Morgunblaðið - 07.12.2020, Page 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 2020
Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
71%
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
STÓRKOSTLEGA VEL GERÐNÝ
MYND FYRIR FJÖLSKYLDUNA
FRÁROBERT ZEMECKIS.
SPLÚNKUNÝ GR ÍNMYND
FRÁBÆR NÝ JÓLA TEIKNIMYND MEÐ
ÍSLENSKU TALI FYRIR ALLA FJÖSLSKYLDUNA.
Með enga tengingu við tíðarandann
nefnist nýútkomin breiðskífa tvíeyk-
isins BRRóðir BIG, þ.e. þeirra Brr
the Beat Maker og Bróður BIG, gefin
út af Birthday Boy Records. Bróðir
BIG, réttu nafni Birkir Kristján Guð-
mundsson, var upphaflega einn á
ferð, áður en Brr the Beat Maker,
réttu nafni Bjarni
Rafn Ragnarsson,
kom til sögunnar
og við bættist eitt
R í Bróður.
Eysteinn Ey-
vindsson hannaði
umslag plötunnar
og Kéz LcF letrið, blaðamaður nefnir
við Birki að það sé nokkuð spaugilegt,
einhvers konar sveitasæla þar á ferð.
„Platan er svolítið tvískipt,“ svarar
Birkir. „Á fyrri partinum er ég að
fjalla um svolítið mikilvæg málefni
sem getur verið svolítið þungt og erf-
itt … bætir upp fyrir allt þetta erfiða.
Plötukóverið er þannig að allt er
voðalega fallegt framan á en allt
voðalega ljótt aftan á,“ segir Birkir en
á afturhliðinni má sjá mengun, dýr
flutt til slátrunar og hunda að grafa
upp beinagrind, svo eitthvað sé nefnt.
Flóttafólk og vegan-skilaboð
– Hvaða erfiðu umfjöllunarefni eru
á neikvæðu hliðinni?
„Til dæmis fjallar lagið „Dúfa“ um
stríð og flóttafólk og lagið „Sjúkt
ástand“ fjallar um hvað við komum
illa fram við dýr, vegan-skilaboð í
því,“ svarar Birkir. Einnig komi við
sögu ill meðferð fólks á öðru fólki og
tveir vinir hans sem nú eru látnir.
„Mig langaði með þessari plötu að
koma frá mér mikilvægum málefnum,
hingað til hef ég aðallega verið að
leika mér með orð,“ segir Birkir. Héð-
an í frá muni hann svo einbeita sér að
því að gera skemmtilega tónlist.
En hvað skyldi þá vera á jákvæðri
hlið plötunnar? „Það er bara eitthvað
skemmtilegt, skemmtilegt rapp með
góðu vibe-i,“ svarar Birkir. Fyrsta
lagið á þeirri hlið heiti „Eina leiðin“
sem snúist um að taka af skarið og
gera sitt sem sé eina leiðin. „Svo eru
þetta bara skemmtilegar rappvísur
og ekki mikill alvarleiki.“
– Þið vinnið saman, þið Brr the
Beat Maker, hvernig rapp aðhyllist
þið? Í hvað sækið þið innblástur?
„Við erum báðir hreinræktaðir
hipphopp-hausar og höfum hlustað á
allt hipphopp síðustu 30 ár. Ég fæ oft
þennan „old school“-stimpil á mig en
ég yrði móðgaður ef fólk færi að kalla
þessa plötu „old school“ því sándið á
henni er svo nýtt. Mér finnst ekkert
„old school“ við þetta þótt trommu-
takturinn sé kannski þetta týpíska
„boom bap“ hipphopp,“ svarar Birkir.
Innblásturinn komi úr öllum áttum
og líka frá annars konar tónlist en
hipphoppi.
Góðir gestir
Friðrik Þór Jóhannsson sá um upp-
tökustjórn og hljóðblöndun plötunnar,
Bróðir BIG um rappið, DJ Bricks um
svokallað plötuklór og Fonetik Simbol
masteraði. Góðir gestarapparar koma
við sögu og bera skrautleg nöfn eins
og rappara er siður: Kött Grá Pjé, Vi-
vid Brain, Peter Overdrive, Morg-
unroði, M.V. Elyahsyn úr Regni, Holy
Hrafn, MC Bjór og Stelpurófan úr
Krakk & Spaghettí. Um hljóðfæraleik
á plötunni sáu hljómborðsleikarinn
Magnús Jóhann Ragnarsson, tromm-
arinn Magnús Trygvason Eliassen og
bassaleikarinn Zakarías Herman
Gunnarsson. Geisladiskar og bolir
verða til sölu á samfélagsmiðlum hjá
Bróður BIG og Brr eða með tölvu-
pósti á brodirbig@gmail.com og verða
vínylplötur framleiddar eftir pönt-
unum. Plötuna má svo finna í staf-
rænni útgáfu á netinu og meðal ann-
ars á Spotify. helgisnaer@mbl.is
Ljósmynd/Geirix
Rímnaflæði Rapparinn Bróðir BIG sést hér einbeittur á tónleikum.
Jákvæðar og neikvæðar hliðar
Breiðskífa dúósins BRRóður BIG, Með enga tengingu við tíðarandann, fjallar um ólíkar hliðar til-
verunnar „Ég yrði móðgaður ef fólk færi að kalla þessa plötu „old school“,“ segir Bróðir BIG
Dóttir hafsins heitir skáldsaga
fyrir ungmenni eftir Kristínu
Björgu Sigurvinsdóttur, sem er
hennar fyrsta skáldsaga og fyrsta
bókin í þríleik sem hún nefnir
Dulstafi. Hún segist lengi hafa
gengið með það í maganum að
skrifa bók og reyndar lagt drög
að henni þrettán ára gömul. „Ég
byrjaði að skrifa tólf ára gömul og
það var eitt af mínum helstu
áhugamálum. Þegar ég var þrett-
án ára skrifaði ég fyrstu útgáfu af
sögunni og hélt svo áfram að
skrifa næstu bækur í þríleiknum
alveg þar á síðasta ári í mennta-
skóla. Þá fór lífið einhvern veginn
á fullt og svo byrjaði svo í lög-
fræði.
Ég varð að einbeita mér að fullu
að lögfræðinni. enda mjög krefj-
andi nám og á meðan lagði ég
skrifin nánast alveg til hliðar. Það
var ekki fyrr en ég var búin að
vinna sem lögfræðingur í tæp tvö
ár að ég tók þetta gamla handrit
upp úr skúffunni og las það aftur.
Það kom mér svona líka skemmti-
lega á óvart og ég ákvað að endur-
skrifa alla bókina en byggja hana
samt á hugmyndunum úr gamla
handritinu.“
Dóttir hafsins segir frá Elísu,
unglingsstúlku sem býr í sjávar-
plássi á Vestfjörðum. Kristín segir
að Vestfirðir hafi orðið fyrir valinu
þar sem veigamikil atburðarás eigi
sér stað í Norður-Íshafi og henni
hafi fundist Vestfirðir passa svo
vel inn í sögusviðið. Elísa segir
hún að sé að einhverju leyti byggð
á henni sjálfri. „Þegar ég skrifaði
bókina 13 ára þá studdist ég við
hvernig ég sjálf hefði mögulega
brugðist við í aðstæðum og reyndi
að setja mig í hennar spor.“
— Þegar Elísa „týnist“ kemur
vel í ljós að raun hugsar allt þorp-
ið um hana, enda standa allir
meira og minna jafnir, en sam-
félagið í sjónum er býsna ólíkt.
„Já, ég vildi hafa þau ólík. Ég
vildi ekki einfaldlega færa menn-
ingu manna neðansjávar heldur
vildi ég búa til eitthvað nýtt og
öðruvísi, hafa aðrar reglur og
hefðir. Eftir því sem maður kynn-
ist marþjóðinni betur var það ein-
mitt mín von að lesandi sæi að
undir hörðu yfirborði leyndist
hlýja og traust vinátta.“
arnim@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Byrjaði ung„Ég byrjaði að skrifa tólf ára gömul og það var eitt af mínum
helstu áhugamálum,“ segir rithöfundurinn Kristín Björg Sigurvinsdóttir.
Elísa leggur á djúpið
Dóttir hafsins er fyrsta bók í þríleik
Kristínar Bjargar Sigurvinsdóttur