Morgunblaðið - 07.12.2020, Page 21
MINNINGAR 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 2020
✝ Gissur Sigurðs-son fréttamað-
ur fæddist 7. des-
ember 1947 í
Hraungerði í Flóa.
Hann lést á Land-
spítalanum 5. apríl
2020.
Foreldrar hans
voru Stefanía Giss-
urardóttir og séra
Sigurður Pálsson
vígslubiskup og var
Gissur næstyngstur sjö systk-
ina. Níu ára gamall flutti Gissur
með fjölskyldu sinni á Selfoss og
átti þar heima fram undir tví-
tugt.
Á unglingsárum starfaði
Gissur við hin ýmsu störf til sjós
og lands, stundaði flugnám og
isfréttir í um aldarfjórðung.
Vakti þar eftirtekt og naut hylli
fyrir skemmtilega pistla og frá-
sagnargleði í morgunþættinum
Í bítið.
Til hliðar við fréttamennsk-
una kom hann meðal annars að
gerð fræðslu- og kynning-
arefnis. Þá brá leikaranum Giss-
uri fyrir sem vofu Hauks Mort-
hens söngvara í myndinni Úr
öskunni í eldinn sem sýnd var í
sjónvarpi árið 2000.
Gissur lætur eftir sig fjögur
börn sem eru Guðbjörg útgef-
andi, Gissur Páll söngvari, Jón
Grétar, kvikmynda- og þátta-
gerðarmaður, Hrafnhildur,
myndlistarmaður og sýning-
arstjóri. Fósturdóttir Gissurar
er Helga Auðardóttir sálfræð-
ingur.
Útför Gissurar hefur ekki
farið fram en verður auglýst
síðar.
aflaði sér réttinda
sem einka-
flugmaður.
Hinn 1. október
1970 hóf Gissur
störf sem blaða-
maður á Alþýðu-
blaðinu og starfaði
þar í tæplega fjög-
ur ár. Var svo um
skeið ritstjóri Sjáv-
arfrétta, en kom til
starfa á Dag-
blaðinu í byrjun árs 1976. Gissur
varð fréttamaður á Ríkisútvarp-
inu árið 1981 og gat sér þar orð
meðal annars fyrir mannlífs- og
sjávarútvegsfréttir. Hann færði
sig svo yfir á Bylgjuna 1997 og
starfaði þar fram á síðasta ár.
Sagði þar morgun- og hádeg-
Gamla Alþýðublaðið var eins
konar grunnskóli í blaða- og
fréttamennsku. Þangað kom til
starfa ungt fólk, sem áhuga hafði á
að starfa á því sviði. Sumum tókst.
Öðrum ekki. Þeim, sem tókst,
buðust aðrir starfsvettvangar þar
sem betur var hægt að borga en
hægt var á Alþýðublaðinu. Þannig
urðu blaðamenn á Alþýðublaðinu
sumir fréttastjórar á Morgun-
blaðinu eða efnisstjórnendur þar,
aðrir berandi sjónvarps- og út-
varpsfréttamenn bæði í Ríkisút-
varpi, Ríkissjónvarpi og á öðrum
útvarps- og sjónvarpsstöðvum og
enn aðrir sem urðu áberandi í öðr-
um störfum í fjölmiðlaheiminum.
Á Alþýðublaðinu nam þetta unga
fólk af mönnum eins og Sigvalda
Hjálmarssyni, Vilhelm, frænda
mínum, Kristinssyni, Sigurjóni
Jóhannssyni, Ómari Valdimars-
syni, Bjarna Sigtryggssyni, Helga
E. Helgasyni, Helga Daníelssyni,
Freysteini Jóhannssyni og - síðast
en ekki síst - af Gísla J. Ástþórs-
syni, sem stýrði blaðinu hin síðari
ár mín þar þótt þess væri ekki
getið í haus blaðsins. Mikill og
traustur félagi, betur að sér í öll-
um atriðum blaðamennsku en
flestir ef nokkrir samferðamenn
hans.
Einn af þeim ungu mönum,
sem komu til starfa á Alþýðu-
blaðinu á meðan ég starfaði þar,
var Gissur Sigurðsson. Við vorum
að huga að nýráðningum. Ólafur,
eldri bróðir Gissurar, traustur og
vel metinn fréttamaður, hafði þá
samband við okkur og sagði að
Gissur, bróðir hans, væri á lausu.
Við þóttumst vita, að hann myndi
ekki skorta fréttamannseðlið
fremur en bróðurinn og réðum
hann á stundinni. Næstu árin á
eftir var hann mikill og góður
samstarfsmaður sem vann sér
fljótt álit og helgaði sig síðan því
starfi, sem hann hóf á Alþýðu-
blaðinu, og gat sér hvarvetna
mjög gott orð. Ekki bara hjá
þeim, sem hann stundaði vinnu
hjá, heldur einnig og ekki síður
hjá þeim, sem hann starfaði fyrir -
fólkinu í landinu. Ég á margar og
góðar minningar frá þeim árum,
sem við Gissur störfuðum saman á
Alþýðublaðinu. Ekki bara um
hann heldur allt það góða fólk,
sem með okkur vann. Enginn
þeirra mun enn starfa við fjölmiðl-
un nema ef væri Sigtryggur Sig-
tryggsson.
Fyrir u.þ.b. fimm árum töluð-
um við Gissur um að boða til
starfsmannafundar með öllum
þessum gömlu starfsfélögum á Al-
þýðublaðinu. Við vorum búnir að
velja stund og stað - en svo kom
eitthvað upp á, svo ekkert af því
varð. Nú er það líklega orðið allt
of seint. Of margir horfnir yfir
móðuna miklu og aðrir ekki
fundaviljugir. Þeir, sem eftir eru,
verða að láta sér nægja að orna
sér við minningarnar. Það geri ég
nú, þegar ég kveð minn gamla
starfsfélaga. Orna mér ekki bara
við minninguna um hann heldur
okkar gamla vinnustað og alla þá,
sem þar voru daglegir félagar, oft
á erfiðum stundum.
Ég sendi afkomendum Gissur-
ar og starfsfélögum hans öllum,
gömlum og nýjum, einlægar sam-
úðarkveðjur. Góður og gegn
blaða- og fréttamaður er fallinn
frá. Að honum er eftirsjá.
Sighvatur Björgvinsson,
fyrrv. ritstjóri
Alþýðublaðsins.
Gissur Sigurðsson vaknaði fyr-
ir allar aldir, við fyrsta hanagal.
Hann var morgunmaður þjóðar
sinnar sem hafði skannað landið
og miðin þegar aðrir fóru á fætur.
Hann var fréttamaður af bestu
gerð, forvitinn sagnaþulur sem
kunni þá list að gæða mál sitt töfr-
um sagnamannsins og segja þjóð
sinni frá atburðum líðandi stund-
ar. Morgunstund gaf honum gull í
mund og sjálfsagt hefur hann
byrjað daginn við sólarupprás
með bleksvörtu kaffi.
Þræðir Gissurar lágu víða.
Hann ávann sér trúnað og vináttu
manna um land allt. Málrómurinn
var djúpur og magnaður og þegar
mikið lá við og alvarleg tíðindi bar
að garði dýpkaði röddin. Errin
urðu fleiri í framburðinum. Fólkið
lifði sig inn í atburði dagsins.
Hann las aldrei fréttir. Hann
sagði þær. Oft fékk maður á til-
finninguna að hann væri að tala
við mann sjálfan í eldhúsinu
heima. Svo þegar þannig viðraði í
dauðum sjó fréttanna ískraði allt
af hlátri og atburðirnir fengu á sig
mynd ævintýranna.
Afrek hans sem fjölmiðla-
manns liggja stærst í því að hafa
mótað Í bítið á Bylgjunni, sem
mesta áheyrn hefur haft sem
morgunútvarp hér um langa hríð.
Gissur átti vinsældum að fagna
sem útvarpsmaður og það lá alltaf
spenna í loftinu: „Hvað segir hann
í dag?“ Það var oft fár og elding í
orðum meistarans. Bítið varð
skemmtilegt og andi hans sveif yf-
ir vötnunum og gerir enn og þótt
hann hafi verið kominn á aldur þá
vildu þeir Bylgjumenn halda í
hann, því að röddin og andinn
höfðu segulafl.
Gissur var sjóari í eðli sínu.
Hann reri sem unglingur eina ver-
tíð frá Stokkseyri og þráði sjóinn
eftir það. Hann ætlaði að verða
sjómaður. Hann var alltaf í vertíð-
arstemningu, friðlaus í aflahrot-
um fréttanna, og fljótur að gera að
og koma aflanum frá sér. Gissur
fæddist í Hraungerði, en ólst einn-
ig upp á Selfossi. Foreldrar hans
byggðu heimili sitt um þjóðbraut
þvera. Heimilið stóð öllum opið.
Þar komu margir en í borðstofu
Stefaníu Gissurardóttur voru allir
jafnir og hver og einn var þar
heiðursgestur. Margir áttu erindi
við föður hans, prestinn og vígslu-
biskupinn. Börnin drukku í sig
fróðleikinn frá doktor Sigurði
Nordal og séra Friðriki Friðriks-
syni. Einnig sögur bænda, sjó-
manna, nágranna og vina.
Æskuheimili Gissurar í Hraun-
gerði og Selfossi var háskóli í
mannlegum samskiptum. Það
gerði Gissur djarfan og skilnings-
ríkan um mannlega reisn og rétt
fólksins. Hann var lausastur allra
manna við að gera sér mannamun
og þrátt fyrir að bera þá sigurkór-
ónu að vera talinn skemmtilegast-
ur allra var hann líka maður sem
undi vel einn og með sjálfum sér.
Í mögnuðu viðtali á jóladag á
Bylgjunni, þar sem Heimir Karls-
son ræddi við Gissur um líf hans
og skoðanir, kom fram djúp þekk-
ing hans og virðing fyrir auðlind-
um lands og sjávar. „Við eigum
svo gríðarlegar auðlindir að á Ís-
landi er varla hægt að klúðra
framtíðinni,“ sagði hann í lokin. Á
sprengidaginn síðasta kvöddumst
við hinstu kveðju í Seljakirkju. Ég
var ræðumaður en nú var það
Gissur Páll sonur hans sem fyllti
kirkjuna af söng eins og amma
söngvarans gerði svo oft. Að lok-
um söng Gissur Páll Hamraborg-
ina við slíkt lófatak að aldrei ætl-
aði fögnuðinum að linna.
„Einn straumur, sem líður, ein
stund, sem þver!
Streymandi mannhaf sem kemur
og fer,
ég hverf þér í opna arma.“
(E. Ben.)
Minningin lifir um góðan
dreng.
Guðni Ágústsson.
Mig langar að biðja Morgun-
blaðið að birta fáein minningarorð
um vin minn Gissur Sigurðsson á
afmælisdegi hans.
Það var í októberbyrjun 1970
sem undirritaður hóf störf sem
blaðamaður á Alþýðublaðinu sál-
uga, sem þá var til húsa í Alþýðu-
húsinu við Hverfisgötu. Ég var
kynntur fyrir ungum manni sem
var að hefja sinn blaðamannsferil
þennan sama dag. Hann hét Giss-
ur Sigurðsson frá Selfossi. Á þess-
um árum var ekki algengt að
menn kysu að gera blaðamennsku
að ævistarfi. En það átti fyrir okk-
ur Gissuri að liggja. Við vorum
báðir „fréttakallar“ af gamla skól-
anum, vildum segja fólki fréttir og
ekki var verra að skúbba í leiðinni!
Ritstjórn Alþýðublaðsins var í
þá daga blanda af reynsluboltum
og yngra fólki. Ritstjórarnir, Gísli
J. Ástþórsson og Sighvatur
Björgvinsson, voru samtaka um
að gefa út gott blað þótt útgáfan
væri oftar en ekki auralítil. Þetta
voru afar skemmtileg ár og var
það ekki síst Gissuri að þakka.
Hann smitaði svo sannarlega út
frá sér með gríni og sinni léttu
lund.
Áður en varði skildi leiðir. Ég
fór á Moggann árið 1974 og Gissur
hélt á önnur mið um svipað leyti.
Síðar, eða árið 1981, lá leið hans í
útvarpið og varð fréttamennska í
útvarpi hans sérgrein eins og al-
þjóð veit. Hvert mannsbarn
þekkti rödd Gissurar og treysti
fréttunum sem hann færði lands-
mönnum þegar þeir vöknuðu á
morgnana. Hann varð rödd
Bylgjunnar rétt eins og kollega
hans Broddi Broddason á RÚV.
Þátttaka Gissurar „Í bítinu“ á
Bylgjunni er eftirminnileg. Hann
kom í þáttinn á hálfa tímanum,
spjallaði við Heimi og Gulla, sagði
sögur og hló sínum sjarmerandi
hlátri.
Það hafa verið erfiðir tímar á
Íslandi undanfarið og þá leitar
fólk efrir fréttum til hefðbund-
inna miðla, hvort sem það eru
dagblöð, útvarp, sjónvarp eða
netmiðlar. Ég er viss um að marg-
ir sakna þess að Gissur hafi ekki
verið til staðar til að færa þeim
fréttirnar á tímum veirunnar með
sinni traustvekjandi röddu.
Þótt langt sé um liðið síðan við
Gissur unnum saman á Alþýðu-
blaðinu héldum við alltaf sam-
bandi. Við höfum annað slagið
farið út að borða saman til að
halda upp á starfsafmæli okkar
beggja. Ég heyrði í honum í síma
fyrir síðustu jól og þá hafði hann
glímt við veikindi. Við sammælt-
umst um að hittast á þessu hausti
og halda upp á 50 árin. Það hefði
orðið skemmtistund eins og alltaf
þegar við Gissur hittumst. En
ekkert varð af þeim vinafundi, því
miður. Það er mikill missir að
Gissuri Sigurðssyni fréttamanni.
Blessuð sé minning hans.
Sigtr. Sigtryggsson.
Ég hitti hann fyrst fyrir meira
en 60 árum við brúarsporðinn á
Ölfusárbrúnni, Tryggva-
skálamegin. Hann var dökkur yf-
irlitum, stóreygur og blikkaði
augunum hægt. Örlítið útskeifur
og breyttist það ekki með árun-
um. Ég spurði hver hann væri og
sagðist hann heita Gissur og
pabbi sinn væri presturinn. „Og
þetta er hann Lubbi,“ sagði Giss-
ur síðan og kynnti mig þar með
fyrir hundinum sínum. Þannig
hófst vinasamband okkar Gissur-
ar sem stóð í hartnær 64 ár eða
meðan báðir lifðu. Það er reyndar
merkilegt að svo sterk tengsl
mynduðust á milli okkar því
áhugamál sem gripu mig sterkum
tökum sem strák og ungling,
íþróttir og veiðar, létu Gissur
ósnortinn með öllu.
Gissur var alinn upp á miklu
menningarheimili og bar þess
merki alla tíð. Foreldrar hans
voru séra Sigurður Pálsson
vígslubiskup og Stefanía Gissur-
ardóttir, vel gert og greint fólk.
Mikill gestagangur var á heim-
ilinu og öllum tekið sem höfðingj-
ar væru. Stefanía hláturmild og
skellti sér á lær en Sigurður hæg-
látur og dagfarsprúður. Alltaf
höfðu þau tíma fyrir okkur strák-
ana og ekki oft sem presturinn
þurfti að gefa okkur alvarlegt til-
tal en kom þó fyrir. Við grínuð-
umst með það eftir slíkt tiltal að
við værum eins og heilagir menn.
Við héldum síðan hvor sína leiðina
á lífsins braut eins og gengur en
alltaf hélst sambandið heilt og
tært. Á menntaskólaárunum eftir
að ég hafði kynnst konu minni
varð þetta nokkurs konar þríeyki
og var sambandið milli okkar
þriggja sterkt. Hin seinni ár
styrktist sambandið enn frekar.
Það varð fljótlega ljóst að Gissur
átti auðvelt með að koma hugsun
sinni vel frá sér svo gaman var á
að hlýða. Það varð og hans starfs-
vettvangur ef svo má segja og
naut hann vinsælda sem útvarps-
og fréttamaður. Gissur naut þess
vel að vera á mannamótum og
ræða við fólk og var gjarnan hrók-
ur alls fagnaðar og ekki skemmdi
það stemninguna ef glóði vín á
skál. Þá gat nú orðið verulega
skemmtilegt. Ef „veika kynið“
var einnig til staðar og blakti pils-
faldur færðist nú oft fjör í leikinn.
Anna talaði stundum til okkar
eins og værum við smástrákar,
misákveðin eftir tilefninu, og
hafði Gissur oft gaman af því þó
að oftast tæki hann tiltalinu af al-
vöru og íhugaði það og ræddi
áminninguna við Önnu af alvöru.
Eins og þessi fáu orð bera með
sér var og er það ekki meiningin
að rekja hér ævi Gissurar eða
ótalmargar skemmtilegar og
ógleymanlegar samverustundir
heldur að minnast góðs vinar og
sterkrar og fölskvalausrar vin-
áttu allt frá okkar fyrsta fundi.
Gissur lenti í ýmsu í lífsins ólgusjó
eins og gengur en alltaf skilaði
hann sér upp á ströndina aftur.
Við viljum minnast Gissurar sem
trausts og góðs vinar og þakka
allar þær skemmtilegu stundir
sem við áttum saman. Þín verður
saknað hér á okkar bæ um jól og á
öðrum stórum stundum í lífi okk-
ar, sem þú gjarnan tókst þátt í á
liðnum áratugum. Gissur hefði
ekki viljað einhverja viðkvæmni
eða væmni og því er þetta minn-
ingarkorn skrifað í þessum dúr.
Þakka þér allar stundirnar, kæri
vinur.
Þínir vinir,
Einar Sigfússon,
Anna K. Sigþórsdóttir.
Gissur Sigurðsson, góður fé-
lagi okkar, er fallinn frá. Við
æskufélagar hans upplifðum það
á liðnum áratugum að Gissur var
vinur vina sinna. Við kynntumst
honum er hann flutti að Selfossi 9
ára gamall. Oft hefur verið haft á
orði að vináttubönd æskuára séu
tryggust allra, vari lengst og sú
varð raunin með vináttu okkar.
Við félagar hans áttum sam-
neyti við hann á ýmsum sviðum
eftir að við lukum prófi frá Mið-
skólanum á Selfossi, sumir við
Menntaskólann að Laugarvatni
og aðrir á öðrum sviðum. Hann
varð snemma þjóðkunnur sem
fréttamaður hjá öllum helstu fjöl-
miðlafyrirtækjum landsins, enda
var hann mjög fundvís á fréttir,
hvað væri frétt og hvað ekki. Sér-
staklega voru fréttaumfjallanir
hans um aðalatvinnuveg þjóðar-
innar, sjávarútvegsmál, vandaðar
og ítarlegar, enda hafði hann verið
til sjós í nokkurn tíma eftir að
námi hans í menntaskóla lauk og
þekkti því þar vel til. En þótt al-
varan væri ávallt aðalmálið í
fréttaumfjöllunum hans var þó oft
stutt í gamansemina, sem lands-
mönnum hugnaðist vel og aflaði
honum mikilla vinsælda. Á langri
starfsævi sem fréttamaður naut
hann sín alltaf ótrúlega vel, allt
fram á sinn síðasta vinnudag, þótt
hann væri orðinn alvarlega veik-
ur.
Við félagar hans höfum hist
reglulega síðustu 30 árin, yfirleitt
með því að snæða mánaðarlega
saman hádegisverð og taka stöð-
una á því sem mest ber á góma
hverju sinni. Þá höfum við eflt
okkar vinskap enn betur og farið í
helgarferðir út á land einu sinni til
tvisvar á ári til að spjalla saman og
rifja upp eftirminnilegar og góðar
minningar og þar fór félagi okkar
Gissur fremstur í flokki. Ferðin til
London í tilefni af sjötugsafmæl-
um okkar er þar efst í minni.
Í þessum félagsskap okkar
naut Gissur sín vel, enda hafði
hann það á orði að í fámennum
vinahópi eða hjá börnum sínum og
barnabörnum liði sér best utan
vinnunnar þar sem hann væri þar
eiginlega allra persóna. Gissur var
afskaplega góður sögumaður,
kunni þær margar og hafði gaman
af að segja okkur frá lífsreynslu
sinni, og nutum við frásagna hans
vel. Hann var gleðigjafi á slíkum
samverustundum og þótti gaman
að fá sér í tána með okkur og taka
flugið um menn og málefni. Hann
þoldi ekki blekkingar eða tvö-
feldni og fór aldrei í manngrein-
arálit. Allir voru jafnir fyrir hon-
um, háir sem lágir. Hann gat
reiðst yfir framkomu einhverra
sem höfðu stundað ómerkilegheit
eða blekkingar og það þoldi hann
illa sem fréttamaður.
En allar voru okkar samræður
slíkar að við urðum aldrei sundur-
orða eða ósammála, málin voru
bara leyst. Það er til vitnis um þá
góðu vináttu og samkennd sem
einkenndi okkar samband.
Með andláti Gissurar verða
samkomur okkar öðruvísi en áður.
Við félagar vottum börnum Giss-
urar og fjölskyldu hans samúð.
Brynjólfur Á. Mogensen,
Helgi Bjarnason,
Jón Ólafsson,
Ólafur Hjaltason,
Örlygur Jónasson.
Gissur Sigurðsson
Elsku bróðir okkar, frændi, fóstbróðir
og vinur,
AUÐUNN GESTSSON,
blaðasali og skáld,
verður jarðsunginn frá Áskirkju föstudaginn
11. desember klukkan 13 að viðstöddum
nánustu aðstandendum. Útförinni verður streymt á
https://www.facebook.com/groups/audunngestsson
Gerður og Heiður Gestsdætur
og aðrir aðstandendur
Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar,
amma og langamma,
HULDA A. GARÐARSDÓTTIR
húsmóðir,
lést í faðmi fjölskyldunar á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja 28.
nóvember.
Aðstandendur vilja þakka starfsfólki HSS
fyrir einstaka umhyggju og alúð.
Böðvar Valdimarsson
Rósa A. Reynisdóttir Leó S. Reynisson
Líney E. Reynisdóttir Steinunn E. Reynisdóttir
Ástkær faðir okkar, bróðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
GRÉTAR KÉRÚLF INGÓLFSSON,
fyrrverandi skipstjóri,
lést á sjúkrahúsinu á Akureyri
miðvikudaginn 2. desember.
Bálför og jarðsetning fer fram síðar.
Guðrún Margrét Grétarsdóttir
Kolbrún Grétarsdóttir Jóhann Albertsson
Jón Kérúlf Grétarsson
Friðrik Ragnar Grétarsson
Guðmundur Ingi Grétarsson Sara Lind Dagbjartsdóttir
Gerður Ósk Grétarsdóttir Ólafur Þór Ingimundarson
Pétur Hafsteinn Ingólfsson Jóna María S. Kjerúlf
barnabörn og barnabarnabörn