Morgunblaðið - 07.12.2020, Síða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 2020
Útsölustaðir: Flest apótek, heilsuhillur stórmarkaða.
Enzymedica býður uppá öflugustu meltingarensímin á markaðnum
einungis eitt hylki með máltíð getur öllu breytt.
Meltingarónot, uppþemba,
vanlíðan, röskun á svefni og
húðvandamál eru algengir
fylgifiskar þegar gert er vel
við sig í mat og drykk.
■ Ensím eru nauðsynleg fyrir meltingu og
öll efnaskipti líkamans.
■ Betri melting, meiri orka, betri líðan!
■ 100% vegan hylki.
■ Digest Basic hentar fyrir börn
Gleðilega meltingu
Börn Karls eru Jónas Þór, f.
18.11. 1990, ökukennari á Akureyri;
tvíburarnir Ólína Ann og Stefanía
Ann, f. 3.10. 1995, námsmenn í Dan-
mörku, og Olga Kristín, f. 22.7.
2008, nemi við Grunnskólann á
Hvammstanga. Stjúpbörn Karls eru
Eðvarð Þór Helgason, f. 9.4. 1987,
vélstjóri og vélaverkfræðingur; Ár-
sæll Kristófer Ársælsson, f. 6.12.
1992, smiður, búsettur á Reykja-
skóla í Hrútafirði, í sambúð með
Svövu Karen Jónsdóttur, f. 8.10.
1984; Kristján Ársælsson, f. 5.5.
1994, verktaki á Hvammstanga, í
sambúð með Fríðu Mary Halldórs-
dóttur, f. 24.12. 1994, hárgreiðslu-
konu. Barnabarn er Ísabella Lind
Eðvarðsdóttir, f. 14.7. 2016.
Systkini Karls eru Gunnlaugur
Frosti Guðmundsson, f. 14.7. 1966,
verktaki og fv. bóndi á Söndum, en
núna búsettur á Mýrum 3, kvæntur
Guðrúnu Hálfdánardóttur hús-
freyju.
Foreldrar Karls eru Guðmundur
Karlsson, f. 27.10. 1931, d. 16.5.
2017, smiður og byggingarfulltrúi,
og Erla Stefánsdóttir, f. 27.6. 1929,
húsfreyja og bóndi á Mýrum 3 í
Hrútafirði, en býr núna á dval-
arheimili.
Karl
Guðmundsson
Ingibjörg Jóhannsdóttir
húsfreyja á Þverá og síðar
Efra-Núpi, Núpssókn
Páll Guðlaugsson
bóndi á Þverá og síðar Efra-Núpi,
Núpssókn
Jónína Pálsdóttir
húsfreyja og bóndi á Mýrum
Stefán Ásmundsson
bóndi á Mýrum
Erla Stefánsdóttir
húsfreyja og bóndi á
Mýrum 3 í Hrútafirði
Guðlaug Gestsdóttir
húsfreyja í Snartartungu, síðar
ekkja í Reykjavík
Ásmundur Einarsson
bóndi í Snartartungu í Bitrufirði,
Strand. síðar á Mýrum við
Hrútafjörð
Margrét Elísabet Benediktsdóttir
húsfreyja í Hnausakoti, síðar á
Staðarbakka
Guðmundur Gíslason
hreppstjóri og bóndi í Hnausakoti í
Miðfirði, síðar Staðarbakka
Sigríður Guðmundsdóttir
húsfreyja á Staðarbakka í
Miðfirði, dó ung
Karl Guðmundsson
bóndi á Staðarbakka í Miðfirði
og frumbyggi á Laugarbakka
og bifvélavirki
Magdalena Guðrún Einarsdóttir
húsfreyja á Svertingsstöðum og
Hvammstanga
Guðmundur Sigurðsson
bóndi Svertingsstöðum í
Miðfirði og kaupfélagsstjóri á
Hvammstanga
Úr frændgarði Karls Guðmundssonar
Guðmundur Karlsson
bóndi, smiður og
byggingafulltrúi á
Mýrum 3 í Hrútafirði
„ÉG VERÐ FRAMEFTIR Í KVÖLD. HANN
VILL KENNA MÉR KRULLU.”
„ÉG HELD AÐ ÉG SÉ AÐ FÁ MINNIÐ AFTUR!
SPYRÐU MIG AÐ ÞVÍ HVER SIGRAÐI Á HM Í
KNATTSPYRNU KARLA ÁRIÐ 2033.”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar þið fáið sömu
hugmyndina.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
SÆDÝRASAFN
HVAÐ EIGUM VIÐ MIKIÐ
AF TARTARSÓSU?
ÉG VIL FÁ
SMÁKÖKUNA MÍNA
NÚNA!
PABBI, VISSIRÐU
AÐ MOLDARGÓLF
GERIR DJÖFLINUM
AUÐVELDARA MEÐ
AÐ TEYGJA SIG UPP,
GRÍPA Í LAPPIRNAR
Á ÞÉR OG DRAGA ÞIG
TIL HELJAR!?
HELGA! VIÐ
FLÍSALEGGJUM
Á MORGUN!
Ólafur Stefánsson skrifaði á Boðn-armjöð 29. nóvember og kallar
„Kvart“:
Við eflumst í árstíðabaslinu,
þótt áfram við skrælumst á hnaslinu.
Það er nóvembernauð,
nagað hvert brauð,
í sótthemju síbyljudraslinu
Skýringar. Hnasl = lélegur við-
urgjörningur. Skrælast = draga
fram lífið.
Sótthemja = sóttvarnir. Síbylja =
óstöðvandi tal. Annað skýrir sig sjálft
Þann sama dag skrifaði Friðrik
Steingrímsson: „Snjótittlingarnir
bíða á þakinu meðan konan gefur
þeim kornið, enda les hún þeim pist-
ilinn ef þeir frekjast. Þessi varð til
þegar hún gaf þeim í morgun“:
Krílin litlu kornsins bíða
þó komin séu langan veg,
líkast munu lær’ að hlýða
af langri reynslu eins og ég.
Magnús Halldórsson segir svo frá:
„Samstarfskona mín bakaði vöfflur,
önnur rétti mér skál með rjóma og
bað mig að þeyta. Efasemdir voru
hvort ég gæti þeytt og sinnt gæslu.
Ég fullyrti að enginn vandi væri fyrir
karlmann að gera þrennt í einu.
Lauk vísunni fyrr en þeytingu“:
Úti í laug er allt í sóma,
una börn þar laus við sút.
Það er hægt að þeyta rjóma,
þó að maður horfi út.
Philip Vogler Egilsstöðum svar-
aði:
Þykir hérna þraut að gera þrennt í einu.
Eitt með Magga er enn á hreinu:
annar finnst ei betri í neinu.
Ólafur Stefánsson átti síðasta orð-
ið:
Sumum verður ei neitt úr neinu
næsta oft þá grípur fát.
En þegar hann gerir þrennt í einu
þá er samstarfskonan mát.
Guðrún Bjarnadóttir yrkir:
Rímorðið er mest við Mekku,
múslimunum þakkir fel.
Ég verð að nota Bröttubrekku,
bara því hún stuðlar vel.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir hélt
áfram:
Mér finnst líka ef ég fer til Mekka
að finna Alla á réttum stað
að vínleysið sé bölvuð brekka
en bara verð að hafa það.
Hallmundur Kristinsson yrkir á
feisbók:
Ég á í bölvuðu basli
og bjástri hvern einasta dag
í þessu djöfulsins drasli
sem drullast aldrei í lag!
Til að gera ekki vini sína áhyggju-
fulla tekur Hallmundur fram, að of-
anritað sé einungis rímsins vegna!
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af snjótittlingum og þrennt í senn