Morgunblaðið - 07.12.2020, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 2020
Ómar Ingi Magnússon og Viggó
Kristjánsson halda áfram að gera
það gott með liðum sínum í þýsku 1.
deildinni í handbolta. Ómar Ingi
skoraði níu mörk fyrir Magdeburg í
30:25-sigri á Lemgo í gær. Gísli
Þorgeir Kristjánsson bætti við
þremur mörkum fyrir Magdeburg
og Bjarki Már Elísson gerði fimm
fyrir Lemgo. Viggó skoraði sjö
mörk fyrir Stuttgart sem þurfti að
sætta sig við 25:30-tap fyrir Wetzl-
ar. Viggó er í öðru sæti yfir marka-
hæstu menn með 83 mörk og Bjarki
Már í fjórða sæti með 70 mörk.
Fóru á kostum í
Þýskalandi
Ljósmynd/Stuttgart
Tvö Viggó Kristjánsson er í öðru
sæti yfir markahæstu menn.
Nokkrir leikmenn sem hafa verið
fastakonur í íslenska landsliðs-
hópnum í knattspyrnu undanfarin
ár íhuga nú að gefa ekki kost á sér í
komandi landsliðsverkefni sam-
kvæmt heimildum mbl.is og Morg-
unblaðsins. Framtíð landsliðsþjálf-
arans Jóns Þórs Haukssonar er í
óvissu þessa dagana eftir óviðeig-
andi ummæli hans í garð leikmanna
liðsins þegar sæti í lokakeppni EM
2022 var fagnað í Búdapest í síð-
ustu viku. Stjórnarmenn KSÍ munu
funda í vikunni og taka ákvörðun
um framtíð hans. bjarnih@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ísland Jón Þór Hauksson, þjálfari
íslenska kvennalandsliðsins.
Íhuga að gefa
ekki kost á sér
ENGLAND
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Harry Kane, framherji enska knatt-
spyrnufélagsins Tottenham, skoraði
mark númer 250 á ferlinum þegar
liðið vann 2:0-sigur gegn Arsenal í
stórleik ensku úrvalsdeildarinnar á
Tottenham Hotspur-vellinum í
Lundúnum í gær.
Son Heung-min kom Tottenham
yfir strax á 13. mínútu með frábæru
skoti rétt utan teigs og Kane tvöfald-
aði forystu Tottenham með marki í
uppbótartíma fyrri hálfleiks og þar
við sat.
Kane hefur skorað 202 mörk fyrir
Tottenham frá því hann lék sinn
fyrsta leik fyrir félagið árið 2009. Þá
hefur hann skorað 32 mörk fyrir
enska landsliðið, níu fyrir Millwall
þar sem hann var á láni árið 2012,
tvö fyrir Leyton Orient þar sem
hann var á láni árið 2011 og tvö fyrir
Leicester þar sem hann var á láni ár-
ið 2013.
Þá var þetta mark númer 100 sem
Harry Kane skorar á heimavelli
Tottenham í öllum keppnum en
framherjinn er einungis 27 ára gam-
all og á því nóg eftir.
Kane og Son mynda eitt besta
sóknarparið í heimsfótboltanum í
dag en Son hefur skorað tíu mörk í
ensku úrvalsdeildinni á tímabilinu og
er næst markahæstur á meðan Kane
hefur skorað átta mörk í deildinni.
Saman eru þeir með ellefu mörk á
milli sín, það er að segja þar sem
þeir hafa skorað eftir stoðsendingu
frá hvor öðrum.
Aðeins Alan Shearer og Chris
Sutton, Blackburn tímabilið 1995-96,
og Ryan Fraser og Callum Wilson,
Bournemouth 2018-19, hafa skorað
fleiri mörk á milli sín á einu tímabili.
Shearer og Sutton skoruðu þrettán
mörk á milli sín og Fraser og Wilson
tólf, en Kane og Son hafa enn þá
fimm mánuði til þess að gera enn
betur.
Á meðan gengur ekkert hjá Ars-
enal sem er án sigurs í síðustu fjór-
um leikjum sínum í ensku úrvals-
deildinni en síðasti sigurleikur
liðsins var gegn Manchester United
á Old Trafford 1. nóvember.
Þá hefur liðið aðeins skorað eitt
mark í síðustu fjórum leikjum en í
fyrstu ellefu leikjum tímabilsins hef-
ur Arsenal skorað tíu mörk.
Neita að tapa á Anfield
Sigurganga Englandsmeistara
Liverpool á heimavelli sínum Anfield
hélt áfram þegar liðið fékk Wolves í
heimsókn í gær.
Leikmenn Liverpool voru í miklu
stuði gegn slökum Úlfum og unnu af-
ar sannfærandi 4:0-sigur.
Mohamed Salah kom Liverpool
yfir á 24. mínútu en hann hefur nú
skorað 82 mörk í ensku úrvalsdeild-
inni frá því hann gekk til liðs við Liv-
erpool frá Roma sumarið 2017. Þá
hefur hann lagt upp önnur 29 mörk í
deildinni og Egyptinn hefur því
komið að 111 mörkum fyrir Liver-
pool í ensku úrvalsdeildinni.
Þá hefur hann skorað 52 mörk á
Anfield í ensku úrvalsdeildinni en
aðeins Lionel Messi, Barcelona, og
Robert Lewandowski, Bayern
München, hafa skorað fleiri mörk á
heimavöllum sínum frá 2017. Messi
hefur skorað 63 mörk og Lew-
andowski 59 mörk.
Þá voru þeir Georginio Wijnaldum
og Joel Matip einnig á skotskónum
fyrir Liverpool en fjórða mark
meistaranna reyndist sjálfsmark hjá
Nélson Semedo, bakverði Úlfanna.
Liðið er ósigrað á Anfield í 64
leikjum en Liverpool hefur unnið 53
þeirra og gert ellefu jafntefli. Þá hef-
ur Liverpool skorað 169 mörk í þess-
um 64 leikjum og aðeins fengið á sig
42 mörk.
Í síðustu 32 leikjum sínum hefur
liðið unnið 31 þeirra á Anfield en 64
leikir án taps er næstbesti heima-
vallaárangur í sögu efstu deildar
Englands.
Aðeins Chelsea hefur gert betur
en liðið lék 86 heimaleiki án þess að
tapa frá 2004 til 2008.
Enn einn endurkomusigurinn
Manchester United heldur áfram
að snúa leikjum sér í vil en liðið vann
3:1-sigur gegn West Ham á London-
vellinum á laugardaginn eftir að hafa
verið 1:0-undir í hálfleik. Portúgal-
inn Bruno Fernandes kom inn á í
hálfleik og sneri leiknum við. Portú-
galinn hefur verið magnaður fyrir
United síðan hann kom til félagsins
frá Sporting fyrir 68 milljónir punda
í janúar 2020.
Fernandes hefur skorað 22 mörk
og lagt upp önnur 14 í 38 leikjum fyr-
ir United í öllum keppnum.
Hann er að fá nýjan samning hjá
félaginu sem mun gera hann að ein-
um launahæsta leikmanni félagsins
og á hann það svo sannarlega skilið.
Óstöðvandi
sóknardúett
Tottenham
AFP
Sigur Ekkert fær stöðvað þá Harry Kane og Son Heung-min þessa dagana.
Liverpool skoraði fjögur fyrir framan
2.000 stuðningsmenn á Anfield
Spánn
Barcelona – Ademar León ..................36:25
Aron Pálmarsson skoraði 1 mark fyrir
Barcelona
Danmörk
Aalborg – Lemvig ................................24:20
Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal-
borg.
Mors – Holstebro ..................................26:27
Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði 1 mark
fyrir Holstebro.
GOG – Bjerringbro/Silkeborg ..........34:33
Viktor Gísli Hallgrímsson varði 4 skot í
marki GOG.
Frakkland
Aix – Nimes ...........................................30:17
Kristján Örn Kristjánsson skoraði 3
mörk fyrir Aix.
Þýskaland
Füchse Berlín – Melsungen.................32:30
Arnar Freyr Arnarsson skoraði 2 mörk
fyrir Melsungen. Guðmundur Guðmunds-
son þjálfar liðið.
Flensburg – Göppingen.......................30:23
Janus Daði Smárason skorarði 2 mörk
fyrir Göppingen.
Hannover-Burgdorf – Balingen.........25:29
Oddur Gretarsson skoraði 3 mörk fyrir
Balingen
Wetzlar – Stuttgart..............................30:25
Viggó Kristjánsson skoraði 7 mörk fyrir
Stuttgart en Elvar Ásgeirsson ekkert.
Nordhorn – RN Löwen ........................24:29
Alexander Petersson skoraði ekki fyrir Lö-
wen og Ýmir Örn Gíslason var ekki í hópi.
Magdeburg – Lemgo............................30:25
Ómar Ingi Magnússon skoraði 9 mörk
fyrir Magdeburg og Gísli Þorgeir Krist-
jánsson 3.
Bjarki Már Elísson skoraði 5 fyrir
Lemgo.
B-deild:
Emsdetten – Bietigheim......................28:23
Aron Rafn Eðvarðsson varði 11 skot í
marki Bietigheim. Hannes Jón Jónsson
þjálfar liðið.
Hüttenberg – Aue.................................26:16
Sveinbjörn Pétursson varði 2 skot í
marki Aue. Arnar Birkir Hálfdánsson skor-
aði ekki.
Svíþjóð
Ystad – Kristianstad ............................30:28
Teitur Örn Einarsson skoraði 2 mörk
fyrir Kristianstad og Ólafur Andrés Guð-
mundsson 1.
Noregur
Bækkelaget – Drammen .....................29:33
Óskar Ólafsson skoraði 7 mörk fyrir
Drammen
EM kvenna í Danmörku
D-riðill:
Þýskaland – Noregur...........................23:42
Þórir Hergeirsson þjálfar norska liðið.
Pólland – Rúmenía ................................24:28
Staðan: Noregur 4, Þýskaland 2, Rúmenía
2, Pólland 0.
A-riðill:
Slóvenía – Frakkland............................17:27
Svartfjallaland – Danmörk...................19:28
Staðan: Danmörk 4, Frakkland 4, Svart-
fjallaland 0, Slóvenía 0.
B-riðill:
Tékkland – Rússland ............................22:24
Spánn – Svíþjóð .....................................23:23
Staðan: Rússland 4, Svíþjóð 3, Spánn 1,
Tékkland 0.
C-riðill:
Holland – Serbía....................................25:29
Serbía – Ungverjaland..........................26:38
Króatía – Holland..................................27:25
Staðan: Króatía 4, Ungverjaland 2, Serbía
2, Holland 0.
HANDBOLTI
Landsliðskonan Ingibjörg Sigurðar-
dóttir fagnaði í gær norska meistara-
titlinum í fótbolta er lið hennar
Vålerenga vann sannfærandi 4:0-
sigur á Arna-Bjørnar í lokaumferð
norsku úrvalsdeildarinnar.
Ingibjörg kom Vålerenga í 2:0 á
17. mínútu með sínu fimmta marki á
tímabilinu, en hún hefur aldrei skor-
að eins mikið á einu tímabili. Með
sigrinum fullkomnaði hún góða
knattspyrnuviku en Ingibjörg lék all-
an leikinn er Ísland vann Ungverja-
land ytra í undankeppni EM síðast-
liðinn þriðjudag, 1:0, en sigurinn
tryggði íslenska liðinu sæti á loka-
móti EM á Englandi sumarið 2022.
Meistaratitillinn er sá fyrsti hjá
Vålerenga en Lillestrøm er meistari
síðustu sex ára. Ingibjörg gekk í raðir
norska félagsins frá Djurgården í
Svíþjóð fyrir tímabilið og lék 16 af 18
leikjum liðsins í deildinni á leiktíðinni
og var í lykilhlutverki.
Tímabilið er ekki búið hjá Våler-
enga því liðið mætir danska liðinu
Brøndby í 32-liða úrslitum Meistara-
deildar Evrópu og fer fyrri leikurinn
fram 10. desember í Noregi. Þá mæt-
ast Vålerenga og Lillestrøm í úrslita-
leik norska bikarsins þremur dögum
síðar.
Ljósmynd/Vålerenga
Meistarar Vålerenga fagnar fyrsta Noregsmeistaratitlinum í gær.
Ingibjörg skoraði og
fagnaði meistaratitli
Spánn
Fuenlabrada – Valencia ......................61:68
Martin Hermannsson skoraði 11 stig,
tók 2 fráköst og gaf 3 stoðsendingar fyrir
Valencia.
Juventud Badalona – Zaragoza..........88:81
Tryggvi Snær Hlinason skoraði 6 stig,
tók 4 fráköst og gaf 2 stoðsendingar hjá
Zaragoza.
Andorra – Real Betis ...........................72:55
Haukur Helgi Pálsson skoraði 5 stig, tók
10 fráköst og gaf 3 stoðsendingar hjá An-
dorra.
Þýskaland
Chemnitz – Frapport Skyliners .........70:83
Jón Axel Guðmundsson skoraði 15 stig, gaf
5 stoðsendingar og tók 2 fráköst hjá Frap-
port.
Litháen
Pieno Zvaigzdes – Siauliai ..................87:64
Elvar Már Friðriksson skoraði 15 stig,
tók 3 fráköst og gaf 2 stoðsendingar hjá Si-
auliai.
Bretland
Deildabikarinn, undanúrslit
Leicester Riders – Cardiff Met A. ......67:27
Sara Rún Hinriksdóttir skoraði 10 stig,
tók 8 fráköst og gaf 3 stoðsendingar með
Leicester.
KÖRFUBOLTI