Morgunblaðið - 09.12.2020, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.12.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 2020 DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is GÆÐI OG ÞÆGINDI SÍÐAN 1926 DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á. Systurflokkarnir Samfylking ogViðreisn keppast við að sverta sjávarútveginn í landinu. Ólafur Marteinsson benti á nýlegan pistil Benedikts Jóhannessonar sem af- bakað hefði vísitölur sjávarútvegs, sem er fjármagnsfrek atvinnugrein, til að gera greinina tortryggilega:    Til þess að dragafram hversu fjármagnsfrek at- vinnugrein sjávar- útvegur er og hversu mikilvægt það er að eiginfjár- staða sjávarútvegs- fyrirtækja sé sterk þá má nota samlík- ingu Benedikts um útgerð og íbúðar- húsnæði, en kannski í aðeins öðru sam- hengi en Benedikt býður upp á.    Það kostar um átta milljarðakróna að smíða frystitogara eins og Sólberg ÓF frá Ólafsfirði, en fasteignamat alls íbúðarhúsnæðis á Ólafsfirði er um sjö milljarðar króna. Benedikt bregður gjarnan yfir sig blæju frjálslyndis, víðsýni og sanngirni. En bak við grímuna er maður sem hirðir ekki um stað- reyndir, beitir talnabrellum til þess að leiða upplýsta umræðu af vegi.    Hann reynir að læða inn þeimótta að útgerðarmenn séu að eignast allt Ísland. Það er líklega af ráðnum hug að hann notar alltaf orðið útgerðarmenn í stað sjávar- útvegsfyrirtækja, enda er það í takt við skrumskælingu hans um að sjáv- arútvegur hafi að geyma örfáa ein- staklinga sem maka krókinn. Það er auðvitað fjarri sanni.    Benedikt segist vera maðurfrjálslyndis, sanngirni og víð- sýni, en er bara, þegar nánar er að gáð, ísmeygileg útgáfa af popúl- ista.“ Ólafur Marteinsson Ísmeygileg útgáfa STAKSTEINAR Benedikt Jóhannesson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Umferðin á höfuðborgarsvæðina fer hægt vaxandi þessa dagana þrátt fyrir sóttvarnatakmarkanir en er eftir sem áður miklu minni en á sama tíma fyrir ári. Í seinustu viku jókst umferðin yfir lykilmælisnið Vega- gerðarinnar um 2,4% frá vikunni á undan. „Svo virðist sem umferðin sé hægt og bítandi að aukast og ljóst að reglur um sóttvarnir hafa ekki sömu áhrif á umferðina núna og reyndin varð í vor. Eigi að síður mælist gríð- armikill samdráttur,“ segir í umfjöll- un Vegagerðarinnar, sem birtir nú vikulega niðurstöður umferðarmæl- inga. Sé litið á umbreytinguna frá síðasta ári kemur í ljós að umferð á höfuðborgarsvæðinu var 16% minni í seinustu viku en í sömu viku í desem- ber í fyrra. Í greiningu Vegagerðarinnar á þróun umferðarinnar í þriðju bylgju veirufaraldursins kemur fram að umferðin dróst mest saman í 42. viku ársins, þ.e.a.s. frá 12.-18. október, eða um rúmlega 23% „en síðan þá má greina að samdrátturinn hafi hægt og rólega en sveiflukennt orðið minni og minni“, segir þar. Í seinustu viku dróst umferðin saman frá sömu viku í fyrra um 23,2% á Hafnarfjarðarvegi, 16% á Vesturlandsvegi og um 11,6% á Reykjanesbraut. omfr@mbl.is Umferðin eykst hægt og bítandi  Umferðin á höfuðborgarsvæðinu er nú 16% minni en á sama tíma í fyrra Morgunblaðið/Eggert Bílar Umferðin fer jafnt og þétt vaxandi á höfuðborgarsvæðinu. ELKO mun á morgun opna nýja verslun sína á Akureyri, við Tryggvabraut 18 með aðgengi frá Furuvöllum. Húsnæðið er um 1.000 fermetrar að flatarmáli og innréttað frá grunni miðað við nýtt útlit versl- anakeðjunnar. Starfsmenn verða 10 talsins í föstu starfi en búist er við öðrum eins fjölda í hlutastörfum. Opnun ELKO á Akureyri hefur staðið til um nokkurt skeið en ýmsar áskoranir hafa komið upp við að opna nýja verslun við 10 manna sam- komutakmarkanir, segir í tilkynn- ingu frá fyrirtækinu. Með nýjum sóttvarnareglum, sem taka gildi á morgun, verður þó hægt að fjölga viðskiptavinum í einu inni í versl- unum. Haft er eftir Hauki Má Her- geirssyni, verslunarstjóra á Akur- eyri, að með opnuninni sé stigið stórt skref í átt að því að færa þjón- ustu og vöruúrval nær viðskipta- vinum ELKO á Norðurlandi. Verslunin verður opnuð klukkan 11 á morgun. „Hugað verður að öllum sótt- vörnum eins og best verður á kosið, grímuskylda í verslun og viðskipta- vinir taldir inn,“ segir Haukur Már. ELKO opnar nýja verslun á Akureyri  1.000 fermetra húsnæði við Tryggvabraut Ljósmynd/ELKO Akureyri Ný raftækjaverslun ELKO verður opnuð á morgun klukkan 11.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.