Morgunblaðið - 09.12.2020, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 09.12.2020, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 2020 Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg Fæst í verslunum okkar á Selfossi og í Ármúla 42 KINDAsögur 2. BINDI að Fjallabaki. Páll segir að á miðju sumri, þegar faraldurinn hægði á sér, hafi útlendingum fjölgað. Komum þeirra hafi fækkað að nýju og allt farið í lás þegar tvöföld skimum var tekin upp við komuna til landsins 19. ágúst sl. Klárum gönguna alla leið Páll segir að strangir verkferlar hafi gilt í skálunum allt þetta ár; hólfaskipting, stýring á salerni, eld- hús og gistirými, tveggja metra regla, grímuskylda síðari hluta sumars og spritt um allt. Skálaverðir og farar- stjórar hafi staðið sig eins og hetjur Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Verulegur samdráttur varð í gisti- nóttum í skálum Ferðafélagsins á Laugaveginum í sumar. Nokkuð sem mátti búast við í kjölfar kórónuveiru- faraldursins, að sögn Páls Guð- mundssonar framkvæmda- stjóra. Hann segir hins vegar sér- staklega ánægju- legt hversu vel gestir hafi tekið tilmælum um per- sónulegar smit- varnir. Niðurstaðan sé sú að ekkert smit hafi komið upp í skálunum, né annars staðar á vettvangi Ferða- félagsins, sem sé eftirtektarverður árangur í nábýlinu á fjöllum því þrátt fyrir allt hafi þúsundir gesta gist í skálum Ferðafélagsins. Í stað 14 þúsund gistinátta eins og sumarið 2019 voru gistinæturnar í skálunum á Laugaveginum um sex þúsund á liðnu sumri. Samdrátturinn nemur um 60% og segir Páll að Ferðafélaginu hafi tekist að aðlaga starfsemina að þessum samdrætti. Íslendingar voru um 70% gesta í sumar, sem er kúvending frá árunum á undan þegar útlendingar voru um og yfir 90% skálagesta í Friðlandinu og skilaboðin frá sumrinu séu að hægt sé að ná árangri með því að fylgja sóttvarnareglum. „Við erum að tala um mikinn fjölda fólks í ferðum og fjallaverkefnum og allt þetta fólk á mikið hrós skilið. Það er hægt að ná árangri í baráttunni við veiruna með því að fylgja sóttvarna- reglum. Um leið vitum við að smit getur komið upp hvenær sem er og hjá hverjum sem er. Við bönkum því í borðið og segjum 7, 9, 13. Nú þegar stutt er eftir á tindinn skiptir máli að sýna þrautseigju og dug og klára gönguna alla leið,“ segir Páll Guð- mundsson. Fækkun í fjallaskálum  Ekkert smit á vettvangi Ferðafélagsins  Strangir verkferlar Páll Guðmundsson Ljósmynd/Ferðafélagið-Erla Af Dýjadalshnúk Ferðafélagið skipuleggur margvísleg fjallaverkefni. Margrét Þóra Þórsdóttir Akureyri „Við erum himinsæl með þetta sam- starf,“ segir Steingrímur Birgisson, forstjóri Bílaleigu Akureyrar. Fyrir- tækið mun um komandi áramót taka við umboði á Íslandi fyrir húsbíla- keðjuna Touring Cars, TCR, sem er í hópi þeirra stærstu á húsbílaleigu- markaðnum, var með á bilinu 80 til 90 bíla á Íslandi þegar mest var. Sá floti bætist við þá upp undir 150 bíla sem Bílaleiga Akureyrar á og leigir út. Steingrímur segir að forsvars- menn Touring Cars hafi af fyrra bragði haft samband við Bílaleigu Akureyrar og óskað eftir viðræðum um samstarf. Þeim lauk svo með und- irritun á samstarfssamningi sem gildir að minnsta kosti til næstu fimm ára. „Við erum afskaplega ánægð og stolt með þessa miklu viðurkenningu á okkar góða starfi, en við höfum starfrækt húsbíladeild hjá okkur um langt skeið, eða í 45 ár.“ Góð viðbót við reksturinn TCR er ein af stærri húsbílakeðj- um heims, með starfsstöðvar í 12 löndum, á fjöldann allan af húsbílum og hefur yfir að ráða góðum hópi fastra viðskiptavina. „Þetta er virkilega góð viðbót við okkar rekstur og styrkir mjög okkar starfsemi í tengslum við útleigu á húsbílum,“ segir Steingrímur og bætir við að starfsfólk Bílaleigu Akureyrar muni í kjölfar samstarfs- ins eiga þess kost að sækja námskeið á vegum TCR, t.d. varðandi almenna afgreiðslu, þjónustu við viðskiptavini, viðhald bílanna og allt sem þeim við- kemur og hafi þannig aðgang að yfir- gripsmikilli þekkingu á þessu sviði. „Fyrirtækið hefur verið starfandi um langt skeið og starfsfólk býr yfir mikilli alþjóðlegri reynslu sem við fáum aðgang að.“ Þá bætir hann við að um þekkt vörumerki sé að ræða, einkum í Evr- ópu, og með samstarfinu náist einnig innkaupasamband varðandi varahluti og viðhald sem og kaup á bílum. Húsnæði dugar en bæta þarf við starfsfólki Samstarfið kalli ekki á miklar breytingar á húsbíladeild Bílaleigu Akureyrar, en fyrirtækið á um það bil 150 húsbíla. Húsnæði sé fyrir hendi sem ekki þurfi að gera breyt- ingar á, en fyrir liggur að umsvif muni aukast og að bæta þurfi við starfsfólki eftir því sem eftirspurn eykst aftur á næstu árum. Steingrímur segir að starfsemi húsbíladeildar hafi vaxið í áranna rás. Einkum hafi útleiga á slíkum bílum aukist undanfarin fjögur til fimm ár. Erlendir ferðamenn voru svo gott sem einu viðskiptavinir fyrirtækisins í húsbíladeildinni, en á liðnu sumri brá svo við að Íslendingar þeystu um landið í miklum mæli á húsbílum sem þeir tóku á leigu. „Fólk fór lítið sem ekkert til út- landa og landsmenn voru hvattir til að ferðast innanlands. Það var greini- legt að landsmenn tóku þann bolta á lofti og óku um landið, m.a. í tölu- verðum mæli á húsbílum sem þeir leigðu,“ segir hann. Hagkvæmur ferðamáti Steingrímur telur að ferðaþjón- ustan verði komin í svipað horf og fyrir kórónuveiru eftir nokkur ár, 2023 til 24. „Þetta mun taka tíma en við verð- um vel undirbúin og með góðan flota af húsbílum sem og öðrum bílum auð- vitað. Það hefur færst í vöxt að er- lendir ferðamenn kjósi að ferðast um landið í húsbíl. Það er hagkvæmt, þeir eru þá með ökutæki og gistingu klára og geta ráðið hvert leiðin liggur hvern dag,“ segir hann. Bílarnir eru misstórir, algengast er að leigja tveggja manna bíla en þeir eru líka til stærri, fjögurra manna og upp í bíla sem hafa gistirými fyrir sex manns. Semja við stóra húsbílakeðju  Bílaleiga Akureyrar gerir samstarfssamning við húsbílakeðjuna Touring Cars  Allt að 90 húsbílar bætast við 150 bíla flota sem fyrir er  Mikil viðurkenning á okkar starfi, segir Steingrímur Birgisson Ljósmynd/Bílaleiga Akureyrar Húsbílar Floti Bílaleigu Akureyrar telur nú um 150 húsbíla en með samningi við Touring Cars bætast við allt að 90 bílar. Hér er einn við Foss á Síðu. Morgunblaðið/Margrét Þóra Forstjóri Steingrímur Birgisson stýrir Bílaleigu Akureyrar. Hann segir samninginn við Touring Cars afar mikilvægan fyrir bílaleiguna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.