Morgunblaðið - 07.12.2020, Side 32

Morgunblaðið - 07.12.2020, Side 32
Karlakórinn Fóstbræður, undir stjórn Árna Harðarsonar, hefur sent frá sér tvöfaldan hljómdisk sem ber heitið Cantico. Á honum eru ný verk eftir íslenska höfunda, Hreiðar Inga Þorsteinsson og Viktor Orra Árnason, sem samin voru fyrir kórinn á 100 ára afmæli hans árið 2016 og valin meistaraverk 20. aldarinnar sem karlakórar um allan heim sækja í. Eru það verk eftir Benjamin Britten, Gustav Holst, Samuel Barber, Randall Thompson, Francis Poulenc og Camille Saint-Säens. Flytjendur, ásamt kórnum, eru Benedikt Kristjánsson tenór og Steinunn Birna Ragnarsdóttir píanóleikari auk kammerhópa sem hljóðfæraleikarar úr Sinfóníuhljómsveit Íslands skipa. Fóstbræður gefa út tvöfaldan disk MÁNUDAGUR 7. DESEMBER 342. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. Tottenahm og Liverpool sitja áfram í toppsætum ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu eftir leiki helgarinnar. José Mourinho og lærisveinar hans fengu Arsenal í heimsókn á Tottenham Hotspur-völlinn og unnu ná- granna sína 2:0. Harry Kane og Son Heung-min skoruðu mörk Tottenham sem tapaði síðast deildarleik 13. sept- ember og virðist til alls líklegt á tímabilinu. Þá skoruðu Englandsmeistarar Liverpool fjögur mörk gegn Wolves þegar liðin mættust á Anfield en Liverpool er ósigrað í síðustu 64 deildarleikjum sínum á Anfield. »27 Baráttan harðnar á toppi ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu ÍÞRÓTTIR MENNING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Um þessar mundir eru sjö ár síðan Sunna Pam Olafson-Furstenau kom sjálfseignarstofnuninni Icelandic Roots (IR) á koppinn í þeim tilgangi að safna saman upplýsingum um sögu og ættir Íslendinga og ís- lenskra vesturfara, veita aðgang að þeim gegn gjaldi og styrkja þannig málefni, sem tengjast Vesturheimi og Íslandi. „Við höfum veitt yfir 102.000 dollara í styrki frá upphafi og þar af um 7.500 dollara í Vest- urheimi og um 5.000 dollara á Íslandi í ár,“ segir hún, um 13 milljónir króna, og leggur áherslu á að IR komi öllum að notum, jafnt Íslend- ingum sem öðrum. Á árlegri Íslendingahátíð í Mount- ain í Norður-Dakóta (August the Deuce) sameinast fjölskyldur, ætt- ingjar og vinir af íslenskum ættum. George A. Freeman byrjaði með ættfræðisetur í tengslum við hana 2003, veitti gestum og gangandi upp- lýsingar um ættartengsl og þess háttar. „Ég gekk til liðs við hann og við notuðum gagnagrunn Hálfdáns Helgasonar, sem ég fékk síðan til af- nota fyrir IR 2013,“ segir Sunna. Ís- lendingum á ferðalagi hafi verið hjálpað við að komast í samband við ættingja í Norður-Dakóta og Mani- toba og upplýsingagjöfin hafi gengið mjög vel. Þegar hún hafi verið beðin um að fara í fyrirlestraferð um Ís- land með erindi sem hún nefndi „The Love of Iceland in America“ 2012 hafi hún opnað netsíðuna ice- landicroots.com til að blogga um ferðina og fræða jafnframt lesendur um Ísland, söguna og íbúa landsins. „Ég hef skrifað yfir 300 blogg, en nú sér sérstakur hópur sjálfboðaliða hjá IR að mestu um skrifin,“ segir hún og áréttar að hún eigi ekki IR, allt starf sé unnið af sjálfboðaliðum og allur hagnaður renni til góðra mála. Hlaðvarp ungs fólks í janúar Sjálfboðaliðar IR eru ekki aðeins í Norður-Ameríku og á Íslandi heldur einnig til dæmis í Ástralíu og Bras- ilíu. Sunna segir að þar á meðal séu 17 ættfræðingar og fimm tæknimenn auk sagnfræðinga, kortagerðar- manna, sérfræðinga í upplýsinga- tækni og svo framvegis. Í ættfræði- grunninum, sem allir geti keypt aðgang að, séu um 707.000 nöfn og um 2.000 manns bætist við mánaðar- lega. Upplýsingar séu af ýmsum toga og þar á meðal megi finna 1.558 kirkjugarða og yfir 26.000 staði, sem tengist fólkinu. „Hópar sjálfboðaliða vinna ómetanlegt starf á hverjum degi,“ segir hún. Ýmislegt er sér til gamans gert hjá IR og þar er til dæmis boðið upp á spjall, mismunandi námskeið og viðburði. Þar má nefna líkamsrækt- arverkefnið „Fótspor til gamans“, sem dró að sér 136 manns, en IR er með um 600 áskrifendur. „IR er ekki einungis nöfn og tölur heldur svo mikið meira,“ segir Sunna og leggur áherslu á að áskrift sé ekki nauðsyn- leg til að taka þátt í ýmsum verk- efnum. „Líkamsræktarverkefnið var sérstök fjáröflun, stóð yfir í átta vik- ur og var frábært. Margir voru með vegna þess að þeir eru hreyknir af ís- lenska upprunanum og við söfnuðum 5.289 dollurum.“ Sunna lítur björtum augum til framtíðarinnar og nefnir að eftir ára- mót fari ungt fólk af stað með hlað- varp (e. podcast), þar sem fjöl- breytnin verði í fyrirrúmi. „Við höldum bara áfram að bæta við og eflast eins og við getum.“ Icelandic Roots Netfundur sjálfboðaliða á Zoom í heimsfaraldri. Sunna Furstenau er önnur til vinstri í efstu röð. Öflugir sjálfboðaliðar  IR hefur styrkt íslensk málefni vestan hafs og austan í sjö ár

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.