Morgunblaðið - 09.12.2020, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 2020
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson
menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Forsvarsmenn sjálfstæðra heil-
brigðisstofnana gagnrýna stjórnvöld
harðlega fyrir að láta kreddu koma í
veg fyrir að öll úrræði séu nýtt í kór-
ónuveirufaraldrinum. Þrátt fyrir
ákall heilbrigðisráðuneytisins um
fleiri hjúkrunarrými hafi boðum um
þau ekki einu sinni verið svarað. Síð-
an hafi komið upp Covid-19-smitin á
Landakoti, sem dregið hafi á annan
tug til dauða.
Þetta kemur fram í viðtali í nýút-
komnu tölublaði Læknablaðsins, en
þar segjast þau Anna Birna Jens-
dóttir, framkvæmdastjóri Sóltúns,
og Teitur Guðmundsson, læknir og
framkvæmdastjóri Heilsuverndar,
hissa á að þau hjúkrunarúrræði, sem
þau hafi boðið, séu ekki virt viðlits af
stjórnvöldum. Á sama tíma og lið-
lega 100 sjúklingar sitji fastir á
Landspítala standi sjálfstætt starf-
andi heilbrigðisstofnanir með tilbúin
sjúkrarúm ónýtt á hliðarlínunni.
Í viðtalinu minnir Anna Birna á að
forstjórar hjúkrunarheimila hafi
fengið tölvupóst frá ráðuneytinu
hinn 5. október, þar sem vandi spít-
alans var áréttaður og beðið um
hjálparhönd – það munaði um hvert
rými. Hún hafi heyrt hvernig þeir
hafi tínt eitt og eitt pláss til en
stærri hugmyndum hafi ekki verið
svarað, frá ráðuneytinu hafi ekkert
símtal borist. „Ekki eitt einasta.“
Landakotssmitin umflýjanleg
Hún dregur ekkert undan um al-
varleika málsins: „Smitin á Landa-
koti vekja upp sorg. Sorg yfir hvern-
ig þetta gerðist. Sorg að ekki sé
löngu búið að laga ástandið. Við
hefðum getað verið löngu búin að
því,“ segir hún.
Teitur Guðmundsson, læknir og
framkvæmdastjóri Heilsuverndar,
hefur nánast hið sama að segja,
fyrirtækinu hafi ekki einu sinni verið
svarað þegar það bauðst til að opna
hjúkrunarrými fyrir um 160 sjúk-
linga, stoðþjónustu fyrir Landspít-
alann; legurými og flæðirými.
Hann velkist ekki í vafa um
ástæðuna fyrir þessari afdrifaríku
tregðu: „Pólitík og peningar.“
Anna Birna tekur í sama streng.
„Þetta snýst um peninga og þekk-
ingarleysi stjórnmálamanna sem
kynnast ekki vandanum fyrr en ætt-
ingi þeirra þarf á þjónustunni að
halda,“ segir hún. Vandinn sem við
sé að etja kristallist í kórónuveiru-
smitunum á Landakoti; lélegt hús-
næði, skortur á mönnun og fræðslu.
Vanda sem hefði mátt afstýra með
framsýni í málaflokknum.
„Ég vona að forsætisráðherra
standi við orð sín um að taka eigi til
hendinni innan málaflokksins,“ bæt-
ir Anna Birna við í viðtalinu í
Læknablaðinu.
Ekki er langt síðan Ásdís Halla
Bragadóttir, framkvæmdastjóri
Heilsumiðstöðvarinnar í Ármúla,
sem rekur meðal annars sjúkradvöl
á Hótel Íslandi, hafði sömu sögu að
segja í fjölmiðlum.
Urðarhvarf Hér hafa stjórnvöldum staðið hjúkrunarúrræði Heilsuverndar til boða, en þau hafa ekki svarað boðinu.
Ráðuneytið slær á hjálpar-
hönd í heimsfaraldrinum
Sakað um tómlæti í Læknablaðinu Landakot afleiðingin
Anna Birna
Jensdóttir
Teitur
Guðmundsson
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það er ekki hægt að bjóða okkur
upp á þetta lengur,“ segir Ásdís
Þorsteinsdóttir, íbúi við Kleppsveg
í Reykjavík.
Mikillar óánægju gætir meðal
íbúa í Laugarnesi með starfsemi
Vöku við Héðinsgötu. Fyrirtækið
flutti í Laugarnesið í byrjun árs og
fljótlega fóru að berast kvartanir til
yfirvalda vegna hávaða, sjónrænna
áhrifa og mögulegrar olíumengun-
ar. Í frétt Morgunblaðsins í maí
kom fram að Heilbrigðiseftirlit
Reykjavíkur og embætti bygging-
arfulltrúa borgarinnar fylgdust
með starfsemi Vöku af þessum sök-
um og umbóta hefði verið krafist.
Um síðustu helgi kom fram í frétt
blaðsins að skipulagsfulltrúi geri
ekki „skipulagslegar athugasemd-
ir“ við starfsemi Vöku en fyrir-
tækið hefur sótt um tímabundið
starfsleyfi út næsta ár. Í tengslum
við þá umsókn hefur Vaka hætt að
stafla bílhræjum á lóðinni við Héð-
insgötu.
Íbúar í hverfinu, sem Morgun-
blaðið hefur rætt við, gefa lítið fyrir
þessar vendingar og óttast að allt
fari í sama farið þegar leyfi hafi
fengist. Tala þeir um „jólahrein-
gerningu“ hjá Vöku og telja óhæft
að fyrirtækinu hafi nokkurn tímann
verið leyft að flytjast á núverandi
stað. Kvartað hafi verið undan há-
vaða sem vakið hafi ungbörn í
hverfinu, olíulykt sem lagt hafi yfir
í sumar og að unglingar hafi átt
greiða leið að bílhræjum á lóðinni.
„Það þekkist hvergi nema hér að
svona starfsemi sé inni í þéttbýli.
Þeir þykjast vera búnir að taka til
en skaðinn er skeður. Hér hefur
lekið niður mikið af spilliefnum og
olíu. Fyrirtækið var aldrei með
leyfi fyrir starfsemi utandyra og
stærir sig svo af því að hreinsa þar
til. Stjórnsýslan hefur ekki staðið í
stykkinu og hér hefur ekkert eft-
irlit verið,“ segir Ásdís.
Íbúar hafa meðal annars komið
óánægju sinni á framfæri við um-
hverfis- og auðlindaráðuneytið. Í
bréfi ráðuneytisins til Umhverfis-
stofnunar vegna málsins, dagsett
25. nóvember síðastliðinn, er rakið
að ráðuneytið hafi sett sig í sam-
band við Heilbrigðisnefnd Reykja-
víkur, Heilbrigðiseftirlit Reykja-
víkur og Umhverfisstofnun til að
umkvartanir þessar kæmust í rétt-
an farveg. Rakin eru ýmis bréfa-
skipti þar sem meðal annars kemur
fram að heilbrigðiseftirlitið upplýsi
að venja sé innan stjórnsýslunnar
að fyrirtæki fái að starfa án starfs-
leyfis meðan unnið sé að því að afla
leyfa. Það á einmitt við um starf-
semi Vöku og er eftirlitshlutverk
Umhverfisstofnunar áréttað í bréfi
ráðuneytisins. Segir að stofnunin
geti lagt stjórnvaldssektir á vegna
brota á banni við að hefja starfs-
leyfisskyldan atvinnurekstur hafi
starfsleyfi ekki verið gefið út. Er
því beint til Umhverfisstofnunar að
taka málið til athugunar.
Málefni Vöku verða tekin fyrir á
fundi íbúaráðs Laugardals næst-
komandi mánudag. Þar verður Líf
Magneudóttir borgarfulltrúi gestur
en auk þess eiga borgarfulltrúarnir
Kristín Soffía Jónsdóttir og Katrín
Atladóttir sæti í ráðinu.
Telja eftirliti með Vöku ábótavant
Íbúar í Laugarnesi kvarta enn undan starfsemi Vöku og furða sig á að hún hafi verið heimiluð Olíu-
lykt lagði yfir hverfið „Skaðinn er skeður,“ segir íbúi Borgarfulltrúar ræða málið á íbúaráðsfundi
Óánægja Íbúar í hverfinu eru m.a. ósáttir við gámastæður á lóð Vöku.
Kínversk yfirvöld hafa tilkynnt Mat-
vælastofnun að frá og með 1. janúar
næstkomandi taki nýjar reglur gildi
um innflutning á sjávarafurðum til
Kína. Ný heilbrigðisvottorð þurfa að
liggja fyrir um vöruna og eiga þau
að taka til allrar framleiðslukeðju af-
urðanna.
Heimsfaraldur kórónuveiru er
sagður ástæða nýrra reglna. Við
breytingar á heilbrigðisvottorði hafa
yfirvöld í Kína einnig sett fram kröf-
ur um upplýsingar um viðbrögð hér-
lendis vegna varna gegn kórónuveir-
unni til að forðast dreifingu smits
með afurðum og umbúðum. Sam-
bærileg erindi hafa m.a. borist
Norðmönnum.
Þorvaldur H. Þórðarson, sviðs-
stjóri markaðsmála hjá Matvæla-
stofnun, segir að unnið sé að málinu
hjá Mast og leitað hafi verið eftir
nánari upplýsingum frá Kína þar
sem ýmislegt sé óljóst. Hann segir
að á þessu stigi hafi ekki verið haft
formlegt samband við framleiðendur
hérlendis.
Íslendingar hafa meðal annars
haft leyfi heilbrigðisyfirvalda í Kína
til að flytja þangað afurðir bæði úr
villtum fiskstofnum og eldisfiski.
aij@mbl.is
AFP
Fiskborð Fiskmarkaður í borginni Hangzhou í austurhluta Kína.
Herða reglur í Kína
Vilja ítarlegri heilbrigðisvottorð