Morgunblaðið - 09.12.2020, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 09.12.2020, Blaðsíða 15
MINNINGAR 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 2020 ✝ Helena BjörgGuðmunds- dóttir, Baddý, fæddist í Landlyst í Vestmannaeyjum 2. maí árið 1936. Hún lést á hjúkr- unarheimili Hrafn- istu 22. nóvember 2020. Foreldrar hennar voru Sig- rún Þórhildur Guðnadóttir hús- freyja, f. 16. janúar 1912, d. 20. desember 1993, og Guðmundur Hróbjartsson skósmiður, f. 6. ágúst 1903, d. 20. ágúst 1975. Systkini voru Guðrún Jónína, f. 17. apríl 1932, d. 6. september 1989, Halldóra, f. 29. nóvember 1934, d. 2. júní 2009, Konráð, f. 30. desember 1938, d. 14. nóv- ember 2016, Sesselja, f. 8. ágúst 1940, d. 9. janúar 1987, þar til þau fluttu til Reykjavík- ur 1968. Helena byrjaði ung að syngja og söng m.a. í barnakór KFUM og K og í kirkjukór Vestmannaeyja frá 15 ára aldri þar til hún flutti til Reykjavík- ur. Hún hóf að syngja með Pólýfónkórnum fljótlega eftir komuna til Reykjavíkur og söng með honum í tíu ár, einn- ig var hún í kirkjukór Bústaða- kirkju og síðan sungu þau hjónin saman í kór eldri borg- ara Vesturgötu 7, Söngfuglum, og kór eldri borgara í Reykja- vík Stangarhyl 4. Þau hjónin fóru í mörg ferðalög á vegum kóranna meðal annars til Stokkhólms, Ítalíu og Austur- ríkis með Pólýfónkórnum. Með kór eldri borgara fóru þau til Pétursborgar í Rússlandi og Helsinki í Finnlandi. Einnig ferðuðust þau mikið með félag- inu Akoges innanlands og er- lendis. Þau byggðu sér sum- arbústað á Laugarvatni 1978. Helena verður lögð til hinstu hvílu 9. desember 2020 frá Ás- kirkju að viðstöddum nánustu ættingjum. Lárus, f. 1. sept- ember 1942, d. 24. október 2016 og Guðni, f. 6. októ- ber 1948, d. 13. ágúst 2000. Baddý giftist eftirlifandi eigin- manni sínum, Arn- ari Sigurðssyni frá Hellissandi, f. 15. nóvember 1931, þann 27. desember árið 1956 í Vestmannaeyjum. Börn þeirra eru: Guðrún, f. 17. mars 1956, Þór, f. 18. janúar 1962 og Arndís, f. 20. sept- ember 1968. Barnabörn eru Arnar Magnússon, Magnús Magnússon og Helena Ólöf Snorradóttir. Baddý og Addi byggðu sér hús á Bakkastíg 29 í Vest- mannaeyjum og bjuggu í því Amma hét Helena en var allt- af kölluð Baddý. Helena þýðir hin bjarta og í mínum huga var amma bjartur ljósgeisli; kona sem var til staðar fyrir alla og þá sérstaklega fyrir mig og mömmu. Sem barn var ég mikið heima hjá ömmu og afa og var heimili þeirra mitt annað heimili, þau sóttu mig á leikskólann sem lítið barn en þegar ég varð eldri labbaði ég til þeirra og amma fór með mig í píanótíma, horfði á mig í fimleikum og á sumrin var ég með þeim í sumarbústaðnum á Laugarvatni. Þegar ég kom á Háaleitisbrautina eftir skóla og engin skipulögð dagskrá beið okkar var fyrsta spurning henn- ar: „Ertu ekki svöng, engill?“ og svo bauð hún mér upp á weeta- bix með sykri, te með sykri og kruðum eða grjónagraut með miklum kanilsykri, alltaf fullt af sykri, allt gert til að gleðja mig, litla sólargeislann. Ég man sérstaklega eftir því að vera undir borðstofuborðinu með ömmu, hún var þá búin að breiða stórt teppi yfir það, troða dýnu undir og skríða á fjórum fótum með mér inn í húsið okk- ar. Þar lék hún við mig, stundum sungum við, stundum las hún fyrir mig eða við slökuðum örlít- ið á. Ég eyddi líka dágóðum tíma með ömmu inni í sjónvarpsher- bergi að horfa á Animal planet og hoppa í sófanum á meðan hún mataði mig á peru með kjöthníf eða mokaði upp í mig annarri hollustu. Þetta er dásamleg minning sem lýsir henni svo vel, ég vildi ekki borða en hún náði að láta mig gleyma mér um stund og mataði mig á meðan. Amma var hjartahlý kona með óhefðbundnar aðferðir í uppeldinu. Hún hafði ekkert á móti því að leyfa mér að hoppa, ég þurfti mikið að hoppa enda orkumikið barn og þegar hún kom til okkar í Fellsmúla tók hún dýnurnar úr rúminu hennar mömmu, raðaði þeim þvert yfir stofuna og leyfði mér að hoppa þangað til ég varð þreytt, þá skottaðist ég til henn- ar og knúsaði hana í stutta stund og fór svo aftur að hoppa. Í minningunni fékk ég alltaf að gera það sem mig langaði þegar ég var með henni en uppáhalds- minningin mín er ljúf stund þeg- ar hún las fyrir mig Dísu ljósálf. Það er bók sem mun alltaf eiga sérstakan stað í hjarta mínu, því fyrir mér er það bókin okkar ömmu. Minningar mínar um ömmu eru minningar barns um tíma þar sem ég var í aðalhlutverki og allt gert til að láta mér líða sem best. Fyrir þessar stundir verð ég alltaf þakklát. Ég kveð þig elsku amma mín með þakklæti fyrir allt og bið þig að passa afa. Þín dótturdóttir, Helena Ólöf Snorradóttir. Slokknað hefur á sjöunda kertinu í sjöarma kertastjaka Landlystarsystkina. Þessi hópur sem samanstóð af sjö manneskj- um sem allar voru fullkomnar í sínum ófullkomleika. Þessi heild sem bjó yfir svo miklum styrk og breiðu vænghafi að þau okkar sem þar nutu skjóls skynjuðu áþreifanlegt öryggi sem aldrei hverfur. Hjartans Baddý, móðursystir mín, hefur verið hluti af tilveru minni alla tíð. Ef eitthvað bjátaði á var gott að koma á Háaleit- isbrautina til þeirra hjóna. Þar var öruggt að þaðan yrði gengið út með góð ráð, stuðning og góð- an hug. Öruggt var að þvotta- húshurðin var opin og sjaldnast bankað á dyr áður en ruðst var inn til þeirra hjóna. Alltaf var hellt upp á kaffi og gætt að því að rjúkandi dökksvart kaffið væri fyrirmyndar spákaffi. Ofn- inn undir eldhúsglugganum var funheitur, kaffisopinn tekinn með vissu, bollanum hvolft rang- sælis og réttsælis og að endingu krossmerki gert. Bollinn með framtíðinni var lagður á ofninn til þerris. Svona var þetta ára- tugum saman, alltaf kíkt í bolla. Ekki var það síður mikilvægt að deila með Baddý gleðiefnum lífs- ins því hún kunni að samgleðjast hverju gæfuspori sem tekin voru. Hún Baddý var falleg kona, svo falleg að maður gat gleymt sér við að horfa á hana, þykkt hárið, lakkaðar neglur, teinrétt og tignarleg með göngulag sem varla snerti jörðina. Baddý var hógvær og lítillát kona, tilheyrði stórum systkinahópi sem sum hver þurftu meira pláss en aðrir. Það þarf samt enginn að halda að hógværð Baddýjar þýddi að hún hefði ekki skoðanir og stað- festu enda varla annað hægt eft- ir áratuga sambúð með honum Adda. Þau voru mörg minningar- brotin um æskuna í Eyjum sem rifjuð voru reglulega upp. Sögur af ungri stúlku sem flakkaði með vinkonum og systrum milli staða til að syngja í kirkju og söfn- uðum. Þegar hún og Dóra frænka sungu með kirkjukór Bústaðakirkju undir tryggri stjórn litla bróður þeirra, hans Guðna. Það var hátíðlegt að sitja á fyrsta í aðventu með stolti og hlusta á þessar englaraddir og oftar en ekki var sameinast á eftir yfir heitu súkkulaði. Hún frænka mín lét ekki þar við sitja, söng með Pólýfónkórnum og þegar aldurinn færðist yfir söng hún með kórum eldri borgara með honum Adda sínum. Það er einhvern veginn að þegar talað er um Baddý þá fylgir Addi alltaf með. Þau voru eining sem varð sterkari og fal- legri eftir því sem árin liðu. Hann Addi bar hag Baddýjar alltaf fyrir brjósti svo aðdáunar var vert. Eftir að Baddý veiktist kom nýr Addi til sögunnar, mað- ur sem gekk í öll húsverk, setti í þvottavél, eldaði allan mat og það sem skipti hann mestu var Baddý. Alltaf var passað upp á að hún væri fallega klædd og vel til höfð. Ég vil þakka þér Addi fyrir þann kærleik og virðingu sem Baddý fékk frá þér allt til hinsta dags, það er enginn einn með Adda í liði. Núna nálgumst við hátíð ljóss- ins og setjum í gluggana sjö- arma aðventuljós. Á himnum loga þau fallega sameinuð, ljósin okkar sjö. Elsku hjartans Baddý mín, ég kveð þig núna eins og þú varst vön að kveðja mig, Guð blessi þig engillinn minn. Þín systurdóttir, Gyða Björg Olgeirsdóttir. Fjórar systur, hver annarri glæsilegri, koma upp í huga minn þar sem ég sit að kvöldi dánardags elsku fallegu Baddýj- ar frænku. Fjórar systur og þrír bræður frá Landlyst í Vest- mannaeyjum birtast mér og það eru læti í þeim, fyrirgangur og hlátur. Þau klára setningarnar hvert fyrir annað og hlæja hátt. Já, ég sé þau saman eins og ég man þau fyrir fáum en um leið mörgum árum því tíminn er afstæður í heimi minninganna. Ein stærsta gjöfin sem systkinin frá Landlyst gáfu okkur krökk- unum í fjölskyldunni var sam- vera. Samvera systkinanna frá Landlyst skapaði yndislegar æskuminningar sem fylla hjarta mitt þakklæti en um leið sökn- uði. Með þakklæti minnist ég elsku Baddýjar móðursystur minnar sem alltaf var svo gott að koma til. Æskuheimili mitt var stutt frá heimili Baddýjar og Adda og því var ég ekki há í loft- inu þegar ég tók að leggja alein upp í ferðalög yfir til Baddýjar frænku. Eftir að hafa bjargað mér inn um þvottahúsdyrnar tók frænka alltaf á móti með hlýju, kallaði mig engil eða öðrum fal- legum orðum og gaf eitthvað gott í gogginn. Einmitt þannig tók Baddý á móti litlu stúlkunni, mér, fram á fullorðinsár og alltaf stóðu dyrn- ar ólæstar á þvottahúsinu. Inn um sömu dyr hef ég gengið með manninn minn og börn sem öll voru svo lánsöm að fá að finna fyrir þessari sömu hlýju og vel- vild í hvert einasta skipti sem inn var komið. Eldhúskrókurinn hjá Baddý og Adda hefur alla tíð verið stað- urinn til að hittast yfir kaffibolla, spjalla um daginn og veginn, þiggja góð ráð og ekki síst að fá að heyra sögur úr Eyjum sem einhverra hluta vegna var ekki hægt að fá nóg af. Gestrisnin var alltaf slík að Baddý fannst hún aldrei vera búin að bera nægi- lega mikið á borð og var umhug- að um að enginn færi úr hennar húsi með tóman maga. Að minnast Baddýjar er óhjá- kvæmilegt án þess að nefna Adda á nafn í leiðinni því nafn annars þeirra kallar ávallt á hitt í sömu andrá. Bæði hafa þau reynst mér og mínum svo ein- staklega vel í gegnum árin og ómetanlegt að hafa átt þau bæði að ekki síst eftir að mamma og pabbi féllu frá. Fyrir það er ég þeim báðum óendanlega þakklát. Í dag kveðjum við ekki aðeins fallega manneskju sem gegndi sínu margbrotna hlutverki í líf- inu heldur er einnig komið að endalokum í sögu systkinanna frá Landlyst sem hvert og eitt litaði lífið með sínum eigin fal- lega lit og blæbrigðum. Guð blessi minningu Baddýjar frænku. Olga Hrönn Olgeirsdóttir. Elsku Baddý er farin frá okk- ur. Þar fór síðasta blómið úr fal- legum blómvendi sem hægt er að kalla þau systkinin frá Land- lyst í Vestmannaeyjum. Það er skrítið að núna eru þau öll farin, samankomin á bjartan góðan stað, stóri samrýndi hópurinn. Mér finnst ég heyra lætin og hláturinn í þeim og sérstaklega í systrunum fjórum, þeim Gunnu, Dóru, Baddý og Sellu. Þær systurnar voru fyrir mér sem eitt og ólu okkur systkina- börnin upp líka sem stóran systkinahóp, jú fjölskyldan er númer eitt og því ber að sinna eftir bestu getu, það skipti öllu. Baddý var falleg kona enda drottning, góð, ráðagóð og alltaf gott að koma heim til þeirra hjóna á Háaleitisbrautina. Þar var alltaf heitt á könnunni, mikið spjallað og ekki vantaði ráðin sem mér voru gefin. Þar var nú líka tekist á yfir kaffibollum um lífsins málin enda er það svo skemmtilegt í minningunni, tala nú ekki um hvað við spáðum í bollana. Henni Baddý minni fannst hún nú aldrei gera nóg fyrir mann. Það talaði hún alltaf um, fannst hún alltaf geta gert betur en minningin um hana er allt önnur. Það sem mér þykir svo vænt um var hversu góð hún var við mig þegar ég tvítug, nýbúin að missa mömmu og eignaðist hana Gunnu mína, kunni lítið og var óörugg. Oft í viku kom hún til mín snemma á morgnana í kaffi þegar ég var ein heima og myrkfælin. Hún gaf sér góðan tíma að sitja hjá mér og kenna mér til verka sem móðir, vera mér stuðningur og hvetja til dáða. Ekki var það nú ósjaldan sem hún laumaði í vas- ann hjá manni, því alltaf vildi hún gefa. Þegar þau hjónin fóru utan fékk maður gjafir og á ég nú ófáa jóladúkana sem munu og hafa verið notaðir til margra ára. Baddý og Addi sáu nú líka til þess að Gunna mín ætti falleg föt, jólakjóla, dót og dúkkur. Baddý var hafsjór af fróðleik enda las hún mikið og hafði gam- an af því að segja frá góðum bókmenntum. Hún sagði mikið frá lífinu og uppvaxtarárunum í Vestmannaeyjum. Síðustu árin fann maður hvað hana vantaði mikið, að hún átti ekki systkinin sín lengur. Það tók á hana. Sökn- uðurinn hjá henni var mikill. Ég byrjaði greinina á að minnast á systkinin frá Landlyst í Vest- mannaeyjum og ég mun líka enda minninguna þar. Núna ertu komin til þeirra elsku Baddý mín. Það var gott að vera hjá þér þegar þú skildir við. Mér fannst ég finna nærveru þeirra og ég veit að þau biðu þín með opna arma, gleði og hlýju. Núna í dag kveðjum við þig með söknuði en með dásamlegum minningum sem eru dýrmætar og þær glat- ast ekki. Fallegt var að sjá hversu vel þinn heittelskaði eig- inmaður hann Addi sá um þig af ást og alúð í þínum veikindum. Baddý var Adda sínum allt og Addi var Baddý allt. Guð geymi þig, elsku móðursystir mín. Bið að heilsa til ykkar allra, þangað til við hittumst næst. Þín, Þórhildur Ýr Olgeirsdóttir. Við kveðjum í dag elskulega móðursystur mína, Baddý. Baddý var þriðja í hópi sjö systkina sem kennd eru við Landlyst í Vestmannaeyjum. Foreldrar hennar voru Guð- mundur Hróbjartsson, f. 1903, frá Kúfhóli í A-Landeyjum, og Sigrún Þórhildur Guðnadóttir, f. 1912 í Njarðvík í Borgarfirði eystra. Þegar þær systur rifjuðu upp æskuárin fannst mér ævintýra- blær yfir þeim. Hvernig afi og amma kynntust í Vestmanna- eyjum og felldu hugi saman. Afi, vélstjóri, veiktist af löm- unarveiki 35 ára gamall. Hafði farið veikur á sjó og farnaðist því verr. Amma þá 26 ára, ófrísk að Konna, Baddý á öðru ári, mamma fjögurra ára og Gunna sex ára. Síðar bættust Sella, Lárus og Guðni í hópinn. Fyrirvinnan óvinnufær. Lamað- ur. Lærði skósmíðar og með góðra manna hjálp var skóverk- stæðið byggt. Amma útsjónarsöm húsmóðir sem eldaði svo bragðgóðan mat, engin þvottavél fyrstu árin. Saumaði á börnin. Vakti á nótt- unni á aðventu við bakstur og saumaskap. Börnin vel til fara. Amma sem varalitaði sig allt- af og greiddi hárið áður en afi kom niður í mat. Gleði og samheldni réð ríkj- um. Útikamarinn. Þegar mamma hnuplaði glæsilegri klósettsetu frá nágrannakonu og þurfti hnípin að skila aftur. Þær syst- ur svo nánar, sváfu í einu rúmi austurí og hlustuðu á mýslurnar hlaupa milli þilja. Frostrósir á gluggum. Landlyst næstelsta húsið í Eyjum og fyrsta fæðing- arstofnun landsins. Keyra pabba sinn á eins konar sér- útbúnum kassabíl. Það var aldrei talað um skort, erfiðleika eða fátækt en auðvitað hafa aðstæðurnar mót- að líf Baddýjar. Þegar ég hugsa um Baddý fyllist hjarta mitt gleði og hlýju. Mér fannst nafnið hennar svo fallegt, Helena Björg, hugsaði um Helenu fögru. Hárið dökkt, þykkt og glansandi. Grannvax- in, spengileg, létt á fæti, rösk og drífandi. Hlý, heiðarleg, hrein- skilin, skipulögð, óeigingjörn og vinnusöm. Brosið og smitandi hláturinn. Það leyndi sér aldrei ef Baddý var í heimsókn. Baddý var mjög söngelsk og hafði fallega sópranrödd. Hún byrjaði snemma að syngja ein- söng með barnakórnum þrátt fyrir að vera hlédræg og feimin. Ég hef ekki tölu á þeim kórum sem hún söng í. Baddý starfaði sem húsmóðir stærstan hluta ævinnar. Henni fórst það vel úr hendi. Heimili hennar og Adda var öllum opið. Fagurkeri. Hún málaði, negldi, boraði, gekk í öll verk. Allt virt- ist svo fyrirhafnarlaust og létt. Hún hafði mikið yndi af lestri, útsaumi og tónlist. Hún var alla tíð fallega til fara, jafnvel í vinnugallanum. Hlúði að stórfjölskyldunni. Kvartaði aldrei þrátt fyrir þung áföll. Máttarstólpi. Góð við menn og málleysingja. Kærleikur og samheldni milli Landlystarsystkinanna var ein- stök. Þau þurftu ung að spjara sig og treysta hvert á annað. Systurnar fylgdust að í barn- eignum. Við vorum heimagang- ar hvert hjá öðru. Mörkin stundum óskýr en skilaboðin skýr: Mitt er þitt og þitt er mitt. Það hefur án efa skilað sér í einstaklega samheldnum hópi systkinabarna. Addi bar Baddý á höndum sér. Hann stóð sem klettur við hlið hennar uns yfir lauk. Ég kveð hana með söknuði, þakklæti og gleði. Hún lifir í hjörtum okkar. Þórhildur Sigtryggsdóttir. Með fráfalli elskulegrar móð- ursystur minnar er komið að ákveðnum kaflaskilum hjá stór- fjölskyldu minni. Elskuleg Baddý var ein af sjö systkinum sem kenndu sig við Landlyst í Vestmannaeyjum og nú hafa þau öll kvatt þessa jarðvist. Baddý var einstaklega glæsileg kona, teinrétt, grönn og virðuleg og ávallt var heimili hennar og Adda opið fyrir mig og systur mínar. Það var svo notalegt að kíkja til hennar og Adda og sitja og spjalla um heima og geima yf- ir kaffibolla í eldhúsinu á Háa- leitisbraut 25. Nú þegar ég hugsa til Baddýjar þá heyri ég háu röddina hennar ásamt hlátri og rödd Dóru systur hennar og mömmu minnar hennar Gunnu. Þær systur voru einstaklega fal- legar, samrýndar, háværar, ráð- ríkar og hláturmildar og ég vil trúa því að nú séu systkinin frá Landlyst sameinuð í gleði, söng og hlátri. Ég bið góðan guð að blessa minningu elsku Baddýjar og ég og fjölskylda mín vottum elsku Adda, Arndísi, Guðrúnu, Þór og fjölskyldum þeirra okkar dýpstu samúð. Sigríður Bína Olgeirsdóttir. Ég var fimm ára að fara með foreldrum mínum í mína fyrstu flugferð, ferðinni var heitið á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, sumarið 1961. Arnar bróðir mömmu hafði kvænst inn í stóra fjölskyldu í Eyjum, kona hans hét Helena Björg, aldrei kölluð annað en Baddý. Þetta var mikil ævintýraferð að hitta Baddý, Adda frænda og Guðrúnu frænku sem er jafngömul mér og allt fólkið hennar Baddýjar í Landlyst sem er mjög tónelskt fólk og skemmtilegt. Baddý var grönn glæsileg kona með fallega söngrödd. Hún var listakokkur og bakaði bestu randalínutertu fyrir jólin. Addi frændi og Baddý byggðu sér fal- legt hús í Heimaey með áræðni og dugnaði á erfiðum tímum á Íslandi þar sem harka og útjóna- semi einstaklinga skiptu sköpum um framgang þeirra í lífinu. Addi var hörkuduglegur og Baddý var honum sterkur bak- hjarl en allt lék í höndunum á henni varðandi heimilið. Þegar þau fluttu til Reykja- víkur á Háaleitisbrautina var oft mikill gestagangur á fallega heimilinu þeirra, alltaf líf og fjör við eldhúsborðið og málefni líð- andi stundar rædd og Addi með pólitíkina á hreinu. Ekki má gleyma jólaboðunum og fallega lifandi furujólatrénu sem þau voru með og allar kræsingarnar á boðstólum, alltaf mikið fjör, svo var slides-myndasýning þar sem gamla tímann bar á góma. Baddý fór í Pólyfónkórinn og þar naut fallega söngröddin hennar sín og seinna fóru þau hjónin saman í kór Söngfugla og seinna Kór eldri borgara. Baddý og Addi eignuðust, auk Guðrún- ar frænku, Þór og Arndísi en fjölskyldan var einstaklega sam- hent í gegnum tíðina. Hin síðari ár var yndislegt að fylgjast með hversu samhent Baddý og Addi voru, keyrandi út á Seltjarnarnes til að fylgjast með fuglalífinu og sérstaklega kríunum sem veitti þeim mikla gleði. Stundum komu þau í kaffi til okkar Stefáns og strákanna hérna á Nesinu, en þá hurfu árin og fólk og löngu horfnir tímar birtust aftur ljóslifandi og auð- vitað fylgdi pólitíkin með. Minn- ing um yndislega konu úr Land- lyst mun lifa og ég og fjölskyld- an vottum Adda börnum og fjölskyldu okkar innilegustu samúð. Guðrún Bryndís Harðardóttir. Helena Björg Guðmundsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.