög yf- irgripsmikla þekkingu á öllu því umhverfi og hvernig þurfti að bæta það. Réttsýnn og einstak- lega mikill fagmaður sem var óstöðvandi í vinnu, samviskusam- ur með eindæmum. Ég er afar þakklátur fyrir að hafa fengið að starfa með honum þau ár sem ég hef komið að verkalýðsmálum. Eðli máls samkvæmt þá vorum við ekki alltaf sammála á öllum sviðum en með samtalinu og sam- vinnu var hægt að finna réttu leiðina áfram. Ég vissi það að ef ég vildi fræðast um hin ýmsu mál- efni þá kom ég aldrei að tómum kofunum, Halldór hafði mjög mikla ástríðu fyrir því að segja frá og upplýsa fólk um málefnin og gerði það vel. Halldór helgaði verkalýðs- hreyfingunni sitt ævistarf og á stóran þátt í mörgum sigrum sem við höfum náð á undanförnum áratugum. Ég get talið upp ótal málefni en rétt er að nefna eitt það stærsta sem snýr að því að stöðva brotastarfsemi á vinnu- markaði, en réttindabarátta og það lykilatriði að komið sé fram við launafólk með réttum hætti átti hug hans allan. Hann leiddi einnig vinnu við stuðning við at- vinnuleitendur og að standa vörð um þeirra hagsmuni, alþjóðamál svo örfá dæmi séu nefnd. Halldór fylgdist ekki bara vel með öllum þessum málum heldur lét hann til sín taka á öllum vígstöðvum. Ég minnist mikils baráttu- manns, einstaklega góðs félaga sem kvaddi okkur allt of snemma. Ég sendi fjölskyldu Halldórs innilegar samúðarkveðjur á þess- um erfiðu tímum. Blessuð sé minning Halldórs. Kristján Þórður Snæ- bjarnarson, formaður RSÍ og 1. varaforseti ASÍ. Það er þungt að skrifa um Dóra í þátíð. Við Eva vorum bara unglingar þegar við tókum saman og Greta og Dóri því verið mér sem önnur fjölskylda í yfir tvo áratugi. Dóri var einstakur baráttu- maður. Til áratuga barðist hann fyrir bættum hag hinna vinnandi stétta. Hann var trúr sínum gild- um og bar jafnframt gott skyn- bragð á samhengi samfélagsins. Hann var hreinn og beinn og vissi að ekki var tjaldað til einnar næt- ur í samningum. Hann naut því ekki einungis virðingar sinna samherja heldur ekki síður þeirra sem voru í forsvari vinnumarkað- arins í heild. Þótt hann hafi barist fyrir al- þýðuna minnist ég hans sem bar- áttumannsins okkar. Fjölskyldan var í forgrunni. Hann dreif okkur áfram með jákvæðni og einstakri blöndu af rósemi og galsa. Við treystum á hann og hann var traustsins verður. Ég lærði mikið af Dóra og það á fjölbreyttari hátt en ég gerði mér alltaf grein fyrir. Í mörg ár mættum við Eva í sunnudagsmat í Fannafoldina. Jafn oft rökrædd- um við Dóri málefni hversdags- ins. Nánast hvern sunnudag heyrðist frá mæðgunum úr eld- húsinu: „Djöfull er þetta leiðin- legt, æi nenniði að hætta þessu!“ Ég viðurkenni að við vorum ekki mjög áheyrilegir. Dóri naut sam- talsins, þótt honum þætti ég eðli- lega svolítill jólasveinn. Ég var ekki orðinn tvítugur en þó viss um að ég vissi allt. Hann vissi bet- ur og smám saman áttaði ég mig á því líka. Með aukinni gagn- kvæmri virðingu skildum við hvor annan betur og á endanum hætt- um við þessu sunnudagsröfli. Ég man ekki hvernig það gerðist en ég veit þó að þá glöddust mæðg- urnar. Greta og Dóri voru fyrirmynd- arhjón með sínar krúttlegu hefð- ir, íhaldssemi og samheldni. Við áttuðum okkur ekki á því hvers vegna þau fóru ár eftir ár á sama hótelið, sömu ströndina og sömu veitingastaðina í sumarfríinu á Ítalíu. Þetta var samt ekkert svo flókið. Þarna leið þeim vel saman og engin ástæða til að breyta því sem gaf þeim svona mikið. Þau breyttu þó til á endanum því í vor fórum við öll saman til Tenerife. Við hugsuðum það ekki þá en nú er ómetanlegt að eiga þessar minningar af yndisfríi með afa og ömmu. Þegar Benedikt, svo Baldur og að lokum Hildur María komu til sögunnar blómstaði Dóri sem aldrei fyrr. Afi Dóri var uppá- halds-Dórinn minn. Barnabörnin fengu alltaf fyrsta sætið. Hann var barnabarnagóður með ein- dæmum þótt okkur Evu þætti stundum nóg um fíflalætin. Krakkarnir voru ósammála. Dóri naut sín best með þeim. Afa Dóra og þessara fíflaláta mun ég sakna ósegjanlega. Strákarnir eiga margar góðar minningar um afa Dóra. Mikið hefði ég óskað þess að þeim minn- ingum hefði fjölgað og Hildur María hefði líka eignast þær. Það verður erfitt fyrir krakkana að eiga ekki afa Dóra en þau munu hugsa vel um ömmu sína, verða dugleg að heimsækja hana og veita henni lit í líf sitt. Við vorum og erum alls ekki undir þessi örlög búin. Að Dóri sé farinn innan við þremur mánuð- um eftir að hann mætti upp á spít- ala er einfaldlega þyngra en tár- um taki. Lífið án Dóra verður tómlegt og skrýtið. Við kunnum ekkert á það líf en við munum takast á við það. Dóri sagði við Evu á spítalanum í haust: „Við gerum þetta saman.“ Þótt liðið sé einum manni færra, miklu fyrr en við gerðum ráð fyrir, þá stöndum við sem eftir erum saman sem eitt og gerum þetta saman. Dóri vildi það og það gerum við fyrir hann og fyrir okkur. Elsku besti Dóri okkar, takk fyrir allt. Björgvin Ingi. Í ár kvíði ég Þorláksmessu- kvöldi, ekki vegna þess að ég þarf að smakka skötuna eins og alltaf heldur af því ég hef ekki Dóra til að gretta mig framan í á meðan ég borða þennan skyldubita. Dóri sem ég vissi ekki að væri nafni minn fyrr en ég varð eldri (af því að fyrir mér var hann bara Dóri, ekki Halldór Grönvold, það var svo formlegt) var einstakur mað- ur og ég gæti ekki verið þakklát- ari foreldrum mínum fyrir að hafa eignast svona góða vini eins og Dóra og Gretu. Að hafa fengið að alast upp með þessum vinahópi voru algjör forréttindi. Það var alltaf stuð og mikið hlegið og þar lék Dóri stórt hlutverk, sérstak- lega fyrir okkur krakkana. Hann var alltaf til í leik með okkur þrátt fyrir að það gæti þýtt að á hann yrði gegnvotur eftir vatnsbyssu- árás eða marinn eftir einhvern hnoðleikinn. Dóri skilur eftir sig stórt skarð í þessum einstaka vinahópi for- eldra minna sem ég veit að aldrei verður hægt að fylla. Við sem eft- ir erum munum hins vegar ylja okkur við minningarnar um hjarthlýja, duglega og besta Dóra sem vildi allt fyrir alla gera. Sér- staklega sjá til þess að allar kon- urnar fengju sinn bjór á slaginu klukkan 11, ég mun passa að það gleymist ekki. Elsku Dóra þakka ég utan- landsferðirnar, sumarbústaða- ferðirnar, milljón pottaferðirnar, hátíðirnar, hláturinn og gleðina. Í ár mun ég borða minn skyldubita af skötu, gretta mig framan í hvern þann sem vill horfa, hugsa til Dóra og fara svo og fá mér pizzu eins og hann gerði með okk- ur. Gretu, Evu og Arnari og fjöl- skyldu votta ég mína dýpstu sam- úð. Halldóra Fanney Jónsdóttir (Hátína). Það er tómlegt á skrifstofu ASÍ. Félagi Halldór Grönvold er fallinn frá og við sem eftir sitjum erum harmi slegin og söknum kærs samstarfsmanns. Það hefur verið höggvið stórt skarð í raðir íslenskrar verka- lýðshreyfingar. Það hefur ekki síður verið höggvið stórt skarð í raðir okkar starfsmanna á skrif- stofu Alþýðusambandsins. Sterki hlekkurinn í keðjunni sem við treystum á og trúðum að yrði til staðar svo lengi enn, er skyndi- lega farinn. Halldór starfaði hjá ASÍ í tæpa þrjá áratugi og byggði á þeim tíma upp yfirburðaþekk- ingu á vinnumarkaðs- og verka- lýðsmálum. Hann lifði og hrærð- ist í baráttu launafólks fyrir betri kjörum í hvaða mynd sem er. Hann var alltaf að – því það var lífsstíll Halldórs að berjast fyrir því sem hann taldi vera rétt og bæta samfélagið. Halldór var hafsjór af fróðleik og það er sárt til þess að hugsa að geta ekki lengur laumað sér inn á skrifstofuna hans og ausið af þeim viskubrunni sem hann var. Við eigum öll okkar einstöku minningar um góðan dreng, sem alltaf var tilbúinn að hlusta og koma með góð ráð. Hann gaf sér alltaf tíma og átti alltaf svör ef málefnið snerti vinnumarkaðinn eða réttindabaráttu launafólks. Það verða aðrir til að rifja upp öll þau framfaramál sem Halldór setti mark sitt á. Þau eru fjöl- mörg og snerta flesta landsmenn á einn eða annan hátt. Hann var einnig fastur fyrir og ekki síst þegar tekist var á um málefni sem hann var sannfærður um að væri verkalýðshreyfingunni til góða – launafólki í hag. Halldór var stríðinn og hafði sérstakt yndi af aulahúmor og misgóðum ferskeytlum sem hann kastaði fram þegar síst varði. Við munum sakna þeirra stunda þeg- ar blik kviknaði í augum Halldórs og grallarinn í honum vaknaði. Það verður ekki lengur vitnað í Útvarp Matthildi á kaffistofunni með tilheyrandi látbragði né rifj- aðar upp allar kommasellurnar sem spruttu upp á 8. áratugnum og Halldór var hluti af. Við kveðjum góðan dreng, frá- bæran félaga og mikinn baráttu- mann með hlýju í hjarta og þakk- læti fyrir samfylgdina. Fjöl- skyldunni, Gretu, Evu, Arnari og barnabörnunum þremur sendum við okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Missir þeirra er mestur. F.h. samstarfsfólks ASÍ, Maríanna Traustadóttir. Starfsfólk Samtaka atvinnu- lífsins kveður Halldór Grönvold með þökk og söknuði. Í störfum sínum fyrir Iðju, félag verk- smiðjufólks, og Alþýðusamband Íslands var Halldór í miklum samskiptum við starfsfólk SA og fyrirrennara þeirra, VSÍ og Vinnumálasambandið. Þau sam- skipti einkenndust af heilindum og hlýju viðmóti. Halldór sat í fjölmörgum nefndum, ráðum og stjórnum f.h. ASÍ ásamt fulltrúum SA. Hann mætti ávallt vel undirbúinn á fundi og við töku ákvarðana. Hann hafði gjarnan mikið gagna- magn í bakpokanum og möppur undir hendi, reiðubúinn að taka þátt í umræðu og halda á lofti sjónarmiðum verkalýðshreyfing- arinnar. Fáir þekktu eins vel til umræðu á vettvangi ESB um hagsmunamál launafólks og dóma sem fallið höfðu um túlk- anir á mikilvægum tilskipunum ESB. Þau gögn hafði hann gjarn- an í seilingarfjarlægð á fundum. Starfsmenntamál verka- og iðnverkafólks voru Halldóri sér- staklega hugleikin. Hann var ákafur talsmaður þess að veita þeim sem falla brott úr formlega skólakerfinu „annað tækifæri til náms“, til að bæta stöðu þeirra á vinnumarkaði og í samfélaginu. Þegar Halldóri mislíkaði til- lögur eða umræða fór það ekki á milli mála. Þá átti hann til að hvessa sig og tala hátt og lengi. Enginn tók gagnrýni hans per- sónulega enda byggði hún jafnan á mati á staðreyndum, stefnu verkalýðshreyfingarinnar og málefnalegum sjónarmiðum. Hann var rökfastur og lausna- miðaður og náði fyrir vikið ár- angri í störfum sínum. Þessir persónulegu eiginleikar og þekk- ing öfluðu Halldóri virðingar þeirra sem áttu í samskiptum við hann. Við sendum Gretu Baldurs- dóttur, eiginkonu hans, fjöl- skyldu og vinnufélögum innileg- ar samúðarkveðjur. Fyrir hönd starfsfólks Sam- taka atvinnulífsins, Halldór Benjamín Þorbergsson. MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 2020 JÓN SIGURÐUR EIRÍKSSON Drangeyjarjarl lést 24. nóvember. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju klukkan 13 þriðjudaginn 8. desember að viðstöddum nánustu aðstandendum. Streymt verður frá athöfninni á: https://youtu.be/2kfc2cdSf_o og á fésbókarsíðu Sauðárkrókskirkju. Sérstakar þakkir fær heilbrigðisstarfsfólk HSN á Sauðárkróki fyrir einstaka umönnun og hlýju. Eiríkur Jónsson Sigurjón Jónsson Viggó Jónsson Sigmundur Jónsson Alda Jónsdóttir Sigfús Agnar Jónsson Björn Sigurður Jónsson Ásta Birna Jónsdóttir Brynjólfur Þór Jónsson Jón Kolbeinn Jónsson og fjölskyldur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.